NT - 19.12.1985, Blaðsíða 23

NT - 19.12.1985, Blaðsíða 23
Létt lesmál frá Námsgagnastofnun ■ Um þessar mundir eru að koma út hjá Námsgagnastofnun bækur sjö höfunda er hlutu verðlaun og viður- kenningu í samkeppni sem stofnunin gekkst fyrir á sl. ári um lestrarefni á léttu máli. Með útgáfu þessara bóka er leitast við að bæta úr brýnni þörf fyrir efni sem þetta og auka fjöl- breytni í lestrarefni skólanna. Eru bækurnar sérstaklega ætlaðar nemendum sem nokkru valdi hafa náð á lestri en skortir þjálfun. Þær eru mikið myndskreyttar og reynt er að hafa uppsetningu og letur sem greinilegast. Bækurnar verða tilbúnar til af- greiðslu í byrjun desember frá sölu- deild Námsgagnastofnunar. Bras og þras á Bunulæk Verðlaunasaga eftir Ingunni Steinsdóttur með myndum eftir Ingvar Guðnason. Bókin er fyrir yngstu lesendurna, leturerskýrt og línur stuttar. 76 bls. Ljósin lifna Verðlaunasaga eftir Ragnheiði Gestsdóttur. Höfundur mynds- kreytti. Myndabók fyriryngstu les- endurna með stuttum texta á hverri opnu. 40 bls. Baristgegnofbeldl, lygum, spillingu og svikum ■ Út er komin ný bók eftir hinn kunna spennusagnahöfund, David Morrel en hann skrifaði bókina „I greipum dauðans (First Blood)“ sem samnefnd kvikmynd var gerð eftir. Söguhetjan, Rambó, varð síðan til- efni annarrar bókar og kvikmyndar, RAMBÓ. Þessi bók Morrell sem nú kemur út nefnist á íslensku, Bráð banaráð og er efni hennar kynnt þannig á bókarkápu: „Allt byrjaði þetta í heimsstyrjöldinni síðari og endaði þrjátíu og sjö árum síðar á skelfileg- an hátt. Pétur Houston kemur til Frakklands til að efna gamalt heit unt að heimsækja leiði föður síns sem dáið hafði í stríðinu. En yfirvöld tjá honum að leiðið finnist ekki og franskur vinur föður hans sem lofað hafði að annast gröfina hafði horfið á dularfullan hátt árið 1944. Eini mað- urinn sem veit leyndarmál hans er gam- all og lasburða prestur sem er þögull einsoggröfin. Leit Péturssnýst upp í martröð er eiginkona hans ferst í dularfullu bílslysi. Pétur svcr þess dýran eið að hefna konu sinnar og láta einskis ófreistað til að komast til botns í niálinu. Leikurinn berst um borgir Frakklands og upp í Alpana en Pétri Houston er ljóst að voldugir andstæðingar cru á slóð hans. Hann berst gegn ofbeldi, lygum, spillingu og svikum sem rekja má þrjátíu og sjö ár aftur í tímann... Bráð banaráð hefur hlotið lofsam- leg ummæli gagnrýnenda eins og eftirfarandi blaðadómar sýna: „Ef ég hcfði vitað hversu ótrúlega spennandi þessi bók er hefði ég varla hætt á að opna hana" Daily News. „Þessi bók er engri lík. spennan hlýtur að nálgast hættumörk” Los Angeles Tribune. Bókina þýddi Andrés Kristjáns- son. Bókaútgáfan Iðunn gefur út. Oddi hf. prentaði. Kápan er hönnuð á auglýsingastofunni Octavo. Það var skræpa Verðlaunasaga eftir Andrési Indriðason með myndum eftir Bri- an Pilkington. Bókin er sett upp með skýru letri og stuttum línum. 117 bls. Flautan og vindurinn Unglingasaga eftir Steinunni Jóhannesdóttur með myndum cftir Valgarð Gunnarsson. Sagan hlaut viðurkenningu í samkeppni Náms- gagnastofnunar. 93 bls. Hundakofi í paradís Höfundur er Árniann Kr. Ein- arsson, Brian Pilkington niynd- skreytti. Sagan hlaut viðurkenn- ingu í samkeppni Námsgagnastofn- unar. 72 bls. Ég er kölluð Lilla eftir Þórð Helgason með mynd- um eftir Búa Kristjánsson. Sagan hlaut viðurkenningu í samkeppni Námsgagnastofnunar. 56 bls. Sín ögnin af hverju Höfundur Árni Árnason. Ör- stuttar sögur sem börnin eiga sjálf að bæta við með teikningum eða skrifuðu máli. Skýrt letur og stuttar línur. 