NT - 22.11.1985, Blaðsíða 23
Málefni aldraðra
- um lagaleg réttindi þeirra
■ Pórir S. Guðbergsson mun
sjá um þáttinn Málefni aldr-
aðra sem er á dagskrá útvarps
kl. 11.10 í dag.
Að þessu sinni ætlar Þórir
að taka fyrir fyrri hluta um
fjöllunar um lög varðandi mál-
efni aldraðra. Mest verður rætt
um markmiðslýsingu laganna
og skipulag í öldrunarþjónustu
sveitarfélaganna um allt land.
„Það hefur komið í ljós í
mörgum af þeim bréfum sem
þátturinn hefur fengið, að
gamla fólkið spyr mikið um
þessi lög og vill fá að fræðast
eitthvað um þau,“ sagði Pórir
aðspurður um þáttinn. „Það er
greinilegt að upplýsingar og
ráðgjöf um þessi mál vantar
víða úti á landi, sérstaklega
varðandi réttindi aldraðra.“
Þátturinn um málefni aldr-
aðra hefur verið á dagskrá
útvarpsins vikulega frá því í
vor og er sá 37. í dag. Sagði
Þórir að enn væri af nógu að
taka, sífellt bærust bréf með
spurningum og upplýsingum
um þessi mál.
T ónlistar-
krossgátan
■ Tónlistarkrossgátan verð-
ur á dagskrá Rásar 2 á sunnu-
daginn kl. 15.00-16.00 í um-
sjón Jóns Gröndal að venju.
í þættinum er hlustendum
gefinn kostur á því að svara
einföldum spurningum um
tónlist og tónlistarmenn og
ráða krossgátu í leiðinni.
Lausnir sendist til: Ríkisút-
varpsins Rás 2, Efstaleiti 1,
108 Reykjavík, merkt Tónlist-
arkrossgátan.
ný bandarísk sjónvarpsmynd
■ Robert Mitchum og Deborah Kerr í hlutverkum Carls og
Saliy í myndinni Endurfundir.
■ Endurfundir (Reunion at
Fairborough), heitir ný banda-
rísk sjónvarpsmynd sem verð-
ur föstudagsmynd sjónvarpsins
í kvöld.
Leikstjóri er Herbert Wise,
en með aðalhlutverk fara Ro-
bert Mitchum, Deborah Kerr,
Red Buttons og Judi Trott.
Efnisþráður myndarinnar er
í stuttu máli þessi: Bandarísk-
ur kaupsýslumaður Carl Hos-
trup heimsækir lítið þorp í
Bretlandi til fundar við félaga
sína úr stríðinu, en þá hefur
hann ekki séð í fjörutíu ár.
Hann leitar einnig uppi fyrr-
um unnustu sína frá þessum
tíma, Sally, en margt óvænt
kemur í ljós við endurfundinn
við hana.
Þýðandi er Jóhanna Þráins-
dóttir.
■ í þættinum Málefni aldraðra í dag verður m.a. fjallað um
lagaleg réttindi aldraðs fólks.
Sjónvarp kl. 23.15:
Utvarp kl. 11.10:
Rás 2, kl. 15.00 sunnudag
Endurfundir
Föstudagur
22. nóvember
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.15 Morgunvaktin.
71.20 Morguntrimm.
7.30 Fréttir. Tilkynningar.
8.00 Fréttir. Tilkynningar.
8.15 Veðurfregnir.
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Litli tréhesturinn" eftir Ursulu
Moray Williams Sigríður Thorlac-
ius þýddi. Baldvin Hatldórsson les
(20).
9.20 Morguntrimm. Tilkynningar.
Tónleikar, þulur velur og kynnir.
9.45 Þingfréttir.
10.00 Fréttir.
10.05 Daglegt mál. Endurtekinn þátt-
ur frá kvöldinu áður í umsjá Sigurð-
arG. Tómassonar.
10.10 Veðurfregnir.
10.25 Lesið úr forustugreinum dag-
blaðanna.
10.40 „Ljáðu mér eyra“. Málfríð-
ur Sigurðardóttir. (Frá Akureyri)
11.10 Málefni aldraðra. Umsjón:
Þórir S. Guðbergsson.
