Morgunblaðið - 28.12.2003, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 28.12.2003, Blaðsíða 30
30 | 28.12.2003 VOX, NORDICA HÓTEL  Vox fylgir nokkuð klassískri nýfranskri línu með alþjóðlegum áhrifum og gerir það frábærlega. Hvert smáatriði fullkomlega útfært í réttunum, samsetningarnar skotheldar og öryggið í eldamennskunni algjört. Draumaliðið í eldhúsinu, þeir Hákon Már Örvarsson, Sigurður F. Gíslason og Gunnar Karl Gíslason, er að taka íslenska veitingahúsamatargerð upp á nýtt stig. LA PRIMAVERA Það er eitthvað við La Primavera, sem gerir að verkum að maður leggur leið sína þangað aftur og aftur. Þetta er eitt af örfáum íslenskum veitingahúsum sem alltaf standa undir væntingum og yfirleitt meira en það. Það er ekki boðið upp á neinar flugeldasýningar eða gælt of mikið við tískustrauma í matargerð. Lykillinn að vel- gengni La Primavera er stöðugleiki, hæg en örugg þróun í matargerðinni og festa varðandi allt það sem mestu máli skiptir. SJÁVARKJALLARINN Sjávarkjallarinn er nútímastaður þar sem innblásturinn er greinilega sóttur til vin- sælla staða í stórborgum í kringum okkur þar sem blandað er saman klúbbstemn- ingu og mat. Matargerð Sjávarkjallarans er hrein fusion-matargerð þar sem evr- ópskum og asískum áhrifum er steypt saman. Og dæmið gengur vel upp hjá Lárusi Gunnari Jónassyni matreiðslumanni, sem greinilega hefur leitað fanga víða í leit sinni að nýjum hugmyndum. EINAR BEN Það hefur ekki farið mikið fyrir Einari Ben, engar háværar auglýsingaherferðir eða tilraunir til að blása staðinn upp út á við. Starfið hefur átt sér stað innan veggja eld- hússins og í veitingasalnum og það hefur greinilega skilað árangri. Þarna er að fæð- ast veitingahús sem hefur ekki einungis metnað til að gera vel, heldur eldhús sem stendur undir því. HUMARHÚSIÐ Humarhúsið hefur verið starfrækt í fallegu timburhúsi á Amtmannsstíg 11 frá árinu 1995. Ekki hefur verið farin sú leið að reyna að endurskapa rómantíseraða útgáfu af nítjándu aldar húsnæði heldur er nýju og gömlu blandað saman með ágætum árangri. Humarhúsið leggur eins og nafnið gefur til kynna töluverða áherslu á humarrétti en sjávarréttir almennt eru fyrirferðarmiklir á matseðlinum, hvort sem er í hádeginu eða kvöldin. Raunar er Humarhúsið einn af bestu hádeg- isverðarstöðum borgarinnar og er boðið upp á góðan matseðil á hófstilltu verði. Mikið er lagt upp úr humar og sjávarréttum og þar sýnir Humarhúsið sínar bestu hliðar og raunar einnig í gómsætum eftirréttunum. MATUR OG VÍN | STEINGRÍMUR SIGURGEIRSSON VEITINGAHÚSIN Árið sem er að líða hefur ekki verið tími mikilla umbrota í íslensku veitingalífi. Þó hafa tveir fyrsta flokks nýliðar bæst í hópinn. Vox og Sjávarkjallarinn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.