NT - 19.12.1985, Blaðsíða 24
HRINGDU ÞÁ Í SÍIX/IA 68-65-62
Við tökum við ábendingum um fréttir ailan sólarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrirhverja ábendingu sem leiðir til
fréttar i blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fréttar mánaðarins. Fullrar nafnleyndar er gætt
NT, Síðumúla 15, Reykjavík, sími: 686300, auglýsingar 18300
Kvöldsímar: áskrift og dreifing 686300 • rrtstjórn 686392 og 687598 • íþróttir 686495
Tryggingastofnun samdi af sér
og situr nú uppi með himinháa reikninga frá læknum
■ Samningar um nýjan
gjaldskrársamning milli
lækna og Tryggingastofnun-
ar ríkisins standa enn yfir.
Málið mun vera á viðkvæmu
stigi en Tryggingastofnun
hefur farið fram á endur-
skoðun samningsins þar sem
vissir tekjupóstar lækna í
sérfræðingastétt urðu mun
hærri en búist hafði verið
við.
Síðastliðið sumar var
undirritaður gjaldskrár-
samningur við lækna og þar
teknir inn allmargir nýir
gjaldaliðir, sem læknarnir
höfðu farið fram á. Meðal
annars var farið að greiða
læknisverk sem ekki höfðu
verið greidd áður. Samn-
inganefnd Tryggingastofn-
unar mun lítið hafa haft í
höndunum varðandi þcssar
aðgeröir annað en ummæli
samninganefndar læknanna
og því rennt blint í sjóinn
með ýmis atriði samning-
anna.
Þegar farið var að taka
saman greiðslur stofnunar-
innar fyrir læknisverk sér-
fræðinga í september ogokt-
óber kom í ljós að greiðslur
þessar voru mun hærri en ráð
hafði verið fyrir gert eins og
áður segir. Ekkert bendir þó
til að læknarnir hafi misnot-
að aðstöðu sína og reikning-
ar þeirra virðast vera í fullu
samræmi við þá samninga
sem gerðir voru í sumar.
Læknar hafa einnig brugð-
ist vel við umleitan Trygg-
ingastofnunarinnar og fallist
á að taka upp vióræður við
stofnunina til að leiðrétta
taxtana.
„Það er Ijóst að samninga-
nefnd Tryggingastofnunar
hefur einfaldlega samið af
sér,“ eins og einn heimildar-
maður NT orðaði það. „Það
verður að leita lengi til að
finna annað eins í sögu
kjarabaráttunnar hér á
landi."
Heilbrigðis- og trygginga-
ráðuneyti mun nú hafa skrif-
að hópi sérfræðinga úr
læknastétt þar sem beðið er
um skýringar þeirra á þeirri
aukningu sem orðið hefur í
sérfræðiaðstoð hér á landi en
fjöldi þeirra sjúklinga sem
leita til sérfræðinga hefur
farið stórvaxandi. Svör
læknanna eru enn að berast
þannig að of snemmt er að
segja til um skýringar þeirra á
þessari þróun sem hefur orð-
ið þrátt fyrir þá staðreynd að
heimilislæknar og læknar á
heilsugæslustöðvum hafa í
auknum mæli tekist á við
læknisverk sem áður var vís-
að til sérfræðings.
Bent hefur verið á að
skortur á hjúkrunarfræðing-
um sem valdið hefur því að
sjúkrahús hafa orðið að
draga úr þjónustu sinni leiði
til þess að meira er leitað til
sérfræðinga en áður. Einnig
er mögulegt að niðurfelling
tilvísunarkerfisins hafi haft
þessi áhrif en nú þurfa sjúkl-
ingar ekki tilvísun frá heimil-
islækni til að fá niðurgreiðslu
á sérfræðiaðstoð.
■ Jólasveinum rignir nú yfir mannabyggðir með ýmislegt góðgæti í
pokunum. Þessum tveim virtist ganga erfiðlega að komast á jörðina
enda ekkert nema loft í pokunum. Fæstir vildu sjálfsagt fá þá í heimsókn
þó pokarnir væru margir.
Fólkí
vanda
vegna
skatta
- Tíu manns leita
til Ráðgjafarþjón-
ustunnarádag
vegna greiðslu-
erfiðleika
■ (Jm tíu nianns í greiðslu-
erfiðleikum leita daglega til
Ráðgjafarþjónustu
Húsnæðisstofnunar með
vandamál sín. Flcstir þeirra
sem hafa haft samband við
starfsmenn Ráðgjafarþjón-
ustunnar að undanförnu eiga
í erfiðleikum vegna skatt-
anna og gjaldheimtunnar.
