Morgunblaðið - 28.12.2003, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 28.12.2003, Blaðsíða 14
14 | 28.12.2003 tímabil og það tímabil sem laðaði Einar að sér var tímabil stjórnleysingjanna. „Fylkingin hafði á þessum tíma mikið aðdráttarafl fyrir ungt og leitandi fólk,“ seg- ir hann, „fólk sem hafði ekki endilega skýrar stjórnmálaskoðanir, heldur einhvers- konar andóf í sálinni. Hinn sameiginlegi grundvöllur skapaðist af andstöðunni gegn herstöðinni og NATO og það tengdist auðvitað Víetnamstríðinu og þeim verkum sem þar voru unnin. Auk þess kraumaði mikil ólga undir niðri hjá almenningi; ekki síst út af því mikla atvinnuleysi sem hafði ríkt og hafði leitt til landflótta til Svíþjóðar og Ástralíu. Róttækni var líka að hreiðra um sig í skólunum og fólst aðallega í leit að öðru veganesti eða annarri sjálfsmynd en þeirri að verða lögfræðingur eða verkfræð- ingur á jakkafötum. Þar fyrir utan rakst hið þjóðlega, nýfengna sjálfstæði nokkuð harkalega á nýja alþjóðlega strauma. Við höfðum átt að vera fyrirmyndarlýðveld- isbörn, helst að ganga í skátabúning og hylla fánann, en þessi skólastjóraagi hentaði okkur ekki og við vildum losna undan honum.“ Eftir þessa róttækni og þrjár ljóðabækur kom út fyrsta skáldsaga Einars, Riddarar hringstigans, hjá Almenna bókafélaginu – sem þá var álitið hægri sinnað forlag á móti hinu vinstrisinnaða Máli og menningu. „Við sem vorum langt til vinstri, fannst við aldrei neitt skuldbundin Alþýðu- bandalaginu. Almenna bókafélagið og Mál og menning voru bara forlög sem voru að takast á í ímynduðum heimi. Þau voru í stríði sem enginn annar vissi af. Bæði forlögin gáfu út fínar bækur og voru góð forlög. Það sem skipti máli þá – og skiptir ennþá máli – er að útgefendur skilji höfundinn og séu þolinmóðir á meðan verið er að brjóta ísinn. Í sagnalistinni og ljóðagerðinni er fólgin einhver leit. Sjálfur hef ég aldrei náð í skottið á bókum sem eiga að endurspegla skoðanir höfundar, né skilið að verk sé gott vegna þess að höfundur þess hafi svo góðar skoðanir. Bókmenntir eru alltaf gagn- rýnar. Ef menn litu á mig sem róttækan höfund, þá var það vegna þess að menn vissu að ég átti mér pólitíska fortíð. En á meðan sú fortíð var nútíð, höfðu menn engan áhuga á henni. Eftir að ég fór að skrifa á fullu gerðist ég minn eigin flokkur ef svo má segja. Ég lít fremur á mig sem boðbera lífsviðhorfa en ein- hverrar eindreginnar afstöðu. Mér finnst ég oft vera að segja sögu sem hefur verið sögð – en að hún hefur ekki verið sögð eins og ég vil segja hana. Það þýðir ekki að ég sé að fletta ofan af sögufölsun, heldur finnst mér sagan vera öðruvísi í lífinu og skáldskapnum en hún birtist okkur í ríkjandi viðhorfum. Í skáld- skapnum verður mannlífið að lífsspeki.“ Skáldsöguhöfundur endurskapar tímann Þú talar um þolinmæði útgefenda. Er hún til staðar í dag? „Nei, og þó, vonandi. Sú tilhneiging er til staðar að menn séu afskrifaðir eftir eina bók. Sem dæmi get ég nefnt að fyrsta bókin sem kom út eftir mig í Danmörku var ljóðaúrval. Síðan kom Riddarar hringstigans sem fékk góða dóma, þótt ekki væri um að ræða nein risaupplög á þýddum bókum. Þegar svo Englar alheimsins komu út þar og gengu vel, þá var aftur farið að gefa út fyrri bækurnar. Útgefendur og höfundar þurfa að horfa á ferilinn og byggja hann upp. Úgefandinn þarf að standa með höf- undinum og höfundurinn að sýna honum trúmennsku. Ef við skoðum