NT - 13.11.1985, Blaðsíða 12

NT - 13.11.1985, Blaðsíða 12
Miðvikudagur 13. nóvember 1985 12 Neyðin er meiri en margur hyggur: Sextándi hver Reykvíkingur hefur sagt sig „til sveitar“ - vandinn er mestur hjá einstæðum foreldrum ■ Nær 4. hvert barn sem býr með einstæðu foreldri sínu í Reykjavík, rúmlega 5. hvert einstætt foreldri í borginni og um 8. hver ellilífeyrisþegi eru meðal skjólstæðinga fjöl- skyldu- og ellimáladeildar Félagsmálastofnunar Reykja- víkurborgar. Alls eru þessir skjólstæðingar 5.345 manns (3.156 mál) sem er rúmlega 6% eða um 16. hver af öllum íbúum höfuðborgarinnar. Af þessum 5.345 einstaklingum á vegum ellimáladeildar, en 4.067 á vegum fjölskyldudeild- ar, þar af 1.493 börn 16 ára og yngri. Tölur þessar eru úr Árs- skýrslu Félagsmálastofnunar. Yfir 20% einstæðra foreidra Af skýrslu þessari virðist ljóst að einstæðir foreldrar og börn þeirra er sá þjóðfélags- hópur sem við hvað bágastar aðstæður býr hlutfallslega. Nærri helmingur 66 ára og yngri skjólstæðinga fjölskyldu- deildar, eða 1.640 af rúmlega 4 þús. sem fyrr greinir, eru úr þessum hópi. Rúmlega5. hver, eða 640 af um 3 þús. einstæð- um foreldrum í borginni hefur leitað aðstoðar fjölskyldu- deildar. Á framfæri sínu höfðu þessir einstæðu foreldrar 1.000 börn 16 ára og yngri, sem er tæplega fjórðungur allra barna (4.047) einstæðra foreldra í Reykjavík, og þar með meira en 2/3 af öllum þeim börnum sem mál fjölskyldudeildar Félagsmálastofnunar fjalla um. Um80afþessumeinstæðu foreldrum eru með 3-6 börn á framfæri. (Hjón með sama barnafjölda eru 69.) Hver fjölskylda er talin sem eitt mál, þannig að mál ein- stæðra foreldra eru 640 af alls 2.044 málum fjölskyldudeildar sem fyrr segir. Pá snerta 244 mál hjón eða sambúðarfólk með samtals 493 börn á fram- færi, eða alls 981 einstakling. Um helmingur málanna, eoa 1.033, varða hins vegar jafn marga einstaklinga 67 ára og yngri. Nær fjórðungurinn verkafólk Um 36% þeirra sem leitað hafa aðstoðar (miðað við fjölda mála) eru öryrkjar og sjúklingar. Tæplega fjórð- ungurinn er verkamenn og verkakonur, en næst fjölmenn- asta starfsstéttin 5% stundaði skrifstofustörf. Um 6. hver var atvinnulaus. Aðeins 19% búa í eigin húsnæði, en 44% voru leigjendur þar af um þriðjung- urinn á vegum borgarinnar. Um 9% búa í verkamannabú- stöðum, en 16% hjá foreldrum eða eru húsnæðislausir. Skýrsl- an sýnir ekki hvernig þessi skipti eru hjá hverjum hópi sérstaklega. Um 5. hvert mál vegna óreglu Um ástæður aðstoðarbeiðna hafa þeir sem eftir leita og starfsmenn Félagsmálastofn- unar skiptar skoðanir. Nær 2/3 umsækjenda segja ástæðuna ónógar tekjur eða húsnæðis- vandræði, annað hvort eða hvorttveggja. Það gildir t.d. um alla nema einn þeirra 125 sem eru á vegum áfengisdeild- ar, en aðeins 3 þeirra að mati Félagsmálastofnunar. Hjá 110 þeirra telur starfsliðið höfuð- ástæðurnar áfengi og fíkniefni og í 6 tilfellum afbrot - og það sama á við í alls 389 tilvikum, eða nær 5. hverju máli. í um 500 tilvikum telja starfsmenn ónógar tekjur, fjárhagsvanda og húsnæðisvandræði höfuð- ástæður og í tæplega 500 tilfell- um öðrum örorku eða veik- indi. í 119 málum eru ástæðurnar taldar vandi barna og unglinga og í 87 málum skilnaðarmál eða sambúðarerfiðleikar. í hópi hinna öldruðu eru um 3/4 málanna vegna ellisjúkdóma ,eða annarra veikinda og 255 tilvik vegna ónógra tekna og húsnæðisleysis. Yfir 4. hvert mál 6 ára eða eldra Af