Morgunblaðið - 28.12.2003, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 28.12.2003, Blaðsíða 3
28.12.2003 | 3 Einari Má Guðmundssyni, rithöfundi, finnst leiðinlegt hvað mörgum sem starfa í menningargeiranum tekst að gera menningarumræðuna leiðinlega. Miðað við þá skoðun flokkast viðtal Súsönnu Svavarsdóttur við hann sjálfan ekki sem dæmigerðar menningarumræður. Ekki heldur viðtal Árna Þórarinssonar við Davíð Oddsson, for- sætisráðherra, og Hrafn Gunnlaugsson, kvikmyndaleikstjóra, sem í sameiningu eiga innlegg í menn- inguna um þessar mundir. Bæði eru viðtölin býsna skemmtileg (að mati Tímarits Morgunblaðsins a.m.k. - afsakið sjálfumgleðina) og í raun einstakt að forsætisráðherrann tjái sig um þjóðfélagsástandið með jafn persónulegum hætti. Viðtölin snúast hvort með sínu sniði um menninguna; ljóð, skáldskap og kvikmyndagerð, ekki síður en um íslenskt þjóðfélag. Einar Már segir: „Það vantar póesíuna í lífið. Þess vegna álít ég menninguna hafa miklu hlutverki að gegna. Við rithöfundar erum andspyrnuhreyfing hins mannlega í baráttunni við tómleikann. . . . Skynsemishyggjan er ekki búin að eyðileggja okkur mjög mikið - en gerir það þegar við göngum í Evrópusambandið. Þá hættum við að tala um neitt annað en verð á eggjum og tómötum.“ Þegar Davíð Oddson sviptir af sér hulu forsætisráðherrans er athyglisvert að hann hefur ekki ólíka sýn og Einar Már. Davíð segir m.a. um vaxandi miðstýringaráráttu íslensks þjóðfélags: „Þrýstingurinn í þessa veru er gríðarlegur, ekki síst með allt sem kemur frá Evrópusam- bandinu og EES; það gengur fyrst og fremst út á samhæfingu og miðstýringu, sem er í rauninni full- komlega óþörf. En þessi þróun hefur vissulega orðið á öllum sviðum.“ Standi listamenn og stjórn- málamenn saman er kannski enn von um póesíuna í lífinu á næsta ári. Gleðilegt nýtt ár! 28.12.03 4 Flugan Flugan fór á tónleika hjá Íslensku dívunum í Grafarvogskirkju. 6 Birna Anna íhugar meint húmorsleysi femínista. 6 Lofar góðu Helena Sverrisdóttir byrjaði að æfa körfubolta fimm ára. 8 Púlsinn Rebekka Rán Samper dregur upp mynd af Ómari Ragnarssyni. 10 Andóf í sálinni Einar Már Guðmundsson rithöf- undur segist ekki hafa töfralausnir gegn vaxandi hlutavæðingu en reyni að leggja sitt af mörkum með skáld- skapnum. 20 Frelsið skal verja með boðum og bönnum Nýja kvikmyndin Opinberun Hann- esar verður Hrafni Gunnlaugssyni og Davíð Oddssyni innblástur að um- ræðu um einstaklinginn andspænis forsjár- og eftirlitshyggju ríkisvalds- ins. 26 Stjörnuspá 2004 Rýnt í stjörnurnar fyrir næsta ár. 28 Straumar Sextíu og átta kynslóðin mætir í sínu allra fínasta pússi á nýársball. 29 Gull fyrir gamlárskvöld Minna er meira er ekki útgangs- punkturinn á gamlárskvöldi eða ný- ársfögnuðum. 30 Veitingahús Stjörnugjöf Steingríms Sigurgeirs- sonar til veitingahúsa. Vox er með fimm stjörnur. 32 Bestu vín ársins Það leynast sannkallaðir gullmolar í bestu vínum ársins samkvæmt mati Steingríms Sigurgeirssonar. 34 Ilmurinn lokkandi Krydd getur haft áhrif á heilsu og líðan. Sjö vinsælar kryddtegundir sem notaðar eru um hátíðarnar. 37 Jamie Oliver Himneskur sítrónubúðingur. 37 Álitamál Guðrún Guðlaugsdóttir veltir upp nokkrum hliðum á mannlegum mál- um. 38 Pistill Auður Jónsdóttir skrifar um ofnæmi af ýmsu tagi. Tímarit Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, netfang: timarit@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Margrét Sigurðardóttir margret@mbl.is, Valgerður Þ. Jónsdóttir, vjon@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Árvakurs hf. ISSN 1670-4428 Forsíðumyndina tók Golli af Hrafni Gunnlaugssyni og Davíð Oddssyni á Laugarnestanga mánudaginn 15. desember 2003. 10 30 29 34

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.