NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 19.11.1985, Qupperneq 19

NT - 19.11.1985, Qupperneq 19
 Dziekanowski skoraði ■ Pólverjar sigruðu heimsmeist- ara Ítalíu 1-0 í vináttulandslcik í knattspyrnu sem hádur var á laug- ardag. Leikið var á snœvi þöktum velli i Chorzow og var hitastig fyrir neðan frostmark. Þetta kunnu ítal- ir illa að meta og náðu sór aldrei á strik í leiknum. Darius Dziekanowski skoraði eina mark leiksins með góðu skoti af 20 metra faeri. Hinn 23 ára gamli Dziekanowski, sem leikur með Legia Varsjá, var besti maðunnn á vellinum en félagi hans, Zbigniew Boniek, sást litið i leiknum þar sem hann var i strangri gæslu. NTd hefur áður nefnt Dziekan- owski sem nafn er menn ættu að leggja á minnið fyrir næstu heims- meistarakeppni í Mexíkó og er það itrekað hér. Þriðjudagur 19. nóvember 1985 19 fþróttir islandsmótið í handknattleik 1. deild kvenna: Gurrý styrkir Fram Hópkata: Gorpla-Karl Gauti Hjalatason, Kristín Einarsdóttir og Helgi Jóhannosson. Kata unglinga: Halldór Narfi Stefánsson, Þórshamri. Kata kvenna: Krístín Einarsdóttir, Gerplu. - Er nú byrjuð af krafti og Fram vann létt - Víkingur vann KR og Stjarnan sigraði Hauka Sigþór Markússon, Þórshamri, sýnir Grími Pálssyni undir fót sinn í viðureign þeirra í kumite karla. Gerpla snéri blaðinu við ■ Það er greinilegt að Guðríð- ur Guðjónsdóttir styrkir lið Fram heilmikið en hún er nú byrjuð að leika með liðinu af krafti í 1. deild kvennahandbolt- ans eftir nokkurt hlé. Um helg- ina sigruðu Framstúlkurnar lið F.H. með 22 mörkum gegn 16 og var Gurrý þar í einu af aðalhlutverkuum. Fram náði strax forystunni í leiknum og lét hana aldrei af hendi. Ingunn Bernódusdóttir var atkvæðamikil til að byrja Svissneska knattspyrnan: Gott hjá Guðmundi Skoraði sigurmark Baden - Skellur hjá Sigga og Ómari I Guðmundur Þorbjörnsson yggði liði sínu Baden í sviss- esku knattspyrnunni sinn /rsta sigur á þessu keppnis- mabili. Guðmundur skoraði ina mark liðsins í 1-0 sigri á 'oung Boys. Guðmundur sagði viðtali að þessi sigur myndi uka sjálfstraustið hjá íeik- íönnum Baden cn það væri það sem á vantaði. Sigurður Grétarsson og Ómar Torfason léku báðir með Lu- zern er liðið tapaði 2-7 fyrir Neuchatel Xamax. Ómar lagði upp annað marka liðsins. Luzern er nú í 3.-5. sæti með 18 stig en Xamax hefur 23 í efsta sæti. Meistaramót í shotokan karate: Krækti í sjö gull af tíu Framfarir ■ Karatedeild Gerplu varð óopinber sigurvegari á meist- aramóti í shotokan karate sem haldið var í íþróttahúsi Gerplu í Kópavogi á laugardaginn. Gerpla krækti í sjö gull af 10 en í fyrra sigraði Þórshamar og hirti þá öll sjö gullin sem þá voru í boði. Greinilega miklar fram- farir hjá Gerplu. Það var einkum yngra fólkið í karate sem stóð sig með ágæt- um í mótinu og er það góðs viti fyrir íþróttina. Keppendur voru frá fjórum félögum en auk þeirra sem hér eru nefnd á undan voru kepp- endur frá Breiðablik og Selfossi. Sigurvegarar voru eftirtaldir: Kata karla: Svanur Eyþórsson, Þórshamri. Kumite: Ævar Þorsteinsson, Breidablik. Sveitakeppni í kumite: Gerpla-Karl Gauti Hjaltason, Grimur Pálsson, Helgi Jóhanneson, Birgir Vign- isson og Kjell Tveit. með og þær Arna Steinsen og Guðrún Gunnarsdóttir hættu- legar í hornunum og í hraða- upphlaupum - sem eru annars alltof fáséður hlutur í kvenna- boltanum. F.H.