Morgunblaðið - 14.07.2004, Side 29

Morgunblaðið - 14.07.2004, Side 29
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2004 29 var honum mjög þung raun. Hann endaði þetta ferli með dvöl á Vífils- stöðum en þangað var hann fluttur þegar heimilið tók til starfa sem hjúkrunarheimili á fyrri hluta þessa árs. Hann var mjög ánægður á Víf- ilsstöðum og fannst gott að vera þar, enda einvala starfslið í kring- um hann, en alltaf var hugurinn samt heima á Baldursgötu. Við fjöl- skyldan viljum fá að færa starfs- fólkinu á Vífilsstöðum okkar kær- ustu þakkir fyrir mikla umhyggju og hlýju í garð Guðmundar. Guðmundur lést upp á dag ári eft- ir að hann fékk sitt síðasta áfall. Þrátt fyrir erfið veikindi og oft dep- urð vegna ástandsins hið síðasta ár, var hann alltaf brosandi eins og sól í heiði í hvert sinn sem einhver fjöl- skyldumeðlimur birtist í heimsókn. Hann fylgdist vel með öllum börn- um, barnabörnum og barnabarna- börnum sínum. Þegar einhvers staðar stóðu yfir framkvæmdir var það fyrsta sem hann spurði um hvernig gengur og hvað er verið að gera núna. Það eru mikil forréttindi að hafa notið þeirrar gæfu að fá að þroskast og lifa lífinu við hliðina á fólki eins og tengdaforeldrum mín- um, fyrir það er ég þakklát forsjón- inni og ég kveð minn kæra tengda- föður og góða vin með söknuð í hjarta, þótt ég geti líka séð að lík- lega hafi kallið verið komið og þetta rétti tíminn til að kveðja. Tengda- móður minni bið ég blessunar og ég veit að hún minnist alls hins góða sem hún hefur orðið aðnjótandi þau 63 ár sem þau hjónin áttu saman, því það er mikil blessun. Blessuð sé minning Guðmundar Stefáns Karls- sonar. Pétrína Ó. Þorsteinsdóttir. Við andlát elskulegs tengdaföður míns Guðmundar er margs að minnast. Það er ekki hægt að minnast Guðmundar án þess að nefna eig- inkonu hans, Margréti. Tengdafor- eldrar mínir hafa búið í farsælu hjónabandi í 63 ár og voru afar sam- stiga. Heimilið og fjölskyldan var þeim mikils virði og nutu barna- og barnabarnabörnin bæði umhyggju og ástríkis. Þeirra áhugamál var útivist og ferðalög og hafa þau ferðast mikið um landið og bæði voru þau afar minnug á staði og örnefni. Hefur þessi áhugi þeirra smitað frá sér til afkomenda þeirra. Guðmundur hafði mjög einbeitt- an vilja sem sýndi sig best í því að þegar heilsan fór að gefa sig á seinni árum náði hann sér vel á strik aftur með æfingum og göngu- ferðum sem voru hans besta heilsu- bót. Síðasta ár var Guðmundi erfitt, hann gat ekki verið lengur heima á Baldursgötu því eftir blóðtappa sem hann fékk þurfti hann mikla aðstoð. Eftir góða endurhæfingu á Landakoti fór hann á Vífilsstaði og naut þar aðstoðar og umhyggju starfsfólks sem við fjölskylda Guð- mundar erum þakklát fyrir. Elsku Margrét, guð gefi þér styrk. Guð blessi minningu Guðmundar. Þín tengdadóttir, Guðrún. Elsku afi, nú þegar komið er að kveðjustund er margs að minnast og rifjast upp skemmtilegar stundir sem við systkinin áttum með þér. Oftast var nú setið við eldhús- borðið á Baldursgötunni og spjallað en þar kenndir þú okkur einnig ým- islegt, þó var lokapunkturinn ávallt peningagaldurinn sem þér tókst að heilla okkur með, hvert fór krónan? Ef óþekktin og lætin ætluðu allt um koll að keyra var nóg að þú smelltir fingrum því það þýddi steinbítstak. Þú varst okkur góður leiðbeinandi hvort sem það var í sambandi við áhugamál okkar, en það má segja að þú hafir náð að smita okkur af skíðabakteríunni, og ekki