NT - 21.12.1985, Blaðsíða 13
Laugardagur 21. desember 1985 13
Stórleikir í handknattleik á milli jóla og nýárs, ísland - Danmörk:
Erkifjendurnir mæta
- Danir koma með sterkt lið - íslendingar eru ekki síðri - Það er kappsmál
að vinna Danina - Áhorfendur skipta miklu máli
lí
•kari
ims-
ii til
jart-
stíft
tara-
rum
kina
ýárs
með
lltaf
öðr-
'g er
. en
Iveg
°g
ann-
mn-
anir
3gu-
nrlli
t að
igin
skir
■ Guðmundur Guðmundsson er einn okkar traustasti landsliðsmaður í
handknattleiknum. Hann verður í eldlínunni gegn Dönum á milli jóla og
nýárs. Hér á Guðmundur í höggi við stóran Spánverja sem beitir öllum
brögðum til að stöðva hann. í þetta sinn fiskaði Guðmundur víti sem skor-
að var úr. Vonandi gengur Guðmundi og félögum hans í íslenska liðinu allt
í haginn gegn erkiljendunum Dönum. NT-mynd: Sverrir
■ íslenska landsliðið í handknatt-
leik mun standa í ströngu nú uin
jólin, því að vinir okkar, en jafn-
framt erkifjendur á íþróttasviðinu,
Danir, munu sækja okkur heim og
leika hér þrjá landsleiki. Leikimir
fara fram dagana 27.-29. desember.
næstkomandi, þ.e. föstudagskvöld í
Laugardaishöll, á laugardag í
íþróttahúsinu á Akranesi og síðasti
leikur heimsóknarinnar verður í
Laugardalshöll kl. 20 á sunnudags-
kvöld.
Það þarf auðvitað ekki að fara
mörgum orðum um danska landslið-
ið í handknattleik. Það er íslenskum
handknattleiksunnendum vel
kunnugt. Það er og jafnþckkt, að
þrátt fyrir mikil og góð samskipti
þessara þjóða á handknattleikssvið-
inu, þá er ekkert gefið eftir inn á vell-
inum sjálfum og það er opinbert
leyndarmál, að sigrar yfir Dönum
eru þeir sætustu.
Danska landsliðið eins og það ís-
lenska æfir nú á fullu fyrir heims-
meistarakeppnina í handknattleik,
sem verður í Sviss í ferbúar. Danir
hafa æft stíft síðustu vikur og mánuði
og leikið fjölmarga landsleiki. Þeir
ætla sér stóra hluti í heimsmeistara-
keppninni í febrúar, eins og raunar
við íslendingar, en eins og kunnugt
er hafa Danir oftar en einu sinni farið
langt í heimsmeistakeppninni á létt-
leikanum, leikgleði og baráttu.
Danir koma hingað upp með sitt
sterkasta lið og þar eru þekkt nöfn
sem íslenskir handknattleiksmenn
kannast vel við. Menn eins og Mort-
en Stig Christiansen, sem er þeirra
leikreyndastur með 134 landsleiki að
baki, Eric Rasmussen, sem leikur í
Þvskalandi og er einn helsti burðarás
hins þekkta liðs, Gummersbach,.
Hans Henrik Hattesen hornamaður-
inn knái sem leikur nteð Winterhur í
Sviss, vinstri handar skyttan há-
vaxna, Claus Sletting Jensen ogstór-
skyttan Jens Eric Roepstorff svo fá-
einir séu nefndir til sögunnar.
íslenska liðið hefur staðið í
ströngu nú í desembermánuði. Fyrst
þrír leikir við Vestur-Þjóðverja í
byrjun mánaöarins, þar sem tveir
leikir af þremur unnust. Síðan mættu
Spánverjar til leiks og léku hér tvo
leiki. Síðari leikinn vann íslenska
landsliðið örugglega. Aldeilis góður
árangur það gegn þessum firna-
sterku handknattleiksþjóðum.
í kjölfar leikjanna við Spánverja
hafa íslensku landsliðsstrákarnir æft
stíft undir stjórn Bogdan Kowalzcyk
landsliðsþjálfara og það er aðeins
yfir sjálfa bláháti'ðisdagana, að-
fangadag og jóladag, sem hlé verður
gert frá æfingum. Síðasta æfing fyrir
Danaleikina verður svo á annan í
jólum. Það er því sýnt að allt vcrður
lagt í sölurnar til að vinna þessa leiki
við Dani, enda eru landsleikir í hand-
bolta við Dani engir venjulegir
landsleikir, í þeim leikjum leggja
liðsmenn beggja liða bókstaflega allt
undir til að hala inn sigur. Dönsku
landsliðsmennirnir vita sem er að
danskir fjölmiðlar munu hakka þá í
sig, ef þeir ná ekki góðum árangri
hér uppi á Islandi um jólin. Dönsku
blöðin heimta sigur yfir íslandi; ekk-
ert minna.
