Morgunblaðið - 28.12.2003, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 28.12.2003, Blaðsíða 37
28.12.2003 | 37 Á ég að selja eða ekki – hvað finnstþér?“ sagði ungur maður semhafði samband við mig fyrir stuttu. Málið tengist hinum mjög svo mikið ræddu 90% lánum, þ.e. þegar lán allt að 90% er veitt af hóflegu íbúð- arverði. „Ég og kærastan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrir nokkru en höfðum áður leigt. Við ákváðum að kaupa okkur framtíðaríbúð ef við gætum, því maður fær bara einu sinni 90% lán, þ.e. þegar maður kaupir sína fyrstu íbúð, nema þá að eitthvað mjög mikið sé að, svo sem heilsuleysi eða slíkt, sem ekki er til að dreifa hjá okkur. Við skoðuðum það sem á markaðinum var og ákváðum að kaupa okkur hæð og ris sem við töldum að gæti hentað okkur, jafnvel þótt við ættum þrjú börn, en við eigum bara eitt. Íbúðin er mjög skemmtileg og við kunn- um vel við okkur en sá er galli á gjöf Njarðar að við ráðum illa við afborg- anirnar. Þegar búið er að borga alla reikninga eigum við varla fyrir mat og söfnum skuldum á kreditkort. Þetta teiknar ekki vel finnst mér. Kærustunni minni finnst hins vegar að við ættum að reyna að halda í íbúðina eins og við get- um vegna þess að við fáum ekki aftur 90% lán eins og lögin eru í dag. Hvað finnst þér?“ Þetta er mikið álitamál, svo mikið er víst. Það er augljóst að til þess að halda íbúðinni þurfið þið bæði að leggja tals- vert á ykkur, annaðhvort með því að vinna meira eða þá að herða sultarólina, ef svo má segja, hvort tveggja er heldur óskemmtilegt. Það sem mælir með því að halda íbúðinni er að nú eins og fyrr mundi hún vafalaust henta vel fyrir ykk- ur ef fjölskyldan stækkaði, líka er kostur ef ykkur líkar báðum vel við hana og síð- ast en ekki síst er mikið rót að flytja, það er ekki langt síðan þið keyptuð þessa íbúð og það er bæði kostnaðarsamt og leiðinlegt að standa í flutningum. Á hinn bóginn hefur það að selja íbúðina líka sína kosti. Fyrst og fremst sníðið þið ykkur stakk eftir vexti hvað efnahaginn snertir. Fólk borgar mikið aukagjald fyrir húsnæði þegar það er með mikil lán, þannig verða íbúðir mun dýrari en ella. Gamla aðferðin, að kaupa sér fyrst litla íbúð og stækka svo við sig þegar fólk hefur safnað svolítið og á orð- ið talsvert í litlu íbúðinni, er sennilega ódýrari aðferð. Í öðru lagi, og það vegur kannski þyngst, þurfið þið ekki svona stóra íbúð núna og alveg óvíst hvenær sú stund rennur upp að þörf sé á stærra húsnæði, kannski náið þið því að eignast eitthvað í lítilli íbúð og jafnvel safna ef þið mynduð selja og kaupa ykkur núna minni íbúð. Allténd verður líf ykkar áhyggjuminna og sennilega skemmti- legra. Margir Íslendingar búa í mun stærra húsnæði en þeir þurfa og verða af þeim sökum að borga mikinn auka- kostnað í formi vaxta af lánum, kredit- kortum og yfirdrætti. Hugsanlega getið þið fengið minni íbúð í nágrenni við þá sem þið búið í nú. Stundum er betra að fara stillt af stað, ég gæti trúað að það væri óvitlaust heilræði fyrir ungt fólk á þeim óvissutímum sem nú virðast vera í íslensku samfélagi, bæði hvað snertir efnahags- og atvinnumál. Guðrún Guðlaugsdóttir Álitamál Gott er að fara stillt af stað í íbúðarkaupum Stendur þú andspænis erfiðum aðstæðum? Guðrún Guðlaugsdóttir veltir upp möguleikum í stöðunni | gudrung@mbl.is Hvað varð um bollakökur? Ég elskaði þær sem krakki. Og meðan ég var að bisa við uppskrift að klístruðum karamellubúðingi þá reyndi ég að enduruppgötva góðu gömlu bollakökurnar, sem alltaf löðuðu fram brosið á andlitinu á mér. Um 12 kökur 30 g rúsínur 30 g þurrkaðar apríkósur 30 g döðlur 1 teskeið lyftiduft 140 g hveiti 30 g púðursykur 1 matskeið ljóst síróp 1 stórt egg 30 g brætt smjör 140 ml snarpheitt vatn Í súkkulaðibræðing 40 g smjör 40 g sykur 40 g suðusúkkulaði 70 ml rjómi Setjið ofninn í 200°C. Hakkið þurrkuðu ávextina, lyftiduft og ögn af hveitinu (bara nóg til að ávextirnir festist ekki við hnífinn). Ef þið hafið ekki kvörn þá fínhakkið ávextina. Setjið þetta í skál með púðursykrinum, sírópinu, egginu og bræddu smjörinu og blandið saman. Bætið síðan í heita vatninu og því sem er eftir af hveitinu og blandið vel. Skiptið blönd- unni í 12 bollakökuform úr pappír (ég hef formin tvöföld svo þau haldi betur utan um kökurnar) og setjið á bökunarplötu. Bakið í heitum ofn- inum í um 15 mínútur. Á meðan þá bræðið allt í súkkulaðibræðinginn og látið sjóða saman þar til blandan dökknar aðeins. Takið af hitanum og lát- ið sósuna kólna þar til hún þykknar. Setjið þá klessu ofan á hverja köku. Sæludagar með Jamie Oliver, PP-Forlag, 2003. Jamie Oliver Klístraðar karamellu-bollakökur með súkkulaðibræðingi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.