NT - 23.11.1985, Blaðsíða 3
Laugardagur 23. nóvember 1985 3
í Austurvegi eftir Halidór Laxness endurútgef in:
Allt of
margar bækur
- segir Nóbelsskáidið
■ „Þetta er ekki ciginleg bók, til-
heyrir frekar vasabókalitteratúr,"
sagöi Halldór Laxness Nóbelsskáld á
fundi með fréttamönnum þegar bóka-
forlagiö Vaka-Helgafell kynnti ný-
útkomna og endurskoðaða bók Lax-
ness í Austurvegi. Bókin er ferðabók
Halldórs frá Rússlandi sem upphaf-
lega var gefin út í litlu upplagi fyrir 52
árum og hefur verið ófáanleg um
áratuga skeið.
Skáldið lýsir í bókinni hughrifum
sínum og þeim hugmyndum sem
hann kynntist þar árið 1932 - fimmtán
a'rum eftir að byltingin var gerð í
Rússlandi og sem næst áratugur frá
því að almennri borgarastyrjöld þar
lauk.
„Eg fór með alveg fordómalausu
hugarfari til Rússlands," sagði
Halldór. „Ég var þá búinn að vera 3
ár í Ameríku þar sem mér þótti
fróðlegt að vera en í Ameríku var
aldrei talað um Rússland af neinni
alvöru, og ég hafði ákaflega litlar
upplýsingar um Rússland, hafði ekki
lesið própaganda frá Ameríkönum
en þeir voru lítið hrifrtir af þessu ríki
frá upphafi. En ég var fullur af áhuga
á Rússlandi og bókin lýsir áhuga
mínum í þessu alþjóðlega, ævintýra-
lega landi sem ég vissi svo lítið um.“
Halldór bætti því við að bókin
hefði verið skrifuð í miklum flýti á
meðan endurminningarnarfrá þessari
för voru honum enn í fersku minni.
Sumt hefði verið skrifað í ferðinni og
sumt hefðu verið þýðingar á fyrirlestr-
um eða ávörpum málsmetandi manna
í þessu landi. Halldór sagðist hafa
fengið ágætan vin sinn til að þýða
fyrirlestrana og ávörpin en á því hefði
■ „Ég fór með fordómalausu hugarfari til Rússlands," sagði Nóbelsskáldið í
tilefni endurútgáfunnar. IMeð honum á myndinni eru Olafur Ragnarsson hjá
Vöku-Helgafelli og Hjördís Finnbogadóttir fréttamaður útvarpsins.
NT-mynd: Kóbcrt.
verið annar stíll sem hann liefði lagað
til fyrir nýju útgáfuna. Skáldið sagði
að það hefði verið gaman að fara yfir
þessa bók aftur efnislega væri hún
ekki breytt aðeins lagfært margt í
stílnum og frásögninni, og það hefði
verið gaman að bjartsýnum ræðunt
Stalíns, Stalín hefði enda verið gletti-
lega góður rithöfundur, hefði víst
verið skáldlega hneigður, guð-
fræðingur og hefði haft mikinn áhuga
á heimspeki.
Halldór kannaðist ekki við að hann
hefði fcngið bágt fyrir bókina. “Þaö
getur verið að ég hafi ekki tekið eftir
því og ég veit ekki hvernig það hefði
átt að vera. Ég var að vísu alvanur þvi
að vera skammaður í blöðunt, ég
þótti vera óvinur bænda en ég rnan
ekki eftir að hafa verið skammaður
fyrir’þessa bók umfram annað sern
ekki hafði fallið mönnum í geð.“
Á borðinu fyrir framan Halldór og
Ólaf Ragnarsson hjá Vöku-Helgafelli
voru 48 bindi af skáldverkum
Laxness. Skáldið var spurt að því
hvort þetta ritsafn væri ekki heimsmet
á íslandi og hvað því fyndist um að
hafa skrifað allar þessar bækur.“ Ég
veit ekki, það gæti risið upp sú
spurning h vort ég hefði búið á Kleppi.
Það er ógurlega bjánalegt að skrifa
svona margar bækur og enginn heið-
arlegur rnaður á íslandi myndi Itaga
sér svona. En þetta er skrifað af
einhverri þörf, ég hafði bara svona
mikla löngun til að tjá ntig en þetta
eru alltof ntargar bækur,“ sagði skáld-
ið að lokum.
