NT - 19.11.1985, Page 23
Barnaútvarpið:
Ivik
bjarn-
dýrsbani
■ ÍBarnaútvarpinuídagscm
hefst að venju kl. 17 verður
m.a kynnt ný framhaldssaga,
sem lestur verður hafinn á á
morgun.
Það er Ivik bjarndýrsbani
eftir Pipaluk Freuchen, sem
Sigurður Gunnarsson fyrrum
skólastjóri hefur þýtt og komið
hefur út hér á landi. Það er
Guðrún Guðlaugsdóttir sem
les.
Anna Ringsted sendir pistil
frá Akureyri um leikhópinn
Sögu, sem starfa á Akureyri.
Þá verður í þættinum fjallað
um búðahnupl. Verður fylgst
með búðahnupli og talað við
lögreglu og sálfræðing.
Dátt er færeyski
dansinn stiginn
■ Margir íslendingar hafa
kynnst færeyskum dansi og
haft gaman af. T.d. hafa ís-
lendingar og Færeyingar í
Kaupmannahöfn löngum
blandað geði og þá gjarna
skemmt sér við þennan alda-
gamla dans sem fram fer við
eigin söng gamalla færeyskra
kvæðabálka sem geta verið
upp á fleiri hundruð erindi!
( I kvöld kl. 20.40 verður í
sjónvarpi sýndur þáttur gerður
af danska sjónvarpinu, í sam-
vinnu við hið nýstofnaða Sjón-
varp Föroya. Það er my nd frá
danskvöldi í Sumba, syðst á
Suðurey, en meðal fólks þar
stendur hefð færeyska dansins
hvað traustustum fótum.
Þýðandi er Guöni Kolbeinss-
ur verið að hafa upp á endra-
nær. Þau Einar Þorsteinn og
Inga Birna lauma t.d. hljóð-
nemanum í pott menningarvit-
anna þar sem þeir ræða gang
mála í þjóðlífinu, og nrá slá því
föstu að þar falli mörg gáfuleg
athugasemdin.
Sigríður Ólafsdóttir hefur
verið fastur gestur í laugunum
alla tíð og hefur frá mörgu
skemmtilegu að segja. Skúli
Flalldórsson tónskáld hefur
líka lengi haldið tryggð við
laugarnar og ætlar að upplýsa í
þættinum hvernig það megi
vera að laugarnar skulda hon-
um eina nótu, og það veiga-
mikla nótu!
Þá er rætt við Jes Einar
Þorsteinsson arkítekt um
það hvað leynist á bak við
„blikkið" svokallaða, nýju við-
bótina sem margan sundlauga-
gestinn er farið að lengja
eftir að kíkja á bak við.
-ný
framhaldssaga
■ Færeyskir þjóðbúningar eru fallegir og klæðast Færeyingar honum gjarna þegar þeir stiga
færeyskan dans.
■ Sigurður Gunnarsson hef-
ur þýtt fjölmargar barnabækur
þ.á.in. Ivik bjarndýrsbana.
■ Einar Þorsteinn Ásgeirs-
son og Inga Birna Dungal
bregða sér í sundlaugarnar í
Laugardal og spjalla þar við
gesti í þætti sínum Spjall á
síðkvöldi í útvarpi í kvöld kl.
22.25.
Það er víðfrægt að margt ber
á góma fastagesta lauganna, þar
sem þeir láta sér líða vel í heitu
pottunum. Þar má ganga að
vísum á vissum tímum mörg-
um manninum, sem erfitt get-
.jonvarp
Utvarp kl. 22.25:
Af hverju skulda laugarnar
Skúla eina nótu?
Sjónvarp kl. 20.40:
Þriðjudagur
19. nóvember
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.15 Morgunvaktin
7.20 Morguntrimm
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Litli tréhesturinn" ettir Ursulu
Moray Williams Sigriöur Thorlac-
ius þýddi. Baldvin Halldórsson les
(17).
9.20 Morguntrimm. Tilkynningar.
Tónleikar, þulur velur og kynnir.
9.45 Þingfréttir
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál Endurlekinn þátt-
ur frá kvöldinu áður í umsjá Mar-
grétar Jónsdóttur.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forustugreinum dag-
blaöanna
10.40 „Ég man þá tíð“ Hermann
Ragnar Stefánsson kynnir lög frá
liðnum árum.
