Morgunblaðið - 14.07.2004, Síða 13
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2004 13
ÆÐSTI dómstóll Evrópusam-
bandsins úrskurðaði í gær, að sú
ákvörðun ráðherraráðsins í nóv-
ember sl. að hafast ekkert að þótt
Þjóðverjar og Frakkar hefðu brot-
ið gegn stöðugleikasáttmálanum
hefði verið röng. Hann komst hins
vegar einnig að þeirri niðurstöðu,
að einstakar ríkisstjórnir á evru-
svæðinu þyrftu ekki að fylgja fyr-
irmælum framkvæmdastjórnarinn-
ar þegar að því kæmi að draga úr
fjárlagahalla.
Fjármálaráðherrar margra
ESB-ríkja hafa fagnað úrskurði
Evrópudómstólsins. Hans Eichel,
fjármálaráðherra Þýskalands,
sagði í gær, að með honum væri
ljóst, að það væri á hendi fjár-
málaráðherra einstakra ríkja að
ákveða með hvaða hætti dregið
væri úr fjárlagahalla og tryggja þá
um leið, að tekið væri tillit til allra
þátta efnahags- og fjármálastefn-
unnar.
Samkvæmt stöðugleikasáttmál-
anum má fjárlagahalli einstakra
evruríkja ekki vera umfram 3% af
vergri þjóðarframleiðslu og varðar
það þungum fjársektum að fara í
bága við það. Þjóðverjar og
Frakkar hafa þó gert það ítrekað
en á fundi ráðherraráðs ESB í
nóvember var samt ákveðið að
gera ekkert í málinu. Olli það
gremju í framkvæmdastjórninni,
sem ákvað að skjóta málinu til
Evrópudómstólsins.
Fyrirmæli um
meiri samvinnu
Í dómnum segir, að ráðherra-
ráðið geti ekki skotið sér undan
eigin reglum og því ógilti dómstóll-
inn ákvörðun þess á fundinum. Þar
með er ekki sagt, að Þjóðverjar og
Frakkar eigi von á þungum sekt-
um vegna þess, að hann sagði
einnig, að ráðherraráðið hefði mik-
ið athafnafrelsi á þessum vettvangi
og gæti því lagað fyrirmæli fram-
kvæmdastjórnarinnar að efnahags-
legum raunveruleika í einstökum
ríkjum.
Eichel sagði, að með dómnum
væri í raun verið að segja, að
framkvæmdastjórnin og ráðherra-
ráðið ættu að vinna betur saman
þegar að því kæmi að framfylgja
stöðugleikasáttmálanum og frétta-
skýrendur eru því sammála.
Í hnotskurn er dómurinn þessi:
Ráðherraráðið getur ekki athuga-
semdalaust vikið eigin reglum til
hliðar og það á að vinna að stöð-
ugleika í samvinnu við fram-
kvæmdastjórnina og fjármálaráð-
herra einstakra evruríkja.
Ráðherraráði Evrópusam-
bandsins veitt ofanígjöf
Berlín. AFP.
MÓTMÆLENDUM í Manila á Filippseyjum
var haldið í skefjum með öflugum vatns-
byssum í gær, er þeir kröfðust þess að filipps-
eysk stjórnvöld kölluðu heim herlið sitt frá
Írak til þess að bjarga lífi filippseyska bíl-
stjórans Angelos dela Cruz, sem mannræn-
ingjar í Írak hafa á valdi sínu.
Viðbrögð stjórnvalda við kröfu mannræn-
ingjanna um að filippseysk herdeild yrði á
brott frá Írak hafa verið tvíbent.
Aðstoðarutanríkisráðherra Filippseyja sagði
á arabísku sjónvarpsstöðinni al-Jazeera í gær,
að filippseysku hermennirnir í Írak yrðu kall-
aðir heim „hið fyrsta“, en gaf ekki nánari
upplýsingar um hvenær það myndi verða.
