NT - 21.12.1985, Síða 17
Laugardagur 21. desember 1985 1 7
Miðaldariddari
á 20. aidar hesti
Dick Francis: Hrossakaup
Nótt, 1985
Þýðandi: Þuríður Baxter
■ Fyrir nokkrum árum otaði kunn-
ingi minn að mér bók mcð þeim um-
mælum að „þessa verður þú endilega
að lesa". Þar sem ég hef alltaf borið
talsverða virðingu fyrir bókasmekk
þessa kunningja míns, las ég bókina
og komst að þeirri niðurstöðu að
þarna væri honum farið að förlast.
Bókin var um einhvern uppgjafa
knapa sem eyddi stórum parti af sög-
unni lokaður niðri í bát eða inní
hrossavagni, og hafði ekki hugmynd
um útafhverju. Þetta varbókin Risk
eftir Dick Francis.
En kunningi minn gafst ekki upp
og hélt áfram að ota að mér bókum
eftir Francis. Það leið ekki á löngu
þar til ég var farinn að gleypa bækur
hans í mig, og nú er þannig farið fyrir
mér, eins og nokkrum milljónum
öðrum, að ég bíð í ofvæni eftir að
þessi hálfsjötugi galdrakall sendi frá
sér sína árlegu bók.
Dick Francis var einn frægasti
knapi Breta fyrir 30 árum síðan og
reið meðal annars hestum drottning-
armóðurinnar. En þegar hann hætti
íþróttinni byrjaði hann að skrifa
bækur. Frumraun hans var sjálfsæfi-
saga en síðan reyndi hann fyrir sér
með spennusögur og hefur ekki litið
aftur síðan.
Bækur Francis fjalla allar á ein-
hvern hátt um kappreiðar og hcsta,
enda þekkir höfundurinn þar allt út
og inn. Og allar bera þær sömu ein-
kennin. Söguhetjurnar eru allar
steyptar í sama mót. Venjulega ung-
ir mcnn og ósköp venj ulegir að sjá en
reynast sfðan býsna fastir fyrir og út-
sjónarsamir þegar á reynir, heiðar-
legir og fórnfúsir. Eiginlega riddarar
miðaldasagnanna endurbornir á 20.
öld. Þetta eru ckki upplífgandi lýs-
ingar, ég veit það. en Francis tekst
samt einhvernveginn að gæða þcssi
göfugmcnni lífi svo þeir verða trú-
verðugir.
Hetjur Francis flctta í bókunum
ofan af allskyns svikum sem oft eru
framkvæmd með býsna sniðugum
hætti ogaf ólíklegustu mönnum. Það
er einmitt fléttan scm er sterkasta
hlið Francis, svo og ýmiskonar smá-
atburðir sem koma fyrir uhetj-
urnar og sýna hvað Francis hefur
næmt auga fyrir hinu mannlega í
kringum sig. Þá er ritstíll Francis
dálítið sérstakur en ákaflega læsileg-
ur, og allt þetta saman gcrir það að
verkum að bækur hans eru skemmti-
legar aflestrar fyrir utan að vera
þrælspcnnandi í köflum.
Það sem hinsvegar gerir það að
verkum að Francis er scintekinn, er
að þó upphaf bóka hanssé alltaf þcss
eðlis að forvitni lesandans vaknar, er
Francis stundum dálítið lcngi að
koma sér að efninu og eyðir fullmikl-
um tíma í uppbygginguna á kostnað
stíganda sögunnar. Það hefur síðan
einnig viljað fara í taugarnar á fólki
að Francis er hálf vandræðalegur
þegar kvenfólk er annars vegar, það
er að segja það kvenfólk sem kalla
má kynverur, og samband söguhetj-
unnar við hitt kynið er alltaf hálf dul-
arfullt.
Bókin sem hér átti að fjalla um.
Hrossakaup, hefur þessa galla.
Aðalsöguhetjan er bankamaður,
sem vinnur í fjölskyldubankanum og
er einmitt að komast þar til metorða,
en auðvitað ekki vegna fjölskyldu-
tengsla heldur eigin hæfileika. Hann
kemur því til leiðar að eiganda kyn-
bótabús er veitt lán til að kaupa
rándýran stóðhest. Það kemur síðan
í ljós að afkvæmi stóðhestsins fæðast
vansköpuð og því viröist blasa gjald-
þrot við kynbótastöðinni og tap viö
bankanum.