ÖLL ALMENN PRENTUN
LITPRENTUN
TÖLVUEYÐUBLÖÐ
• Hönnun
• Setning
• Filmu- og plötugerð
• Prentun
• Bókband
PRENTSMIDJAN
Cl HF.
SMIÐJUVEGI 3, 200 KÓPAVOGUR
SÍML45000
Gæsir og
sauðfé
slást
um stráin
- afleiðingin: Minni
fallþungi dilka og
aukinn uppblástur
■ Fallþungi dilka af afrétti Bárð-
dælinga og Mývatnssveitarbænda, var
mun minni í ár, en síðasta ár. Þessu
kenna menn auknum ágangi heiða-
gæsarinnar síðastliðið sumar, og í
kjölfar þess færri strá á afréttum fyrir
sauðfé. Þá var veður rysjótt í sumar.
Víða meðfram vatnsföllum, þar
sem besti haginn er, var gæsin sérstak-
lega hörð og skildi landið ertir sviðið.
Björn Yngvason bóndi á Skútustöð-
um í Mývatssveit sagði í samtali við
NT, að gæs hefði aldrei verið í jafn
miklum mæli á afrétti þeim sem hann
smalaði ásamt nágrönnum sínum.
„Víða var land hreinlega sviðið. Við
hittum Bárðdælinga í leitunum og
höfðu þeir sömu sögu að segja. Þá var
ógrynni af gæs upp með ölíu Skjálf-
andafljóti og bakkar víða sviðnir af
ágangi hennar,“ sagði Björn.
í sama streng tók Eysteinn Sigurðs-
son bóndi á Arnarvatni við Mývatn.
Það sem vakti einna helst eftirtekt
hans, var sú staðreynd að vanalega
hefur það fé verið vænst sem gengið
hefur lengst inn á afrétt. í ár var þessu
öfugt farið. Það fé sem lengst gekk
var rýrast.
Óttar Geirsson ráðunautur hjá
Búnaðarfélagi íslands taldi að vel
gæti verið um samverkandi ástæður
að ræða, bæði að gæsin hefði verið
ágeng og eins að slæmt tíðarfar hefði
haft mikið að segja.
Stórt helgar-
mót Flugleiða
■ Sjöunda helgarskákmót
Flugleiða verður teflt nú um
helgina í Kristalsal Hótel Loft-
leiða. Alls keppa 24 sveitir
víðsvegar að af landiu og eru
margir sterkustu skákmanna
okkar meðal keppenda.
Tefldar verða 23 umferðir og
hefst mótið kl. 9 í dag en lýkur
kl. 18.00 á sunnudag.
Munið okkar viðurkenndu varahlutaþjónustu
Opið laugardag og sunnudag frá kl. 10-16
Bifreiðar og Landbúnaðarvélar hf
Suðurlandsbraut 14 - Sími 38 600
FULLTHUSAF
VILLIKÖTTUM
EL TICRE. PANTERA ■ COUGAR ■ PANTHER ■ CHíETAH ■ JAG ■ KITTYCAT
Bifreiðar og Landbún-
aðarvélar hafa tekið að
sér söluumboð fyrir
CHEETAH vélsleðinn hentar vel í leik og starfi, en einkum
viö hinar erfiðustu aðstæöur. Hann er búinn langri A arma fjöðrun að
framan. Beltið er mjög langt (156" eða 396,2 cm) sem gerir þaö að
verkum að sleðinn flýtur vel við erfiðustu aðstæður. Á hinn bóginn er
CHEETAH eini „long track" sleðinn sem lætur að stjórn eins og stuttur sleði
á harðfenni vegna þess að ca. 1/3 af beltinu er uppsveigt á lið að aftan
sem nýtist í mjúkum snjó. Fáanlegar eru tvær vélastærðir, 529cc
vökvakæld og 500cc loftkæld. Báðar blanda olíu sjálfar. Innifalið í verði
er: Fullkomið mælaborð, stöðuhemill, vegalengdarmælir, upphituð
handföng, bögglaberi, sæti f. tvo.
KITTY CAT er eini barnasleðinn sem
framleiddur er og hefur notið mikilla vinsælda. Vélin
er mjög lítil og búin gangráði þannig að ekki er hægt
að aka hraðar en 12 km. Til öryggis loga stöðugt
fram oa afturljós. Sjálflýsandi borði er hringinn um
kring. Oryggislykill.
vélsleða á íslandi