áratuginn á milli 1980 og 90, þá voru bókmenntir frá Norð- urlöndum úti í jaðrinum erlendis, til dæmis í Þýskalandi. Þegar við kynntum verk okkar mættu nokkrir áhugamenn um Ísland og spurðu aðallega um íslenska hesta. Þá vorum við, nokkrir Norðurlandahöfundar, hjá litlu forlagi í Kiel, sem var stjórnað af áhugasömum prófessor. Þegar svo stóru forlögin vildu fá okkur, sagði hann: „Það er miklu betra fyrir ykkur að vera þar“ og sleppti mönnum þangað. Það voru nokkur lítil forlög í Þýskalandi sem unnu mikið brautryðjendastarf. Í dag eru bókmenntir frá Norðurlöndum mjög áberandi í Þýskalandi. Það eru oft þessi litlu forlög sem byrja. Þess vegna skyldu menn aldrei vanmeta þau.“ Riddarar hringstigans sem kom fyrst út árið 1982 var sú fyrsta í röðinni af þremur skáldsögum um heim Jóhanns Péturssonar þar sem hann er að alast upp í Vogahverf- inu í lok sjötta áratugarins og byrjun þess sjöunda. Önnur bókin, Vængjasláttur í þak- rennum, kom út ári seinna og þriðja bókin, Eftirmáli regndropanna 1986. Sögurnar lýsa af ótrúlegri nákvæmni tíðaranda, viðhorfum, kynjahlutverkum og breytingum sem eiga sér stað í þjóðfélaginu á þessum tíma. En þær lýsa líka áhyggjulausu lífi hins saklausa barns sem er uppátækjasamt og skynjar engar hættur í umhverfi sínu – þótt sakleysið tapist, strax í fyrstu sögunni. Í annarri sögunni er heimi barna á þessum tíma lýst og þótt sagan sé sögð frá sjónarhóli drengja, er hann hreint ekki fjarri heimi stúlkna á þessum tíma. Þegar upp er staðið verður heildarverkið sú sagnfræði tíma- bilsins sem hægt er að sætta sig við. Þar eru ekki bara atburðir sem gerðust, heldur líka viðbrögð persónanna við þeim. „Skáldsöguhöfundur endurskapar tímann auðvitað á grundvelli staðreynda,“ seg- ir Einar, „en líka á grundvelli tilfinninga. Auga hans fyrir því hvað er fréttnæmt og hvað ekki byggist á innsýn og lífsskilningi fremur en vísindalegu öryggi. Hvort hann fylgir því sem sannara reynist er alls ekki víst, því sannleikurinn er sjaldnast hlutlæg staðreynd í skáldskap.“ Öryggi vissunnar – frjósemi óvissunnar „Að öllum líkindum er afstaða skáldsagnahöfundar til heimilda og þekkingar önn- ur en sagnfræðingsins. Skáldsagnahöfundurinn þarf vissulega að kynna sér efnið sem hann er að fjalla um, en verkið verður til á einhverju svæði á milli þess sem hann veit og veit ekki, í öryggi vissunnar, í frjósemi óvissunnar. Þó að ég telji sagnfræðina nýtast mér vel og áhugi minn á skáldskap og sögu sé samofinn, er ég alls ekki að tjá neina forskrift fyrir aðra. Hver höfundur sem fæst við skáldskap finnur sína eigin persónu- legu leið og lætur ekki segja sér fyrir verkum.“ Hvenær byrjaðir þú að skrifa Riddara hringstigans og hvers vegna fluttirðu þig úr ljóðlistinni yfir í skáldsöguna? „Það er dálítið erfitt að tímasetja það, vegna þess að þegar ég byrjaði að skrifa prósa, spruttu sögurnar upp úr ljóðunum. Í Róbinson Krúsó snýr aftur sæki ég minn efnivið í æskuveröld mína. Ljóðin fóru að verða frásagnakenndari. Upp úr því fer ég að þvælast um þennan heim og skrifa ótrúlega mikið án þess þó að ná utan um efnið. Ég hélt auðvitað að ég væri með ótrúlegt meistaraverk í hönd- unum, sem næði utan um allan heiminn – en það er nú oft bensínið sem menn þurfa til að halda ótrauðir áfram. Svo var þetta orðinn mikill grautur, þar til ég datt ofan á byrjunina á Riddurunum. Eftir það kom sagan til mín eins og tilbúin. Ég vissi hvernig hún myndi