NT - 13.11.1985, Side 24

NT - 13.11.1985, Side 24
ÞA I SIMA 6S-65-6 Vid tökum við abendingum um fréttirallan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrirhverja ábendingu sem leiðir til fréttar i blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt NT, Síðumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300 Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • ritstjórn 686392 og 687598 • íþróttir 686495 Landssamband gegn áfengisbölinu: Lýsir stuðningi við Jón Helgason ■ Stjórn Landssambands gegn áfengisbölinu hefur lýst eindregnum stuðningi við Jón Helgason dómsmálaráð- herra, sem hefur, eins og segir í fréttatilkynningu frá landssambandinu, tekið upp virkt samstarf við áfeng- isvarnarnefndir. Hvetur stjórnin ráðherra til áframhaldandi og aukinn- ar baráttu í þessum efnum og skorar á aðra ráðamenn þjóðarinnar að stvðja að- gerðir hans þjóðinni til heilla. Stuðningsyfirlýsingin er til orðin í ljósi þessa að rann- sóknir hafa leitt í ljós að vímuefni það sem fólk byrjar á að neyta er áfengið og ryður það síðan brautina fyr- ir önnur sterkari efni, segir í fréttatilkynningunni. Aðildarfélög að landssam- bandi gegn áfengisbölinu eru 28 talsins. Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins: Breytt í sjálf- stætt fyrirtæki? ■ „Eölilcgast er að Rann- sóknastofnun fiskiðnaðarins verði rekin sem sjáflsejgnar- stofnun, þ.e. sem sjálfstætt fyrirtæki undir stjórn aðila fisk- vinnslu, útgerðar og sjávarút- vegsráðuneytisins," sagði Alda Möller í erindu sínu á fiskiþingi í gær. Hún taldi að með því móti væri auðveldara að skapa tengsl og fá beinni þátttöku fiskiðnaðarins í starfi og verk- efnavali stofnunarinnar. Nú þegar felst um helmingur af starfsemi stofnunarinnar í þjón- ustumælingum, og samfara auknum kröfum um ýmis konar mælingar og meiri áhugi fyrir- tækja og samtaka þeirra í gæða- málum og vöruþróun, má reikna með að þessi þáttur komi til með að aukast. Komi til breytingar af þessu tagi myndi ríkið hætta beinum fjárframlögum til stofnunarinn- ar en styrkja ákveðin rannsókn- arverkefni, um leið og beinar hagnýtar rannsóknir færðust mcir til atvinnugreinarinnar sjálfrar. Alda sagði ennfremur að máliö hafi þegar verið rætt innan stofnunarinnar og búið væri að kynna það sjávarútvegs- TF-Sif afhent ■ Ný þyrla Landshelgisgæsl- unnar var afhent fyrir helgina í Frakklandi og er hún væntanleg til landsins um næstu helgi. Þyrlunni, sem er af Dauphin- gerð, verður flogið hingað til lands og er áætlað að ferðin taki þrjá daga. Þessi mynd var tekin við af- hendingu þyrlunnar TF Sif í Frakklandi. Frá vinstri standa Jón Pálsson yfirflugvirki, Gunn- ar Bergsteinsson forstjóri Land- helgisgæslunnar og Páll Hall- dórsson flugmaður. Eins og myndin ber með sér eru beyglur á húsi þyrlunnar svo eitthvað virðist hafa gengið á í reynslufluginu ytra. Gunnar Bergsteinsson hafði ekki skýringar á beyglunum á reiðum höndum þegar NT talaði við hann. ráðherra. Frekari útlistun á þessum hugmyndum er vætnan- leg á næstu vikum. Af einstökum málum á þing- inu spunnust lengstar umræður um fiskveiðistjórnun á næstu árum, en framsögu fyrir þeim dagskrárlið hafa Hjörtur Her- mannssón frá Vestmannaeyj- um. Eins og við var að búast voru skoðanir manna nokkuð skiptar um þetta mál, en í höfuðatriðum voru umræðurnar framhald þeirra skoðanaskipta sem átt hafa sér stað á fundum og þingum aðila sjávarútvegsins á undanförnum mánuðum. Nokkuð áberandi var sú skoðun að frumvarp sjávarútvegsráð- herra væri þokkalegur ramrni fyrir stjórnunina