11.10 Úr atvinnulífinu - Iðnaðarrás-
in Umsjón: Gunnar B. Hinz, Hjörtur
Hjartar og Páll Kr. Pálsson.
11.30 Úr söguskjóðunni - Ung-
mennafélag Reykhverfinga
Umsjón: Hrefna Róbertsdóttir.
Lesari með henni: Pétur Már Ólafs-
son.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
Tónleikar.
13.30 í dagsins önn - Heilsuvernd
Umsjón: Jónína Benediktsdóttir.
14.00 Miðdegissagan: „Skref fyrir
skref“ eftir Gerdu Antti Guörún
Þórarinsdóttir þýddi. Margrét
Helga Jóhannsdóttir les (20).
14.30 Miðdegistónleikar: Tónlist
eftir Carl Nielsen a. Sinfónía nr.
6, „Sinfonia semplice". b. „Pan og
Syrinx" op. 49. Sinfóniuhljómsveit
danska útvarpsins leikur. Herbert
Blomstedt stjórnar.
15.15 Barið að dyrum Inga Rósa
Þórðardóttir sér um þátt frá Aust-
urlandi.
15.45 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Hlustaðu með mér Edvard
Fredriksen. (Frá Akureyri).
17.00 Barnaútvarpið Stjórnandi:
Kristín Helgadóttir.
17.50 Síðdegisútvarp - Sverrir
Gauti Diego. Tónleikar. Tilkyn.ing-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Daglegt mál Sigurður G. Tóm-
asson flytur þáttinn.
19.50 Úr heimi þjóðsagnanna -
„Skuggavaldi, skjólið þitt“ (Úti-
legumannasögur) Anna Einars-
dóttir og Sólveig Haraldsdóttir sjá
um þáttinn. Lesari með þeim: Arn-
ar Jónsson. Knútur R. Magnússon
og Sigurður Einarsson velja tónlist-
ina.
20.20 Minningar rikisstjóraritara
Pétur Eggerz lýkur lestri úr minn-
ingabók sinni.
20.45 „Vinirnir", smásaga eftir Ás-
geir hvítaskáid Höfundur les.
21.05 íslensk tónlist. Lagaflokkur
eftir Atla Heimi Sveinsson úr leikrit-
inu „Dansleikur*1 eftir Odd
Björnsson. Garðar Corfes og Guð-
mundur Jónsson syngja við undir-
'eik Jóseps Magnússonar, Kristjáns
Þ. Stephensen, Eyþórs Þorláks-
sonar, Brians Carlile, Péturs Þor-
valdssonar, Reynis Sigurössonar
og Atla Heimis Sveinssonar sem
stjórnar flutningum.
21.30 Útvarpssagan: „Saga Borg-
arættarinnar" eftir Gunnar
Gunnarsson Helga Þ. Stephen-
sen les (17).
22.00 Fréttir. Dagskrá mörgundags-
ins.
22.15 Veðurfregnir. Orð kvöldsins.
22.25 Spjall á siðkvöldi Umsjón:
Einar Þorsteinn Ásgeirsson og
Inga Birna Dungal.
23.05 Kvöldstund í dúr og moll.
með Knúti R. Magnússyni.
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
Þribjudagur
19. nóvember
10.00-10.30 Kátir krakkar Dagskrá
fyrir yngstu hlustendurna frá
barna- og unglingadeild útvarps-
ins. Stjórnandi: Hildur Hermóðs-
dóttir.
10.30-12.00 Morgunþáttur Stjórn-
andi: Páll Þorsteinsson.
HLÉ
14.00-16.00 Blöndun á staðnum
Stjórnandi: Sigurður Þór Salvars-
son
16.00-17.00 Frístund Unglingaþátt-
ur. Stjórnandi: Eðvarð Ingólfsson
17.00-18.00 Sögur af sviðinu Stjórn-
andi: Þorsteinn G. Gunnarsson.
Þriggja minútna fréttir
sgðar klukkan 11.00,
15.00, 16.00 og 17.00.
Þriðjudagur
19. nóvebmer
19.00 Aftanstund Endursýndur þátt-
ur frá 11. nóvember.
