NT - 22.11.1985, Blaðsíða 6
Auglýsing frá
Launasjóði
rithöfunda
Hér meö eru auglýst til umsóknar starfslaun fyrir áriö 1986 úr
Launasjóði rithöfunda samkvæmt lögum nr. 29/1975 og
reglugerð gefinni út af menntamálaráðuneytinu 19. október
1979.
Rétt til greiðslu úr sjóðnum hafa íslenskir rithöfundar og
höfundar fræðirita. Heimilt er og að greiða laun úr sjóðnum
fyrir þýðingar á íslensku. Starfslaun eru veitt í samræmi við
byrjunarlaun menntaskólakennara skemmst til tveggja og
lengst til níu mánaða í senn.
Höfundur sem sækir um og hlýtur starfslaun í þrjá mánuði eða
lengur skuldbindur sig til að gegna ekki fastlaunuðu starfi
meðan hann nýtur starfslauna. Slík kvöð fylgir ekki tveggja
mánaða starfslaunum, enda skulu þau einvörðungu veitt
vegna verka sem birst hafa næsta almanaksár á undan.
Skrá um birt ritverk höfundar og verk sem hann vinnur nú að
skal fylgja umsókninni.
Umsóknum ber að skila á sérstökum eyðublöðum sem fást
i menntamálaráðuneytinu. Mikilvægt er að spurningum á
eyðublaðinu sé svarað og verður farið með svörin sem
trúnaðarmál.
Umsóknir skulu sendar fyrir 31. desember 1985 til mennta-
málaráðuneytisins,
Hverfisgötu 6, Reykjavík.
Reykjavík, 20. nóvember 1985.
Stjórn Launasjóðs rithöfunda
Frá Héraðsskólanum í
Reykholti Borgarfirði
Eftirtaldir áfangar verða í boði á vorönn
1986. (Sjá námsvísi Fjölbrautaskóla á Vest-
urlandi og víðar)
Kjarnagreinar: ens., 102, 202, 203, 212 og
302, dan., 102, 202, 203 og 212, ísl., 102,
202, 203, 212 og 313, stæ., 102, 202, 203,
212 og 313.
Valgreinar: bók., 203 og 303, efn., 103, fél.,
103 fra., 103, fun, 101, íþf., 112, íþg., 112,
142 og 152 lol., 103, lög, 113, myn, 102 og
202, sag.,222, sál., 103, sky., 101, tón., 101,
töl., 103, vél, 302 og 402 þýs„ 103 og 203.
Væntanlegum umsækjendum er sérstaklega
bent á séráfanga á viðskiptabraut og íþrótta-
braut.
Umsóknarfrestur er til 10. desember 1985,
upplýsingar gefa skólastjóri og yfirkennari í
símum 93-5200 og 93-5202.
Skólastjóri
Gráskjóttur sjövetra hestur á járnum tap-
aðist síðast í júlí í sumar úr girðingu á Fossi
í Grímsnesi. Þeir sem gætu gefið upplýsing-
ar um hestinn hringi í síma 73850 eða 74625
eða láti lögregluna á Selfossi vita.
Blárefir til sölu
Úrvals lífdýr til sölu. Hagstætt verð ef samið
er strax.
Upplýsingar í síma 91-667181 á kvöldin.
Atvinna óskast
Ung kona með 2 börn óskar eftir ráðskonu-
starfi frá áramótum, helst á Suðurlandi.
Upplýsingar í síma 685148 frá kl. 21 -22.
t
Maðurinn minn, faðir og afi,
Þórður Jóhann Magnússon
frá Flateyri
Vallartröð 3, Kópavogi
veröur jarðsunginn frá Kópavogskirkju mánudaginn 25.
nóvember kl. 1:30.
Anna Tryggvadóttir
Tryggvi Magnús Þórðarson
Agnes Þöll Tryggvadóttir
Jnf jl Föstudagur 22. nóvember 1985 6
Ll Útlönd
Gjaldþrot stórbanka
plaga Brasilíumenn
Erlendir lánadrottnar hræddir um peningana sína
Brasilía-Reuter.
■ Jose Sarney forseti Brasilíu
fyrirskipaði fyrr í þessari viku
að eignir þriggja brasilískra
stórbanka skyldu gerðar upp
þar sem þeir stæðu ekki lengur
undir skuldum sínum.
Sarney, sem braut þannig lof-
orð sitt um að stjórna aldrei
með forsetatilskipunum, segir
að hann hafi fyrirskipað lokun
bankanna til að vernda almenn-
ing og ríkið. Dilson Funaro
fjármaTaráðherra segir að slæm
fjárhagsstaða bankanna hafi
■ Jose Sarney forseti Brasilíu
er farinn að stjórna með forseta-
tilskipunum þótt hann hafi áður
lofað að beita þeim ekki heldur
láta þingið ráða. En bankagjald-
þrot er svo alvarlegt mál að
hann vildi ekki láta þingmenn
tefja það með löngum umræð-
um.
skortur á
matvælum
Afríka:
Meiri
féen
Sameinuðuþjóöirnar-Reutcr
■ Einn af yfirmönnum þróun-
araðstoðar Sameinuðuþjóð-
anna sagði á blaðamannafundi
fyrir skömmu að nú væri meiri
þörf fyrir fjárstuðning í Afríku
en beinar matargjafir.
