NT - 13.11.1985, Side 17

NT - 13.11.1985, Side 17
Miðvikudagur 13. nóvember 1985 17 Villtir hestar horfnir í Kína - en nóg af villtum ösnum ■ Nýleg könnun kín- verskra náttúrufræðinga leiddi í ljós að mongólskir villihestar eru nú alveg horfnir af grassléttum Norð- ur-Kína. Hins vegar sást þar slangur af villtum ösnum. Þegar eigendur bandarísks dýragarðs í San Diego í Kali- forníu heyrðu þessi slæmu tíðindi ákváðu þeir að gefa Kínverjum ellefu mongólska hesta til að hjálpa þeim við að koma upp nýjum stofni villihesta. Hestarnir eru nú í dýra- garði í Xinjiang-héraði í Norðvestur-Kína, en að sögn kínversku fréttastofunnar Nýja Kína verður þeim fljót- lega sleppt út á slétturnar. Kínverjar sendu átta fágæt dádýr til dýragarðsins í San Diego í þakkarskyni fyrir hestagjöfina. Hræðileg fuglahræða ■ Borgaryfirvöld í Bris- bane í Ástralíu hafa látið taka niður fuglahræðu eða „fuglafælu" af ráðhúsi borg- arinnar, en hún var svo hræðileg að hún hræddi ekki aðeins dúfur burt heldur fældi hún einnig fólk frá ráð- húsinu. Fuglahræðan var búin raf- eindatækjum sem gáfu frá sér ámátlegt væl. Embættis- menn borgarinnar sögðust ekki geta unnið við þennan hávaða og vegfarendur kvörtuðu einnig yfir vælinu í fuglahræðunni. Áður hafði borgarstjórnin reynt að nota plastsnáka til að halda burtu dúfum sem skitu út eignir borgarinnar, en dúfurnar voru ekki hræddar við „snákana”. Fuglafræ með getnaðar- varnarlyfjum dugði heldur ekki til að bægja dúfnaplág- unni burt. Ástralía: Kona rennur til á franskri kartöflu - ogfærtæplega 900.000 islenskar krónur í skaðabætur ■ Konu nokkurri sem rann til á kartöflubita í stórmark- aði hafa verið dæmdar sem svarar tæpum níu hundruð- um þúsunda íslenskra króna í skaðabætur. En samt fær konan, Fenn- eken Deniet. aðeins í sínar hendur sem samsvarar tæp- um sex hundruð þúsundum íslenskra króna vegna gá- leysis hennar að hafa ekki tekið eftir kartöflubitanum þar sem hann lá á gólfinu fyrir hunda og manna fótum. Héraðsdómstólnum í Perth var nýlega gert Ijóst að fallið hefði valdið Deniet miklum þjáningum þar eð hún er með gervimjaðma- grind. Dómarinn lýsti því yfir að Coles stórmarkaðurinn hefði einnig sýnt af sér vítavert gáleysi þareð kartöflubitarn- ir sem lágu eins og hráviði um gólfið, lágu þar í að minnsta kosti 25 mínútur án þess að nokkur hefði sýnt viðleitni til að hreinsa þá upp. „Gólfið var hált fyrir en kartöflubitarnir juku stór- lega hættu viðskiptavina á falli,“ sagði í Heenana dóm- ari í samtali við fréttamenn. Ringo Starr og Barbara Bach tala við blaðamenn. Ringo afi vill leika guðföður ■ Jæja, nú ættu kvikmynda- framleiðendur ekki að vera í neinum vafa um hvern þeir velja í hlutverk „guðföður", ef þeir halda áfram með þessar Mafíu-myndir. Ringo Starr hefur komið sér upp útliti sem hæfir „godfather-hlutverk- inu“. Annars eru nýjustu frétt- ir af Ringo þær, að hann hafi orðið afi nýlega og sé mjög ánægður í afahlutverkinu. Með skeggið sitt, sigarett- una