Og vissulega gera íslenskir fjöl-
miðlar og íslenskur almcnningur ekki
minni kröfur til íslensku strákanna.
Þeir hafa sýnt það og sannað í síð-
ustu leikjum, að þeir geta unnið
hvaða lið sem er. Og breytingin frá
því sem áður var, þegar íslenska
landsliðið gat á góðum degi unnið
góða sigra, er sú, að nú eru leikir
liðsins mun jafnari og betri, þannig
að íslendingar geta lagt mótherja
st'na þótt sterkir séu þótt ekki sé
endilega um toppleik að ræða.
Sveiflurnar hafa minnkað - liðið er
jafnbetra en oftast áður. Slöku leik-
kaflarnir sem í gegnum árin hafa or-
sakað tap í leikjum þrátt fyrir góða
kafla á milli, eru vandamál sem eru
vonandi að baki.
Það er mikilvægt að fslenskir
áhorfendur fjölmenni á landsleikina
og styðji viö bak íslensku landsliðs-
mannanna, enda segjtt leikmenn
þeirra útlendu landsliða sem hingað
koma, að það sé eins og að leika í
ormagryfju, þega Höllin er full af há-
værum og kraltmiklum áhorfendum.
I því sambandi má minna á, að
stærsti sigur sem ísland hefuf unnið
yfir Dönurn var á Akranesi, þar sem
einn leikurinn verður að þcssu sinni.
Það var á þessum árstíma árið 1981.
en þá möluðu íslcndingar Dani með'
10 mörkum, 31-21 og átti stcinmn-
ingin í troöfullu íþróttahúsinu á
Akranesi þá ckki minnstan þátt í
stórsigrinum.
Ármann ræður þjálfara
■ Knattspyrnudeild Armanns hefur
rádid Þórö Lárusson (hefur þjálfað
yngri flokka Fram með gódum árangri)
sem þjálfara meistaraflokks karla
næsta ár. Pótur Christiansen (Ármann)
verður adstoðarþjálfari Þórðar.
Árið 1985 byrjudu Armenningar að
nýju eftir margra ára hlé með 4. og 5.
flokk pilta. Til að koma upp öllum flokk-
um að nýju hefur verið ákveðið að byrja
, aftur með 3. flokk pilta og meistara-
flokk kvenna.
I
gna
>ug-
í ís-
-ák-
:að,
iti í
rkir
um
ald-
egi.
óða
5ari
:ján
trk-
Jsla
taði
;etu
ann
nan
ild.
Nýi ungbarnabílstóllinn frá
Britax er einhver gleðilegasta og
þarfasta nýjung sem komið hefur á
markaðinn langa lengi. Ungbarna-
bílstóllinn erætlaðurbörnum allt
frá fæðingu, 'þar til þau eru orðin
u.þ.b. 10 kíló að þyngd. Stóllinn
bætir þannig úr brýnni þörf, því
venjulegir barnabílstólar eru ekki
ættaðir yngri börnum en 6 mánaða.
Stóllinn er bæði öruggari og mun
meðfærilegri en burðarrúm og
hentar ekki aðeins í bfla, heldur er
hann einnig tilvalið sæti hvar og
hvenær sem er.
Brítax ungbarnabílstóllinn er
festur í bílinn með venjulegu
öryggisbelti hvort sem er í fram
eða aftursæti. Barnið snýr undan
umferðinni eins og öruggast er og
hægt er að stilla hallann á sætinu.
Mjög auðvelt er að koma stólnum
fyrir í bílnum og taka hann úraftur.
Stóllinn er viðurkenndurafbreskum
umferðaryfirvöldum, sem gera
mjög strangar kröfur í þessum
efnum.
Brítax ungbarnabílstóll er 9Íöf
sem sýnir ómæida umhyggju.
Verð aðeins kr. 3.390.-
Fæst á næstu Shellstöð og í
Skeljungsbúðinni Síðumúla 33.
.si
lið-
íru.