Morgunblaðið - 28.12.2003, Page 11
spurð’ekki
hvort það sé líf
á öðrum hnöttum
fyrr en þú
hefur fullvissað þig
að það sé einnig á þessum
ANDÓF Í SÁLINNI
Eftir Súsönnu Svavarsdóttur
Ljósmyndir Einar Falur Ingólfsson
Fyrsta ljóðabók Einars Más
Guðmundssonar ER NOKKUR Í
KÓRÓNAFÖTUM HÉR INNI? kom
út árið 1980. Ekki einasta vakti
hún mikla athygli, heldur var
tekið fagnandi af ungu fólki, sem
var í rauninni sama sinnis og
Einar – en réð bara ekki yfir því
tæki sem heitir skáldskapur til
að geta tjáð það sinni. Þetta var
fólkið sem alið hafði verið upp á
Skólaljóðunum, var orðið þreytt
á hástemmdum náttúrulýsing-
um, harmrænum fugladauða í
óbyggðum og var að velta því fyr-
ir sér hvort skáld væru aðeins
ellihrumir menn eða dauðir.
Hvorki yrkisefnin né skáldin
komu þeirra veruleika við. Og ef
skáldskapurinn var að deyja út,
var þá einhver von um líf ?
28.12.2003 | 11