NT - 21.12.1985, Blaðsíða 8

NT - 21.12.1985, Blaðsíða 8
Málsvari frjálslyrtdís, samvinnu og félagshyggju Útgefandi: Nútíminn h.f. Ritstj.: Helgi Pétursson Ritstjórnarfulltr.: Niels Árni Lund Framkvstj.: Guðmundur Karlsson Auglýsingastj.: Steingrímur Gíslason Innblaðsstj.: Oddur Ólatsson Skrifstofur: Siðumúli 15. Reykjavik. Simi: 686300. Auglýsingasimi: 18300 Kvöldsimar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 686495, tæknideild 686538. TIMIKN Verð í lausasölu 35 kr.og 40 kr. um helgar. Áskrift 400 kr. Setning og umbrot: Teknideild NT. Prentun: Blaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686367 og 686306 Svæðabúmark ■ Svæðaskipting búvöruframleiðslunnar hefur rnjög verið til umræðu meðal bænda á þessu hausti. Aðalfund- ur Stéttarsambands bænda 1985 samþykkti að óska eftir slíkri skiptingu. Ýmsum hefur þótt málið hafa hægan gang. Vissulega hefðu niðurstöður um heimilað framleiðslumagn, a.m.k. mjólkurframleiðenda, þurft að liggja fyrir ekki seinna en í vetrarbyrjun. Pannig hefðu þeir getað miðað fram- leiðslu sína að fullu við það mark strax í upphafi fram- leiðsluárs. Hér er hins vegar um mjög flókið mál að ræða, en jafnframt mál sem miklu getur skipt um framtíðarskipan búvöruframleiðslunnar. Ákvörðun um búmark skiptir einstaka framleiðendur miklu. í raun er þar verið að fjalla um afkomumöguleika þeirra til næstu framtíðar. Samningar þeir sem bændur gerðu við stjórnvöld á liðnu sumri um magn nýmjólkur og sauðfjárafurða, er bændum verður tryggt fullt verð fyrir, kalla á mun nákvæmari vinnubrögð við ákvörðun framleiðsluréttar en hingað til hafa gilt um búmark. Þá þurfa allar reglur um skiptingu framleiðsluréttar að vera mjög vandlega undirbyggðar og lausar við tilvilj- anakenndar ákvarðanir. Á þetta hefur Jón Helgason landbúnaðarráðherra, lagt áherslu. Sé litið til lengri framtíðar getur svæðaskipting bú- vöruframleiðslunnar haft grundvallarþýðingu fyrir land- búnaðinn. í fyrsta lagi opnar hún möguleika til skipulegrar nýt- ingar landsins til búvörufranileiðslu, að framleiðslan sé löguð að landkostum, staðháttum svo og öðrum tækifær- um til atvinnu. í öðru lagi getur svæðaskiptingin orðið grundvöllur að nýrri fjárfestingastefnu í landbúnaði, bæði hvað varðar ræktun, gripahús og aðrar byggingar vegna búvöru- framleiðslunnar, en einnig og ekki síður hvað varðar afurðastöðvarnar, svo sem mjólkurbú og sláturhús. Allt getur þetta stuðlað að bættri nýtingu fjármuna í framtíöinni, betri nýtingu lands og landkosta og gert landbúnaðinn að sterkara afli í baráttunni fyrir því að treysta byggðir landsins. Sú stefna, sem landbúnaðarráðherra og Stéttarsam- band bænda vinna nú sameiginlega að með undirbúningi svæðabúmarks, mun geta haft grundvallarþýðingu fyrir þróun landbúnaðar og búsetu á næstu árum. Það verk verður því að vanda. Gott er að það vinnist hratt, - en enn betra er að það vinnist vel. íhaldsfylgi ■ í Morgunblaðinu í gær var slegið upp niðurstöðum skoðanakönnunar Hagvangs um borgarstjórnarkosn- ingarnar. Samkvæmt henni er Sjálfstæðisflokknum spáð yfir 60% atkvæða. Eitthvert mark má taka af skoðana- könnun sem þessari og ljóst er að Sjálfstæðisflokkurinn hefur mikið fylgi. Nýafstaðið prófkjör þeirra vakti at- hygli á flokknum og reynslan hefur sýnt að umræður um flokkana gefa þeim aukið fylgi litla stund. Pá ber einnig að geta þess að aðrir flokkar hafa ekki ennþá ákveðið framboðslista sína og fullyrða má að ef konur fá á þeim verðugan sess munu margar sjálfstæðiskonur hugsa sinn gang eftir þá útreið sem þær fengu í prófkjöri flokksins. En það er líka umhugsunarvert fyrir