rösklega 3 þús. málum hafa 859 verið til meðferðar 6 ár eða lengur, en 1.187 bættust við á síðasta ári. Af rösklega 2 þús. málum fjölskyldudeildar voru 1.455 afgreidd með fjár- hagsaðstoð, en aðeins 158 af rúmlega þúsund málum hjá ellimáladeild. Þá má geta þess að 80 aðilar fengu búslóð sína geymda hjá borginni á síðasta ári án nokkurrar annarrar að- stoðar, sem trúlega hefur þá verið vegna húsnæðisleysis. Fjárlagaræða Þorsteins Pálssonar: Verulegur árangur í stjórn ríkisfjármála Tekjur ríkissjóðs munu nema 33,2 milljörðum króna en út- gjöld 32,8 milljörðum króna ■ „Fjárlög ríkisins eru með beinum eða óbeinum hætti hluti af heimilishaldi hverrar einustu fjölskyldu í landinu og hvers einstaklings. í þeim er fólgin engu minni fjölskyldu- pólitík en efnahagspólitík, ef menn vilja greina viðfangsefn- ið þannig sundur," sagði Þor- steinn Pálsson í framsögu sinni fyrir fjárlagafrumvarpinu á Al- þingi í gær. Dágóður hluti af hinu hefðbundna ræðuhaldi í byrjun fjárlagaumræðunnar snerist um nýgerðar breytingar á því frumvarpi sem áður var lagt fram. „Stefnt er að nokkurri lækk- un tekna frá því sem kynnt er í frumvarpinu eða 300 m.kr. og gjöld verði lækkuð um 574 m.kr. Rekstrarafkoma ríkis- sjóðs verður því 397 m.kr. sem er nokkru betra en fram kemur í frumvarpinu. Auk þess er ráðgert að lækka er- lendar lántökur ríkissjóðs um 500 m.kr. og er þetta gerlegt vegna bættrar rekstrarafkomu og einnig með aukinni inn- heimtu afborgana og lækkun lánveitinga og hlutafjárfram- laga,“ sagði Þorsteinn. í máli hans kom einnig fram að er- lendar lántökur fyrirtækja -neð eignaraðild ríkissjóðs ■kka um 300 m.kr., horfið verður frá áformum um frekari söluskattsálagningu sem nem- ur 400 m.kr., og felldar verða niður undanþágur á aðflutn- ings- og sölugjaldi þannig að tekjur aukast um 100 m.kr. Hluti af þeim breytingum sem Þorsteinn boðaði snúast um rekstur og launaútgjöld ríkisins. Alls er ætlunin að taka um 300 m.kr. af þeim þáttum með því að minnka „ferða- og bílakostnað, risnu og aðkeypta þjónustu“ og með því að ráða ekki í þær opin- beru stöður sem losna eða að ráða starfsfólk til afleysinga. Stórlega dregið úr erlendum lánum Einstakir liðir í fjárlögum sem Þorsteinn nefndi sem stór- vægilega í niðurskurðinum eru m.a. frestun á gangsetningu Blönduvirkjunar og lækkun á lántöku Þróunarfélagsins. „Samtals er því um að ræða samdrátt í umsvifum og er- lendum lántökum hins opin- bera um 1,2 milljarða króna, en þar af fara 800 m.kr. til að draga úr erlendum lántökum," sagði Þorsteinn í ræðu sinni. Ef tillit er tekið til títtnefndra breytinga munu heildartekjur ríkissjóðs verða 33,2 milljarð- ar króna á árinu 1986 en heildarútgjöld verða á sama hátt 32,8 milljarðar. Að lokinni ræðu fjármála- ráðherra tók Geir Gunnarsson til máls og rakti það sem hann nefndi „einstæða sögu“ frum- varpsins og vísaði þá til þess að hinn svokallaði Stykkis- hólmsfundur Sjálfstæðis- flokksmanna hefði hafnað fjárlagafrumvarpinu. Þetta væri bullandi vantraust á ríkis- stjórnina sem átt hefði að dyija með stólaskiptum. Geir sagði að „nefnd sláturleyfis- hafa“ hefði síðan fengið það verkefni að skera enn frekar niður en gert var í upphaft og átaldi það sem hann nefndi ótæk vinnubrögð ríkisstjórn- arinnar við að kynna stjómar- andstöðunni niðurstöður þeirrar sexmannanefndar sem ætlað var að undirbúa breyt- ingar á frumvarpinu. Svavar talaði um landsfundinn