11.30 Morguntónleikar Smálög eftir
Arthur Honegger, George Auric,
Germaine Tailleferre og Erik Satie.
12.00 Dagskrá. Tilkynningar.
12.20 Fréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tilkynningar.
Tónleikar.
14.00 Miðdegissagan: „Skref fyrir
skref“ eftir Gerdu Antti. Guðrun
Þórarinsdóttir þýddi. Margrét
Helga Jóhannsdóttir les (23).
14.30 Upptaktur. - Guðmundur
Benediktsson.
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Síðdegistónleikar. a. Þrjú lög
fyrir „blússveit" og sinfóniuhljóm-
sveit op. 50 eftir William Russo.
Sinfóníuhljómsveitin i San Fran-
cisco leikur ásamt Siegel-Schwall
hljómsveitinni. Seiji Ozawa
stjórnar. b. Konsert fyrir rokkhljóm-
sveit og sinfóniuhljómsveit eftir
John Lord. Hljómsveitin „Deep
Purple" leikur ásamt Konunglegu
fílharmoníusveitinni í Lundúnum.
Malcolm Arnold stjórnar.
17.00 Barnaútvarpið. Stjórnandi:
Vernharður Linnet.
17.40 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir.
19.40 Tilkynningar.
19.45 Þingmál. Umsjón: Atli Rúnar
Halldórsson.
19.50 Daglegt mál. Margrét Jóns-
dóttir flytur þáttinn.
20.00 Lög unga fólksins. Þóra Björg
Thoroddsen kynnir.
20.40 Kvöldvaka a. „Ég á orðið
einhvern veginn ekkert föður-
land“ Ágúst Vigfússon flytur hluta
frásagnar sinnar. b. Kórsöngur.
Skagfirska söngsveitin syngur
undir stjórn Snæbjargar Snæ-
bjarnardóttur. c. Jón kurfur. Rósa
Gísladóttir les kafla úr bókinni
„Mannaferðir og fornar slóðir eftir
Magnús Björnsson á Syðra-Hóli.
Umsjón: Helga Ágústsdóttir.
21.30 Frá tónskáldum Atli Heimir
Sveinsson kynnir leikhústónlist.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundags-
ins.
22.15 Veðurfregnir. Orð kvöldsins.
22.25 Kvöldtónleikar: Tónlist eftir
igor Stravinsky.
22.55 Svipmynd. Þáttur Jónasar
Jónassonar (Frá Akureyri).
24.00 Fréttir. Dagskrárlok.
00.05 Djassþáttur. - Tómas R. Ein-
arsson.
01.00 Dagskrárlok.
Næturútvarp á RÁS 2 itl kl. 03.00.
:áf?
Föstudagur
22. nóvember
10:00-12:00 Morgunþáttur Stjórn-
endur: Ásgeir Tómasson og Páll
Þorsteinsson.
HLÉ
14:00-16:00 Pósthólfið Stjórnandi:
Valdis Gunnarsdóttir.
16.00-18.00 Léttir sprettir Stjórn-
a.ndi: Jón Ólafsson.
Þriggja minútna fréttir sagðar
klukkan 11:00, 15:00, 16:00 og
17:00.
HLÉ
20:00-21:00 Hljóðdósin Stjórnandi:
Þórarinn Stefánsson.
21:00-22:00 Kringlan Tónlist úr öll-
um heimshornum. Stjórnandi:
Kristján Sigurjónsson.
22:00-23:00 Nýræktin Þátturum nýja
rokktónlist, innlenda og erlenda.
Stjórnendur: Snorri Már Skúlason
og Skúli Helgason.
23:00-03:00 Næturvaktin Stjórnend-
ur: Vignir Sveinsson og Þorgeir
Ástvaldsson.
Rásirnar samtengdar að lokinni
dagskrá rásar1.
Föstudagur
22. nóvember
19.15 Á döfinni Umsjónarmaður Kari
Sigtryggsson.
