Morgunblaðið - 25.01.2004, Page 30

Morgunblaðið - 25.01.2004, Page 30
30 | 25.1.2004 Vinur minn álítur að mamma sínhefði sómt sér vel sem hermaðurí seinni heimsstyrjöldinni því í hvert skipti sem hún flýgur er fjölskyldan kvödd í hinsta sinn. Skil hana. Í hræðslu- kasti beit ég einu sinni mann til blóðs meðan flugvélin hristist frá Tékklandi til Íslands. Þeir sem eru ekki flughræddir eiga bágt með að skilja hérahjörtun. Flugslys eru fátíð (7, 9, 13, bank bank bank í við), miðað við fjölda flugferða í heiminum eru þau álíka sjaldgæf og hvítir hrafnar. Flugvélar eru brynvarðar með öryggis- kerfum og flugmenn þrælmenntað fólk sem þarf að uppfylla ströng skilyrði. Því dugar tölfræðin illa þegar flughrædd manneskja reynir að útskýra óttann fyrir ,,jarðbundnara“ fólki. En hvað sem tölfræðinni líður þá hef ég orðið vitni að flugslysi. Það var á Spáni, skammt frá Malaga. Ég var tíu ára og lenti í umferðarteppu með fjölskyld- unni. Bílarnir mjökuðust áfram í kæfandi hita og fnyki af bruna og mannslíkum því stór þota hafði ekki náð sér á loft og brot- lent með hryllilegum afleiðingum. Við siluðumst framhjá brennandi flakinu og pabbi ætlaði að taka myndir, en mamma á barmi taugaáfalls bannaði myndatökur. Mér hefur verið bent á að þetta geti verið skýringin á flughræðslunni – en þá ættu foreldrar mínir og systkini líka að vera flughrædd sem þau eru ekki. Vandamálið er taugakerfið í mér. Og til þess að sigrast á flughræðslunni hef ég gripið til örþrifaráða. Eins og að gleypa róandi pillu, sem var svo sterk að ég missti af flugvélinni og rankaði við mér í Kringlunni að sleikja kökudisk, og heim- sækja flugstjórnarklefann til að tala við flugstjórana; tvo töffara sem ætluðu rétt að vona að vélin hrapaði ekki, en glottu skelmislega og bættu við að ég væri öruggari í loftinu en á jörðinni (sem gerði mig bílfælna og hrædda við eldingar). En ég hef aldrei náð að verða eins og konan sem lenti í hristingi og hrópaði hleypiði mér út! Í eitt skipti hlakkaði ég meira að segja til að fara inn í flugvél, eftir sólar- hringsseinkun á fluginu og jafn langa rútuferð með fimmtíu úrillum Spánverj- um á helstu túristastaði Reykjavíkur meðan við biðum eftir útkalli; þeir hvæstu á Íslendinginn eftir langa setu á The Volcano Show og skoðunarferð um Ráðhúsið. Í tilefni hundrað ára afmælis flugsins var flugþema í danska sjónvarpinu, fróð- legir þættir um allt sem lýtur að flugi. Furðulegt nokk, en eftir að hafa horft á fjölmörg viðtöl við afslappaðar flug- áhafnir var flughræðslan á undanhaldi. Þau hlógu góðlátlega að öllu flughrædda fólkinu sem mætti finna í hverri ferð og hljómuðu eins og traustur pabbi sem lof- ar barninu sínu að því sé óhætt að hjóla án hjálpardekkja. Sú tilfinning að vera bjargarlaus og lokuð inni í þröngri dós fyrir ofan skýin vék fyrir skilningi á tækni og fagmennsku. Stuttu síðar birtust fréttir af hræðilegu flugslysi í Egyptalandi, breskri vél sem nauðlenti í Keflavík og hertum varúðar- ráðstöfunum á flugvöllum heimsins. Flughræðslan glaðvaknaði og ég sagði við manninn minn að næst skyldum við taka Norrænu til Íslands. Málið er bara að mig langar ekki að vera flughrædd, enda óbærilegt að um- breytast í hjátrúarfullan taugasjúkling þremur dögum fyrir brottför. Kannski get ég farið á flughræðslunámskeið, en ef ég lendi í flugslysi þá er asnalegt að hafa talið sér trú um annað (já, svona rökræðir flughrætt fólk). Gæti verið ráð að söngla nýjan máls- hátt: Sumir hafa séð hvítan hrafn, – þó tölfræðilega hæpið að þeir sjái hann aft- ur. auður@jonsdottir.com Þeir sem eru ekki flughræddir eiga bágt með að skilja hérahjörtun Auður Jónsdóttir Pistill STAÐURINN ELDUVÍK Í FÆREYJUM L jó sm yn d: E in ar F al ur

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.