NT - 19.12.1985, Blaðsíða 19

NT - 19.12.1985, Blaðsíða 19
Hinn gullni meðalvegur Kristinn Revr Gncistur til grips, Letur hf., 1985 Það verður ckki sagt um Ijóðin í þessari bók að þau marki nýja stefnu eða brjóti áður ófarnar leiðir. Höf- undur yrkir þarna með þeint hætti að hann fetar vandlega gullinn meðal- veg. Hann kann handbragð sitt vel og siglir áfram með hóflegri kröfu- hörku. Ljóð hans eru einhvern veginn miðja vegu á milli þess að vera slöpp eða snjöll. Verulega slæm Ijóð fann ég þarna ekki, og ekki heldur neitt sem gnæfir hátt upp yfir aðra. Að því er form snertir þá er ekki út á það að setja. Höfundur yrkir í nokkuð hefð- bundnum stíl, sem meðal annars felst í því að Ijóðin eru bundin í tölu- vert fastar skorðuraf hrynjandi. Aft- ur á móti er hann nútímalegur í því að hann rímar ekki nema þar sem honum þykir henta, og sama máli gegnir um stuðlun. Þá eru yrkisefnin yfirleitt sótt í daglega lífið og umhverfið. Þarna er ekki lýst neinum stórum atburðum, og þarna er heldur ekki kropið niður í leit að neinu smáu og fáfengilegu. Ljóðin eru létt og lipur, en skír- skotanir í þeim eru fáar. Þarna er ekki verið að höfða til sálarlífsins í lesandanum eða vekja með honum tilfinningar. Þetta er atvik daglegs lífs sem þarna eru nokkuð snyrtilega sett í bundið mál. En þó að þarna séu ekki stórir hlutir á ferðinni þá er þó sitt af hverju laglegt þarna að finna. Ég nefni til dæmis IjóðiðÁ vegi staddur, en það er lýsing á því þegar höfundur sleppur naumlega undan bíl sem ökufantur stýrir á ofsahraða. Það er einhver reiðilaus kímni í því ljóði sem kemur manni ósjálfrátt til að brosa. Og kannski er það einmitt þessi góðlátlega kímni sem er meginein- kenni bókarinnar. Yrkisefni í henni eru í flestu hefðbundin. Þarna er til dæmis töluvert af hugleiðingum skáldsins um ýntis málefni líðandi stundar. Þetta teygist oft yfir í ádeil- ur, sem beinast gegn ýmsu því sem aflaga fer í heiminum. En á bak við þessar ádeilur liggur hvorki tilfinn- ingahiti né skapharka. Það er miklu frekar að skáldið geri góðlátlega gys að því sem honum finnst aðfinnslu- vert í veröldinni. Þá eru líkingar fáar í bókinni og myndmáli lítið beitt. Þó bregður slíku fyrir, og ýmsu laglegu, svo sem í upphafserindi kvæðis sem nefnist Ótíðindi: Veðurguð valdsins ber vísifingur að hríðskotahólknum svo hegli duglega á berskjölduð bök. En að öðru leyti er bókin ort á fremur einföldu máli og sléttu, og það eru atvik úr lífi höfundar og hug- leiðingar hans sem bera hana uppi. Gott sýnishorn er t.d. Tautað í barm: Vægðarlaus ertu viðskotailli vindur í fang en allt sem þú gazt oggetur vor sumar haust og vetur hjálpar þér lítt að hefta minn gang hertu þig betur. Á einum stað bregður þó út af þessu. í kvæði sem heitir Aðflug: URVAL BOKA - ALLAR JOLABÆKURNAR VANDAÐAR GJAFAVÖRUR Síðumúla 35 Sími 36811 Alltaf næg bílastæði ■ Kristinn Reyr. Niður ígljúfur nálægra skýja sprettir Faxinn úr spori og þá sem langormur liggi á lýsigulli í kvosinni milli Keilis og Esju en þar aðeins þar bfður mín borg og bólstaður kær hér einmitt hér. Þarna er sýnd mynd af útsýni far- þega í flugvél sem er að búa sig undir lendingu á Reykjavíkurflugvelli. Og það vekur spurningar. Af hverju eru yrkisefni á borð við þetta svo fátíð í nýjum Ijóðabókum nú á dögum? Getur það verið skýring á kreppu Ijóðsins þessi árin að það sé komið of langt frá daglegum reynsluheimi alls þorra fólks? Eysteinn Sigurðsson FRANSKA VINNUKONAN UPPÞVOTTAVÉLIN SEM GENGUR BARA FYRIR VATNI ÚR KRANANUM. Litaðar Ijósaperur, útiseríur og jólaseríur í úrvali Rafviðgerðir hf. v/Eskihlíð, sími 23915. Heildsölubirgðir Brauðform. FflTfUAGERINN Grandagardi 3, R., Mánagötu 1, ísaf., Egilsbraut 5, Neskaupst., M s.91-29190. 8.94-4669. 8. 97-7732. Drengjasparibuxur, bómullar gullfallegar kr. 980.00.- Herra ullarbuxurfrá kr. 1.290-1 Herrapeysur 30% ull kr. 1.190 Dömupeysurfrá kr. 790 Þó bensínltr. kosti 35 kr. þá margborgar sig að koma Þú getur borg- að meira. En ef þú ert hag- sýn(n) þá kem- urðu á Fata- lagerinn. SENDUM IPÓSTKRÖFU He-Man 490 EUROCARO jogginggallarnir eru komnir aftur kr. 690. Opið daglega 10-18 föstudag 10-19 - laugardag 10-22

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.