Morgunblaðið - 25.01.2004, Side 3
25.1.2004 | 3
4 Flugan
Flugan fór á opnun listsýningar Ólafs
Elíassonar og frumsýningu söngleiksins
Chicago í Borgarleikhúsinu.
6 Birna Anna
skrifar um mismunandi húmor.
6 Lofar góðu
María Kristín Jónsdóttir er ungur
hönnuður sem vill koma hönnun þriðja
heimsins á framfæri á Vesturlöndum.
8 Púlsinn
Rebekka Rán Samper dregur upp
mynd af Ólafi J. Engilbertssyni sagn-
fræðingi og sýningarstjóra.
10 Skínandi dóttir frá Kína
Þórunn Sveinbjarnardóttir þingmaður
hefur ættleitt litla stúlku, Hrafnhildi
Ming, og eiga störf hennar fyrir Al-
þjóða Rauða krossinn sinn þátt í þeirri
ákvörðun að ættleiða barn frá Kína.
16 Með farsíma á ferð og flugi
Farsíminn er orðinn ein af persónuleg-
ustu eigum fólks og möguleikarnir til
að gera hann enn persónulegri fjöl-
margir. Fimm ólíkir einstaklingar segja
sögur af símanum sínum.
18 Ekkert er eins og það sýnist
Harry Bilson listmálari af íslenskum
ættum hefur selt myndirnar sínar um
allan heim og eru verk hans í eigu
margra Íslendinga.
23 Kjarnakonur
Fimm mæður sem eiga samtals ellefu
börn segja frá dæmigerðum degi í lífi
sínu.
26 Straumar
Tónlist sem verður landslag
Guðni Franzson, tónskáld og blást-
ursleikari, hefur samið verk sem flutt
verða í Salnum í vikunni framundan.
27 Matur og vín
Veitingastaðurinn Holtið fær fullt hús
hjá Steingrími Sigurgeirssyni sem segir
að Holtið standi fyrir sínu eins og
alltaf.
28 Hollusta
Anna Sigríður fjallar um kjörþyngd
sem þykir eftirsótt þótt vaxtarlag geti
verið mismunandi.
29 Álitamál
Guðrún Guðlaugsdóttir veltir upp
nokkrum hliðum á mannlegum málum.
30 Pistill
Auður Jónsdóttir skrifar um
flughræðslu.
Tímarit Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík,
sími 5691100, netfang: timarit@mbl.is Útgefandi Árvakur hf.
Umsjón Margrét Sigurðardóttir margret@mbl.is,
Valgerður Þ. Jónsdóttir, vjon@mbl.is
Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is
Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Árvakurs hf.
ISSN 1670-4428
Forsíðumyndina tók Golli af Þórunni Sveinbjarnardóttur og
dóttur hennar Hrafnhildi Ming föstudaginn 16. janúar 2004.
18
28 27
16
Á Íslandi eru 450 börn sem ættleidd hafa verið frá 25 lönd-
um og hefur nú lítil stúlka frá Kína bæst í þann hóp. Hrafn-
hildur Ming er dóttir Þórunnar Sveinbjarnardóttur þing-
manns sem eftir langt og strangt nær þriggja ára
ættleiðingarferli hélt til Kína til að ná í þá litlu. „Ég var búin að venjast því að vera barnlaus en nú er
komin ný manneskja í líf mitt og hún hefur forgang,“ segir Þórunn líkt og aðrir nýbakaðir foreldrar. Í
viðtali Steingerðar Ólafsdóttur við Þórunni kemur fram að það virðist daglegt brauð í Kína að börn séu
borin út eins og tíðkaðist á Íslandi áður fyrr. Þar eru kvaðir á hjónum um að eignast einungis eitt barn og
þá þykir mikilvægara að það sé drengur en stúlka. Stúlkurnar sem bornar eru út bjargast stundum og fá
þá skjól á munaðarleysingjahæli eða barnaheimili. Þórunn hefur starfað fyrir Alþjóða Rauða krossinn í
þróunarlöndunum og kynnst bágum kjörum og segir að reynsla sín af þessum störfum hafi eflaust haft
þau áhrif að henni þótti nærtækt að fara þessa leið. „Þetta er eftir allt saman bara einn heimur.“ Erlendis
hefur það færst í vöxt að börn séu ættleidd af mannúðarástæðum þótt ófrjósemi sé enn algengasta orsök
þess að fólk ákveður að ættleiða börn. Ekki er ólíklegt að það sama verði uppi á teningnum hér á landi á
næstu árum. Við búum vel á Íslandi og getum gefið erlendum munaðarlausum börnum tækifæri til að
njóta lífsgæðanna með okkur. Framtíðin er barnanna. Listmálarinn Harry Bilson, sem er af íslenskum
ættum, segist hins vegar hugsa lítið um hvað framtíðin ber í skauti sér. „Ég reyni frekar að njóta augna-
bliksins. Ég held að þetta sé aðallega spurningin um að vera ekki að burðast með of mikið, verða ekki of
ágjarn og reyna að særa ekki þótt það sé náttúrulega ómögulegt að gera öllum til geðs.“
25.01.04
V
er
k
ef
ti
r
H
ar
ry
B
ils
on
, W
ho
’s
w
ho
a
t t
he
Z
oo
.