brást það, alltaf upplýstir þú okkur um nýjasta nýtt í skíðaheim- inum. Þú fylgdist vel með og hafðir áhuga á því sem við vorum að gera hverju sinni. Útivist og hreyfing var þér mikils virði, skíði, tjaldferðalög og síðast en ekki síst allar gönguferðirnar í Heiðmörk. Ekki leið sá dagur að ekki væri farið í göngu og ef snjór var yfir var farið á gönguskíði og voru amma og Pétur bróðir þinn fé- lagar þínir í þessum ferðum. Þegar þú komst heim úr einni af göngu- ferðum þínum um Ægisíðuna gast þú ekki annað en dáðst að manni sem þú og Pétur höfðuð hitt, sá var búinn að fara í sund um morguninn og var svo mættur í göngu á Ægi- síðunni eftir hádegi, kominn á tí- ræðisaldurinn. Það var eins og þú gerðir þér grein fyrir að þetta var þín síðasta gönguferð. Elsku afi, hafðu bestu þakkir fyr- ir allt sem þú gafst okkur og við kveðjum þig nú með þessum ljóð- línum. Þar sem englarnir syngja sefur þú sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum í trú á að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni veki þig með sól að morgni. Farðu í friði vinur minn kær faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Margrét Björg, Íris Anna og Guðmundur Ingi. Nú er sá sem hefur haft lengsta búsetu í Þingholtunum farinn á vit feðranna. Þetta er fullyrðing sem ég hef ekki gengið úr skugga um að sé rétt en það skiptir engu máli. Hún er að minnsta kosti ekki langt frá sannleikanum. Afi minn fluttist árið 1920, þá tveggja ára, á Bald- ursgötuna og bjó á sama blettinum allt til æviloka. Sumarið eftir fermingu kynntist ég afa á nýjan hátt þegar ég fékk sumarvinnu í Fálkanum en þar vann afi nær alla sína starfsævi. Hann var þá deildarstjóri reiðhjóla- deildar og hjá honum vann ég öll sumur fram til nítján ára aldurs. Á vorin og fyrri hluta sumars var mest að gera í reiðhjólunum. Þá var fólk að koma gömlum hjólum í stand fyrir sumarið eða að kaupa ný. Mín biðu því alltaf skilaboð frá afa þegar ég kom úr síðasta prófinu á vorin að ég ætti að drífa mig í vinnuna, það væri svo mikið að gera. Síðasta prófið var oftast nær fyr- ir hádegi og var ég alltaf kominn í vinnuna eftir hádegi. Hann sá því alltaf til þess að ég væri ekkert að slæpast að prófum loknum og sagði að það væri nær að drífa sig í vinn- una og gera eitthvert gagn. Afi var léttlyndur og það var gott að vinna með honum. Hann gerði oft grín að sér og öðrum sem með honum unnu. Hann minntist til dæmis oft á að ég ætti ekki að kalla sig afa í vinnunni: „Þá heldur fólk að ég sé orðinn gamall.“ Þegar færi gafst fórum við stund- um í bíltúr eftir vinnu. Eitt sinn vildi hann endilega að ég færi með sér að leita að húsi sem hann hafði frétt af í Kapelluhrauni. Húsið var kallað Slúnkaríki og átti að vera byggt þannig að allt væri öfugt í því. Við ókum á þann stað þar sem húsið átti að vera og leituðum í nokkra stund þangað til við fundum húsið. Þetta var þá lítill kofi, ágæt- lega byggður, en hann var svo sann- arlega öfugsnúinn því hann var bárujárnsklæddur að innan og veggfóðraður að utan. Ekki veit ég hver tók upp á því að byggja þennan kofa eða af hvaða tilefni en afi hafði gaman af þessu og minntist oft á hann. Annar bíltúr er mér minnisstæð- ur. Ekki vegna þess hvert við fórum heldur vegna þess sem gerðist með- an á ökuferðinni stóð. Ég var ný- kominn með bílpróf og sagði afi við mig að hann þyrfti að sjá hvernig ég keyrði bíl og því ætlaði hann að skutla mér heim eftir vinnu en láta mig