Morgunblaðið - 14.07.2004, Blaðsíða 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 MIÐVIKUDAGUR 14. JÚLÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
ÞRÍR farþegar og einn ökumaður stræt-
isvagns voru fluttir á slysadeild Landspít-
alans með minniháttar meiðsl eftir árekst-
ur þriggja strætisvagna við hringtorg við
Fjarðargötu á móts við bensínstöð Olís í
Hafnarfirði í gær.
Tildrög slyssins voru þau að vagnarnir
þrír lögðu af stað frá skiptistöð við versl-
unarmiðstöðina Fjörðinn og óku hver á
eftir öðrum í sömu akstursstefnu eftir
Fjarðargötu. Þegar að hringtorginu kom
stansaði fyrsti vagninn fyrir umferð en sá
aftasti var á of mikilli ferð til að geta stað-
næmst í tæka tíð og lenti á miðvagninum
sem lenti á þeim fremsta. Ökumaður mið-
vagnsins var fluttur á slysadeild og þrír
farþegar, þar af eldri kona.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Þriggja vagna
árekstur í
Hafnarfirði
GEIR H. Haarde fjármálaráð-
herra segir skýrslu Ríkisendur-
skoðunar um framkvæmd fjárlaga
fyrir árið 2003 vera villandi og ekki
gefa rétta mynd af stöðu ríkisút-
gjalda. Ónákvæmni í skýrslunni
dragi mjög úr gildi hennar.
Rýrir gildi skýrslunnar
„Það eru ýmsar athugasemdir
sem við höfum við þessa skýrslu
sem við munum koma á framfæri
við Ríkisendurskoðun. Það er óná-
kvæmni í talnameðferð og villur í
meðferð talna varðandi þjóðhags-
stærðir þar sem ekki er gerður
greinarmunur á raunhækkunum
og krónutöluhækkunum. Það kem-
ur meðal annars fram í því þegar
talað er um að samneyslan í fyrra
hafi aukist um sjö prósent, sem er
krónutölubreyting, en eitt prósent
talan sem nefnd er í sömu andrá er
raunaukning. Það er svona óná-
kvæmni sem rýrir gildi þessarar
skýrslu,“ segir ráðherra.
Alþingi veitti heimild fyrir
12 af 13 milljörðum
Geir segir að horfa verði á heild-
arfjárheimildir en ekki fjárlögin
einvörðungu þegar rýnt er í skýrsl-
una. Fjárheimildir síðasta árs hafi
verið auknar um 16,7 milljarða á
fjáraukalögum og gert ráð fyrir
auknum tekjum upp á tæpa fimm
milljarða. Af 13 milljarða króna
fráviki sem rætt er um í fjölmiðlum
í gær hafi Alþingi sjálft veitt heim-
ildir fyrir tólf. Þá byggi fjárlögin á
rekstrargrunni líkt og ríkisreikn-
ingur.
Greiðslugrunnur eins og byggt
sé á í skýrslunni hafi mjög tak-
markaða þýðingu auk þess sem
fyrirliggjandi tölur séu ekki end-
anlegar.
„Það er flakkað á milli í skýrsl-
unni, milli greiðslugrunns og
rekstrargrunns, og þetta finnst
mér vera villandi og óheppilegt,“
segir ráðherra. Þess má geta að
ríkisreikningur fyrir 2003 er vænt-
anlegur í næsta mánuði.
„Getum bætt okkur
heilmikið“
Geir segir um skýrsluna að öðru
leyti og þá gagnrýni sem í henni er
að fjármálaráðuneytið hafi unnið
að því síðustu ár að bæta stjórn
ríkisútgjalda með bættri áætlana-
gerð, árangursstjórnunarsamning-
um, reglugerðum og handbók um
framkvæmd fjárlaga o.þ.h.
Ráðherra tekur undir að vissa
festu skorti í ríkisútgjöldum hér á
landi miðað við annars staðar. „Ég
tel að við getum bætt okkur heil-
mikið í þessu efni, og það er heil-
mikið til í því að það vanti upp á
rétt hugarfar hjá stjórnendum og
líka stjórnmálamönnum hvað þetta
varðar. Menn hrópa í einu orðinu á
aukið aðhald og í hinu orðinu á auk-
in útgjöld. Þetta þekkja menn
mjög vel sem hafa setið á Alþingi
jafnlengi og ég; að það er oft erfitt
að fá það til að ríma saman sem
menn eru að ræða þar um.“
Geir H. Haarde fjármálaráðherra gagnrýnir Ríkisendurskoðun
Ónákvæm skýrsla og
villur í meðferð talna
FISKHAUSARNIR stara tómum augum, og lyktin
leynir sér ekki. Bryndís Guðmundsdóttir og mað-
ur hennar, Sigurður Hreinsson, starfrækja fisk-
þurrkunina að Miðhrauni á sunnanverðu Snæ-
fellsnesi. Þau flytja fiskhausa og skreið til
Nígeríu undir vörumerkinu UDE, og hafa í nógu
að snúast. Hér er Bryndís umvafin útiþurrkuðum
þorskhausum, sem nýlega voru tíndir inn í
skemmu eftir að hafa hangið úti á hjalli með
gamla laginu. / 8
Morgunblaðið/Rax
Útiþurrkaðir hausar á leið í langferð
ÞRÁTT fyrir að um 1.500
stúlkur taki þátt í Gullmóti
JB og Breiðabliks í knatt-
spyrnu sem hefst í Kópavogi
á morgun þá var ekki mögu-
legt að taka við umsóknum
allra félaga sem óskuðu eftir
að taka þátt. Þó er þetta um
400 keppendum fleira en í
fyrra. Um er að ræða einn
allra fjölmennasta íþróttavið-
burð ársins og örugglega
þann stærsta sem eingöngu
er ætlaður stúlkum, en þátt-
takendur eru 6 til 16 ára.