enda. Samt var ekki auðvelt að enda söguna. Ég upplifði það ekki sem nein umbrot að fara úr ljóðinu yfir í sögu. Fyrir mér er þetta allt sama tóbakið. Einhvern tíma sagði ég að það fara úr ljóði í sögu væri eins og að hætta að keyra strætó og byrja að keyra leigubíl." Orðin eru farartæki „Ég hef sömu afstöðu til ljóðanna og Jesús til barnanna; ég leyfi þeim að koma til mín. Eftir að ég fór að skrifa sögur hafa komið út eftir mig tvær ljóðabækur. Það er ekki vegna þess að ég hafi sest niður og sagt: Nú ætla ég að skrifa ljóðabók. Hins veg- ar er það svo að þegar mér hefur orðið ljóst að ég er með ljóðið, þá gef ég mig allan í það. Ég lít ekki á ljóðið sem afréttara eða uppfyllingu. Það er oft talað um að ljóðið sé tilraunastöð skáldskaparins, sú vinna þar sem tungumálið þróast og þar sé að finna þróunina í heimssýn höfunda. Mér varð þetta ekki síst ljóst þegar við Friðrik Þór vorum að byrja að skrifa kvik- myndahandrit. Þú getur litið á kvikmyndahandrit sem ljóð og hverja senu sem ljóð- línu. Það gilda sömu lögmál í kvikmynd og ljóði, svo ljóðskáld á auðvelt með að sjá hvort kvikmyndahandrit virkar.“ Talandi um kvikmyndir. Nú segir þú alltaf sögu í verkum þínum, en er ekki vantrú á sögunni í kvikmyndaiðnaðinum? „Jú, það er alltaf fyrirfram vantrú á sögunni – og á efninu. En það er yfirleitt aldrei fyrirsjáanlegt hvað er áhugavert í því sem menn eru að gera í listum. Þegar ég var að skrifa Engla alheimsins átti ég lengi vel mjög erfitt með að segja hvað ég væri að fást við. En þar kom að ég missti það út úr mér að ég væri að skrifa um fólk sem ekki gengi heilt til skógar. Þá sögðu menn að ég væri búinn að vera. Það myndi enginn lesa bók um geðveikt fólk. En menn verða að hafa trú á því sem þeir eru að gera. Þetta er ekki spurning um að hafa trú á sjálfum sér, heldur því sem maður er að gera. Menn eru alltaf fullir af efa um eigið ágæti. Annars yrði þetta bara einn sjálfumglaður flaumur.“ Skáldsagan Rauðir dagar kom út 1990. Hvaða lífsviðhorf eru ríkjandi þar? „Í Rauðum dögum vildi ég kannski skrifa gegn sjálfumgleði ’68-kynslóðarinnar sem sat í sínu rauðvínslegna þunglyndi og barmaði sér yfir því að draumarnir hefðu ekki ræst og allt hefði verið miklu skemmtilegra þegar þau voru ung. En það var aldrei verið að tala um hlutina eins og þeir gerðust. Síldin hvarf. At- vinnuleysi var mikið. Brotthvarf síldarinnar hleypti byltingunni af stað, leiddi til ólgu á vinnumarkaði – og hreinlega til landflótta. Það eru mjög margir Íslendingar ennþá búsettir í Svíþjóð og í Ástralíu frá þessum tíma. Þessi ólga kemur inn í aðra ólgu sem tengist unglingamenningu og tónlistarmenn- ingu, sem felur í sér andstöðu við vopnavald og hernað. Svo var hér allt morandi í sér- trúarsöfnuðum. Ég sótti í þann þjóðsagnalega sagnabrunn sem ég hafði kynnst í Fylkingunni. Á sínu blómaskeiði var Fylkingin sambland af baráttusamtökum og húsi organistans. Þangað leituðu þeir frjóu straumar sem lágu í loftinu. Þangað komu bóhemarnir, skáldin, drykkjurútarnir, námsmennirnir, verkamenn sem voru óánægðir með verka- lýðsforystuna og margir fleiri. Þarna var óábyrg sagnalist í hávegum höfð og það var kannski sú veröld sem ég var að reyna að ná í skottið á í Rauðum dögum, þótt aldrei hafi verið ætlunin að segja: Svona var þetta.“ ANDÓF Í SÁLINNI ÞEIM SEM VAR SAMA UM MÁLGALLANA VORU MÍNIR MENN; HINIR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.