Morgunblaðið - 14.07.2004, Side 14

Morgunblaðið - 14.07.2004, Side 14
Heimild: Hörður Kristinsson 1986. Plöntuhandbókin. Blóm- plöntur og byrkningar. Íslensk náttúra II. Örn og Örlygur, Reykjavík. 306 bls. Holtasóley er af rósaætt enekki sóleyjarætt eins ogíslenska heitið gefur til- efni til að halda. Blómin eru stór með hvítum krónublöðum sem oft- ast eru átta eins og viðurnafnið octopetala (8 krónublöð) gefur til kynna. Við aldinþroskun verður stíll frævunnar að fjaðurhærðum hala. Þar sem frævurnar eru margar verður myndarlegur hár- brúskur við aldinþroskun og kall- ast þá holtasóleyin hárbrúða. Blöðin eru gljáandi á efra borði en hvítloðin á neðra borði. Þau eru sí- græn og kallast rjúpnalauf. Plant- an er sérstök fyrir norðurslóðir. Hún er algeng um allt land bæði á láglendi og hálendi og vex á mela- kollum og þurrum móum. Ljósmynd/Jóhann Óli Hilmarsson Holtasóley (Dryas octope- tala) af rósaætt Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Stoltur af sínu fólki | Þjálfari krakk- anna á Raufarhöfn er ánægður með kepp- endur sína og árangur þeirra á Ásbyrg- ismótinu sem fram fór um helgina. Segir hann í bréfi sem birt er á vef Raufarhafn- arhrepps að þau hafi staðið sig frábærlega. Keppendur frá Ungmenna- félaginu Austra sigruðu með yfirburðum bæði í yngri og eldri flokki. „Ekki er hægt að fjalla um þetta mót án þess að geta þess að framkoma krakk- anna var til hreinnar fyrirmyndar, hvort sem var í keppni eða í leik. Baráttan var einnig ótrúlega mikil og greinilegt að krakkarnir voru til í að leggja sig 150% fram í öllu því sem þau tóku þátt í, allt til að næla í stig fyrir félagið. Þessi fádæma barátta er einstök og mættu margir at- vinnuíþróttamenn taka hana sér til fyr- irmyndar,“ segir í bréfi þjálfarans, Jó- hanns Skagfjörð Magnússonar.    Úr bæjarlífinu HÉÐAN OG ÞAÐAN Þúsund kílómetra girðing | Land- græðslugirðingar á vegum Landgræðsl- unnar eru um 150 talsins víðs vegar um landið og eru þær tæplega eitt þúsund kíló- metrar að lengd. Um 3% landsins eru innan landgræðslugirðinga. Kemur þetta fram á landbunadur.is, sam- eiginlegu vefsvæði landbúnaðarins. Þar kemur fram að girðingarnar þarfnist mikils og reglubundins viðhalds svo þær komi að fullum notum. Á svæðum þar sem upp- blástur er mikill ryðgar vírinn fljótt því sandurinn slípar galvanhúðina burt. Jafnvel tréstaurar verða sandblásnir og duga tak- markað.    Skoða iðjukosti | Byggðaráð Húnaþings vestra kaus á fundi sínum fyrir skömmu nefnd til að skoða iðjukosti innan sveitarfé- lagsins. Í nefndina voru kosnir Tómas Gunnar Sæmundsson, Stefán Böðvarsson, Jón Óskar Pétursson og Björn Ingi Þor- grímsson sveitarstjóri.    „ÉG tel holtasól- ey þjóðarblóm Íslands en hún er sérstök að því leyti að vera fal- leg hvort heldur á vori, sumri eða hausti. Þetta er eiginleiki sem fá blóm hafa,“ segir Helga R. Ein- arsdóttir, stuðningsfulltrúi og garðeigandi á Selfossi. „Holtasóley dafnar ágætlega uppi á fjöllum og inni á afréttum í steinkenndum jarðvegi, þar sem fáar aðrar blóma- og gróðurtegundir ná að skjóta rótum eða dafna á annan hátt. Hefur sterkar rætur. Í byggð nær hún sér síður á strik. Það hef ég reynt sjálf í mínum eigin garði.