Alls senda 27 félög um 150
lið til mótsins. Ari Skúlason,
talsmaður Breiðabliks, segir
að mótið í ár sé það stærsta
sem félagið hafi haldið frá
upphafi. Mótið hefur sprengt
utan af sér Smáraskóla þar
sem gert var ráð fyrir að
keppendur gistu í skólastof-
um. Til þess að hýsa alla
keppendur hefur orðið að fá
inni í öðrum skóla í Kópavogi.
1.500 stúlkur á
Gullmóti
Færri
komast að
en vilja
Íþróttir /B3
VERÐMUNUR á þjónustu hársnyrtistofa
á höfuðborgarsvæðinu nemur í sumum til-
vikum hundruðum prósenta. Lægsta verð á
lagningu reyndist vera þúsund krónur og
hæsta verð fjögur þúsund og þrjú hundruð
krónur þegar Samkeppnisstofnun lét gera
verðkönnun á 186 hársnyrtistofum fyrir
skömmu. Sá verðmunur nemur 330%.
Þá er munur á hæsta og lægsta verði á
stífum blæstri 375% og munur á hæsta og
lægsta verði á klippingu fyrir 4 ára barn
nemur 329%.
Mikill verð-
munur milli
hársnyrtistofa
Allt að/18
♦♦♦
HÖRÐ gagnrýni kom fram á forystu Fram-
sóknarflokksins á opnum félagsfundi Fram-
sóknarfélags Reykjavíkur suður um stöðu mála
vegna fjölmiðlafrumvarps í gærkvöld og var
greinilegt að sumum þótti forysta flokksins hafa
brugðist í málinu. Bent var á að Framsóknar-
flokkurinn hefði ævinlega verið flokkur sátta og
málamiðlana en það væri hann ekki í þessu máli.
„Ég lýsi yfir vonbrigðum, gríðarlegum von-
brigðum, með það að forysta flokksins virðist af
einhverjum ástæðum ekki vera að tala við sömu
þjóð og ég. [–] Ég vil að þjóðin fái að segja hvað
henni finnst um þessi lög sem upphaflega voru
sett. Ég vil að okkar flokkur taki því bara eins
og menn ef það er fellt og taki þá á því máli í
samstarfi við stjórnarandstöðuna,“ sagði Bryn-
hildur Bergþórsdóttir, varaformaður Fram-
sóknarfélags Reykjavíkur suður. Jónína Bjart-
marz, eini þingmaður Framsóknarflokksins
sem sat fundinn, sagði að vegna vinnu sinnar í
allsherjarnefndar hefði hún ákveðið að gefa
ekki yfirlýsingar um málið. „En ég hef þó sagt
svo mikið, af því mér blöskraði ákveðin yfirlýs-
ingagleði, að ég lærði sama stjórnskipunarétt
og Eiríkur Tómasson. Eiríkur Tómasson
kenndi mér stjórnskipunarréttinn og ég lærði
Ólaf Jóhannesson, fyrrverandi forsætisráð-
herra, prófessor og formann Framsóknar-
flokksins, og ég minnist þess aldrei frá því ég
lærði þennan stjórnskipunarrétt að nokkur hafi
nokkurn tímann dregið nokkuð í efa sem í þeirri
bók segir.“ Þá sagði Jónína það hafa vakið at-
hygli sína þegar Eiríkur kom á fund allsherj-
arnefndar, og fleiri hafi raunar haft orð á þeirri
reglu, þ.e. þeirri viðurkenndu lögskýringarleið í
stjórnskipunarrétti að leita skuli þeirra leiða,
skýringa og lausna sem stuðla að friði og sátt í
samfélaginu.
Deilt á forystu Framsóknar
Morgunblaðið/Þorkell
VEGNA hreyfingar jarðflekanna er
búist við, að um 20 sm skekkja komi
sums staðar fram við nýja mælingu
GPS-grunnstöðvanets Íslands, sem
fara mun fram dagana 3.–15. ágúst.
Síðast fór viðlíka mæling fram 1993.
Þetta er í fyrsta sinn sem Íslendingar
sjá alfarið um framkvæmd mæling-
anna, en Landmælingar Íslands hafa
umsjón með verkefninu, með sam-
starfi við alls á fjórða tug stofnana og
sveitarfélaga.
Landrek
skekkir
GPS-netið
Reikna með /10