NT - 21.12.1985, Page 11
■ Séra Bolli Gústavsson
Út um Ijóra Bolla
■ Litið út um ljóra nefnist ný bók
eftir séra Bolla Gústavsson í Laufási.
I bókinni eru 15 þættir, þar sem m.a.
er brugðið upp fjölbreyttum og lif-
andi myndum af athyglisverðum
mönnum, lífs og liðnum.
Skáldleg tök og hlýr mannlegur
skilningur einkenna þættina sem allir
munu teljast merkar heimildir. í
bókinni eru teikningar eftir höfund-
inn.
I þessum 15 þáttum koma ýmsir
viðsögu: M.a. kapparnir, Þorvaldur
mennir og Hríseyjar-Klængur, tón-
skáld ólíkra tíma, Hafliði Hallgríms-
son og Björgvin Guðmundsson;
bragsmiðurinn hnyttinyrti, Bjarni
Jónsson frá Gröf; biskuparnir, dr.
Sigurbjörn Einarsson og herra Pétur
Sigurgeirsson, skáldin, Stephan G.
Stephansson, Þorsteinn Erlingsson,
Davíð Stefánsson, Karl ísfeld og
Jónas E. Svafár, fagurkerinn og hug-
sjónamaðurinn, Björn Bjarnarson
sýslumaður; ritstjórinn og stjórn-
málaleiðtoginn, dr. Valtýr Guð-
mundsson, Ljósavatnsbændur og
fræðimennirnir ættvísu, Konráð Vil-
hjálmsson frá Hafralæk og Hólmgeir
Þorsteinsson frá Hrafnagili .
Bók fyrir konur
■ Frá konu til konu heitir bók eftir
bandaríska lækninn Lucienne
Lanson, sem Skjaldborg gefur út.
Fjallar bókin um skýrt markað efni,
kynfæri og kyneðli konunnar og þá
sjúkdóma sem þessi líffæri og þetta
lífeðli getur átt við að stríða.
Um bókina segir á kápu:
Höfundurinn, Lucienne Lanson,
lauk prófi með hæstu einkunn frá
læknaháskólanum í Pennsylvaníu í
Bandaríkjunum og sérhæfði sig síð-
an í kvenlækningum. Hún hefur
hlotið viðurkenningu frá mörgum
virtustu heilbrigðisstofnunum
Bandaríkjanna, einkum fyrir fram-
lag hennar til kvensjúkdómalækn-
inga.
Frá því bókin From Woman to
Woman var fyrst gefin út árið 1975
hefur hún unnið sér sívaxandi vin-
sældir í mörgum löndum sem
fræðslu- og heimildarrit vegna hinn-
ar skýru og nærfærnu framsetningar
fróðleiks um kvenlegt eðli og kven-
lega sjúkdóma. Kona sem er sér-
fræðingur í kvensjúkdómum miðlar
kynsystrum sínum af reynsiu sinni og
þekkingu á alþýðlegan hátt líkt og
viðmælandinn sæti í stól fyrir framan
hana og þær ræði saman eins og mað-
ur við mann - eða kona við konu.
Bókin hefur verið endurskoðuð og
aukin næstum því um helming síðan
hún kom fyrst út 1975 og inn í hana
bætt nýrri vitneskju og nýjum upp-
götvunum sem síðan hafa komið
fram, svo að næstum því þriðji hluti
hennar er nýtt efni sem ekki var í
frumútgáfunni. Meðal hinna fjöl-
mörgu atriða sem svarað er í þessari
bók má nefna:
• Er nokkur aðferð til sem gæti
haft áhríf á kyn barns við getnað?
• Hvernig er hægt að gera
Laugardagur 21. desember 1985 11
nákvæma brjóstaskoðun á sjálfrí sér?
• Er nokkuð hægt að gera við fyrir-
tíðastreitu?
• Er brottnám legs alltaf nauðsyn-
legt í sambandi við aðgerð við
leghálskrabba á byrjunarstigi?
• Er hugsanlegt að kona verði
þunguð ef hún hefur barn á brjósti og
hefur ekki haft á klæðum?
• Hvernig er hægt að vita að tíða-
hvörf séu í nánd?
• Geta getnaðarvarnapillur valdið
blóðsega og hjartaáföllum?
• Er nokkurt samband á milli getn-
aðarvarnalyfja og krabbameins?
• Hvenær er kona orðin of gömul
til að eignast fyrsta barnið?
• Hvaða þættir ráða lífslíkum við
brjóstkrabba?
• Hversu öruggar eru getnaðar-
varnir þínar? (Pillur? Lykkja?
Hetta? Ófrjósemistímabil? o.s.frv.)
• Er endurbyggjandi aðgerð hugs-
anleg á konu sem brjóst hefur verið
tekið af?
• Er hugsanlegt að hormónalyf geti
valdið legkrabbameini?
• Hversu mörgum klukkustundum
eftir getnað getur læknir úrskurðað
að kona sé þunguð?
Petta eru einungis fáar þeirra
mjög so skýrt afmörkuðu spurninga
sem dr. Lanson svarar - skýrt, ná-
kvæmlega, nærfærnislega-ogbyggir
svörin á allra nýjustu læknisfræðileg-
um uppgötvunum.
