Morgunblaðið - 14.07.2004, Qupperneq 38
38 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
JOHN Schlesinger kvikmyndaleikstjóri ásakar
söng- og leikkonuna Madonnu um að hafa stuðl-
að að hjartaáfalli sínu í bréfum sem fundust eft-
ir dauða hans. Óskarsverðlaunahafinn, sem lést
nú í júlí, 77 ára að aldri, fékk
hjartaáfall árið 1999, skömmu
eftir að hafa unnið með Mad-
onnu að kvikmyndinni The
Next Best Thing, sem fékk af-
ar dræma aðsókn.
Í bréfum og minnismiðum
frá framleiðslutíma kvik-
myndarinnar, sem nú hafa verið færð bresku
kvikmyndastofnuninni að gjöf, segir að Mad-
onna og framleiðandinn Tom Rosenberg hafi
gert Schlesinger bálreiðan þegar þau vildu
breyta fjöldamörgum senum í myndinni. Þá er
Madonna sögð hafa reynt að beita brögðum til
að líta enn betur út í kvikmyndinni.
„Það hvarflar ekki annað að mér en að hegð-
un þeirra eigi stærstan þátt í því hvernig nú er
komið fyrir mér,“ ritar Schlesinger á sjúkrabeði
sínum árið 1999. Í öðru bréfi bölvar hann Ros-
enberg fyrir að láta Madonnu hafa þau áhrif á
sig að vilja breyta senunum þar sem það hafði
þegar verið reynt.
Kynningarfulltrúi stjörnunnar hefur svarað
þessum ásökunum og segist undrandi á at-
hugasemdum Schlesingers. Hún segir fólk hafa
sagt ótalmargt um Madonnu en aldrei hafi
nokkur maður efast um fagmannlega hegðun
hennar í starfi og að Madonna hafi borið mikla
virðingu fyrir Schlesinger.
Fólk | Madonna
Völd að
hjartaáfalli?
ÞAÐ ER mikið að gerast í suður-
amerískum bókmenntum um þessar mund-
ir ef marka má umtal og útgáfu þýðinga á
bókum eftir unga höf-
unda þaðan. Mexíkóski
rithöfundurinn Ignacio
Padilla er meðal þeirra
höfunda sem menn lofa
um þessar mundir og þá
aðallega fyrir bók hans
Nafnlaus skuggi, Shad-
ow Without a Name, en
fleiri verk eftir hann eru
væntanleg í enskri þýðingu á næstunni.
Padilla er ekki síst merkilegur fyrir það
hve hann leitar fanga víða í bókum sínum.
Þannig gerast smásögur hans víða um
heim, í Nepal, Góbí-eyðimörkinni í Mong-
ólíu, Austur-Indíum og Mið-Afríku, svo
dæmi séu tekin, og atburðarásin í Nafn-
lausum skugga berst víða í tíma og rúmi,
hefst í Buenos Aires í Argentínu, berst til
Genfar, Frakklands og Lundúna. Farið er
líka fram og aftur í tíma; kveikjan að frá-
sögninni er atburður í lest á leið á aust-
urvígstöðvarnar í fyrri heimsstyrjöldinni
árið 1916, en lausnin, ef það er þá lausn, er
í Lundúnum 1989.
Árið 1916 taka þeir skák Victor
Kretzchmar og Thadeus Dreyer, annar
hermaður á leið á vígvöllinn og hinn
starfsmaður járnbrautarinnar sem flytur
hermenn í opinn dauðann. Skákin snýst
um líf og dauða, um hlutverkaskipti, hvor
verður eftir sem járnbrautarstarfsmaður
og hvor fer á blóðvöllinn á austurvígstöðv-
unum.
Padilla leikur sér með minni úr vest-
rænni nútímasögu og aðalsögupersóna
hans er raunveruleg, herforinginn Thad-
eus Dreyer, aukinheldur sem Adolf Eich-
mann kemur við sögu, beint og óbeint.
Fléttan byggist nefnilega á raunverulegri
áætlun sem Dreyer stýrði og fólst í því að
þjálfa upp staðgengla fyrir frammámenn
þriðja ríkisins, menn sem gætu sést op-
inberlega, mætt á samkomur og sýningar,
og þannig komið í veg fyrir að fyrirmynd-
irnar þyrftu að legga líf sitt í hættu.
Spurningin sem Padilla varpar fram er
hvort þessi áætlun hafi ekki eins getað
skilað því að einhverjir af þeim að-
almönnum þýskra nasista sem handteknir
voru að stríðinu loknu, og margir síðan
teknir af lífi, til dæmis Adolf Eichmann,
hafi í raun ekki verið hinir raunverulegu
óþokkar heldur staðgenglar þeirra.
