Morgunblaðið - 25.01.2004, Síða 25
25.1.2004 | 25
Hvernig líður dæmigerður dagur í lífi ykkar?
Alexander vaknar alltaf glaður og þessi stund sem við eigum saman á
morgnana er ávallt mjög skemmtileg áður en hann fer í skólann sinn,
Öskjuhlíðarskóla. Þegar skólanum er lokið kemur amma hans og sækir
hann og þá er sko gaman. Við komum svo heim í lok dags og þá leikur
Alexander sér og við skemmtum okkur og svo er kominn háttatími.
Hvert er besta veganestið út í lífið fyrir barnið þitt?
Að gleðjast yfir degi hverjum.
STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR (43), FATAHÖNNUÐUR.
ALEXANDER VIÐAR PÁLSSON (8) NEMI.
Hvernig líður dæmigerður dagur í lífi ykkar?
Það má segja að daglegt líf okkar sé vikuskipt því ég og maðurinn minn
höfum með okkur ákveðna verkaskiptingu. Aðra hverja viku vakna ég með
börnunum, Júníu og Flóka, og kem þeim í skólann, en Sigurjón sækir Flóka
og sér um alla matseld, vikuna á eftir snýst svo dæmið við. Mér finnst skipta
miklu máli að byrja daginn rólega og reyni því að hafa kyrrð og ró á morgn-
ana þegar Júnía og Flóki búa sig undir daginn. Ég kveiki alltaf á kertum í
skammdeginu og drekk yfirleitt morgunkaffið og les blöðin á meðan Júnía
fær sér morgunverð. Þegar hún er farin í skólann vek ég Flóka, ef ég er að
vinna mikið heima þá leyfi ég honum að dunda sér heima fram að hádegi og
fer þá með hann í leikskólann. Þar sem ég er sjálfstætt starfandi listamað-
ur þá eru dagarnir mjög misjafnir hjá mér, þegar tónleikar eða annað eru
framundan þá vinn ég mjög mikið, þess á milli hef ég til dæmis verið með
útvarpsþætti og þá fara dagarnir í lestur heimilda, hlustun og annan und-
irbúning. Þar sem við hjónin vinnum bæði mikið heima þá er yfirleitt ein-
hver heima við þegar Júnía kemur úr skólanum. Það er ósköp misjafnt hvað
við tökum okkur fyrir hendur seinni part dags, þegar ekki er mikið að gera
hjá mér förum við mikið í heimsókn til mömmu, tengdamömmu eða systra
minna. Mér finnst góð og sterk stórfjölskylda vera mikils virði fyrir alla og
þá sérstaklega fyrir börnin. Ég hef tröllatrú á reglufestu og rólegheitum
þegar kemur að barnauppeldi og reyni því að hafa hinn dæmigerða dag þ.e.
ef hann finnst á þeim nótum.
Hvert er besta veganestið út í lífið fyrir börnin þín?
Besta veganestið út í lífið: Að vera hugrökk, heiðarleg og góð mann-
eskja.
ÁSGERÐUR JÚNÍUSDÓTTIR (35), ÓPERUSÖNGKONA.
JÚNÍA LÍF SIGURJÓNSDÓTTIR (11) NEMI, FLÓKI SIGURJÓNSSON (4).