Þessi bók sviptir hinum uggvæn-
lega dularhjúp af öllu því sem kven-
lækningar varðar.
Ástir, afbrýði og glæp-
irspinna vefinn
■ Skjaldborg hefur gefið út nýja
skáldsögu eftir Birgittu H. Halldórs-
dóttur, og er þetta þriðja bók
hennar.
Söguþráðurinn er í stuttu máli
þessi:
Grænavatn er bóndabær, þar sem
hjónin Oddur og Ásdís reka ferða-
3.^
HOPJífJ[oBILI
Cgg^pUNNAP
Gerð D:
Breidd 40 cm
Hæð 40 cm
Dýpt 25 cm
Cartomobili skúffurnar
eru framleiddar úr sér-
staklega styrktum harð-
pappa með áferðarfal-
legri glanshúð.
Styrkt með járnumgjörð.
Gott skúffupláss. Hent-
ugt við rúmið, skrifborð-
ið og alls staðar þar sem
geymslupláss vantar.
Litir: Hvítt, rautt, gult,
grænblátt og bleikt.
Dreifing á íslandi:
r dfopinn
Hafnargötu 90 - 230 Keflavík
Símar: 92-2652 og 92-2960
mannaþjónustu. Þangað fer Helga
eftir að hafa lent í alvarlegu bílslysi,
enda er Ásdís frænka hennar. Helga
er með skaddað andlit og brotinn
fót, sem gerði það að verkum að
Rúnar, unnusti hennar, sneri við
henni baki. Á Grænavatni kynnist
Helga mörgu undarlegu fólki. Dul-
arfullir atburðir gerast og margar
spurningar vakna: Hvað er það sem
Helgu ber að varast og hver vill hinni
slösuðu stúlku illt? Hver er Ragnar
og hvers vegna hagar hann sér svona
undarlega? Spennan eykst þegar líð-
ur á söguna. Tilfinningar fólksins
fléttast saman á ótrúlegan hátt.
Ástir, afbrýði og glæpir spinna vef-
inn á Grænavatni. Kvennabósinn
Davíð er blindur af hrifningu á
Höllu, sem er myndlistarmaður, en
hann gleymir hinni afbrýðisömu
konusinni, Karenu. Rithöfundurinn
Elías á líka sinn þátt í að auka á
spennuna. Enn fleiri spurningar
vakna. Hvers vegna skýtur Rúnar
upp kollinum á ólíklegustu stöðum?
Nýbókeftir
Indriða Úlfsson
Indriði Úlfsson.
■ Skjaldborghefurgefiðút 19. bók
Indriða Úlfssonar, og nefnist hún
Grasaskeggur. Höfundurinn er
löngu landskunnur fyrir barna- og
unglingabækur sínar og í fremstu röð
rithöfunda sem skrifa fyrir ungu kyn-
slóðina. Á sl. ári hlaut hann verðlaun
Fræðsluráðs Reykjavíkur fyrir bestu
barnabókina sem út kont á árinu
1983. Flestar fyrri bækur hans eru
löngu uppseldar.
Grasaskeggúr er algerlega sjálf-
stæð saga og ein allra besta bók Ind-
riða. Hún segir frá einstæðri móður
úr Reykjavík og börnum hennar
Þuru og Valla, sem sumarlangt sjá
um sæluhús við fjölfarinn fjallaveg.
Þar kynnast þau útilegumanninum
Grasaskeggi og lenda í alls konar
ævintýrum og hættum, sem íslensk
öræfi bjóða upp á. Þetta er mjög
raunhæf og bráðskemmtileg bók.
íjit i/íjlli ’í/i ')
§
mm
" L.'.V/.' v "m&\
*.'K: ■-4r
REYKJAVÍKURKORT DAGATAL 1986
GOMUL
REYKJAVÍKUR-
KORT
«il LrA^ Bllfiiru Bll ÍÆ I_M
p/»\% /•! w-1 wm
allt í einum dropa
n
j
Árbæjarsafrt og 200 ára Afmælisneöid Reykja-
víkur hafa gefið út stórmerkilegt litprentað
dagatal fyrir árið 1986.
Á dagatalinu eru 12 kort frá árunum 1715 til
dagsins í dag, auk bráðfallegs korts Benedikts
Gröndal frá 1876. Árbæjarsafn hefur dregið
þessi kort fram i dagsljósið og haft umsjón með
útgáfunni. Sum þessara korta hafa ekki fyrr
verið birt almenningi þ.m.t. áðume&it kort
Ben. Gröndal.
Hér er um stórmerka og forvitnilega útgáfu að
Arbæjarsafn
ræða. Fróðlegt er að sjá á kortunum Reykjavík
þróast úr þorpi í þá borg sem hún er í dag. Skýr-
ingartextar eru á íslensku og ensku og því til-
valin gjöf til kunningja og viðskiptavina hér
heima sem erlendis.
Dagatalið fæst í bókaverslunum, hjá Sögu-
félaginu og á Árbæjarsafni, en safnið sér um
dreifingu. Utsöluverð er kr. 400.-.
Einstaklingar og fyrirtæki: Tryggið ykkur ein-
tökáðurenupplagþrýtur. Sími 84412
f^7)
Afmælisnefnd
Reykjavíkur