Morgunblaðið - 28.12.2003, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.12.2003, Blaðsíða 22
22 | 28.12.2003 Skapandi samstarf þeirra Davíðs og Hrafns hófst á opinberum vettvangi í útvarp- inu með þáttum sem hétu Spunahljóð og Um drykklanga stund, en bæði nöfnin voru fengin úr ljóði eftir Jóhann Jónsson. Í raun á þó þetta samstarf rætur allt til þess tíma er þeir voru í Hagaskólanum og léku í Litla ljóta andarunganum undir stjórn Harðar Bergmann kennara síns. „Ég held að ég hafi leikið ráðgjafa kóngsins og þú hirðfífl,“ segir Davíð við Hrafn. „Nei,“ mótmælir Hrafn. „Ég lék mislukkaðan elskhuga sem átti að reyna að pranga inná prinsessuna og ráðgjafinn, sem þú lékst, var að reyna að koma í veg fyr- ir þann ráðahag, enda var þessi elskhugi fífl.“ „Svo lékum við í Betlaraóperunni,“ bætir Davíð við, „þú betlarann og ég höf- undinn.“ KOKKAÐ OG SPUNIÐ YFIR GÚNDAPOTTI En þegar þeir urðu báðir höfundar að fyrrnefndum útvarpsþáttum spunnu þeir gjarnan saman, yfirleitt í kjallaranum heima hjá Hrafni. „Við þessi tækifæri steiktum við iðulega kjúkling í svokölluðum Gúndapotti, sem kostaði 4.000 kall gamlar,“ segir Davíð. „Þetta var afar einföld matreiðsla. Við settum kjúklinginn í þennan pott, krydduðum rosalega og kveikt- um á. Svo átum við þetta og drukkum með, sjálfsagt romm í kók eða sénever í kók enda var léttvínskúltúrinn ekki kominn.“ Því má segja að bæði nöfnin, Spunahljóð og Um drykklanga stund, hafi vísað til sjálfs sköpunarferlis þáttanna. „Við sátum og átum, drukkum og spunnum sögur og létum móðan mása fram eftir nóttu,“ heldur Davíð áfram. „Oft kom það svo í hlut Hrafns, sem er duglegri en ég, að vinna úr spunanum og koma honum niður á blað. Síðan fórum við aftur yfir textann saman. Þetta varð okkar vinnulag. Konurnar okkar voru gjarnan ekki langt undan og hlógu á réttum stöðum þannig að við pepp- uðumst upp og héldum að við værum mjög snjallir. Ég er satt að segja ekki viss um að þetta hefði gengið ef þær hefðu ekki sýnt okkur slíka aðdáun!“ Uppskeran gat orðið hvort heldur sem var skissur fyrir útvarpsþætti, á borð við tímamótagrínið Útvarp Matthildur, eða atriði í sviðsrevíur eins og Íslendingaspjöll sem Leikfélag Reykjavíkur sýndi. Þórarinn Eldjárn var sem kunnugt er samstarfs- maður þeirra í Matthildi og einnig leikritinu Ég vil elska mitt land. „Í Matthildi unnum við hins vegar alveg markvisst undir þrýstingi frá föstum útsendingartíma,“ segir Davíð, „nánast eins og agaðir skrifstofumenn.“ Fyrir utan eina sjónvarpsmynd, æskusöguna Allt gott, sem Davíð sendi frá sér á bók og þeir sömdu síðan kvikmyndahandrit að saman og Hrafn leikstýrði, hafa samstarfsverkefnin öll verið samfélagslegar og pólitískar skopádeilur. „Mikil þver- pólitík,“ segir Hrafn. „Þessi verk þættu kannski ekki frumleg núna,“ tekur Davíð við, „en á þessum tíma voru þau eitthvað nýtt í íslensku gríni. Það er eins og með sviðshreyfingar Presleys; þær voru nýjar, einstakar og hreinlega byltingarkenndar þegar hann kom fyrst fram. Síðan höfum við séð svo marga tónlistarmenn með alls konar sviðshreyf- ingar að það gleymist að byltingin var hans.“ „Þegar Presley kom fram í Ed Sullivan Show mátti ekki sýna hann fyrir neðan mitti,“ segir Hrafn. „Svo ný og ögrandi þótti framkoma hans.“ Davíð: „Matthildur var svo ný og ögrandi að hún var stöðugt til umfjöllunar í út- varpsráði og í lesendadálkum blaðanna.“ Hrafn: „Íslenskur húmor hafði þar áður mest gengið út á röfl í fullum köllum. Allt í einu kom húmor sem var samfélagslegur og höfðaði til almennrar reynslu.“ Davíð: „Við vorum líka svo ótrúlega ungir, 18–19 ára, þegar Matthildur var í loft- inu.“ MINNING ÚR KERFINU Og núna, 35 árum síðar, þegar höfundarnir eru komnir á miðjan aldur, hefur orðið til skopádeilan Opinberun Hannesar. Smásagan Glæpur skekur Húsnæðisstofnun á rætur í þeim tíma þegar Davíð var forstjóri Sjúkra- samlags Reykjavíkur. „Þá gerðist lítill atburður innan stofnunarinnar sem vakti ákaflega þrungnar tilfinningar meðal starfsfólksins. Það var stolið reiknivél. Af hlaust gríðarlegt glæpamál sem heltók heiðarlega og samviskusama starfsmenn. Það kom í minn hlut að reyna að taka á þessum hræðilega glæp af festu og ábyrgð. Uppúr minningunni um þetta mál þróaðist þessi smásaga, en auðvitað skáldaði ég upp nýja karaktera sem starfsfólk Sjúkrasamlagsins ber enga ábyrgð á.