48 bls. Djass og djassfólk ■ Félag íslenskra hljómlistar- manna og Iðnskólaútgáfan, gefa nú út í sameiningu bókina Djass, fyrsta alþýðlega upplýsinga- og fræðslurit hér á landi um þessa músík sem orð- ið hefur snar þáttur í menningu tutt- ugustu aldar. Höfundur bókarinnar Jón Múli Árnason hefur frá því fyrir miðja öld verið einn ötulasti boðberi djasstónlistar í ræðu og riti, þættir hans í útvarpinu í áratugi rómaðir, er óhætt að fullyrða að ekki hafa aðrir kynnt landsmönnum djassmúsík af meiri virðingu og þekkingu á við- fangsefninu. Því varð það að skóla- stjórn Tónlistarskóla F.I.H. í Braut- arholti 4 í Reykjavík leitaði til Jóns Múla, að hann tæki að sér kennslu í djasssögu þegar skólinn tók til starfa árið 1980. Síðan hefur hann kennt þar og með árunum sett niður á blað margvíslegan fróðleik um djass og iðkendur hans. I fyrstu var ætlunin að gera stutta handbók til hagræðis fyrir nemendur Tónlistarskóla F.Í.H. sem margir hverjir höfðu djassmúsík sem aðal- fag en fljótt varð Ijóst að efnið var viðameira en svo að unnt væri að gera þvt' viðunandi skil í litlu kveri. Því varð það úr að JMÁ tókst á hendur að semja yfirlitsverk um djassmúsík í hálfa öld, var þá miðað við djass á plötum frá 1917- til 1967. Jafnframt hefur höfundur hljóðritað á snældur alla dansa sem fjallað er um í bókinni, - og leiknir eru í kennslustundum í F.Í.H: skólanum. Hefur hann notið þar aðstoðar tæknideildar Ríkisútvarpsins á Skúlagötu 4, - enda hefur mikið af | efni bókarinnar verið flutt í djass-■ þáttum útvarpsins á undanförnum árum. Snældurnar eru í eigu Tónlist- arskóla F.Í.H. og Ríkisútvarpsins, aðgengilegar öllum sem þurfa.1 að grípa til þeirra í starfi og námi. En bókin Djass er öðrum þræði plötu- skrá. Þar eru bókuð nöfn og númer á útgáfuplötum gömlum og nýjum sem koma við sögu. Er bókin því mikill fengur þeim sem kynnu að vilja fræð- ast um endurútgáfu á snilldarverkum í jassi á fyrri hluta aldarinnar, sem oftast eru fáanlegar á hæggengum plötum núorðið. í bókinni er fjöldi mynda af fræg- um djassspilurum, allt frá fyrstu tíð og fram á síðustu ár, erlendum og innlendum. Útgefendur bókarinnar. þykjast þess fullvissir að hún verði öllu tónlistarfólki og tónlistarunn- endum mikill fengur, nú þegar djass- múst'k nýtur æ meiri vinsælda og virð- ingar hvarvetna í heiminum. Iðn- skólaútgáfan og F.Í.H. fagna því að geta veitt fólki aðgang að greinargóðu fræðsluriti um djass og djassfólk. Fimmtudagur 19. desember 1985 23 sjonvarp veft hvasí hatm syngur. Fess vegn* notar Qölskyldan Kristinn Sigmundsson og skylda hafa lagt sitt af mörkum til aukins umferðaröryggis ineð því að gefa gott fordæini í notkun endur- skinsmerkja. Nýkomið er út plakat frá Umferðarráði og Rauða krossi íslands þar sem fjölskyldan minnir á þetta einfalda og ódýra öryggis- tæki. HHl Kristinn Sig- mundssoní Gestagangi ■ Gestur Ragnheiðar Davíðs- dóttur á Rás 2 kl. 21 i kvöld er cng- inn annar en Kristinn Sigmundsson söngvari. Kristin þekkir hvert mannsbarn á Islandi, enda hefur liann veriðólat- ur að ferðast um landið og skemmta með söng sínum, og oft a.m.k. hefur Jónas Ingimundarson píanóleikari verið í fylgd með honum. Hann hefursungið nteð Is- lensku óperunni við góðan orðstír og nú er nýlokið glæsilegum sýn- ingunt Þjóðlcikhússins á Grímu- dansleik Verdis, þar sem hann fór með stórt hlutverk. í fyrra kom út á vegum Arnar og Örlygs plata