keyra. Ég tók því fagnandi enda er fátt meira spennandi en að aka bíl þegar maður en nýkominn með bílpróf. Þegar við vorum lagðir af stað tók ég eftir því að afi sem sat í farþegasætinu lyfti alltaf vinstri fætinum upp þegar við komum að götuhorni svona eins og hann væri að stíga á kúplinguna. Ég fór að gera grín að honum og spurði hvort hann væri svona hræddur í bíl með mér. Hann svaraði að það væri nú ekki aksturslag mitt heldur ósjálf- ráð hreyfing. „Það er svo langt síð- an ég var farþegi í bíl að ég bara kann það ekki lengur. Mér finnst ég alltaf þurfa að stíga á kúplinguna þegar bíllinn kemur að horni.“ Eftir nám í Bandaríkjunum flutt- ist ég á hæðina fyrir neðan ömmu og afa á Baldursgötunni og bjó þar í tvö ár. Þau áttu heima á þriðju hæð- inni og áttu einnig íbúðina á annarri hæð. Þar hafa synir þeirra og mörg barnabörn hafið sinn búskap. Ég var einn af þeim sem áttu því láni að fagna. Það var gott að búa á Bald- ursgötunni og amma og afi voru góðir nágrannar. Ég kveð afa nú með söknuði en minningin um hann á eftir að vera með mér alla ævi og fyrir það er ég þakklátur. Guðmundur Þór Gunnarsson. Elsku afi, nú hefurðu fengið hina hinstu hvíld, og við vitum að þú ert í góðum höndum og líður vel. Þegar við hugsum til baka koma fram ynd- islegar minningar um þig, elsku afi. Fyrir okkur varstu alltaf mikill dugnaðarkarl sem allir gátu litið upp til. Þú vannst hörðum höndum að öllu því sem þú tókst þér fyrir hendur og vildir þér og þínum að- eins það besta. Það var líka aðdáun- arvert hvað þú og amma hélduð vel utan um okkar stóru fjölskyldu, og bar þar hæst hið árlega fjölskyldu- jólaboð á jóladag. Það var alltaf svo gott að koma til ykkar ömmu á Baldó, og alltaf tókstu á móti okkur með bros á vör og alveg einstökum húmor. Þú varst einstaklega laginn við að líta lífið björtum augum, jafnvel þó að á móti blési. Okkur fannst svo fyndið hvað þú varst með stórt skinn, sérstak- lega á seinni árunum, og var alltaf byrjað á því að toga skinnið á oln- boganum eins langt og hægt var og svo var hlegið og hlegið. Og svo við tölum nú ekki um hið fræga Baldó- hnerr, sem fékk alla blokkina til að nötra, en þess var alltaf beðið með óþreyju og svo skellt upp úr á eftir. Það var líka svo gaman að fá þig og ömmu í heimsókn, alltaf gafstu þér tíma til að leika við okkur og er okkur sérstaklega minnisstætt þeg- ar þú hjólaðir á litla þríhjólinu okk- ar úti í garði, og gönguferðin þegar við sáum kanínuna. Þú sýndir líka öllum okkar athöfnum mikinn áhuga og fylgdist vel með bæði handboltanum og náminu hjá Ingu og litla sólargeislanum Söndru Sól, og förðunarnáminu hjá Signýju og lífinu í Danmörku og öllu í kringum Maríu Hrönn, hvort sem það var trúlofunin eða skólinn. Alltaf varstu að spyrja um okkur öll og var auð- séð hversu mikla hlýju þú barst til okkar. Elsku afi, við söknum þín svo mikið, en minning þín mun ávallt lifa í hjörtum okkar og leiða okkur áfram í lífinu. Elsku amma, pabbi, Gunnar, Kalli, Þórir og okkar kæra fjölskylda, megi Guð vera með okk- ur og styrkja okkur í sorginni. Þínar Inga Steinunn, Signý Rún og María Hrönn. Elsku langafi, það var gaman að heimsækja þig, þú varst svo skemmtilegur að gera galdra. Lést þumalinn losna, lést pening hverfa inn í olnbogann og tókst nefið af okkur. Það var skemmtilegt að vera með þér, þú varst svo áhugasamur um það sem við vorum að gera og við söknum þín og brossins þíns. Við minnumst þín með bros á