NT - 22.11.1985, Blaðsíða 17

NT - 22.11.1985, Blaðsíða 17
"~*«tudagur 22. nóvember 1985 17 k- Helgin fra Jólaævintýrið á Akureyri ■ Um helgina verða 3 sýningar á söngleiknum Jólaa'vintýri, sem frumsýnt var um síðustu helgi og hlot-ið hefur einstakt lof gagnrýnenda. Árni Tryggvason fer á kostum í hlutverki okrarans Scrooges. en alls koma 40 leikarar. börn. dansarar og hljómlistar- menn fram í sýningunni. Leikurinn byggirá einni af vinsælustu sögu Dickens ..A Christmas Carol" og gerist frá aðfangadagskvöldi til jólamorguns árið 1943. en í leiknum er flogið fram og aftur um 19. öldina. Leikgerð er eftir Leif Petersen og Jesper Jensen, en tónlist eftir Allan Andersen. Þvðingu leiktexta gerði Signý Pálsdóttir. leikhús- stjóri, en þýðing söngtexta gerði Kristján frá Djúpalæk, hljómsveit- arstjóri er Roar Kvam og lýsingu annast Ingvar Björnsson. Dansar eftir Alice, og leikmynd er eftir Hlín Gunnarsdóttur, búningar eftir Unu Collins og leikstjóri er María Kristjánsdóttir. Árni Tryggvason er í aðalhlutverki eins og fyrr segir en aðrir aðalleikarar eru: Theódór Júlíusson. Þráinn Karlsson, Vilborg Halldórsdóttir, Erla B. Skúladöttir, Baröi Guðmundsson, Pétur Eggerz, Marinó Þorsteinsson, Þórey Aðalsteinsd., Björg Baldvins- dóttir og Jóhann Ögmundsson. Sýningar um helgina verða á föstudags- og laugardagskvöld kl. 20.30 og á sunnudag kl. 16.00. Grímudans- leikur ■ Uppselt hefur veriö á allar sýningar á óperunni Grímu- dansleik eftir Giuseppe Verdi, og svo er einnig um næstu sýningar, sem veröa laugar- daginn 23. nóv., sunnud. 24. nóv. og þriðjudaginn 26. nóv. Reyndar er þegar uppselt á allar sýningar óperunnar í nóvember, en sýningar verða einnig í desember. Leikstjóri er Sveinn Ein- arsson, hljómsveitarstjóri er Maurizio Barbacini, en með aðalhlutverk fara Kristján Jó- hannsson, Kristinn Sigmunds- son, Elísabet F. Eiríksdóttir, Katrín Sigurðardóttir, Hrönn Hafliðadóttir, Robert Becker og Viðar Gunnarsson. Rauðhærði riddarinn á förum ■ Núersíðastasýningarhelgi hjá Nemendaleikhúsinu í Lindarbæ á leikritinu „Hvenær kemurðu aftur, rauðhærði riddari?" eftir Marc Medoff í þýðingu Stefáns Baldurssonar. Sýningar verða nú á föstudags- kvöld og sunnud. kl. 20.30. Alltaf uppselt á „Land míns föður“ ■ Söngleikurinn vinsæli „Land rníns föður" er nú að slá öll aðsóknarmet hjá Leikfélagi Reykjavíkur. Um helgina verða sýningar á föstudag, laugardag og sunnudag - og er uppselt á þær allar. Sýningar heígarinnar eru nr. 41, 42 og 43. en uppselt hefur verið á allar sýningar til þessa þó að sýnt sé 6 kvöld í viku. Uppselt er alla næstu viku, en örfáir miðar eru til sunnud. 1. des. og þriðjud. 