Morgunblaðið - 14.07.2004, Side 18

Morgunblaðið - 14.07.2004, Side 18
DAGLEGT LÍF 18 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÞAÐ munar allt að 329% á verði á klippingu fyrir fjögurra ára barn og munur á hæsta og lægsta verði á lagningu nemur 330%. Þá er 375% mismunur á lægsta og hæsta verði á stífum hárblæstri. Þetta kemur fram í verðkönn- un sem nýlega var gerð á hár- snyrtistofum á vegum Sam- keppnisstofnunar. Kannað var verð á þjónustu hjá 186 hár- snyrtistofum á höfuðborg- arsvæðinu og 15 þjónustuliðir teknir fyrir, þ.á m. klipping kvenna, karla og barna, lagning, hárþvottur, litun, permanent og strípur. Að sögn Kristínar Færseth, deildarstjóra hjá Samkeppn- isstofnun, fór sambærileg könn- un fram árið 2002. „Þegar verðbreytingar hjá stofunum eru athugaðar kemur í ljós að þjónustuliðir hafa hækkað um 6–16%, eða að meðaltali um 10%, frá því í nóvember árið 2002 og fylgir þessi verðbreyting nokkurn veginn sömu þróun og launavísitalan.“ Öll efni eiga að vera innifalin Þá bendir Kristín á að sam- kvæmt reglum eigi verðskrár yf- ir algengustu þjónustu hársnyrti- stofa að vera við inngöngudyr, auk þess sem verðskrá á að liggja frammi við afgreiðslu- kassa. „Það kom á daginn að 40% hársnyrtistofa voru með verðskrá við inngöngudyr og 78% við afgreiðsluskassa. Sam- keppnisstofnun mun beita sér fyrir betri verðmerkingum því það er krafa hvers viðskiptavin- ar að verðmerkingar inni á hár- snyrtistofu séu í lagi og einnig þar sem því verður við komið við inngöngudyr.“ Kristín bendir ennfremur á að í uppgefnu verði á þjónustu í verðskrá skuli öll efni sem notuð eru vera innifalin. „Einnig er vert að minna neytendur á að kynna sér verð á þjónustu áður en hún er veitt til þess að koma í veg fyrir misskilning.“  NEYTENDUR|Verðkönnun Samkeppnisstofnunar sem gerð var hjá 186 hársnyrtistofum á höfuðborgarsvæðinu Allt að 375% munur á hæsta og lægsta verði '("&  ) ! )!*$ %    %1   1   &  )1   #1  & # ! , ! N96 & # ! - N95 & #3 $!  , ! 6996   #  #   7 2 # $ #  #   7 2 # % (  $#  $ $ &  D  D ! O)1  % 7  ) H  7  ) ( 7  )7 )  ( 7  )7 # +( $  & #   7 5  #   7 =  #   7 ;6  !                                                                                 Morgunblaðið/Jim Smart Mikill verðmunur er á milli hár- snyrtistofa. Til dæmis var 209% verðmunur á hæsta og lægsta verði á nýrri kvenklippingu. KJÖTRÉTTIR eru meðal þess sem einkennir matarmenningu í Ungverjalandi og papriku nota þeir mikið í sinn mat. En Ung- verjar eru líka frægir fyrir góm- sæta eftirrétti. Ungverjar borða alltaf súpu í hádegismat og þar er hin þjóð- lega „gulyás“ súpa vinsælust (gúllassúpa). Hún er með miklu kjöti, kartöflum og grænmeti. Gúllassúpuhefðin kemur til af því að hér áður fyrr komu allir saman með afgangana af matn- um frá deginum áður, sumir komu með kjöt, aðrir með græn- meti og enn aðrir með kartöflur. Þar sem Ungverjaland er í miðri Evrópu hefur matar- menning landanna allt í kring haft sín áhrif, þótt auðvitað sé allt matreitt á ungverska vísu, sem skiptir jú öllu máli. Því er matarmenning í Ungverjalandi ólík eftir landshlutum, hún er til dæmis ekki sú sama í norður- hluta landsins og fyrir sunnan. Gúllassúpa 600 g nautakjöt, svínakjöt eða lambakjöt (best að hafa allt þrennt) 1 stór laukur 3 msk. olía (eða 50 g svínafita) ½ tsk. kúmen 1 hvítlaukslauf paprikuduft salt steinselja 1 millistór gulrót 2 paprikur 1 meðalstór tómatur 2 leggir sellerí 400 g kartöflur Aðferð: Skera skal kjötið í ten- inga, afhýða laukinn og skera mjög smátt. Hitið olíuna (svínafituna) í potti (þriggja lítra) og steikið lauk- inn þar í, þar til hann verður mjúkur. Hrærið kúmeninu og pressaða hvít- lauknum út í og steikið örstutt. Fær- ið pottinn af hellunni, bætið kjötinu út í og kryddið með salti og papr- ikudufti. Látið malla við vægan hita og bætið síðan svolitlu vatni út í. Þegar kjötið er hálftilbúið, bætið þá niðurskornu grænmetinu út í: papr- ikum, gulrót, tómat og sellerístöngl- um. Bætið 1,5 lítrum af vatni út í og látið sjóða við vægan hita í 15–20 mínútur. Síðan er afhýddum og niður- skornum kartöflunum bætt út í. Þeg- ar kjötið og kartöflurnar eru orðin mjúk, má bæta svolitlu af pasta út í ef vill og láta sjóða í 5 mínútur. Stráið steinselju yfir og berið súp- una fram heita. Gott er að hafa með henni hvítt brauð og rauðvín.  MATUR Ungversk gúllassúpa Morgunblaðið/Golli khk@mbl.is 1 4 4 4 w w w. g u l a l i n a n . i s Hellur steinar borðinu skuluð þið þekkja þær Á yfir- HELLUR STEYPA RÖR MÚRVÖRUR EININGAR Reykjavík: Malarhöf›a 10 - S. 540 6800 Hafnarfir›i: Hringhellu 2 - S. 540-6855 Selfossi: Hrísm‡ri 8 - S. 540 6881 www.steypustodin.is Hellur og steinar fást einnig í verslunum BYKO Vagnhöfða 5 • sími: 553 2280 • pallaleiga.is Sláttuvélar Mosatætarar Jarðvegsþjöppur ALHLIÐA ÁHALDA- OG TÆKJALEIGA FYRIR GARÐINN t.d Rafmagns og bensínvélar www.slattuvel.com Faxafeni 14 : Sími 5172010 verð frá 16.900.- GARÐURINN s: 894 3000 - 894 3005 Túnþökur Ná úruþökur Túnþökurúllur únþökulagnir Áratuga reynsla og þekking

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.