19.25 Ævintýri Olivers bangsa Tólfti
þáttur. Franskur brúðu- og teikni-
myndaflokkur í þrettán þáttum um
víðförlan bangsa og vini hans.
Þýðandi Guðni Kolbeinsson, lesari
með honum Bergdis Björt Guðna-
dóttir.
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Dátt er dansinn stiginn (Til
dans ved verdens ende) Danskur
sjónvarpsþáttur um færeyskan
dans og sagnakvæði. Dansinn hef-
ur haldist óbreyttur öldum saman
og enn stíga Færeyingar keöju-
dansa sína og kveða við raust eins
og sja má á dansleik á Suðurey.
Þýðandi Guðni Kolbeinsson. (Nor-
dvision-Danska sjónvarpið).
21.30 Til hinstu hvíldar (Cover her
Face) Annar þáttur. Breskur
sakamálamyndaflokkur í sex
þáttum, gerður eftir sakamálasögu
eftir P.D. James. Aðalhlutverk:
Roy Marsden. Adam Dalgliesh
rannsakar dauða manns sem
grunaður er um fíkniefnasölu.
Hann rekur slóðina heim á sveita-
setur þar sem ekki reynist allt með
felldu. Þýðandi Kristrún Þórðar-
dóttir.
22.25 Hversu stórt var skrefið?
Umræöuþáttur um réttindabaráttu
kvenna undanfarinn áratug. Um-
sjónarmaður Sonja B. Jónsdóttir.
23.25 Fréttir í dagskrárlok
Þriðjudagur 19. nóvember 1985 23
■ Næstum því í Rambo-stell-
ingu með Ramboaugnaráðið en
þó engin Rambo-týpa. Og
Power Boothe er góður leikari.
Regnboginn:
Fjölskyldudrama,
ólíkir heimar
- og fáránleiki
■ Regnboginn:
Ógnir frumskógarins
(Emerald Forest) ★★
Leikstjóri: John Boorman
Handrit: Rospo Pallenberg
Kvikmyndataka: Philippc
Rousselot.
Tónlist: Junior lloinrich og
Brian Gasgoigne.
Helstu hlutverk: Powers Boot-
he, Charley Boorman, Meg
Foster, Dira Paes og Eduardo
Conde
Mér leist óskaplega vel á
þessa mynd, svona fyrstu tvo
þriðjungana af henni en í síðasta
þriðjungnum fór gamanið að
kárna því leikstjórinn John
Boorman spilar rassinn úr bux-
unum og fer út í algjöra vit-
leysu og lýkur myndinni á
billegan hátt. En ég kem nánar
að þvi síðar.
Á íorsíðu sýningarskrárinnar
(sem fæst í miðasölunni) er
mynd af liinum óviðjafnanlega
leikara Powers Boothe (Þið
niunið örugglega eftir honum
úr sjónvarpsþáttunum um
Marlowe einkaspæjara þar
sem hann stangaði á eftir-
minnilegan hátt úr tönnunum
og var óskaplega kúl og töff).
Hann er næstum því í Rambo-
stellingu með rosalega vélbyssu
í fanginu. En Powers Boothe
leikur sem betur fer enga
Rambo-týpu í þessari mynd.
Hann lendir að vísu í svipuðum
raunum og Rambo eins og t.d.
þegar hann berst við „grimma
fólkið“ í myrkustu viðjum
frumskógarins. Rambo hefði
nú átt í litlum erfiðleikum með
að snara skaðræðisgripina nið-
ur án þess að verða fyrir
skrámu en Bill Markham sem
Powers Boothe leikur er skít-
hræddur og hefur líka ástæðu
til þess. Og það mælir strax
með myndinni, því hver sem
er hefði verið skíthræddur við
þessar aðstæður og karlmönn-
um er hér lýst eins og þeir eru
en ekki búin til ímynd „yfir-
burða karlmennsku" sem á sér
enga stoð í raunvcruleikanum.
En hvað um það. Söguþráð-
ur myndarinnar er á þá leið að
bill Markham starfar hjá stóru
verktakafyrirtæki og vinnur að
því að reisa stóra stíflu inni í
regnbelti Amazone frum-
skógarins. Dag einn er hann á
ferð þar með konu sinni og
tveimur börnum þegar sonur-
innTommi hverfurskyndilega.