Svavar Gestsson kvaðst ekki sjá neina ástæðu til þess að ræða gamalt eða nýtt fjárlaga- frumvarp þar sem þetta væru ómerk plögg. í stað þess fjall- aði hann um landsfund Al- þýðubandalagsins sem lauk fyrir skömmu og þær stjórn- málaályktanir sem fundurinn samþykkti. í framhaldi af því gagnrýndi hann ríkisstjórnina harkalega og sagði Álþýðu- bandalagið vera „nýtt afl til að breyta vonum í veruleika“. Sighvatur Björgvinsson lýsti yfir óánægju sinni með undir- búning og efni fjárlagafrum- varpsins og sagði að nýgerðar breytingar væru ekki til þess fallnar að bæta það því að niðurskurður hér og þar skil- aði aldrei neinum árangri. Sig- hvatur gerði skattheimtu að umtalsefni og sagði að grund- vallarforsendur þess að unnt væri að innheimta skatta á árangursríkan hátt, einfald- leika og réttlæti, væri ekki að finna í frumvarpinu. í síðari hluta ræðu sinnar lýsti hann nokkrum tillögum til úrbóta varðandi tekjuöflun og útgjöld ríkissjóðs. Kristín S. Kvaran sagði það vanvirðu við þjóð og þing að umrætt fjárlagafrumvarp væri lagt fram í núverandi formi með þeim hætti sem raun er á. Sérstaklega með tilliti til þess að það fororð væri á frumvarp- inu að ekkert væri að marka það. „Það er til háborinnar skammar fyrir þjóð sem á fengsælustu fiskimið í heimi,“ sagði Kristín er hún lýsti því sem hún nefndi fórnarlömb stjórnarstefnu ríkistjórnar- innar. Guðmundur Bjamason lagði áherslu á fjögur megin- áhersluefni í máli sínu. I fyrsta ■ Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra mælti fyrir fjármálafrum- varpinu í gær á Alþingi. lagi að dregið yrði úr þenslu í þjóðarbúskapnum, í öðru lagi að dregið yrði úr viðskipta- halla og verðbólgu, í þriðja lagi að erlend skuldasöfnun yrði stöðvuð, og í fjórða lagi að jafnvægi yrði náð í ríkisút- gjöldum. „Velferðarkerfið er og verður varið, á það munum við framsóknarmenn leggja áherslu," sagði Guðmundur. „Steffna stjórnarinnar stórhættuleg“ Kristín Halldórsdóttir taldi fjárlagafrumvarpið vera yfir- iýst sem ómarktækt og fyrir hönd Kvennalistans mótmælti hún framgangi fyrrnefndra breytinga á frumvarpinu. Hún taldi engar tryggingar vera fyr- ir því að þetta væru endanlegar tölur og því væri enginn grund- völlur til þess að fjalla um einstaka liði þess. „Ljóst er að stefna þessarar ríkisstjómar í efnahagsmálum er stórhættu- leg,“ sagði Kristín og rakti síðan stefnumál Kvennalistans með tilvísan til nýlokins lands- fundar. Þorsteinn Pálsson kvaddi sér hljóðs í annað sinn og sagði umræðurnar hafa verið athyglisverðar um margt. Meginniðurstaðan hlyti að vera sú að verulegur árangur hefði náðst í stjórn ríkisfjár- mála með þessu fmmvarpi þar sem málflutningur stjórnar- andstöðunnar snerist um allt annað en frumvarpið sjálft. Hann vísaði á bug þeim stað- hæfingum að fjárlagafrum- varpið væri ómerkt vegna þeirra breytinga sem gerðar hefðu verið á því. „Breytingar á erlendum gjaldeyrismörkuð- um lágu þar að baki,“ sagði Þorsteinn. Hann bætti því við að það hefði tekist að ná meiri og betri jöfnuði í rekstri ríkis- ins heldur en að var stefnt og að jafnframt hefði verið stigið skref í átt til þess að breyta fjárlagagerðinni. I svari sínu við einstökum athugasemdum þingmanna sagði fjármálaráð- herra m.a. að hann teldi ekki að stighækkandi eignaskattur væri vænlegur vegna þess að eignadreifing væri býsna jöfn í landinu.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.