vinstri flokkana sem ætla sér að bjóða fram Iista til borgarstjórnar, hvort °g þá hvernig megi efla enn frekar samvinnu þeirra í milli með það að markmiði að fá til samans fleiri full- trúa kjörna í borgarstjórn. n Laugardagur 21. desember 1885 8 I tíma og ótíma Hvað er að ger- ast í fjármál- um ríkisins? Nokkur orð um jólabækur fjármálaráðherra ■ Almennt mun álitiðaðfjármála- ráðuneytið sé eitthvert hið list- snauðasta fyrirtæki sem um getur í landinu og sú stofnun scm minnst- an áhuga hefur á bókmenntum. Flestir munu lifa í þcirri trú að fjármálaráðuneytið sinni bókaút- gáfu síst af öllum störfum og eigi ekki þátt í samantekt mikilvægra og víðlesinna bóka. Fyrri jólabók fjármálaráðherra Þctta hald manna um áhugaleysi fjármálaráðherra og hans manna á bókagerð og bókaútgáfu er þó ckki alls kostar rctt. Sannlcikurinn ersá að fjármálaráðuneytið er viðriðið samningu og útgáfu hinna merk- ustu bóka ár eftir ár. Og yfirleitt cru þctta cins konar jólabækur. Fyrst bcr að nefna fjárlagafrum- varpið, sem fjármálaráðherra sem- ur mcð aðstoðarmönnum sínum og leggur fyrir Alþingi. Það er upp- kast að þeirri bók, sem Alþingi lýk- ur síðan við að semja í samstarfi við fjármálaráðherra og nefnist fjárlög fyrir eitthvert tiltekið almanaksár. Fjárlög er sannkölluð jólabók, kemur alltaf út í lok jólaföstu, stærðar rit prcntað í stóru upplagi og víðlesið. Án fjárlaganna gæti þjóðin reyndar ckki lifað sem skipuleg fclagsheild. í þá bók má sækja mikinn fróðleik, enda hvergi aö finna á einum stað jafn glögga mynd af ástandi landsmála eins og í fjárlögum. Efni jólabókarinnar Nú er fjárlagaafgreiðslunni að Ijúka cnn einu sinni á Alþingi og þcssi jólabók cr að fara í prentun. Nú þegar vita margir hvað stendur í þessari bók, en fleiri eiga eftir að kynnst henni síðar. Það er margra mál að Fjárlög fyrir árið 1986 (cn svo hcitir bókin íullu nafni) sé ærið gloppótt og muni margt hið nauð- synlegasta í þjóðlífinu hvorki lifa né dcyja þrátt fyrir útkomu hennar. Bókin bcr það skýrt með sér sent marga hefur grunað að gæti skcð, að eyðsluhítin minnkar ckki, en uppbyggingin dregst saman, og gildir þá einu hver sú uppbygging er. hvort heldur það er að gcra hafnir úti á landi eða koma upp þjóðarbókhlöðu í Reykjavík. Ekki munu lesendur Fjárlaga átta sig á því hvað hefur áunnist við stóla- leikinn hjá Sjálfstæðisflokknum, og margir segja nú að varla hafi komið maður í manns stað í fjár- málaráðherraembættinu. Albert var að vísu ekki úrræðamikill fjármálaráðherra, en nú cru menn efins um að það hafi svarað kostn- aði að skipta um stóla hjá ráðherr- um Sjálfstæðisfiokksins. Tvískinnungur í skattamálum? Það sem vekur sérstaka athygli við gerð fjárlaga nú, er sá tvískinn- ungur í skattamálum, sem sækir á fjármálaráðherra. Árum saman hefur hann, ásamt heiili hersingu markaðshyggjupólitíkusa og and- stæðinga velferðarsamfélagsins, boðað niðurskurð fjárlaga og þar mcð skattalækkanir og kontið þcirri trú inn hjá tugþúsundum kjósenda að lögákveðin framlög til samfélagsþarfa séu eins konar þjófnaður frá einstaklingum. Þess- ari kenningu var ákaft haldið á loft fram á daga stólaskiptanna um mánaðamótin september-október í haust. Vonum betritíð Á allra siðustu vikum virðist þessi skattastefna sjálfstæðis- manna hafa verið að breytast, a.m.k. hefur henni ekki verið hald- ið fram með sömu ákefð og áður. Menn velta fyrir sér hver ástæðan sé til þess að sjálfstæðismenn með fjármálaráðherra í broddi fylking- ar hafa skipt um skoðun, eða a.m.k. farið sér hægar upp á síð- kastið í glamri sínu um niðurfell- ingu tekjuskatts hjá einstaklingum. Ein ástæðan