-stúlkurnar náðu sér aldrei verulega á strik í þessum leik en þær voru taplausar fram að honum. María Sigurðardótt- ir átti að vísu góða kafla svo og Heiða Einarsdóttir undir lokin en eina útimanneskjan sem spil- aði vel allan leikinn var Arndís Aradóttir. Sólveig Steinþórsdóttir í marki Fram stal annars senunni. Hún varði og varði (og varði) og hjálpaði Fram að vinna sannfær- andi sigur. Mörkin: Fram: Arna 7(3), Ingunn 5, Guðríður 4, Guðrún 4, Sigrún 1 og Margrét 1. F.H.: Arndís 4(1), María 3, Heiða 3, Rut 2, Eva 1 og Hildur 1. Víkingur og K.R. áttust einn- NT-mynd: Róbert. ig við í Höllinni og lauk leiknum með sigri Víkingsstúlknanna sem skoruðu 25 mörk á móti 19 mörkum K.R. Inga Þóra skor- aði 8 mörk og Jóna 6 fyrir Víking en Elsa Bjarnadóttir var atkvæðamest í liði K.R. með 6 mörk. Þá sigraði Stjarnan lið Hauka örugglega með 28 mörkum gegn 15 og var aldrei spurt að leiks- lokum í þeirri viðureign. Erla Rafnsdóttir skoraði mest fyrir Garðbæinga en Hrafnhildur Pálsdóttir var atkvæðamest í ® Guoríður Guðjónsdóttir bætir krafti sínuni nú í Framliðið á ný liði Hauka °S Þa& uiunar um minna. Undankeppni HM í knattspyrnu: Tékkarnálægtsigri - Rummenigge bjargaði V-Þjóðverjum frá tapi - Svíar iögðu Möltu Undankeppni HM í knattspyrnu: Paraguayallaleið ■ Paraguay tryggði sér réttinn til að taka þátt í úrslitum Heims- meistarakeppninnar á næsta ári er lið þeirra gerði jafntefli við Chile í Santiago nú um helgina. Hvort lið gerði tvö mörk en fyrri leik þjóðanna lauk með sigri Paraguays 3-0. Hugo Rubio skoraði fyrst fyr- ir Chile en Schettina jafnaði með marki úr aukaspyrnu. Julio Romero skoraði síðan annað mark fyrir gestina og við því áttu Chilebúar ekki svar. Mun- oz náði að vísu að jafna á 79. mínútu en það dugði skammt. Mikil læti brutust út í Sant- iago eftir leikinn og voru heima- menn öskureiðir vegna frammi- stöðu sinna manna. Steinum og flöskum var hent inná völlinn í massavís og kveikt var í sætum. Rapid fékk skell ■ Rapid Vín, mótherjar Fram í Evrópukeppninni, fengu skell gegn erki- fjendunum Austria Vín í austurrísku knattspyrn- unni um helgina. Austria vann 5-1 og hefur nú fjögurra stiga forskot á toppnum í Austurríki. Rapid er í öðru sæti og er 10 stigum á undan liðinu í þriðja sæti. Lendl sigraði ■ Tenniskappinn Ivan Lendl sigraði hinn unga V-Þjóðverja Boris Beck- er í úrslitum Innanhúss- mótsins í tennis sem hald- ið var á Wembley í Eng- landi nú um helgina. Þetta var mildll mara- þonleikur sem stóð yfir í nær fjóra klukkutíma og þótti hann frábær. Lendl sigraði þrjár lotur en Becker tvær og hefur nú Lendl sigrað 27 sinnum í röð á Grand Príx mótum. Þótt Lendl sé sá besti um þessar mundir er Becker aðeins 17 ára gamall og á því framtíðina fyrir sér. NBA KORFUKNATTLEIKURINN ■ Úrslitin um helgina. Lakers standa vel. Þeir hafa unnið 10 en tapað 1. Boston er 8-2 og Milwaukee er 10-4. Þá hefur Houston Rockets með þá Akeem „The Dream" Olajuwan og Samson unnið 9 en tapað 2. Cleveland Cavaliers-Indiana Paceres ........................... 112-104 Houston Rockets-New Jersey Nets................................ 112-107 Denver Nuggets-San Antonio Spurs............................... 112-109 Los Angeles Lakers-Portland Trail Blazers...................... 114-102 Sacramento Kings-Golden State Warriors......................... 112-103 Boston Celtics-Washington Bullets.............................. 118-114 Atlanta Hawks-Detroit Pistons.................................. 122-118 Milwaukee Bucks-Chicago Bulls.................................. 118-103 Dallas Maverick8-New Jersey Nets ............................... 110-98 Utah Jazz-Portland Trail Blazers .............................. 133-118 Phoenix Suns-Seattle Super Sonics .............................. 117-99 Los Angeles Lakers-Los Angeles Clippers........................ 127-67 New York Knicks-Atlanta Hawks.................................. 103-96 Indiana Pacers-Boston Celtics.................................. 111-109 Washington Bullets-Philadelphia 76ers........................... 118-97 Cleveland Cavaliers-Chigago Bulls.............................. 