Bradford Morse, sem er yfir
þróunaráætlun Sþ„ segir að
ástandið í Afríku hafi breyst
mikið frá því í janúar þegar útlit
var fyrir að milljónir manna
myndu farast úr hungri.
Flest benti til þess að ástandið
yrði mun betra í flestum löndum
Afríku árið 1986 en árið 1985.
Útlit er fyrir að uppskeran á
þessu ári verði ágæt og Morse
segir að neyðarstjóm, sem kom-
ið var á fyrir Afríkuaðstoð Sþ. í
janúar, verði fljótlega lögð
niður.
En mikill skortur er samt á
peningum til að fjármagna um-
bætur á sviði heilsugæslu, gerð
vatnsbóla og áveituframkvæmd-
ir, vegalagningu og kaup á flutn-
ingatækjum.
3gS5*
Landbúnaðarverkamenn í Súdan pakka uppskerunni inn svo að hægt sé að flytja hana á markað. Nú
vantar fyrst og fremst peninga til að byggja landbúnaðinn aftur upp og bæta flutningakerfið.
Kína:
Almenningur fær gjaldeyri
Peking-Reuter
■ Kínverskur almenningur
hefur nú fengið leyfi til að eiga
erlendan gjaldeyri í fyrsta skipti
frá því að kommúnistar náðu
völdum í Kína árið 1949.
Hingað til hafa kínverskir
ríkisborgarar orðið að skipta á
erlendum gjaldeyri, sem þeim
áskotnaðist, í kínverska pen-
inga. En frá og með þessari viku
er slíkt ekki nauðsynlegt heldur
getur fólk nú opnað sérstaka
gjaldeyrisreikninga í kínversk-
um bönkum sem hægt er að
taka út hvenær sem er án sér-
stakra takmarkana.
Kínversk stjórnvöld slökuðu
nokkuð á gjaldeyrisreglum í
nokkrum borgum í Suður-Kína
í mars síðastliðnum og leyfðu
íbúum þar að opna gjaldeyris-
reikninga. Að sögn Dagblaðs
alþýðunnar, sem er gefið út í
Peking, hafa nú þegar rúmlega
100.000 kínverskir borgarar
stofnað slíka reikninga.
Dagblað alþýðunnar segir að
kínverska stjórnin sé nú að
athuga hvort æskilegt sé að
opna sérstakar gjaldeyrisbúðir
svipað og tíðkast í ríkjum Aust-
ur-Evrópu þar sem fólk getur
keypt ýmiss konar erlendan
vaming fyrir gjaldeyri.
skapað ójafnvægi á fjármála-
markaðnum í Brasilíu.
Bankarnir þrír skulduðu
samtals 750 milljónir dollara
(rúml. 30 milljarða ísl. kr.)
erlendis. Gjaldþrot þeirra er sagt
koma sér mjög illa fyrir Brasi-
líumenn sem skulda samtals 103
milljarða dollara (rúml. 4000
milljarða isl. kr.) til erlendra
lánadrottna sem er meira en
nokkur önnur þróunarþjóð.
Seðlabanki Brasilíu hefur
lofað að greiða 180 milljónir
dollara sem bankarnir skulduðu
í skammtímalánum. En hann
hefur ekki minnst ennþá á
hvernig tekið verður á skuldum
bankanna til lengri tíma sem
nema 600 milljónum dollara.
Bankamenn hafa áhyggjur af
því að Brasilíumenn neiti að
bera ábyrgð á langtímaskuldum
eins og þegar fjárfestingarbank-
inn Brasilinvest varð gjaldþrota
á seinasta ári með 70 milljónir
dollara í erlendum skuldum.
Norðmenn
hætta
kaldri
olíuborun
Osló-Reuter
■ Norsk stjórnvöld hafa
bannað borun eftir olíu og
gasi út af ströndum Norð-
ur-Noregs yfir vetrarmán-
uðina þar sem olíuborpall-1
ar séu ekki nægjanlega
vel búnir til að standast
vetrarhörkurnar á þessu
svæði.
Norsk og erlend olíu-
leitarfyrirtæki höfðu á-
kveðið að halda olíuleit
áfram við Norður-Noreg
nú í vetur en það hefði
orðið í fyrsta skipti sem
olíuleit fer fram þar yfir
vetrarmánuðina. Forystu-
menn olíufyrirtækjanna
mótmæla því að olíubor-
pallamir hafi ekki verið
nægjanlega vel búnir.
Dótturfyrirtæki banda-
ríska olíufyrirtækisins
Exxons í Noregi hefur
mótmælt olíuborunar-
banninu. Yfirmenn fyrir-
tækisins segja að það hafi
eytt háum upphæðum til
að búa olíuleitarskip og
borpalla undir olíuborun
við þær kringumstæður
sem séu á hafsvæðum við
Norður-Noreg.
Norskir embættismenn
segja að stjórnin stefni
ennþá að því að leyfa
olíuleit við Norður-Noreg
yfir vetrarmánuðina í
framtíðinni en þá verði
olíuleitarbúnaðurinn að
vera fullkomnari til þess
að fyllsta öryggis sé gætt.
Norðmenn framleiða nú
um 850.000 tunnur af olíu
á dag á olíusvæðum á
Norðursjó. Markmið ol-
íuleitarinnar við Norður-
Noreg er að tryggj a áfram-
haldandi olíuvinnslu eftir
að olíuframleiðsla í
Norðursjó fer að dragast
saman.