19.25 Jobbi kemst i klípu Þriöji
þáttur. Sænskur barnamynda-
flokkur í fm þáttum um sex ára
dreng og tuskudýrið hans. Þýðandi
Jóhanna Jóhannsdóttir. (Nordvis-
ion - Sænska sjónvarpið)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.45 Þingsjá. Umsjónarmaður Páll
Magnússon.
21.30 Skonrokk Umsjónarmenn Har-
aldur Þorsteinsson og Tómas
Bjarnason.
22.15 Derrick. Sjötti þáttur. Þýskur
sakamálamyndaflokkur. Aðalhlut-
verk: Horst Tapperl og Fritz
Wepper.
23.15 Endurfundir (Reunion at Fair-
borough) Ný bandarísk sjónvarps-
mynd. Leikstjóri Herbert Wixe.
Aðalhlutverk: Robert Mitchum, De-
borah Kerr, Red Buttons og Judi
Trott. Bandariskur kaupsýslumað-
ur fer til Bretlands til fundar viö
félaga sína úr stríðinu sem hann
hefur ekki séð í fjörutíu ár. Hann
leitar einnig uppi fornvinu sina frá
stríðsárunum og kemur margt á
óvart við endurfundina. Þýðandi
Jóhanna Þráinsdóttir.
01.05 Fréttir í dagskrárlok.
Föstudagur 22. nóvember 1985 23
BANG,
BANG.
Týndir í orrustu 'k'ki
(Missing in Action)
Aöaihlutverk: Chuck Norris,
M. Emmet Walsh, Lenore
Kasdorf, James Hong, David
Tress.
Leikstjóri: Joseph Zito
Lengd: 101 mínúta
Bandaríkin, 1984
Bönnuð yngri en 16 ára.
■ Týndir í orrustu er ekki
hin dæmigerða Chuck Norris
mynd. Norris hefur í þessari
mynd snúið baki við hlutverki
karate-meistarans og haldið
yfir í aðra tegund ofbeldis.
Pessi umskipti henta Norris
vel og líklegt er að hann haldi
áfram á sömu braut.
Norris leikur gamla stríðs-
hetju, James Braddock, sem
er sannfærður urn að mörg
hundruð hermenn, sem taldir
voru týndir í Víetnam-stríð-
inu séu cnn fangar kommún-
ista (kannast einhver við
þetta?). Þegar nefnd er send
til Víetnam til að kanna málið
lætur Braddock til leiðast að
fara með.
Þegar komið er til Ho Chi
Minh borgar harðneita yfir-
völd að þar sé nokkur banda-
rískur fangi. Braddock lætur
það ekki á sig fá og tekur að
rífa kjaft og berja frá sér.
Honum er vísað úr landi fyrir
ósvífnina og hann heldur til
Bangkok. Þar finnur hann
vin sinn Tuck (M. Emmet
Walsh) og í sameiningu tekst
þeini að komast inn í Víet-
nam.
Leiðangur Braddocks ber
árangur og hann heldur til
Ho Chi Minh borgar mcð
nokkra stíðsfanga í eftir-
dragi.
Eins og glögglega kemur
fram er myndin á engan hátt
raunsæ. Ólíklegt má telja að
bitur hermaður geti upp á
eigin spýtur tekist á við
samanlagðan herafla Víet-
nama, með því að koma upp
um nokkra spillta stjórnmála-
nienn, svona íleiðinni. Vel af
sér vikið hjá kappanum sern
sleppur úr háskanum án telj-
andi óþæginda og í hreinum
fötum (takið eftir því hvaö
hann skiptir oft um föt).
Norris er þögull mestan
hluta myndarinnar og er það
vel. En hann sýnir líkamlega
burði á við Sylvestcr Stallone
í First Blood og til þess cr jú
leikurinn gerður.
Einn af höfuðkostum
myndarinnar er húmorinn.
Hann vegur upp á móti of-
beldinu og þeirri gegndar-
lausu mannfyrirlitningu sern
við verðum vitni að í Týndir
í orrustu.
Þeir sem hafa gaman af
handalögniálum, byssugelti
og góðum hasar ættu að
tryggja sér eintak seni fyrst.
MJA
■ Braddock (Chuck Norris) situr fyrir óvininum í Týndir í
orrustu.
--------------------------------------------------J