NT - 22.11.1985, Síða 18
Franska knattspyrnan:
Amoros græðir ekki
- Fær ekki að losna undan samningi sínum við Monaco
■ Franski varnarmaðurinn
Manuel Amoros, sem var í
sigurliði Frakka gegn Júgó-
slövum um síðustu helgi, var í
vikunni neitað af dómstólum
um að losna undan samningum sín
um við Monakó sem bindur
hann við félagið fram til ársins
1990.
Amoros, sem leikið hefur
með franska félaginu síðan
1977, vill ólmur losna undan
samningnum og eru ástæðurnar
bæði persónulegar og hafa
einnig með launamál að gera.
„Ég vinn mer inn 200 þúsund
krónur á mánuði en ef ég kæmist
annað gæti sú upphæð tvöfald-
ast," sagði Amoros í útvarpsvið-
tali í síðasta mánuði.
Spánn-Austurríki:
Víti forgörðum
- Butrageno ekki á skotskónum
Molar...
... John McFnroe sigraði
Björn Borg í Ijórum af
sex sýningarleikjum sem
kapparnir hafa háð í
Bandaríkjunum að
undanförnu. McEnroe
vann leiki þá er háðir
voru í Richmond, St.
Louis, Milwaukee og
Nashville cn Borg sigraði
í Minncapolis og Des Mo-
ines...
... Erik Lindh bar sigur
úr hvtum á Opna ungv-
erska mcistaramótinu í
borðtennis sem lauk ný-
lega. í úrslitunum vann
hann annan Svía, Jan-
Ove Waldner...
... Greg Norman sigraði
á Opna ástralska meist-
aramótinu í golfi sem
haldið var í Melhourne.
Aðeins 54 holur voru
leiknar vegna mikilla
rigninga á fyrsta keppn-
isdegi. Norman fór síð-
asta hringinn á 74 högg-
um en var í heildina á 212
höggum...
... Bandaríski golfmaður-
inn Mark O'Meara var
sér úti um 500 þúsund
dollara er hann vann sig-
ur á alþjóðlegu golfmóti
sem haldið var á Hawai
um síðustu hclgi...
■ Framherji Real Madrid og
spánska landsliðsins, Emilio
Butrageno klikkaði á víta-
spyrnu í æfingalandsleik Spán-
verja og Austurríkismanna í
Zaragoza á Spáni í fyrrakvöld.
■ Kínverjar sigruðu í Heims-
bikarkeppninni í kvennablaki
sem lauk í Tókyó nú í vikunni.
1 síðustu umferð mótsins unnu
kínversku stúlkurnar sigur á
Japönum og tryggðu sé þar með
titilinn, voru einu stigi á undan
Kúbu:
■ Opna skandinavíska meist-
aramótið í júdó fer fram í
Danmörku um helgina og keppa
þar nokkrir íslenskir júdómenn
þ.á m. Bjarni Friðriksson.
Karl Erlingsson keppir í -^65
Þessi spyrna var mikilvæg því
leikurinn endaði ()-(). Kappinn
fékk einnig tvö önnur gullfæri
en sóaði þeim háðum. Spánverj-
ar voru bctri í þessum leik en
nýttu ekki færin.
Kina 7 7 0 21 1 14
Kúba 7 6 1 19 3 13
Sovótríkin 7 5 2 15 7 12
Japan 7 4 3 12 10 11
Perú 7 3 4 9 14 10
Brasilia 7 2 5 9 17 9
Suður-Kórea 7 1 6 6 18 8
Túnis 7 0 7 0 21 7
kg flokki, Ómar Sigurðsson og
Halldór Hafsteinsson keppa í
h-78 kg flokki, Magnús Hauks-
son verður með í -f-86 kg flokkn-
um og loks keppir Bjarni í h-95
kg flokki.