Mannræningjarnir hafa gefið frest til 20.
júlí, en upphaflega hafði verið áætlað að fil-
ippseyska herdeildin í Írak yrði þaðan á brott
mánuði síðar. Segjast ræningjarnir munu
hálshöggva Cruz, sem er átta barna faðir,
verði filippseysk stjórnvöld ekki við kröfum
þeirra.Reuters
Kröfðust
brotthvarfs
frá Írak
STJÓRNVÖLD í
Zimbabwe hafa
tekið í notkun nýja
gerð „sjúkrabíla“,
það er að segja
uxakerrur. And-
stæðingar Roberts
Mugabes forseta
segja, að með
stjórnarháttum
sínum sé hann að
færa landið aftur á steinöld.
Uxakerrurnar, sem eru níu, á að
nota í sveitunum umhverfis höfuð-
borgina, Harare, og sagði David
Parirenyatwa, heilbrigðisráðherra
Zimbabwe, að þær ættu eftir að
bjarga mörgum mannslífum. Skor-
aði hann á þá, sem bæru ábyrgð á
þeim, að fara vel með þá og misnota
þá ekki.
Mugabe hefur beitt sér gegn hvít-
um bændum í landinu, gert jarðir
þeirra upptækar, og efnahagslífið er
rústir einar. Verðbólgan er meira en
400%, atvinnuleysið um 70% og er-
lendur gjaldeyrir varla til. Í viðtali
við suður-afrískt dagblað sagði einn
starfsmaður heilsugæslunnar, að á
mörgum ríkissjúkrahúsum væri
verkjalyfið Panadol eina læknismeð-
alið.
Uxakerrur
í stað
sjúkrabíla
Robert Mugabe
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr-
ópusambandsins ætlar að höfða mál
á hendur sænska ríkinu vegna þeirr-
ar stefnu að einungis ríkið megi selja
áfengi í Svíþjóð.
Framkvæmdastjórnin segir að
einkasala ríkisins á áfengi brjóti í
bága við lögmálið um frjálst flæði
vöru á milli landa Evrópusambands-
ins. Sænsk stjórnvöld segja hins veg-
ar að hún sé nauðsynleg til að vernda
heilsu almennings, koma í veg fyrir
að lög um áfengiskaupaaldur séu
brotin og til að öruggt sé að skattar á
áfengi skili sér til ríkisins.
Sænska stjórnin og framkvæmda-
stjórnin hafa deilt um þetta í langan
tíma án þess að nokkur lausn sé í
sjónmáli. Hefur framkvæmdastjórn-
in því ákveðið að láta Evrópudóm-
stólinn skera úr um málið.
Í mál vegna
einkasölu
ríkisins á
áfengi
Stokkhólmi. AFP.
BANDARÍKJAMENN sem greiða
atkvæði í forsetakosningunum í
haust munu annaðhvort kjósa
George W. Bush og Dick Cheney
eða John F. Kerry og John Edwards
en allir eru þeir milljónamæringar í
dollurum talið. Enn er þó hugs-
anlegt að Ralph Nader láti verða af
því að bjóða sig fram en hann hefur
haft milljónatekjur af bókum sínum
og fyrirlestrum.
Tekjuhæst voru þau Dick og
Lynne Cheney ef miðað er við upp-
gefnar tekjur árið 2003. Brúttó-
tekjur þeirra voru 1,3 milljónir doll-
ara eða nær 95 milljónir ísl. króna.
Til samanburðar má geta þess að
meðalárstekjur bandarískra heimila
voru sama ár 42.400 dollarar eða
tæpar þrjár milljónir króna. Aðeins
2% bandarískra heimila voru með
árstekjur yfir 200.000 dollara. Erfitt
er að meta eignir Cheney-hjónanna
en þær gætu verið frá 17 milljónum
dollara upp í 85 milljónir.