3. des. Söngleikurinn gerist á stríðs- árunum í Reykjavík. Með stærstu hlutverk fara Helgi Björnsson, Sigrún Edda Björnsdóttir, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Margrét Helga Jóhannsdóttir, Jón Sig- urbjörnsson, Aðalsteinn Bergdal, Ragnheiður Arnar- dóttir. Guðmundur Pálsson o.m.fl. Höfundur verksins og jat'n- framt leikstjóri cr Kjartan Ragnarsson, tónlist er eftir Atla Heimi Sveinsson, leik- mynd cftir Steinþór Sigurðs- son, hljómsveitarstjóri er Jó- hann G. Jóhannsson, búninga gerði Gerla, en lýsingu annast Daníel Williamsson. ■ Hclga StefTensen og Sigríður Hannesdóttir með nokkrar brúður Leikbrúðu- hátíða á Akureyri ■ Dagana 23. nóv. til 2. des. heldur Helga Steffensen sýn- ingu á leikbrúðum sínum í sýningarsal Dynhcima á Akur- eyri. Sýningin er opin kl. 14.00-19.00 virka daga og kl. 14.00-22.00 á sunnudögum. Sýndar verða 60 leikbrúöur. sem allar hafa komið franr á sviði eða í Sjónvarpinu á sl. árum. Elstabrúðanerfrá 1969, cn það er Sigga, sem var í sjónvarpsþáttunum „Sigga og skessan". Einnig verða í Dynheimum brúðuleiksýningar. Sýndir verða leikþættirnir „Feluleik- ur" og Lilli gerist barnfóstra en þeir voru báðir sýndir í Brúðu- bílnum í sumar sem leið. Sýnt verður fyrir leikskólana á Akurcyri á fimmtud. og föstudag. Fyrir almenning verða sýningar sunnud. 24. nóv. kl. 14.00 og kl. 16.00. Sala á m'iðum hefst kl. 12.30. Sýningin tekur 1 1/2 klst. Það eru þær Helga og Sigríð- ur Hannesdóttir scnt sjá um sýningarnar. Frá Ólafsvík: Saumastofan í Ríó ■ Leikfélag Ólafsvíkur hyggst nú leggja land undir fót og hafa í farteski sínu upp- færslu félagsins á hinni löngu landsfrægu Saumastofu Kjart- ans Ragnarssonar. Ferðinni er heitið suöur á Stór-Reykjavíkursvæðið, nán- ar tiltekið í Kópavog. í veit- ingahúsinu RÍÓ við Smiðjuveg mun íbúum Reykjavíkur og nágrennis gefast kostur á að berja augum útgáfu Ólafsvík- inga á þessu margfræga verki nk. laugardagskvöld 23. nóvember. Saumastofan var frumsýnd í Reykjavík fyrir hartnær 10 árum í leikstjórn höfundar. Ólafsvíkingar hafa nú sýnt verkið 7 sinnum á heimaslóð- um viö svo mikinn fögnuð heintamanna aö þeir sjá sér nú ekki annað fært en aö leyfa flcirum að njóta. Leikstjóri sýningarinnar er Carmen Bonich. búsett í Borg- arnesi. í RÍÓ er góð aðstaða til leiksýninga, leikhúsgestir sitja við borð og allar veitingar standa til boða meöan á sýn- ingunni stcndur. Aö sýningu lokinni veröur almennur dans- leikur. Hljómsveitin GOÐGÁ leikur fyrir dansi. Sýningin hefst kl. 20.00 á laugardagskvöldið en húsið verður opnað kl. 19.00. Miöa- sala hefst-kl. 17.00 sýningar- dag. ■ Árni Tryggva- son í hlutverki skröggsins Scroog- es Tónleikar ■ Anna Málfríður Sigurðar dóttir og Martin Berkofsky. Schubert fyrir fjórar hendur ■ I fyrsta sinn á íslandi fer fram heildarflutningur á frunt- sömdum verkum eftir Franz Schubert fyrir fjórhentan píanóleik. Það cru píanóleik- ararnir Martin Bcrkofsky og Anna Málfríður Sigurðardóttir sem munu flytja þessi vcrk . Fyrstu tónleikarnir fara fram í Norræna húsinu á morgun , laugard. kl. 16.00. Síðan verða hinir fimm tón- leikarnir dagana 14. des.-18. jan., 15. mars, 19. aprílog24. maí. Alltaf á laugardögum kl. 16.00. Ferðir Sunnudagsferð F.