með söng hans sem þótti hafa heppnast sérlega vel, og nú er nýkomin út plata, þar sem hann syngur jólalög með Mótettu- kórnum, „Ég held glaður jól", og hefur vonandi ekki tekisl síður til. Trúlega heyrist eitthvað af henni í kvöld, auk þess sem gaman verður að heyra hvað á daga Kristins hefur drifið síðan hann tók aö leggja sönginn fyrir sig í stað líffræði- kennslunnar í menntaskóla. Karlaklúbbur og forvitnar konur á 18. öld ■ I kvöld kl. 20. verður flullur í útvarpinu gantanleikurinn For- vitnu konurnar eftir ítalska leik- ritahöfundinn Carlo Gondoli. Leikritið var frumtlutt í útvarpinu árið 1966. Þýðandi er Hulda Val- týsdóttir. Leikstjóri er Helgi Skúla- son. Carlo Gondoli (1707-1793) var einn frægasti gamanleikjahöfundur ítala á 18. öld og átti stóran þátt í að blása nýju lífi í ítölsku gaman- leikina sem höföu verið í lægð um langt skeið. Gondoli byggöi leikrit sín á athugunum á daglcgu lífi tólks og skopast einkum að hinu fárún- lega í fari mannsins. Leikritið Forvitnu konurnar hefst með formúla þar sem Gondoli sjálfur kemur við sögu. I lcikrilinu segir frá herramönnum nokkrum sem stofnað hafa með sér dæmi- gerðan karlaklúbb þar sem konum er stranglega bannaður aðgangur. ■ Lárus Pálsson er meðal leik- enda í leikritinu Forvitnu konurn- ar. En auðvitað verður hin mikla Icynd sem hvílir yfir starfsemi klúbbsins til þess að kynda undir tortryggni og forvitni eiginkvennanna og þær ákveða að taka til sinna ráða. Leikcndur eru: Þorsteinn Ö. Stephensen. Herdís Þorvaldsdótt- ir, Valgerður Dan. Arnar Jónsson, Haraldur Björnsson, Guðbjörg Þorbjarnardóttir, Lárus Pálsson, Þóra Friðriksdóttir, Borgar Garð- arsson, Árni Tryggvason, Gísli Halldórsson. Gunnar Eyjólfsson og Helgi Skúlason. Leikritið Forvitnu konurnar verður endurflutt nk. laugardag kl. 20.30. Rás 2 kl. 23 P0PPGÁTAN ■ Það eru þeir Halldór Ingi Andrésson og Ásmundur Jónsson sem leiða saman hesta sína í Popp- gátunni í kvöld. ■ Þá cr komið að síðasta þætti forkeppni Poppgátunnar. sem verður á sínum stað á dagskrá Rás- ar 2 í kvöld kl. 23-24 undir stjórn Jónatans Garðarssonar og Gunn- laugs Sigtússonar. Keppendur i kvöld verða þeir Halldór lngi Andrésson, scm margir kannast við úr Plötubúöinni, og Ásmundur Jónsson í Gramminu. Síðast urðu úrslit mjög cindreg- in. Jakob Magnússon fékk 10 Vi stig cn Guðmundur Benediktsson 19stig. Aö forkcppninni lokinni fer Poppgátan í jólafrí, en eftir úra- mótin fara undanúrslitin afstaðog úrslitin vcrða svo kunn í febrúar. Til mikils er aö vinna því aö aðal- verðlaunin eru helgarferð til Lund- úna fyrir tvo á vcgum Fluglciða og Rásar 2. Fimmtudagur 19. desember 7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. 7.00 Morgunvaktin. 7.20 Morguntrimm. 7.30 Fréttir. Tilkynningar. 8.00 Fréttir. Tilkynningar. 8.15 Veöurtregnir. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barnanna: „Elvis, Elvis“ eftir Ma'iu Cripe Torfey Steins- dóttir þýddi. Sigurlaug M. Jónasdóttir les (17). 9.20 Morguntrimm. Tilkynningar. Tónleik- ar, þulurvelur og kynnir. ■10.00 Fréttir. 10.10 Fréttir. 10.05 Málræktarþáttur. Endurtekinn þáttur frá kvöldinu áöur sem Helgi J. Halldórs- son flytur. 10.10 Veöurfregnir. 10.25 Lesiö úr forustugieinum dagblaö- anna. 10.40 Þingfréttir. 10.50 „Ég man þá tíð“. Hermann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liönum árum. 11.20 Úr atvinnulifinu - Vinnustaöir og verkafólk. Umsjón: Höröur Bergmann. 