Bush og eiginkona hans, Laura
Bush, voru með ívið lægri tekjur eða
822 þúsund dollara. Eignir þeirra
gætu verið allt að 14 milljónir doll-
ara. John Kerry og eiginkona hans,
Teresa Heinz Kerry, töldu fram
hvort í sínu lagi, tekjur John Kerrys
voru tæpir 400 þúsund dollarar og
hann á nokkra hlutabréfasjóði sem
gætu verið alls nokkurra milljóna
dollara virði. Tekjur eiginkonunnar
voru a.m.k. fimm milljónir dollara en
Heinz Kerry erfði um 500 milljónir
dollara eftir fyrri eiginmann sinn
sem átti hlut í stórfyrirtækinu
Heinz.
John Edwards er af fremur fá-
tæku millistéttarfólki kominn en
efnaðist mjög af starfi sínu sem lög-
fræðingur. Hann og eiginkona hans,
Elizabeth Edwards, hafa gefið út yf-
irlýsingu um eignir og tekjur 2003
eins og forsetaframbjóðendum er
skylt. Virðast eignirnar vera a.m.k.
19 milljónir dollara og tekjurnar
minnst 680.000 dollarar.
Þótt umræddar tölur gefi ekki
alltaf nákvæma mynd af efnahag
frambjóðendanna er ljóst að allir eru
þeir milljónamæringar í dollurum en
dollari samsvarar um 72 ísl. krónum.
Bandarísku forsetaframbjóðendurnir
Aðeins milljóna-
mæringar í boði
Washington. AP.
George W. Bush John Kerry
YFIRVÖLD í Perú hafa sett flug-
bann á stærsta flugfélag landsins,
Aero Continente, þar sem trygging-
ar þess þraut og ekki var búið að
finna tryggingafélag sem vildi
tryggja félagið.
Bandaríkjamenn settu félagið á
svartan lista hjá sér í júní vegna
meintra samskipta við fíkniefna-
smyglara. Aero Continente hefur
staðfastlega mótmælt ásökununum
en tryggingafélög kippa að sér hendi
um leið og fyrirtæki eru sett á svart-
an lista. Félagið hefur um 60-70%
markaðshlutdeild í innanlandsflugi.
Ferðamannatíminn í Perú er nú í
hámarki og leikir í Suður-Ameríku-
bikarnum í knattspyrnu fara fram
víða um landið. Tryggingar félagsins
runnu út á laugardag og ríkisstjórn-
in féllst á að brúa bilið þar til búið
væri að tryggja það á ný. Á mánudag
sögðu samgönguyfirvöld hins vegar
að ekkert tryggingafélag vildi taka
félagið upp á sína arma og því þyrfti
að stöðva starfsemina ótímabundið.
Stærsta flug-
félag Perú
kyrrsett
Lima. AP.
♦♦♦
♦♦♦
Heimsferðir bjóða næsta vetur einstakt tækifæri á skíði til eins vinsælasta
skíðabæjar í Austurrísku ölpunum, Zell am See. Beint leiguflug til Salzburg, en
þaðan er aðeins um klukkustundar akstur til Zell. Í boði eru góð þriggja og
fjögurra stjörnu hótel í hjarta Zell, rétt við skíðalyfturnar, veitingastaði, verslanir
og kvöldlífið. Í Zell er afbragðs aðstaða fyrir alla skíðamenn. 56 lyftur eru á
svæðinu og hægt er að velja um allar tegundir af brekkum, allt eftir getu hvers
og eins, og snjóbretti og gönguskíði er þar ekki utanskilin. Úrval verslana,
veitinga- og skemmtistaða er í bænum sem og í næstu bæjum.
Sjá nánar á www.heimsferdir.is
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Skíðaveisla
Heimsferða í
Austurríki
frá kr. 29.990
Beint flug til Salzburg
· 29. jan. 19. feb.
· 5. feb. 26. feb.
· 12. feb.
Verð frá kr. 29.990
Flugsæti til Salzburg, 29.janúar, fyrstu
30 sætin. Netverð.
Verð frá kr. 59.990
Flug og hótel án nafns, Zell am
See/Schuttdorf, með morgunverði.
Netverð. 29.janúar.