Grétar Guðmundsson,
verkfræðingur, sem er annar
af tveim starfsmönnum Ráð-
gjafarþjónustunnar, sagði
við NT, að skammtíma-
skuldir við aðra en banka og
lánastofnanir, væri ekki síð-
ur mikið vandamál. en því
miður gæti þeir ekki hjálpað
sem skyldi, því Ráðgjafar-
þjónustan hefur enga pen-
inga á milli handanna. 2(X)
milljónum hefur aftur á móti
verið ákveðið aö verja í
þessa hjálp á næsta ári en enn
hefur ekki verið ákveðið
hvernig þeim fjármunum
verði varið.
Ásóknin er að sögn
Grétars, gífurlega mikil,
mun meiri en þá grunaði að
hún yrði og langt því frá að
þeirgeti annaðöllu. Þaösem
er þó jákvætt við þetta er að
um helmingur þeirra, sem
leita til Ráðgjafarþjónust-
unnar er ekki í erfiðleikum,
heldur þangað kominn til að
verða sér út um ráðleggingar
áður en ráðist er í kaup. Er
greiðslubyrðin þá metin og
farið yfir kaupsamning.
Veitir Húsnæðisstofnun
þarna sérfræðingaþjónustu
ókeypis.
Ragnar Kjartansson, Hafskipi:
Neitar að
ræðaviðHP
Ástæðan ærumeiðandi ummæli
■ Ragnar Kjartansson,
stjórnarforniaður Hafskips,
hefur sent Halldóri Hall-
dórssyni, ritstjóra Helgar-
póstsins bréf, þar sem hann
afturkallar tilboð sitt um að
mæta í viðtal hjá Helgarpóst-
inum. Ástæðan er að sögn
Ragnars, ærumeiðandi um-
mæli, sem HP hafi haft uni
sig og ýmsa aðra, er tengjast
málefnum Hafskips.
Þá hefur Ragnar sent fjöl-
miðlum greinargerð um Haf-
skipsmálið þar sem saga
skipafélagsins er rakin í gróf-
um dráttum og ástæðurnar
fyrir gjaldþrotinu tíundaðar,
en þær eru að mati Ragnars
fjórar. í fyrsta lagi verðfall á
flutningatöxtum íslensku
skipafélaganna 1983 og 1984
og er talið að brúttóáhrif
taxtahrunsins hafi numið 100
milljónum 1984.
í öðru lagi er ástæðan sú að
íslensku skipafélögin misstu
varnarliðsflutningana. í
þriðja lagi skakkaföll vegna
BSRB-verkfallsins og í
fjórða lagi gengisfellingin í
lok ársins 1984.
Helstu viðnámsaðgerðir
fyrirtækisins voru Atlants-
hafssiglingarnar, sem að
sögn Ragnars urðu banabiti
Hafskips. Hin aðgerðin var
hlutafjáraukningin sem Út-
vegsbankinn fór fram á í
febrúar sl. þar sem hlutafé
fyrirtækisins var aukið úr 15
milljónum í 95 milljónir
króna.
Ofan á tapreksturinn lagð-
ist svo verðhrun á skipastóln-
um, sem hefur rýrt veðhæfni
skipanna mjög og á stóran
þátt í hinu mikla tapi Útvegs-
bankans.
Ragnar segir að áætlanir
fyrirtækisins, sem engan veg-
inn stóðust, hafi veriðgerðar
í góðri trú og ekki í þeim til-
gangi að blekkja hlutafjár-
kaupendur eða bankann.
Ástæðan fyrir því hversu
langan tíma það tók að átta
sig á tapinu sé fyrst og fremst
að upplýsingakerfi fyrir-
tækisins var of seinvirkt.
Stór hluti greinargerðar-
innar fer í það að svara ýms-
um sögum og ásökunum sem
fyrirtækið og forráðamenn
þess hafa verið vændir um.
M.a. segir Ragnar að meðal-
laun sín og Björgólfs hafi
verið 160 þúsund á mánuði,
en viðurkennir að við þá hafi
verið gerður samningur þeg-
ar þeir réðust að fyrirtækinu,
sem tengdist hugsanlegri
bættri afkomu félagins.
Frumvörpverðalög
■ Eftirfarandi stjórnar-
frumvörp hafa verið af-
greidd sem lög frá Alþingi
undanfarna daga:
Hitaveita Suðurnesja -
frumvarp til laga um breyt-
ingu á lögum nr. 100 31.
desember 1974.
Sala Kröfiuvirkjunar -
frumvarp til laga um heim-
ild fyrir ríkisstjórnina til að
selja Kröfluvirkjun í Suður-
Þingeyjarsýslu.
Iðnráðgjafar - frumvarp
til laga um breytingu á lög-
um nr. 86 31. desember
1981.
Sóknargjöld - frumvarp
til laga um breytingu á lög-
um nr. 80 2. júlí 1985.
Sérstakur skattur - frum-
varp til laga um sérstakan
skatt á verslunar- og skrif-
stofuhúsnæði.