Utan um þennan söguþráð spinn-
ur Francis vcf sem í fljótu bragði
virðist um margt óþarfur. og í raun
og veru gerist ekkert afgerandi fyrr
en að 2/3 hlutum bókarinnar
loknum. Fram að því vcit lcsandinn
varla um hvað bókin raunvcrulega
er, ncma að á bókarkápunni er hún
skilgreind sem spennusaga, Síðasti
hluti bókarinnar er hinsvegar eins og
köld vatnsgusa framan í lesandann.
Francis hcfur grcinilcga vandað
sig vel viö smíði þessarar bókar og þó
aðdragándinn sé langur hefir liann
sinn tilgang, svo og ýmsir athurðir
sem við fyrstu sýn virðast lítið koma
málinu við. En ég er samt cfins um
að þcssi bók hafi ein og sér aflað
Francis nýrra lesenda þó harðir fylg-
ismcnn lians hafi ekkcrt út á hana að
setja.
Þess vegna hcld ég að það hafi ver-
ið misráöiö hjá Bókaútgáfunni Nótt
að hefja útgáfu á Dick Franeis með
þessari bók, þó ein eða tvær bækur
Francis hafi verið gefnar út fyrr á ís-
lensku. Heldur hefði átt að byrja
nieð eldri og styttri bók og þar er af
nógu að taka. Hinsvegar cr ég ekki í
vafa um að þeir sem komast klakk-
laustgegnum Hrossakaup látasigckki
vanta þegar næsta bók Francis kem-
ur út.
Þuríður Baxtcr þýðir bókina, sem
á cnsku hcitir Banker. Ég er nokkuð
sáttur við þýðinguna í heild, sérstak-
lega þar sem ég hcf það á tilfinning-
unni að Francis sé alls ckki auöþýdd-
ur á íslcnsku. En samt finnst mér
eitthvað vanta, ég veit ekki alveg
hvað það er.
Guöm. Sv. Hermannsson.
DRAUMA
dansdúkkan
sem dansar þrjá dansa
Verð aðeins kr. 1.295.-
Ódýrustu
snjóþoturnar:
Litlar................... kr. 369.
Stórar .................. kr. 570.
m/bremsum................ kr. 699.
Stýrisþotur ............. kr. 2.295.
Enn eru til leikföng á gömlu verði
Sparið þúsundir og kaupið
jólagjafirnar tímanlega
Póstsendum
LEIKFANGAHÚSIÐ
Skólavörðustíg 10 s. 14806
Hjúkrunarfræðingar
- Ijósmæður
Eftirtaldar stöður við heilsugæslustöðvar eru lausar til
umsóknar nú þegar:
Keflavík, staða hjúkrunarfræðings
Dalvík, hálf staða hjúkrunarfræðings
Sauðárkrókur, hálf staða hjúkrunarfræðings
Djúpivogur, staða hjúkrunarfræðings
Breiðdalsvík, staða hjúkrunarfræðings
Eyrarbakki, staða hjúkrunarfræðings og Ólafsvík
75% staða Ijósmóður.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf
við hjúkrun sendist heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu fyrir 17. janúar 1986.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið
17. desember 1985
BMX-hjálmar BMX-húfur
BMX-grímur BMX-treflar
BMX-hanskarj BMX-sokkar
BMX-peysur BMX-hnéhlífar
BMX-buxur BMX-púðar
BMX-jakkar BMX-merki
Sendum í póstkröfu. Varahluta- og
viðgerðaþjónusta. Kreditkortaþjónusta. Suðuriandsbraut 30. Sími 35320.
Vistheimilið
Seljahlíð
(aprílmánuði 1986 er áætlað að taka í notkun vistheimil-
ið Seljahlíð við Hjallasel.
Hér er um að ræða 60 einstaklingsíbúðir og 10 hjónaí-
búðir.
Vistheimilið verður rekið í daggjaldaformi og er því allt
fæði og þjónusta innifalin í dvalargjaldi.
Hér er ekki um að ræða hjúkrunarheimili og er því ekki
gert ráð fyrir að hjúkrunarsjúklingar fái þar vistun.
Umsóknareyðublöð liggja frammi í Vonarstræti 4 og
Tjarnargötu 11.
Umsóknarfrestur er til 15. janúar 1986.
Nánari upplýsingar verða gefnar mánudaga, miðviku-
daga og föstudaga frá kl. 9.00-10.00 í sím 25500.
Laus staða
Staða aðalgjaldkera við embætti bæjarfógeta í Kópa-
vogi er laus til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 10.jan. 1986.
Laun samkvæmt launakerfi BSRB.
Umsóknir ásamt upplýsingum um fyrri störf og menntun
sendist bæjarfógeta í Kópavogi.
Allar upplýsingar veittar í síma 44022.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.