vör, elsku besti langafi. Rafn Viðar, Gunnar Smári, Pétrína, Hilmir Örn og litli bróðir. Eitt sinn skal hver deyja. Nú er horfinn á vit feðra sinna Guðmund- ur Stefán Karlsson eftir langa og giftudrjúga dvöl hér á jörð. Guðmundur réðst til starfa hjá Ólafi Magnússyni, kaupmanni í Fálkanum, afa undirritaðs, í mars 1939, 19 ára að aldri. Síðasti vinnu- dagur hans þar var í apríl 1994, eða 55 árum síðar. Hygg ég, að svo langur og samfelldur starfsferill hljóti að vera fáheyrður, ef ekki einsdæmi. Sá sem þessar línur ritar þekkti Guðmund sem vinnufélaga og vin. Leiðir lágu fyrst saman þegar ég, lítið barn, var að flækjast í Fálk- anum. Foreldrar mínir bjuggu fyrstu búskaparár sín á efstu hæð á Laugavegi 24, húsi Fálkans, þannig að samgangur var óhjákvæmilega töluverður. Á þeim tíma var Guð- mundur aðalmaðurinn á reiðhjóla- verkstæðinu, alltaf brosandi og mildur við lítinn pilt. Man ég vel, hvað mér fannst návist hans vera þægileg. Honum var eiginlegt að laða að sér litla sál og vinna traust hennar án nokkurra vífilengja. Síð- an er liðin meira en hálf öld. Í ársbyrjun 1971 réðst ég til fullra starfa hjá Fálkanum. Varð ég þeirrar gæfu aðnjótandi í upphafi, að starfa náið með Guðmundi. Hann var þá verslunarstjóri í reiðhjóla- deild fyrirtækisins, er ég tók við starfi deildarstjóra. Guðmundur var sívinnandi, vel skipulagður og úrræðagóður starfsmaður, og mjög meðvitaður um að hagsmunir við- skiptavinarins og fyrirtækisins færu saman. Skapbetri og jákvæð- ari vinnufélaga er vart unnt að hugsa sér, hann var heiðarlegur í hugsun og framkomu, ævinlega op- inn fyrir nýjungum og einkar laginn í mannlegum samskiptum. Átti Guðmundur ríkan þátt í að hjálpa mér að fóta mig í nýju og vanda- sömu starfi. Einnig átti ég því láni að fagna að kynnast Margréti, eftirlifandi eig- inkonu Guðmundar, og sonum þeirra fjórum. Þar hefur ást, kær- leikur og samheldni ætíð ráðið ríkj- um, enda allt saman gæfufólk, og eiga þeir synir góðar fjölskyldur í anda foreldranna. Guð styrki þau öll í sorg sinni. Algóður Guð geymi sálu Guð- mundar og blessi minningu hans. Páll Bragason. ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Vélstjórar Samherji hf. óskar eftir að ráða vélstjóra til starfa á sjó. Menntun og hæfniskröfur:  Vélarstærð 3400 kw. Upplýsingar um starfið gefur Jóhanna Erla Birgisdóttir, sími 460 9000, johanna@samherji.is Samherji hf. er eitt öflugasta sjávarútvegsfyrirtæki landsins með víðtæka starfsemi víðsvegar um Evrópu. Samherji hf. hefur á að skipa hæfu og framtakssömu starfsfólki og stjórnendum, öflugum skipaflota, miklum aflaheimildum og fullkomnum verksmiðjum í landi. Vinnslustjóri - vaktformaður Reyktal AS óskar eftir vaktformanni á rækjufrystitogara. Vaktformaður þarf að hafa reynslu af vinnslustjórn á rækju- frystitogara og vanur netamaður. Viðkomandi þarf að vera reglusamur. Enskukunnátta nauðsynleg. Umsóknir sendist með tölvupósti til hjalmar@iec.is eða á fax nr. 588 7635. Nánari upplýsingar veitir Ólafur eða Hjálmar í síma 588 7666. Jarðvélar ehf. óska eftir vönum mönnum með meirapróf, vinnuvélaréttindi og verkstjórnum sem fyrst. Einnig vantar mælingamenn. Tekið er á móti umsóknum á Bakkabraut 14, 200 Kópavogi. Einnig er hægt að senda umsóknir á heimasíðu jarðvélar.is eða með tölvupósti jardvelar@jardvelar.is . Nánari upplýsingar eru veittar í síma 564 6980. R A Ð A U G L Ý S I N G A R

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.