þó menn hefðu ýmislegt út á gjldistíma og ein- stök atriði þess að setja. Málflutningur Arthúrs Boga- sonar áheyrnarfulltrúa frá smá- bátaeigendum fékk þokkalegan hljómgrunn, en hann gerði það að tillögu sinni að þingið sam- þykkti áskorun um afnám hafta á sókn smábáta, og að stjórn- völd bættu trillukörlum upp tekjumissi af því þriggja mán- aða veiðibanni sem fyrirhugað eraðhefjistþann 16. nóvember. Á þinginu í gær voru lagðar fram nýjustu tölur Fiskifélagsins um afla báta undir 10 lestum, en hann er orðinn 23.684 tonn alls. Par af er þorskur 21.839 tonn. Milli landsfjórðunga skiptist afl- inn þannig, að á Suður- og Suðvesturlandi hafa veiðst 7.820 tonn, á Vestfjörðum 4.963, á Norðurlandi 5.398 og á Austfjörðum 5.521 tonn. Borgardómur: Dæmir Ávöxtunarfélagið til að skipta um nafn - þótti of líkt Ávöxtun hf. ■ „Við ætlum að halda félagsfund bráðlega, þar sem tekin verður afstaða til þess hvort við áfrýjum eða ekki“, sagði Pétur Blöndal framkvæmdastjóri Ávöxt- unarfélagsins hf., í samtali við NT, en nýlega var kveð- inn upp dómur í borgar- dómi í máli Ávöxtunar s.f. og Ávöxtunarfélagsins hf., þess efnis að síðarnefnda aðilanum væri óheimilt að nota nafn þetta í firma sínu, á þeim forsendum að það líktist um of nafninu Ávöxtun hf. „Það var mat dómarans í þessu máli að menn gætu ruglað saman nöfnunum, þótt við höfum ekki orðið varir við það. Raunar er starfsemi þessara fyrirtækja ólík, Ávöxtunarfélagið er sjálfstætt fyrirtæki sem hef- ur aðeins starfsemi eininga- bréfa á sinni könnu, en Ávöxtun s.f. starfar á nokk- uð öðru sviði. Við sáum því enga ástæðu til þess að breyta nafninu þegar Ármann Reynisson í Ávöxtun sf. fór þess á leit við okkur.“ Pétur sagði ennfremur að hann teldi ólíklegt að stjórn fyrirtækisins hefði hug á því að standa í frekara mála- stappi um nafnið, en hygð- ist hlýta úrskurði dómarans sem segir að Ávöxtunarfé- lagið skuli innan 15 daga frá lögbirtingu dómsins afmá nafnið úr hlutafélaga- skrá að viðlögðum sektum ásamt því að greiða stefn- anda málskostnað. Hann vildi þó ekki fullyrða neitt frekar um málið á þessu stigi, bíða yrði eftir úr- skurði félagsfundar. Eyfirðingar: Ná betri bónus- , samning en VMSÍ ■ Fiskvinnslufólki við Eyjafjörð tókst að ná mun hagstæðari bónussamningi en Verkamannasambandið gerði fyrr í haust. Mun bónussamn- ingur verkalýðsfélagsins Ein- ingar gefa fiskverkunarfólkinu rúm 8% umfram það sem VMSÍ samdi um. Greiddi verkafólkið atkvæði um samn- inginn í gær og fyrradag og voru 275 samþykkir, 81 and- vígur en átján skiluðu auðu og ógildu. Höfuðkrafa Einingar var að hlutur bónussins í heildar- laununum minnkaði og hlutur fastakaupsins ykist. Sagði Jón Helgason í samtali við NT í gær, að þessi samningur væri spor í þá átt, en vissulega hefðu þeir viljað komast enn lengra, en þar sem tíminn væri óhagstæður og margir búnir með kvótann í sjávarplássun- um út með firðinum, t.d. á Dalvík og Ólafsfirði, var það hald manna að ekki yrði lengra komist í þessari lotu. Samkvæmt þessum samningi verður lágmarksbónusinn 114,76 kr. á tímann og bilið milli þeirra sem fá há- marksbónus og lágmarksbónus lækkar úr 140% í 122,50%. Samningurinn rennur úr 31. mars án uppsagnar. Jón sagði að það gæti skipt sköpum ef mörkuð yrði ákveð- in stefna á þingi VMSÍ, sem haldið verður um helgina, í bónusmálunum. „Takist ekki samkomulag innan Verka- mannasambandsins um að minnka misréttið. er ekki að búast við því að breytinga sé von í þjóðfélaginu.“

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.