132-128 Houston Rockets-Dallas Mavericks .............................. 122-117 San Antonio Spurs-Seattle Super Sonics........................... 97-95 Denver Nuggets-Los Angeles Clippers ........................... 113-109 Utah Jazz-Sacramento Kings...................................... 100-96 Golden State Warriors-Phoenix Suns............................. 118-105 Milwaukee Bucks-Portland Trail Blazers......................... 117-104 Los Angeles Lakers-New Jersey Nets ............................ 138-119 ■ Karl-Heinz Rummenikke bjargaði andliti V-Þjóðverja fyrir framan 15 þúsund áhorf- endur í Munchen er hann jafn- aði leik þeirra gegn Tékkum í öðrum riöli undankeppni HM. Mark Rummenigge kom á 87. mín. í leik sem skipti ekki máli upp á úrslitin í riðlinum. Þjóð- verjar og Portúgalar eru þegar komnir ■ úrslit. seinni hálfleik en Ströinderg náði að tryggja Svíum sigur á 73. mín. Úrslit þessa leiks skiptu engu máli. Lokastaðan í riðlinum: V-Þýskaland Portúgal Sviþjóð Tékkóslóvakía Malta 8 5 2 1 22- 9 12 8503 12-10 10 8 4 1 3 14- 9 9 8 3 2 3 11-12 8 8 0 1 7 6-25 1 Spánn: Archibald með tvö Barcelona að rétta úr kútnum Þjóðverjar fengu bestu hugs- anlegu byrjun í þessum leik. Brehme skoraði beint úr auka- spyrnu eftir 45 sekúndur. Tékk- ar jöfnuðu sig þó fljótlega og áttu hættuleg skyndiupphlaup í síðari hálfleik skoruðu þeir úr tveimur slíkum með stuttu milli- bili. Fyrt Novak og síðan Lauda. Það var svo í lok leiksins sem Rummenigge skoraði eftir að skoti frá Kögl var bjargað á línu. Kögl átti góðan leik með Þjóðverjum svo og 19 ára jafn- aldri hans Olaf Thon sem spilaði á miðjunni. Þjóðverjar hafa ekki unniö sigur í síðustu sex leikjum sín- um og aðeins gert fjögur mörk. Áhorfendur voru aðeins 15 þús- und en það er lægsta áhorfenda- tala hjá Þjóðverjum í Iangan tíma. Svíar sigruðu Möltu í öðrum riðli 2-1 á Möltu á sunnudaginn. Svíar náðu forystu með marki frá Prytz á 2. mínútu. Möltubú- ar jöfnuðu nokkuð óvænt í ■ Steve Archibald skoraði tvö mörk er Barcclona sigraði Celta í spænsku deildarkeppninni 2-0. Barcelona er nú á uppleið eftir slæma byrjun. Real Madrid sigraði Cadiz nokkuð auðveldlega 3-1 og þar gerði argentínski landsliðsmað- urinn Valdano öll þrjú mörk Real. Pétur Pétursson spilaði ekki með Hercules vegna meiðsla er hann hlaut í síðasta leik. Pétur sagði að ekki væri víst að hann spilaði meira með enda hefði liðið ekki staðið við gerðan samning við hann og væri hann nú með lögfræðing í málinu: Úrslit: Valladolid-Las Palmas ............ 4-2 Real Madrid-Cadiz................. 3-1 Celta-Barcelona................... 0-2 Sporting-Hercules................. 3-1 Sociedad-Sevilla.................. 1-0 Real Betis-At.Bilbao ............. 2-0 Valencia-Osasuna ................. l-l Espanol-At.Madrid ................ 1-2 Racing-Zaragoza .................. 2-3 Staða efstu liða: Real Madrid 12 8 3 1 25 10 19 Sporting 12 6 6 0 14 5 18 At. Madrid 12 6 3 3 25 17 15 At. Bilbao 12 6 3 3 17 13 15 Barcelona 11 5 4 2 15 9 14 Valladolid 12 5 4 3 20 14 14 Zaragoza 12 5 4 3 15 14 14 Sociedad 12 5 3 4 12 14 13 Aftur jafntefli ■ Mexíkó og Argentína skildu aftur jöfn í vináttuleik i knatt- spyrnu en leikurinn fór fram á Cuahutemocvellinum i Mexíkó sem er í geysimikilli hæð yfir sjávarmáli. Fyrri leik þessara þjóða, sem háður var í Los Ange- les, lauk með jafntefli 1-1 og sömu úrslit voru uppá teningn- um um helgina. Javier Aguirre náði forystunni fyrir Mexíkómenn og hinir 45 þúsund áhorfendur, sem troðið höfðu sér inn á leikvöllinn, fyllt- ust af kæti. í síðari hálfloik jöfn- uði hins vegar Argentínumenn og var þar að verki varnarmaður- inn Oscar Ruggeri.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.