“ Davíð segir að sér hafi liðið ágætlega í þessu starfi. „Ég var þarna hluti af þessu eftirlitskerfi með bakveiku fólki, öryrkjum og öðrum þeim sem áttu rétt á dagpen- ingum, þátttöku í lyfjakostnaði og þess háttar. Ég er undarleg týpa að því leyti að ég er alltaf sannfærður um að þar sem ég er staddur sé allt það þýðingarmesta að ger- ast,“ segir hann brosandi, „og allt eins og það á að vera. Til dæmis vil ég aldrei breyta neinu heima hjá mér. Ef gamall stóll hefur lengi þjónað sínu hlutverki á ákveðnum stað er ómögulegt að fá mig til að hreyfa við honum.“ „Og helst alls ekki að skipta um úlpu,“ glottir Hrafn. „Eða skó eða föt,“ tekur Davíð undir. „Þannig að ég er yfirleitt sáttur þar sem ég er og áhugasamur um það. Og starfið hjá Sjúkrasamlaginu var mjög gott þótt ég liti ekki á það sem framtíðarstarf. Á sama tíma var ég borgarfulltrúi, að kenna í Versl- unarskólanum og skrifa leikritin með Hrafni og Þórarni ásamt ýmsu öðru, eins og að skrifa tveggja opnu viðtal í Vísi við Benny Goodman ásamt Atla Heimi; það við- tal gekk einkum út á að fá endanlega upplýst í hverju hin eina, sanna sveifla væri fólgin.“ Glæpur skekur Húsnæðisstofnun birtist í smásagnasafni Davíðs Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar og hann gaf Hrafni eintak í jólagjöf. Tvær sögur í bókinni vöktu áhuga leikstjórans sem hugsanlegt efni fyrir kvikmynd og hann spurði höfundinn hvort hann mætti leika sér aðeins með þær. Davíð samþykkti og úr varð að Glæpur skekur Húsnæðisstofnun fór að mótast í handriti. „Það sem heillaði mig við sög- una,“ segir Hrafn, „var þessi stofnun sem fór öll á annan endann út af lítilli reikni- vél. Svo las ég í blöðunum frétt um mann sem tölvu hafði verið stolið frá. Honum fannst eins og stolið hefði verið af sér höfðinu.“ Það var svo fyrir hvatningu frá Lars Sätström hjá sænska sjónvarpinu, sem séð hafði um framleiðsluna á Böðlinum og skækjunni, og vildi fá Hrafn til að leikstýra aftur í Svíþjóð, að Hrafn stakk í staðinn upp á sjónvarpsmynd úr íslenskum veru- leika. „Ég sagði honum að ég hefði ekki löngun til að leikstýra meira erlendis en áhuga á að vinna upp úr smásögu eftir vin minn með skemmtilegum persónum. Hann bað mig að senda sér söguna sem ég gerði. Lars leist vel á söguna sem grunn en lagði til að ég uppfærði hana til nútímans. Við gerðum svo samning um handrits- skrifin. Ég reyndi mikið að fá Davíð til að skrifa handritið með mér en hann hafði lítinn tíma. Það var því ekki fyrr en ég var búinn með fyrstu handritsdrög að hann kom til leiks.“ „Við hittumst tvisvar, minnir mig,“ segir Davíð, „ég las yfir og kom með hug- myndir. Ef við hugsum um naglasúpu þá má segja að naglinn hafi komið frá mér en mestallt kryddið frá Hrafni.“ „Það er nú ekki alveg rétt,“ grípur Hrafn inní. „En ég hefði viljað fá þig miklu meira inn í vinnuna. Mikið af samtölunum varð hins vegar til í þau fáu skipti sem við áttum stuttan tíma saman. Davíð þekkir kerfið innanfrá miklu betur en ég og gat bent mér á atriði í handritinu sem hreinlega stæðust ekki. Hann lagði því til mikilvægt jarðsamband og fjölmargar replikkur og á mun meira í handritinu en vinnutími hans við verkið segir til um. Í rauninni er hann annar handritshöfund- anna þótt í myndinni standi aðeins að hún sé byggð á smásögu eftir Davíð Odds- son.“ Davíð: „Ég var aldrei að hugsa um að ég þyrfti að gæta höfundarréttar gagnvart sögunni. Ef sagan væri Hrafni innblástur í annað verk var mér alveg sama hvernig það yrði. Sagan sjálf mun alltaf standa fyrir sínu; hún verður ekki eyðilögð. Svo gladdi það mig auðvitað, eftir því sem ég fylgdist með þróun handritsins, að sagan var að verða að rífandi góðri mynd. Sagan sjálf hefur til að mynda ekki neinn beinan boðskap; hún er frekar frásögn af tilteknu atviki og hugsunarhætti. En í Opinberun Hannesar er undirliggjandi boðskapur sem aldrei er uppáþrengjandi og bætir þannig við söguna.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.