Hann finnst ekki þrátt fyrir
mikla leit og hjónin Bill og
Jean (Meg Foster) hverfa
niðurbrotin burt. En á hverju
ári næstu 10 ár fer faðirinn Bill
inn í frumskóginn að leita
sonar síns.
Og fer einmitt í enn eina
leitina í myndinni. Og eftir
mikla erfiðleika og miklar ógn-
ir í viðureign við grimma fólkið
hittir hann son sinn Tomma
fyrir tilviljun. Tommi hefur alist
upp hjá indíánaættflokki sem
er kallaður „ósýnilega fólkið“
Þessi ættbálkur er frumstæður
hið ytra en býr yfir aldagamalli
speki, speki sem maðurinn í
stórborgum nútímans hefur
e.t.v. gleymt. Bill vill fá son
sinn með sér til baka en Tommi
lítur ekki á hann sem föður
sinn og vill vera áfrani hjá fólki
sínu sem hann tilheyrir. Faðir-
inn snýr því aftur til hins
þróaða heims tómhentur.
En Bill hefuróafvitandi orð-
ið til þess að ósýnilega fólkinu
stafar nú meiri ógn en áður af
„grimma fólkinu", bæði með
því að hrekja „grimma fólkið"
frá átthögum sínuni meðstíflu-
gerðinni og með því að missa í
hendur þeirra vélbyssuna scm
hann hafði meðferðis í leitina.
„Grimma fólkið“ ræðst á
„ósýnilega fólkið", strádrepur
þá karlmenn sem þar eru en
rænir konunum og selur þær í
vændi til hórumangara. Og þá
eru góð ráð dýr. Ósýnilega
fólkið ræður ekki við að frelsa
konur sínar rneð eigin meðul-
um og þess vegna fer Tommi
að finna Bill, kynföður sinn til
að fá hann til að berja á
„grimma fólkinu" og frclsa
konurnar. Og þá hefst óvæntur
og óraunsær kafli í lífi fcðg-
anna....og leikstjórinn spilar
rassinn úr buxunum.
Hlutirnir verða ansi auð-
veldir. Syninum Tomma tekst
að bregða sér í líki arnar seni
flýgur um og finnur t.d. hvar
Bill og Jean kynforeldrar hans
búa í stórborginni. Og menn
höggva mann og annan án þess
að réttvísin virðist nokkum tíma
munu skipta sér af því. Og
Tommi sonurinn ætlar að töfra
fram rigningu sem á að
eyðileggja traustbyggða stífl-
una. Og faðirinn Bill grípur til
þess að hjálpa syninum
með...nei, hættið nú alveg,
síðasti þriðjungur myndarinn-
ar gckk alveg fram að mér, það
hefði verið hægt að ljúka mynd-
inni án þess að þurfa að grípa
til fáránleikans.
En þökk sé leikstjóranum
að öðru leyti fyrir myndina.
Boorman er enginn ný-
græðingur í kvikmyndagerð.
Hann hefur löngum haft áhuga
á fyrirbærum eins og göldrum,
mystík og vísindum framtíðar-
innar og meðal fyrri mynda
hans má nefna: „Exorcist II“,
„The Heretic“ og „Exalibur"
En í myndinni sem hér um
ræðir leika afbragðsleikarar,
þar á meðal sonur Boormans,
Charley sem leikur Tomma.
Gef myndinni 2 stjörnur.
Tæknivinna er öll með ágæt-
um, en tónlistin kannski helst
til agressív og sterk.
Mrún
Ps. Málið sem er talað í mynd-
inni, fyrir utan enskuna auðvit-
að, er eins og einhver ógreini-
legur bræðingur úr ensku og
spönsku og það furðulega er
að „ósýnilega fólkið",
„grimmafólkið", Spánverjarn-
ir og pabbinn Bill tala allir
þetta mál. Stingur svolítið í
stúf við raunveruleikann, ekki
satt, að einangraður ættbálkur
eins og t.d. „ósýnilega fólkið"
sem enginn eða fáir hafa nokk-
urn tíma séð getur allsstaðar
gert sig skiljanlegan. Eða hvað
finnst ykkur?