NT - 23.11.1985, Blaðsíða 13

NT - 23.11.1985, Blaðsíða 13
Laugardagur 23. nóvember 1985 13 Viö tímans fl jót IVáMigur frá ýimuni loixlum Alan Bout hcr enrlursagói Frásagnir úr fortíðinni Sóla, Sóla í fortíð og nútíð Út er komin hjá Máli og menningu skáldsaga Sóla, Sóla eftir Guðlaug Arason. Þetta er fimmta skáldsaga Guðlaugs, en meðal fyrri bóka hans má nefna verkin Pelastikk og Eldhús- mellur. Sögumaður þessarar bókar er Hjálm- ar Hjálmarsson rithöfundur. Lesand- inn kynnist honum í upphafi í leit af yrkisefnum - og kannski líka sjálfum sér. Tveir atburðir verða til að ger- breyta lífi hans. Á elliheimili hittir hann fyrir tilviljun Sólu, íslenska alþýðukonu sem rekur ættir sínar til galdrafólks á 17. öld. Um svipað leyti verður ljóst að kona Hjálmars á von á barni. Hjálmar ákveður að skrifa ættarsögu Sólu og um leið fer hann að Guðlaugur Atason segja barni sínu ófæddu frá sínu eigin lífi. Kátleg karlmennskupróf Hinn vinsæli barnabókahöfundur Andrés Indriðason sendir frá sér nýja unglingabók: Bara stælar. í Bara stælar segir frá Jóni Agnari Péturssyni, 14 ára Eyjapeyja, sem flytur til Reykjavíkur á miðjum vetri og byrjar í nýjum skóla, fullur af gleði og eftirvæntingu en kannski einu númeri of lítill miðað við aldur og himnastigana í bekknum hans. Hann þarf að sýna þeim að hann sé karl í krapinu og engin veimiltíta, en eink- um þarf hann þó að reyna að ganga í augun á skrautblóminu í bekknum með taglið í hárinu, sem virðist reyndar alls ekki frábitin því að kynnast honum. Jón Agnar þarf að gangast undir ýmis karlmennskupróf og fjöldi kátlegra og grátlegra atvika sprettur af þeim raunum. Út er komin myndarleg bók með safni frásagna frá ýmsum löndum undir heitinu Við tímans fljót. Það er Alan Boucher prófessor sem endur- segir frásagnir, Helgi Hálfdánarson þýddi þær, en Þóra Sigurðardóttir myndlistarmaður gerði bæði teikning- ar og litríkar koparætingar í bókina. Mál og menning gefur út. í bókinni er að finna tuttugu og tvær frásagnir af bæði frægum og lítt kunnum mönnum, ætlaðar fróðleiks- fúsum unglingum. Hetjur mannkyns- sögunnar ganga þar djarflega fram, Davíð konungur, Kírus iiinn mikli, Jóhanna af Ork og Elfráður Eng- landskonungur sem barðist við vík- inga. Mikið segir frá hinum fornu Grikkjum og Rómverjum, meðan annars frá ævintýralegri vörn Spart- verja í Laugaskarði gegn Persakon- ungi með óvígan her, en líka er sagt frá fegurstu stúlkunni við hirð keisar- ans í Kína sem óvart var valin drottn- ing höfuðfjandans, Tartarahöðfingj- ans herskáa. Svo færast sögurnar nær okkur í tíma, Kólumbus siglir af stað og finnur Ameríku og Marja Kingsley heldur inn í myrkviði Afríku með regnhlífina sína eina að vopni. Skilningstré Sigurðar A. Mál og menning hefur sent frá sér bókina Skilningstréð eftir Sigurð A. Magnússon. Skilningstréð er fjórða bindið í uppvaxtarsögu Jakobs Jó- hannessonar, hin fyrri eru Undir kalstjörnu, Möskvar morgundagsins og Jakobsglíman. Sögusvið hinnar nýju bókar er Reykjavík um og eftir lok seinni heimsstyrjaldar. Hér segir rá mennta- skólaárum Jakobs, samskiptum hans við fjölskylduna í Herskólakampi, sem ekki reynast sársaukalaus, og starfi hans í KFUM og kynnum af merkum mönnum í sambandi við það. En Jakob er staddur á vegamót- um: á hann sækja efasemdir um trúna, menntaskólalífið býður upp á margar freistingar og hann er ekki jafn viss og áður hvaða vettvang hann eigi að kjósa sínu lífi. Höfundur bregður jafnframt upp mynd af lífinu í Reykjavík á þessum árum, en segja má að höfuðborgin sé í vissum skiln- ingi stödd á svipuðum krossgötum. framtíðccrinnar íjölmiðli / Islenska útvarpsíélagið hí. er almenningshlutafélag með yíir 300 hluthaía. Markmið félagsins er að standa að útvarpsrekstri, jaínt hljóðvarps sem sjónvarps. Stefnt er að því að hefja hljóðvarpsútsend- ingar strax d vormdnuðum 1986 að fengnu leyíi út- varpsréttamefndar. íbúar d öllu Suðvesturlandi munu nd útsendingum íslenska út- varpsfélagsins. Ku hyggst íslenska út- varpslélagið auka hlutalé sitt um 10 milljónir króna. Með því verður hlutaíé íé- lagsins 15 milljónir króna. Við bjóðum þér hlut í íélag- inu. Þannig verður þú þátt- takandi í byltingu fjölmiól- unar á íslandi. Hlutur þinn rœðst af því hversu mikið þú vilt og getur lagt fram. Hlutabréfin eru gefin út í stœrðum 1000, 10.000 og 100.000 krónur, Eitt atkvœði fylgir hverjum 1000 króna hlut. Hœgt er að greiða hlutaféð með 6 mánaða skuldabréíi. m leið og þú leggur þitt af mörkum tryggir þú arðsemi peninga þinna, í rekstraráœtlun íslenska út- varpsfélagsins* er gert ráð fyrir 22,24% arðsemi hluta- fjár. Þetta þýðir með öðrum orðum það að íjárfesting þín gœti skilað 22,24% ávöxtun umfram veróbólgu á íyrsta ári! * Rekslraráœtlunin er unnin al Endurskoðunarmiðstöðinni hf. - N. Manscher. FJÁRFESTINGARFÉLAG ÍSLANDS HF Fjáríesting þín í Í.Ú. er líka frádráttarbœr frá skattskyldum tekjum* Hún skilar því arði strax. Einstaklingur getur dregið allt að 25.000 krónum frá skattskyldum tekjum. Hjón mega draga allt að 50.000 krónum írá tekjum sínum.* * ' sbr. 1. no. 9/1984 og samþykktir Ríkisskattstjóra. '* Þessar tölur giltu árið 1984. Ekki er ólíklegt að þœr hœkki um u.þ.b. 30% á þessu ári. Bréfin eru seld hjá Fjár- íestingarfélagi íslands hí. Hafnarstrœti 7. Sölutími er írá 14. nóvember - 31. desember 1985. Allar nánari upplýsingar um þetta útboð fást hjá Fjáríestingarfélagi íslands. Halnarstrœti 7-101 Rvik, s. 28566 og 28466 ÍO milljón króna hlutafiárútboö Skilningstréð er 275 bls. að stærð, unnin í Prentsmiðjunni Odda hf. Kápu gerði Hilmar Þ. Helgason. VjS/VSQ

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.