Morgunblaðið - 14.07.2004, Side 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2004 37
Norræna húsið
SJÖ LISTAKONUR FRÁ
NORÐURLÖNDUNUM
Jón B.K. Ransu
TÓNLIST
Norræna húsið
Quattro Musicanti fluttu tónlist eftir Cor-
elli, Ziani, Bach, Telemann, Purcell,
Händel og fleiri. Fimmtudagur 8. júlí.
KAMMER- OG SÖNGTÓNLEIKAR
NORSKUR tónlistarhópur sem kall-
ar sig Quattro Musicanti hélt tónleika
í Norræna húsinu á fimmtudags-
kvöldið. Samsetningin var óvenjuleg;
píanóleikari, trompetleikari, bás-
únuleikari og sópransöngkona. Efnis-
skráin var ekki eins óvenjuleg, að-
allega kunnugleg lög eftir Händel,
Purcell, Andrew Lloyd-Webber,
Bach og Telemann og fleiri. Mikið af
því var tónlist sem maður heyrir á
venjulegum íslenskum kórtónleikum,
þó auðvitað í annarri útsetningu.
Ragnhild Hadland sópran er ágæt-
ur músíkant og var auðheyrt að hún
hefur til að bera næman listrænan
skilning því að túlkun hennar var á
köflum töluvert tilþrifamikil. Tækni-
lega var söngur hennar ekki eins góð-
ur; óþægilega mikið loft var á rödd-
inni og var hún ekki nægilega
fókuseruð.
Trompetleikur Lindu Saglien
Svensen var ekki miklu betri, hann
var að vísu líflegur og kraftmikill en
svo klaufalegur að maður var alltaf á
varðbergi og gat aldrei slakað á. Bás-
únuleikur Per Kristian Svensen var
af svipuðum toga, en eilítið öruggari.
Píanóleikur Terje Hadland var
langbestur, hreinn, fallega mótaður
og féll vel að söngnum og blást-
ursleiknum.
Óþarfi er að taka fram eitthvað
sérstakt í efnisskránni, flutningurinn
var yfirleitt mjög svipaður allan tím-
ann. Þó má gagnrýna hópinn fyrir að
hafa efnisskrána full langa, en hún
tók rúman klukkutíma án hlés.
Áheyrendur voru pínlega fáir, að-
eins fimm talsins auk undirritaðs.
Ekki er hægt að kenna því um að nú
sé sumar og fólk ekki í bænum eins
og einn tónleikagestur heyrðist tauta
fyrir munni sér. Á tónleikum í Lista-
safni Sigurjóns á þriðjudagskvöldið
var húsfyllir; kannski hefðu for-
ráðamenn Norræna hússins mátt
auglýsa tónleikana betur.
Jónas Sen
MENNING
Madonna, þriggja metra trérista eftir Sonju Krohn á sýningunni 7-Sýn úr norðri í Norræna húsinu.
MYNDLIST
Opið kl. 12–17 alla daga nema mánu-
daga. Sýningu lýkur 29. ágúst.
NORRÆNA húsið var hér áður vin-
sæll sýningarstaður fyrir myndlist.
Hvort sem það er sökum mikils fram-
boðs af ákjósanlegri sýningarstöðum
eða lítils metnaðar í rekstri sýning-
arsalarins, hefur verið lognmolla þar
síðustu árin, þótt inn á milli rati þang-
að áhugaverðar sýningar sem fara
framhjá mörgum þar sem staðurinn
er löngu dottinn út úr rúntinum.
Ein þess háttar sýning er nú í Nor-
ræna húsinu. Hún nefnist 7-Sýn úr
norðri og er samsýning 7 listakvenna
frá Norðurlöndunum, þeirra Helm-
trud Nyström, Ullu Fries, Ullu Virta,
Outi Heiskanen, Sonju Krohn, Val-
gerðar Hauksdóttur og Jóhönnu
Boga. Það er þó ekki þema eða heild-
armynd sem gerir sýninguna áhuga-
verða. Það er ekkert sjáanlegt þema
nema að flest verkin, ekki öll, heyra
undir grafíklist og heildarmyndin er
tvístruð. Athyglin beinist því frekar
að einstökum áhugaverðum listakon-
um. Helmtrut Nyström frá Svíþjóð er
ein þeirra. Hún hefur náð að skapa
ævintýralegt en samt hversdagslegt
myndmál sem hún vinnur í einþrykk.
Blandar saman lit, teikningu og ljós-
myndum. Norska listakonan Sonja
Krohn er önnur. Hún er hefðbundn-
ari í myndmáli og efnistökum, vinnur
tréristur að hætti norrænna express-
jónista. Sérstaklega er það þriggja
metra Madonnumynd sem mér finnst
kröftug. Einföld táknmynd sem hittir
mann í hjartastað. Það er svo sænska
listakonan Ulla Fries sem mér finnst
forvitnilegust á sýningunni. Sýnir
smáskúlptúra og koparstungur sem
líkjast myndskreytingum frá 19. öld.
Margt býr samt að baki myndunum
sem tengir mann annað, s.s. „kom-
posisjónir“ með trjátegundum, lirfur
sem liggja á myndfletinum líkt og loð-
in pensilför og svo má áfram telja.
Vinnubrögðin eru nostursleg og sér-
lega vönduð. Eins og áður sagði er
heildarmyndin tvístruð. Ekkert sér-
stakt samtal skapast á milli listaverk-
anna og listakonurnar eru ólíkar og
misjafnar. En það er sannarlega
margt sem vert er að skoða og
ástæða til að bæta Norræna húsinu
við í rúntinn í þetta skiptið.