“ Á fimmtíu ára afmæli lýðveld- isins árið 1994 var holtasóley valin þjóðarblóm Íslands og telur Helga það hafa verið vel til fundið. „Þetta hvíta blóm á sterkar rætur í þjóðarsálinni, að minnsta kosti á meðal þeirra sem ekki hafa tapað öllum tengslum við landið og nátt- úruna,“ segir Helga, sem nefnir þetta eftirlætisblóm sitt og heima- slóðir sínar í Hrunamannahreppi í sömu andrá. Þar í uppsveitum Ár- nessýslu vaxi holtasóley á ásum, hæðum og í holtum og setji þar – sem og annars staðar – sterkan svip á allt umhverfi. Holtasóley með sterkar rætur Helga R. Einarsdóttir á Selfossi Alltaf falleg. „Holta- sóley er falleg vor, sumar og haust,“ segir Helga R. Ein- arsdóttir Stefán Þorláksson,menntaskólakenn-ari á Akureyri, var um áratugi leiðsögu- maður þýskra ferða- manna og hafði gaman af því að segja af þeim sög- ur. Kallaði hann þá jafnan túrhesta. Það gaf Gísla Jónssyni tilefni til að kasta fram limrum á kennarastofunni: Hann Stefán lét ekki á sér stúrfesta þótt steyptist á rigningar- skúr versta. Glaður í bragði á brattann hann lagði og teymdi á eftir sér túrhesta. Margt útlent er sniðugt og eggjandi hvort orðmælt það fer eða hneggjandi. Það má hefja upp glaum það má taka í taum en á túrhesta er ekki leggjandi. Óþarfi er að taka fram að stúrfesta er dregið af stúrinn. Túrhestar pebl@mbl.is ELLIÐAÁRDALURINN er vinsælt útivist- arsvæði Reykvíkinga enda er umhverfi Elliðaánna fallegt og dregur fólk að sér. Á góðum dögum er þar fjöldi fólks á ferðinni, gangandi, hlaupandi, hjólandi og skautandi. Stundum fá gæludýrin að fara með eins og var í þessu tilviki. Morgunblaðið/Jim Smart Á göngu við Elliðaárnar Náttúran HAFNAR eru framkvæmdir við dýpkun hafnarinnar í Grindavík. Dýpkað verður í átta til níu metra innan hafnar og síðan gerður nýr viðlegukantur. Samið var við Hagtak hf. um fram- kvæmdina að loknu útboði. Framkvæmda- stjóri fyrirtækisins hefur skrifað bréf á vef Grindavíkurbæjar þar sem hann segir frá því hvernig staðið er að verki, til að róa íbúana sem hann segir að verði greinilega varir við framkvæmdirnar. Botninn er á klöpp þannig að sprengja þarf allt að fimm metra niður. Gert er ráð fyrir að sprengt verði 106 sinnum í höfn- inni. Gefið verður hljóðmerki áður en sprengjan er tendruð. Fram kemur að fólk um allan bæ geti orðið vart við sprengingarnar. Ekki eigi að verða verulegur titringur eða tjón í húsum sem séu í meira en áttatíu metra fjarlægð. Þeir sem séu nær verði meira varir við höggið en einungis atvinnuhúsnæði er á því svæði. Þar sé heldur ekki hætta á skemmd- um á húsum en betra að huga að lausum hlutum. Þá er vakin athygli á bylgjum sem myndast í sjónum. Þær drepi dýr sem séu nálægt og geti verið ónotalegar fyrir menn sem eru neðan vatnsborðs í skipum en ekki hættuleg. Íbúar finna fyr- ir sprengingum Dýpkun hafin í Grindavíkurhöfn POPPSÖNGLEIKURINN Kyljur sem er byggður á Bárðar sögu Snæfellsás verður fluttur á Sandaragleði sem haldin verður á Hellissandi dagana 16. og 17. júlí. Á föstudagskvöldinu er dansleikur með Landi og sonum í félagsheimilinu Röst. Sama kvöld verður varðeldur í Krossavík. Á laugardag verða gönguferðir, götugrill, hestaferðir og fleira. Poppsöngleikurinn Kyljur var framlag Sandara á þjóðhátíð Snæfellinga árið 1974 og verður hann endurfluttur síðdegis á laugardag. Segir frá því þegar Helgu Bárð- ardóttur rak á ísjaka frá Snæfellsnesi til Grænlands, eftirmálum þess og örlögum Helgu. Höfundur texta er Kristinn Krist- jánsson frá Bárðarbúð en hann lést fyrr á þessu ári og eru þetta því um leið minning- artónleikar um hann og þess minnst að 30 ár eru síðan verkið var flutt. Lagahöfundar eru Ingvi Þór Kormáksson, Alfreð og Pálmi Almarssynir. Um kvöldið verður dansleikur með hljómsveit staðarins, Bít, og tveimur gömlum hljómsveitum, Útrás og Júnísvítunn. Poppsöngleik- urinn Kyljur endurfluttur ♦♦♦ Vilja flytja bókasafnið | Bæjarráð Húsa- víkur hefur falið forseta bæjarstjórnar og fræðslufulltrúa að ganga til viðræðna við Héraðsráð Suður-Þingeyjarsýslu um nýtt húsnæði fyrir Bókasafnið á Húsavík. Hér- aðsráðið óskaði eftir viðræðum um málið, með það að markmiði að bókasafnið fái ann- að húsnæði.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.