Heimsbikarkeppni kvenna í blaki:
Gull til Kínverja
Annars er röðin þessi:
Bjarni keppir í Danmörku
fíj Föstudagur 22. nóvember 1985 18
LlL íþróttir
„Becker-manía“ tröllríður nú öllu Þýskalandi:
„Keisarinn er
áhyggjufullur
- Áhorfendur flykkjast á tennisleiki með Becker en mæta varla á völlinn
- Ástæðurnar eru þær að Þjóðverjar vilja fá að sjá sigurvegara -
Knattspyrnulandsliðið hefur ekki unnið i sex síðustu leikjum
■ Franz „Keisari“ Beckenba-
uer landsliðsþjálfari V-Þjóð-
verja í knattspyrnu hcfur nú
fengið meira en verðugan and-
stæðing í íþróttahciminum.
Beckenbauer og landslið hans
mun þó aldrei mxta þessum
andstæðingi á íþróttavellinum.
Sá sem nú velgir knattspyrnu-
mönnunum undir uggum er
Boris Becker tenniskappi sem
nú er nánast þjóðhetja í landi
sínu.
Vinsældir Beckers, sem sigr-
aði á síðasta Wimbledon-móti
og hefur síðan staðið sig frábær-
lega á tennismótum, eru nú svo
miklar að knattspyrnulandsliðið
hefur ekki farið varhluta af
þeim. Fyrir landsleikinn íknatt-
spyrnu gegn Tékkum um síð-
ustu helgi þágerði Bcckenbauer
allt sem í hans valdi stóð til að
fá fólk til að mæta á völlinn.
Hann kom fram í ótal blaða-,.
útvarps- og sjónvarpsviðtölum.
Talaði þá gjarna mikið um að
liðið væri komið til Mexíkó og
nú væri rétt að sýna því þann
stuðning sem liðið þyrfti til að
byrja undirbúning fyrir þá stóru
keppni.
En áætlum Beckenbauer
brást. Hitastigið þennan dag
var um frostmark. Það var snjór
yfir öllu. Fólk átti möguleika á
að sjá leikinn beint í sjónvarp-
inu og það sem mestu máli
skipti. Boris Becker var að spila
úrslitaleikinn gegn Ivan Lendl á
opna innanhússmótinu í
London. Þessi leikur var líka í
sjónvarpi í beinni útsendingu.
Niðurstaðan var því sú að að-
eins um 20 þúsund komu á
leikinn á Ólympíuleikvangnum
í Múnchen. Þetta er næst
minnsti áhorfendafjöldi hjá
knattspyrnulandsliðinu á
heimavelli og mikil vonbrigði
fyrir Beckenbauer þar sem spil-
að var í borginni sem hann gerði
fræga með snjöllum leik sínum
með Bayern Múnchen.
Það var líka dálítið skondið
að tveimur dögum áður höfðu
verið seldir miðar á úrslitaleik
Þjóðverja og Svía í Davis Cup í
tennis. Sá leikur fer fram í
... Katrín Doerre frá A-
Þýskalandi sigraði í al-
þjóðlega Maraþonhlaup-
inu fyrir konur í Tókyó.
Doerre hljóp á 2:34,21
en hún sigraði einnig í
fyrra í þessari sömu
keppni...
... Sovétmenn sigruðu á
alþjóðlegu blakmóti sem
haldið var í Seoul í Suður-
Kóreu nú nýlega. Þeir
sigurðu Frakka í úrslita-
leik 15-9, 12-15,15-10 og
15-3...
... Martina Navratilova
sigráði á Brisbane Classic
tennismótinu sem lauk á
sunnudaginn. Hún mætti
Pam Shriver í hörku úr-
slitaleik og vann 6-4 og
7-5...
Múnchen og það voru um 130
þúsund manns sem slógust um
þá 13 þúsund miða sem til sölu
voru.
Eftir leikinn á sunnudag sem
endaði 2-2 og var sjötti lands-
leikur Þjóðverja í knattspyrnu í
röð sem þeir ná ekki að sigra þá
var Beckenbauer dálítið argur.
