Morgunblaðið - 28.12.2003, Síða 31
APÓTEK BAR GRILL
Sérstaða Apóteksins á sínum tíma var stærðin og
nútímaleg hönnunin ásamt samsuðu sígildrar
franskrar matargerðar og austurlenskra áhrifa. Yf-
irbragð staðarins hefur staðist tímans tönn og það
er yfirleitt gaman að koma þangað inn. Best nýtur
staðurinn sín um helgar þegar mikið er um að vera.
Þetta er stemningsstaður og þegar setið er við flest
borð eru fáir staðir sem geta keppt við Apótekið
um andrúmsloft.
METZ
Í upphafi nam álagning á léttvíni einungis þúsund
krónum á flösku óháð því hvað vínið kostar en flest
veitingahús miða við prósentureglu og tvöfalda eða
jafnvel þrefalda því verð vínsins. Álagningin hefur
hækkað en er enn með því lægsta sem gerist. Metz
gefur sig ekki út fyrir að vera veitingahús í dýrasta
flokki heldur meira nútímalegt bistro. Maturinn og
vínið er í lágum verðflokki en það er ekkert billegt
við staðinn, matinn, vínið eða þjónustuna.
101
Hotel 101 er fyrsta „hönnunar“-hótelið í glæsi-
flokknum sem lítur dagsins ljós hér á landi og mat-
salurinn eftir því, sá flottasti í bænum. Matreiðslan
á 101 er einföld og tilgerðarlaus, en traust og verð-
lagið í milliflokki. Þetta er ekki staður til að fara
„fínt út að borða“ með öllu tilheyrandi heldur til að
setjast inn á við óformlegri aðstæður, hvort sem
menn vilja skemmta sér vel, eiga fund í hádeginu
eða einfaldlega slappa af.
MARU
Það voru mörgum vonbrigði þegar fréttist af því að
veitingastaðnum Sticks n’Sushi í Aðalstræti hefði
verið lokað enda hafði hann þegar best lét boðið
upp á eitthvert besta sushi-ið í bænum. Hins vegar
létti mönnum þegar fréttist að hjónin Guðlaug
Halldórsdóttir og Guðvarður Gíslason hygðust
opna stað í sama húsnæði þar sem sushi yrði í önd-
vegi. Sushi-réttirnir standa fyrir sínu og sumir grill-
réttirnir eru frábærir. Það er ágætt andrúmsloft í
þessu fallega timburhúsi við Aðalstræti, japönsk
áhrif í bland við íslensk.
AUSTUR-INDÍAFJELAGIÐ
Austur-Indíafjelagið við Hverfisgötu hefur fyrir
löngu fest sig í sessi sem „indverski“ staðurinn á Ís-
landi og ekki spillir fyrir að hann stendur vönd-
uðum indverskum veitingastöðum í nágrannaríkj-
unum síst að baki. Matarsmekkur Íslendinga hefur
þróast frá því staðurinn var opnaður en það hefur
Austur-Indíafjelagið líka. Breytingarnar sem gerð-
ar voru á matsal og matseðli fyrr á árinu ganga upp
og Austur-Indíafjelagið blómstrar í matargerðinni
sem aldrei fyrr.
.
GALBI
Galbi er einfaldur staður og fyrsti kóreski stað-
urinn hérlendis. Andrúmsloftið er vinalegt og mat-
urinn, ekki síst grillveislan, vel þess virði að gera sér
ferð í Kópavoginn.
GALLERÝ FISKUR
Gallerý fiskur er eins konar hverfisveitingastaður.
Rekinn af fjölskyldu sem greinilega kann til verka
og hefur áhuga á og ástríðu fyrir því sem hún er að
gera. Staðurinn er einfaldleikinn uppmálaður en
engu að síður smekklegur, bjartur og nútímalegur.
Gegnheill og góður fjölskyldustaður, rammíslensk-
ur og nútímalegur.
AUSTURLANDAHRAÐLESTIN
Klassísku smellirnir á Austur-Indíafjelaginu á borð
við Chicken 65 eru nú fáanlegir í nýju útibúi stað-
arins ofar á Hverfisgötu annaðhvort til að snæða á
staðnum eða til að taka með heim ásamt tandoor-
bökuðu naan-brauði. Indverskt og einstaklega
gott.
HEREFORD STEIKHÚS
Íslensk útgáfa af ágætri danskri steikhúsakeðju.
Steikurnar eru ágætar en forréttirnir ollu miklum
vonbrigðum. Það hafa orðið það miklar framfarir í
íslenskri eldamennsku að maður á heimtingu á
meiri gæðum. Fyrir þá sem gera ekki aðrar kröfur
en þær að fá ódýrt rauðvín með matnum er ódýra
karöfluvínið eflaust góður kostur, ekki síst í ljósi
verðsins.
ENRICO’S
Þrátt fyrir nafnið er Enrico’s ekki ítalskur veitinga-
staður, raunar er mjög erfitt að staðsetja hann yf-
irhöfuð. Maturinn er alls ekki alvondur á Enrico’s.
Hráefnin góð og eldamennskan á köflum ágæt. Það
skortir hins vegar fókus, það er ekki sniðugt að
hafa matinn jafnósamstæðan og innréttingarnar. Þá
er maturinn allt of dýr miðað við það sem í boði er.
28.12.2003 | 31