Þótt þetta sé eitt meginþema bók-
arinnar felst í henni margt annað. Padilla
veltir upp spurningunni um sjálfið, sjálfs-
myndina og ekki síst mannvonskuna. Bók-
in er einkar vel skrifuð, stíllinn á henni
skemmtilega snúinn og lýsingar á stríðinu
og súrrealísku umhverfi mikilla átaka
heillandi vel skrifaðar. Mjög forvitnilegur
höfundur.
Shadow Without a Name eftir Ignacio Padilla.
192 síðna kilja. Schribner gefur út 2003.
Árni Matthíasson
Nafnlaus skuggi
Forvitnilegarbækur
www .borgarb io. is
Sýnd kl. 6 Sýnd kl. 8 og 10.
ÓÖH
„Tvímælalaust besta
sumarmyndin...“
SV MBL
"Afþreyingarmyndir gerast
ekki betri."“
„Geðveik mynd.
Alveg tótallí brilljant“
.ÞÞ.FBL.
„Ekki síðri en fyrri myndin“
Kvikmyndir.com.
Sýnd kl. 5.40, 8, 10.20.
19 þúsund gestir á 5 dögum
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 13.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Kl. 10.15. B.i. 16.Kl. 6, 8 og 10. Bi 16. Sýnd kl. 3.50. Íslenskt tal
SV Mbl
Kl. 5.50 og 8.
SV Mbl
Sýnd kl. 3.
Sýnd kl. 3, 5, 6, 8, 9 og 11.
kl. 5.30, 8.30 og 11.30.
ÓÖH
„Tvímælalaust besta
sumarmyndin...“
SV MBL
"Afþreyingarmyndir gerast ekki
betri."“
„Geðveik mynd.
Alveg tótallí brilljant“
.ÞÞ.FBL.
„Ekki síðri en fyrri myndin“
Kvikmyndir.com.
„Ekki síðri en fyrri myndin“
Kvikmyndir.com.
19 þúsund gestir á 5 dögum
Kynntu þér tilboð okkar
á bílaleigubílum
Pantaðu AVIS bílinn áður en þú leggur af stað
Það borgar sig – Hringdu til AVIS í síma 591-4000
Við erum í 170 löndum
5000 stöðum
T.d. Reykjavík, London, Kaupmannahöfn,
Frankfurt, Milano, Alicante ...
AVIS Knarrarvogi 2 – 104 Reykjavík – Sími 591 4000 – Fax 591 4040 – Netfang avis@avis.is – Heimasíða www.avis.is
Minnum á Visa afsláttinn
Söngvarinn og mannúðarsinninn Bono hefur lofaðframtak Gordons Brown, fjármálaráðherra
Breta í alnæmismálum, en frá þessu er greint á
fréttaveitunni Ananova. Brown ákvað í gær að
breska ríkið veiti 1,5 milljarða
punda, eða um 200 milljarða ís-
lenskra króna, til baráttunnar gegn
sjúkdómnum í þróunarlöndum á
næstu þremur árum. Bono segir
þessa ákvörðun geta bjargað mörg
hundruð þúsund mannslífum.
„Það sem gerðist í gær var að
mörg hundruð þúsund manns með
alnæmi, sem ekki hefðu fengið aðgang að lyfja-
meðferð og hefðu þess vegna dáið, munu fá að lifa,“
sagði Bono. Í viðtali við BBC sagði hann ákvörðunina
„frábæra“. „Vegna hennar er ég kominn í óvenjulega
stöðu, sem er sú að hrósa stjórnmálamönnum,“ sagði
Bono. „Við erum alltaf að skamma Tony (Blair) og
Gordon fyrir að gera ekki nóg, en í dag verðum við að
segja að þetta er hreint frábært,“ bætti Bono við.
Söngvarinn Bobby Brown gaf sig um helgina framvið fangelsisfulltrúa í Atlanta-ríki, einungis fjór-
um klukkustundum fyrir lokafrest sem dómur hafði
gefið honum til þess. Brown er ákærður fyrir að hafa
lagt hendur á eiginkonu sína, söngkonuna Whitney
Houston. Honum var sleppt aftur eftir að hann hafði
greitt 2.000 dala tryggingarfé hjá fógeta í borginni
Atlanta. Í maí úrskurðaði dómstóll að réttað skyldi
yfir Brown, sem er 35 ára, vegna kæru þess efnis að
hann hefði slegið Houston á heimili þeirra í Georgíu-
ríki í desember í fyrra. Verði Brown fundinn sekur
um verknaðinn, gæti hann átt yfir höfði sér árs fang-
elsi og um 1.000 dala sekt, en sú upphæð samsvarar
rúmum 70.000 íslenskum krónum.
Fólk folk@mbl.is