Nú, fréttamenn saumuðu líka
að honum og sögðu að mörgum
þeirra hefði þótt leikur Beckers
og Lendl mun skemmtilegri
heldur en knattspyrnan sem
Þjóðverjar buðu uppá gegn
Tékkum. Beckenbauer svaraði
rneð reiðitón. „Sennilega skilja
íþróttafréttamenn betur tennis
en fótbolta."
Fyrirliði þýska landsliðsins.
Kar!-Heinz Rummenigge, hefur
viðurkennt þá hættu sem knatt-
spyrnunni stafar af Becker.
„Við verðum að finna leiðir til
að vinna aftur á okkar band það
fólk sem við höfurn misst til
Beckers," sagði Rummenigge
nýlega í viðtali.
En þó að v-þýska þjóðin sé
haldin „Becker-maníu" um
þessar mundir þá er ekki allt
glatað hjá knattspyrnulandslið-
inu. Á sunnudaginn voru fleiri
sem völdu að horfa á knatt-
spyrnu í sjónvarpinu heldur en
viðureign Beckers og Lendl.
Samt sem áður eru tölurnar að
verða meira og meira Becker í
hag. Leikjunr hans um víða
veröld er sjónvarpað beint nán-
ast í hvert sinn og knattspyrnu
ráðamenn eru orðnir uggandi
um sinn hag. Ástæðan á bak við
þetta allt er auðvitað sú að
þýska þjóöin krefst þess að fá
að horfa á sigurvegara. Becker
sigrar nánast í hverjum leik en
þýska landsliðinu í knattspyrnu
og Beckenbauer hefur reynst
erfitt að uppfylla þessi skilyrði
almennings.
Síðan Beckenbauer tók við
völdurn hjá landsliðinu þá hefur
það spilað 14 leiki. Sex hafa
unnist, tveir endað með jafntefli
og sex tapast. Honum var tekið
sem frelsara þegar Þjóverjar
unnu Tékka 5-1 í Prag en það
var fjórði sigurleikurinn í röð
hjá liðinu. Síðan hefur hvorki
gengið né rekið. Liðið er að
vísu komið til Mexíkó en það
leikform sem liðið hefur verið í
að undanförnu nægir því varla
til að vinna sigur á HM.
Það er því varla nema von að
Becker sé hinn nýi „íþrótta-
Messías" þeirra Þjóðverja sem
krefjast sigurs umfram allt.
Beckenbauer hefur orðið þessa
var og er nú orðinn hálf skapill-
ur og ekki sá viðmótsþýði „Keis-
ari" sem einu sinni var stjarna
allra Þjóðverja. Hlutirnirbreyt-
ast fljótt og tap er það versta
sem til er í eyrum Þjóðverja.
■ Það er ekki alveg trúverðugt brosið á Beckenbauer. Hann hefur
ekki náð að setja saman sigurlið.
NBA KORFUKNATTLEIKURINN:
■ Úrslit aðfaranótt fimmtudagsins. Boston unnu í fram-
lengingu. Knicks eru búnir að missa Patrick Ewing meiddan
um tíma að minnsta kosti. Þá er aðalstigaskorari þeirra,
Bernard King, líka meiddur.
Detroit Pistons-New York Knicks................................. 109-98
Philadelphia 76ers-Golden Sate Warriors ....................... 117-113
Washington Bullets-Cleveland Cavaliers .......................... 101-38
Atlanta Hawks-Chicago Bulls ................................... 116-101
Houston Rockets-Indiana Pacers................................... 126-97
Phoenix Suns-San Antonio Spurs................................. 121-100
Los Angeles Lakers-Los Angeles Clippers........................ 122-107
Milwuakee Bucks-Seattle Super Sonics........................... 116-106
FR-Boston Celtics-Utah Jazz ................................... 115-106