11.40 Motguntónleikar a. „Vespurnar", forleikur eftir Vaughan Williams. Filharm- oníusveit Lundúna leikur. Adrian Boult stjórnar-b. Paul Robeson syngur negra- sálma og önnur lög meö kór og hljóm- sveit. Harriet Wingreen leikur á píanó. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregir. Tilkynningar. Tónleikar. 14.30 Á frivaktinni Þóra Marteinsdóttir kynnir óskalög sjómanna. 15.15 Frá Suðurlandi Hilmar Þóröur Sveinsson 15.40 Tilkynningar. Tónleikar 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 „Tónlist tveggja kynslóöa" Siguröur Einarsson kynnir. 17,00 Barnaútvarpið. Stjórnandi: Kristin Helgadóttir. 17.40 Tónleikar. Tilkyningar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins. 19.00 Fréttir. 19.40 Tilkynningar. 20.05 Daglegt mál. Siguröur G. Tómasson flytur þáttinn. 20.10 Leikrit: „Forvitnu konurnar" eftir Carlo Goldoni. Leikstjóri: Helgi Skúla- son. Leikendur: Þorsteinn Ö. Stephens- en, Herdis Þorvaldsdóttir, Valgeröur Dan, Arnar Jónsson, HaraldurBjörnsson, Guðbjörg Þorbjarnardóttir, Lárus Pálsson, Þóra Friöriksdóttir, Borgar Garö- arson, Árni Tryggvason, Gísli Halldórs- son, Gunnar Eyjólfsson og Helgi Skúla- son. Áöur útvarpað 1966 og 1970. Leikrit- iö veröur endurtekið næstkomandi laug- ardagskvöld kl. 20.30. 21.30 Gestur í útvarpsal. Bandaríski píanó- leikarinn Yvar Mikhasoff leikur píanólög eftiramerísktónskáld. 22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. 22.15 Veöurfregnir. Orö kvöldsins. 22.30 Fimmtudagsumræðan Umsjón: Hallgrímur Thorsteinsson. 23.00 Túlkun í tónlist. Rögnvaldur Sigur- jónsson sér um þáttinn. 24.00 Freftir. Dagskrárlok. Fimmtudagur 19. desember 10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórnendur: Kristján Sigurjónsson og Ásgeir Tómas- son. Hlé 14.00-15.00 í fullu fjöri Stjórnandi: Ásta R. Jóhannesdóttir. 15.00-16.00 í gegnum tiðina Stjórnandi: Jón Ólafsson. 16.00-17.00 Ótroðnar slóðir Kristileg popptónlist. Stjórnendur: Halldór Lárus- son og Andri Már Ingólfsson. 17.00-18.00 Gullöldin Lög frá sjöunda árat- ugnum. Stjórnandi: Vignir Sveinsson. Þriggja minútna fréttir sagóar klukkan: 11.00,15.00,16.00 og 17.00 Hlé 20.00-21.00 Vinsældalisti hlustenda Rás- ar 2 10 vinsælustu lögin leikin. Stjórn- andi: Páll Þorsteinsson 21.00-22.00 Gestagangur Stjórnandi: Ragnheiöur Daviösdóttir. 22.00-23.00 Rökkurtónar Stjórnandi: Svavar Gests 23.00-24.00 Poppgátan Spurningaþáttur um tónlist. Stjórnendur: Jónatan Garð- arsson og Gunnlaugur Sigfússon. 17-00-18.00 Ríkisútvarpið á Akureyri - svæðisútvarp. 17.00-18.00 Svæðisútvarp Reykjavik og nágrennis (FM90.1 MHz) Föstudagur 20. desember 19.15 Á döfinni Umsjónarmaður Karl Sig- tryggsson. 19.25 Svona gerum við Tvær sænskar fræðslumyndir sem sýna hvernig brauö er bakað og gluggar smiöaðir. Þýöandi og þulur Bogi Arnar Finnbogason. (Nord- vision - Sænska sjónvarpið). 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttir og veður 20.30 Auglýsingar og dagskrá 20.45 Þingsjá Umsjónrmaður Páll Magnússon. 21.00 Kastljós Þáttur um innlend málefni. Umsjónarmaöur Einar Sigurösson. 21.35 Skonrokk Umsjónarmenn Haraldur Þorsteinsson og Tómas Bjarnason. 22.25 Derrick Tíundi þáttur. Þýskur saka málamyndaflokkur. Aðalhlutverk: Horst Tappert og Fritz Wepper. Þýöandi Vetur- liði Guönason. 23.25 Seinni fréttir. 23.40 Ást í meinum (The Weather in the Streets) Ný bresk sjónvarpsmynd gerö eftir tveimur skáldsögum eftir Rosamond Lehmann. leikstjóri Gavin Millar. 01.25 Dagskrárlok.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.