mun vera sú að nýlega voru hér á ferð „eftirlitsmenn" frá Alþjóðabankanum (þar sem ís- lendingar eiga undir högg að sækja vegna crlendra skulda), og þeir nánast fyrirskipuðu fjármálaráð- hcrra aö hækka skatta, til þess að draga úr einkaneyslu og harnla gegn vexti verðbólgu. Helst er við því að búast að markaðshyggjupostular víki frá öfgum sinum, ef útlendingar skipa þeim að gera það. En látuni útrætt uin fjárlögin og það gloppótta efni sem þau hafa að geyma. Þrátt fyrir allt glittir í þá von að reynslan af fjárlagagerðinni að þessu sinni leiði til þcss að rikis- fjármálin verði tekin til gagngerrar endurskoðunar, bæði hvað snertir fjáröflunarleiðir (tekjustofna ríkis- sjóðs) og útgjaldaliði. Þessi spil þarf að stokka upp. Það er sá lær- dómur sem Fjárlögin fyrir árið 1986, aðaljólabók fjármálaráðu- neytisins, ætti að kenna lesendum. Síðari jólabók fjármálaráðherra En snúum okkur að annarri jóla- bók fjármálaráðuneytisins. Hún ber hið upphafna og viðamiklá heiti: Stjórnir, nefndir og ráð ríkis- ins 1984. Bókin er 153 bls.. þétt- prentuð í stóru broti. Samkvæmt efnisyfirliti skíptist bókin í 4 aðal- kafla. mislanga þó, oghefst bókin á Inngangi. þar sem forstöðumaður bókaútgáfu fjármálaráðuneytisins gerir skýra og opinskáa grein fyrir útgáfunni. Þar kemur m.a. fram að þetta er 16. árbókin af þessu tagi, svo augljóst er að hér er um gagn- nierka ritröð að ræða, athyglisvert framlag til bókmennta þjóðarinn- ar. Þó hlýtur útgáfustjórinn að af- saka nokkrar gloppur sem cru í út- gáfu fyrirliggjandi bókar. Bókaefn- ið er fyrst og fremst byggt á upplýs- ingum frá ráðuneytunum, en þau eru 13 alls að Hagstofu íslands meðtalinni. Megingloppan í efni ritsins er sú að engar upplýsingar bárust um nefndir og ráð, sem starfa á vegum menntamálaráðu- neytisins. Um viðskipti við ráðu- neytin segir annars aimennt í inn- gangi svo, að undanfarin ár hafi „reynst erfitt að afla upplýsinga" um nefndir og ráð, sem starfa á vegum hinna ýmsu ráðuneyta. Og um trúnaðartraustið í þessum samskiptum og áreiðanleikann í upplýsingum ráðuneytanna er þennan fróðleik að finna.. „en dæmi eru þess, að ráðuneyti hefur sent aðrar upplýsingar til birtingar í nefndarskýrslu en það hefur birt á öðrum vettvangi." 43 milljónir Af inngangi útgáfustjóra er því Ijóst að þessi jólabók fjármála- ráðuneytisins er ekki fullkomið verk og alls ekki tæmandi hvað varðar það efni, sem bókin fjallar um. En hún er þó allavega sæmileg vísbending um fjölda stjórna, nefnda og ráða á vegum ríkisins og fróðleg svo langt sem hún nær. Samkv. yfirlitsskýrslu á bls. 7 kem- ur í Ijós að fjármálaráðuneytið hef- ur formlegar upplýsingar um að árið 1984 störfuðu á vegum ríkisins 407 nefndir og var kostnaður við nefndarstörf samtals um 43 millj- ónir króna, þar af 33 millj. bein þóknun til nefndarmanna. En þess verður að gæta að þessi upphæð. 33 milljónir, skiptist á marga ein- staklinga, e.t.v. mörg þúsund ein- staklinga, þegar allt er talið. Önnur hlið á málinu Víst er auðvelt að býsnast yfir nefndarfarganinu og kostnaðinum við það. Það er hægt að sýna fram á að til eru mcnn, og það menn í háum stöðum, sem hljóta veruleg- ar aukagreiðslur fyrir nefndarstörf og lifa öðrum þræði á því að sitja í ráðum og stjórnum á vegum ríkis- ins. En til er önnur hlið á þessu máli. Hún er sú að nefndaskipulag- ið er valddreifíng og eðlileg fram- kvæmd lýðræðislegra stjórnar- hátta. Út frá því sjónarmiði er ekki ástæða til að óskapast yfir nefnda- farganinu. En er ekki hóf á öllu best, svo í nefndafjölda sem öðru? Gestur í Vík.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.