í samanbitnum munni og þessi dökku gleraugu er Ringo eins og „ekta Mafíu-maður", eins og Barbara konan hans sagði, en hún var svolítið áhyggjufull á svipinn, þegar allt þetta Mafíu-tal kom upp á blaðamannafundi. Ringo lék eitt sinn í kvik- rnynd steinaldarmann í hellis- skúta, en kannski kemst hann nú nær nútímanum í næstu mynd, og húsakynni hans verða þá lítið eitt glæsilegri en dimmur hellir steinaldar- mannsins. Japanskir sól- ardýrkendur ■ Japanskir sólardýrkendur. Dökkt hörund þótti Ijótt og streyma út á strcndur landsins Til skamms tíma forðuðust allir kepptust við að halda sér þegar sumarleyfin byrja og Japanir sólargeislana eins og sem ljósustum. En nú er þetta steikja sig á sólinni þótt þeir pestina þar sem þeir óttuðust að breytast eins og svo margt viti að þeir dökkni örlítið við að hörundið myndi dökkna. annað í Japan. Ungir Japanir það. flokksstarf T Siglfirðingar - Sauðkrækingar Landssamband framsóknarkvenna heldur námskeið i fram- sóknarhúsinu við Suðurgötu Sauðárkróki fyrir konur og karla á öllum aldri. Námskeiðið verður haldið dagana 15., 16. og 17. nóvember n.k. og hefst það kl. 20.00 15. nóv. Veitt verður leiðsögn í styrkingu sjálfstrausts, ræðumennsku, fundarsköpum og framkomu i útvarpi og sjónvarpi. Leiðbeinendur verða þær Inga Þyri Kjartansdóttir og Guðrún Jóhannsdóttir. Þátttaka tilkynnist hjá Halldóru í síma 96-71118 og Guörúnu í síma 95-25200. Fólk er eindregið hvatt til að nota sér þetta sérstaka tækifæri. L.S.K. Konur Suðurnesjum Landssamband framsóknarkvenna heldur fimm kvölda nám- skeið fyrir konur á öllum aldri í framsóknarhúsinu við Austurgötu sem hefst 18. nóvember n.k. kl. 20.00. Veitt verður leiðsögn í styrkingu sjálfstrausts, ræðumennsku, fundarsköp- um og framkomu í útvarpi og sjónvarpi. Leiðbeinandi verður Drifa Jóna Sigfúsdóttir. Þátttaka tilkynnist til Drífu í síma 92-3764 eða Þórunnar í síma 24480. Spilafólk takið eftir Hin árlega þriggjakvölda spilakeppni Framsóknarfélagsins í Árnessýslu hefst að Borg í Grímsnesi í Þjórsárveri föstudag- inn 15. nóvember kl. 21. og endar að Flúðum föstudaginn 22. nóvember kl. 21. Glæsileg verðlaun að verðmæti um 60.000 kr. Meðal annars utanlandsferð og margt góðra muna. Framsóknarfélag Árnessýslu. Viðtalstímar Halldór E. Sigurðsson verður til viðtals jf á skrifstofu félagsins að Rauðarárstíg 18, mánudaga til fimmtudags kl. 13.30- 15.30, fyrst um sinn. Jfe t Framsóknarfélag Reykjavíkur. IVa Keflavík Fundur verður haldinn hjá fulltrúaráði Framsóknarfélaganna i Keflavík mánudaginn 18. þ.m. kl. 20.30 í Framsóknarhúsinu Austurgötu 26. Fundarefni: Undirbúningurbæjarstjórnarkosn- inganna 1986. . Stjórnin. Héraðsbúar - Austfirðingar Jón Helgason, landbúnaðarráðherra, heldur almenna fundi um landbúnaðarmál á eftir- töldum stöðum: Valaskjálf á Egilsstöðum, laugardaginn 16. nóv. kl. 14.00. Staðarborg í Breiðdal, sunnudaginn 17. nóv. kl. 15.00. Allir velkomnir.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.