Morgunblaðið - 25.01.2004, Qupperneq 24

Morgunblaðið - 25.01.2004, Qupperneq 24
24 | 25.1.2004 Hvernig líður dæmigerður dagur í lífi ykkar? Dæmigerður dagur fer mestur í það að finna tíma til þess að vera við sjálf án þess að setja allt á annan endann. Ekkert okkar er flinkara en hvert ann- að í að hlýða svo að strákarnir neyðast til að láta sér lynda ákvarðanir kapt- ein mömmu, en hún fer og nær í gull svo hægt sé að hafa það dæmigert náð- ugt, á meðan þeir piltar sinna skólaskyldu og leikskóla. Hvert er besta veganestið út í lífið fyrir börnin þín? Besta veganestið er áttaviti innra með þér sem maður finnur með því að lifa áfram og muna að það getur allt gerst og að það gerist allt. DIDDA JÓNSDÓTTIR (39), SKÁLD. MAMMA ÚLFS (13) OG KRUMMA (4) „MEÐ MEIRU“. Hvernig líður dæmigerður dagur í lífi ykkar? Dagurinn hefst með æfingu hjá „Melabandinu“ í Háskólabíói. Síðdegis stjórna ég barna- og unglingalúðrasveit og kenni þeim að spila á horn. Við mæðgurnar reynum að borða saman kvöldmat eins oft í viku og hægt er og ef ég er ekki að spila á tónleikum eða á æfingu um kvöldið sest ég gjarnan niður með prjónana eða hef það notalegt með bók og tebolla en best þykir mér þegar við stelpurnar drífum okkur út í göngutúr eða skellum okkur í sund fyrir svefninn. Hvert er besta veganestið út í lífið fyrir börnin þín? Ég hef gjarnan eftir ömmu minni góða speki sem hljómar svo: „vinna skal með- an vinna ber, vík svo glaður að skemmta þér“. LILJA VALDIMARSDÓTTIR (47), HORNLEIKARI Í SIN- FÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS OG TÓNLISTARKENNARI. VALA GESTSDÓTTIR (27) MAGNARAVÖRÐUR, SNJÓLAUG ÁRNADÓTTIR (16), NEMI Í MH.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.