í: Gengið frá Vogumum Vogastapa til Njarðvíkur ■ Ferðafélag íslands fer á sunnud. 24. nóv. kl. 13.00 í lctta og þægilega göngufcrö fyrir alla fjölskylduna. Veriö vel búin og hafiö meö ykkur nesti. Farmiðar við bílinn, en frítt er fyrir börn 15 ára og yngri í fylgd með forcldrum sínum. Farið verður frá Um- ferðarmiöstöðinni að austan verðu. Hana nú í Kópavogi ■ Vikulcg laugardagsganga Frístundahópsins Hana nú í Kópavogi vcröur á morgun. laugard. 23. nóvembcr. Lagt verður af stað frá Digranesvcgi 12 kl. 10.00. U svartasta skammdeginu vcrður mola- kaffi á könnunni í upphafi göngunnar. Búið ykkur hlýlcga. Allir Kópavogsbúar velkomnir í þessa göngutúra. Kvöldvaka Ferðafélags Islands ■ F.í. hcldur kvöldvöku þriðjud. 26. nóv. kl. 20.30 í Risinu. Hverfisgötu 105. Efni: Agnar Ingólfsson líffræöingur scgir frá Lífinu í fjörunni í máli og myndum. Myndagetraun, vcrðlaun fyrir réttar lausnir. Allir velkomnir meðan hús- rúnr leyfir, bæði félagsmenn og aðrir. Ymislegt Desember- veisla Stúdenta- kjallarans ■ í Sfúdentakjallaranum við Hringbraut segja forráðamenn að séu veitingar, uppákomur og tónlist. Nú auglýsa þeir sérstaka „Desembcrveislu Stúdcntakjallarans", sem reyndar byrjar í nóvember- mánuði. Þessi skemmtikvöld Stúdentakjallarans hafa fengið heitið „Lostakvöld menning- arpúkanna" og er hið fyrsta í kvöld, föstud. 22. nóv. Þá munu þeir Guðmundur Ing- ólfsson og Reynir Sigurðsson leika norrænan þjóðlagadjazz. Indversk kvöld I KRÁKUNNI ■ Á veitingahúsinu KRÁK- UNNI. Laugavcgi 22, voru haldin indversk kvöld sncmma í haust. Nú vcröa þau endur- tckin samkvæmt bciðnum margra. Þvi veröur haldið „Indverskt kvöld" nú á lau- gard. 23. nóvcmbcr. Þá veröur cingöngu framrciddur ind- vcrskur matur og indvcrsk tónlist veröur lcikin. Tckiö skal fram að þarna vcröa margir grænmctisrcttir á boöstólum, svo þcir scm að- hyllast jurtafæöi gcta fcngið þarna ýmsa tilbreytingu í mat. Gcstakokkur í Krákunni þctta kvöld verður Joscph Fung tónlistarmaður." en hann er jafnframt frábær matrciðslu- maður á austurlcnska matar- gcrö," sagði Sigríður Þóris- dóttir í Krákunni blaöamanni NT. er hún kynnti „Indvcrska kvöldiö". „Mánudags- myndir“ alla dagaí Regnboganum ■ í dag hefjast sýningar mánudagsmynda, sem á sínum tíma nutu mikilla vinsælda í Háskólábíói. Að þessu sinni verða sýning- ar í Regnboganum. Ákveðiö hefur veriö hvaða myndir verða sýndar fram til jóla, og eru þaö allt úrvals- myndir mcö íslenskunt texta. Þær myndir sem sýndar verða eru: Ástarstraumar Love Streams - leikstjóri John Cassavetes. Annað land - Another Country - leikstjóri Marek Kanievska. Hinir útvöldu - The Chosen — leikstjóri Jeremy Paul Kagan Bolero - Les Unes les autres - Icikstjóri Claude Lelouch. Sýningar verða alla daga kl. 7 og 9.15 og nú undir heitinu „Mánudagsmyndir alla daga”.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.