Morgunblaðið - 23.08.2004, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 23.08.2004, Blaðsíða 9
Skeifan 8 - s. 568 2200 - Smáralind - s. 534 2200 www.babysam.is Hjá okkur fáið þið traust og örugg leikföng fyrir börnin. ÞROSKALEIKFÖNG Í ÚRVALI FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2004 9 MIRALE Grensásvegi 8 sími: 517 1020 Opið: mán.- föstud.11-18 laugard. 11-15 Í tilefni af því að MIRALE hefur tekið við Cassina umboðinu á Íslandi veitum við 15% afslátt af öllum sérpöntuðum húsgögnum til 31. ágúst. Bæjarlind 12, Kópavogi, sími 544 2222. www.feminin.is Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 10-16. Nýju haustvörurnar frá streyma inn Str. 38-60 KOSIÐ verður til sveitarstjórnar í hinu nýja sameinaða sveitarfélagi Austur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-Héraðs 16. október næst- komandi og hefst atkvæðagreiðsla utan kjörfundar í dag. Unnt verður að greiða atkvæði ut- an kjörfundar hjá sýslumönnum um land allt, sendiráðum, fastanefndum hjá alþjóðastofnunum og ræðis- mönnum. Framboðsfrestur vegna sveitarstjórnarkosninganna rennur út kl. 12 á hádegi laugardaginn 25. september. Kjörskrár munu liggja frammi almenningi til sýnis á skrif- stofum sveitarfélaganna frá og með miðvikudeginum 6. október 2004. Yf- irkjörstjórn í hinu nýja sveitarfélagi skipa Bjarni G. Björgvinsson, Egils- stöðum, Guðmundur Davíðsson, Fellabæ og Jón Víðir Einarsson, Jökuldal. Nýtt sveitarfélag í undirbúningi Atkvæðagreiðsla ut- an kjörfundar í dag Egilsstöðum. Morgunblaðið. ÍSLENDINGAR tóku í þriðja sinn þátt í Alþjóðlegu ólympíukeppninni í efnafræði í júlí. Keppnin var hald- in í Kiel, höfuðborg Slésvíkur og Holtsetalands. Þetta er í 36. skipti sem Ólympíukeppnin er haldin en hún var fyrst haldin í Prag árið 1968. Markmið keppninnar eru að hvetja nemendur sem hafa áhuga á efnafræði til dáða, gefa þeim tæki- færi á að hitta annað ungt fólk frá ýmsum löndum og stuðla þannig að auknum tengslum og alþjóðlegri samvinnu innan og utan fræðigrein- arinnar. Í ár tóku 233 keppendur frá 61 landi þátt í keppninni. Sigurvegari keppninnar var Alexey Zeldman frá Rússlandi sem var sjónarmun á undan Jun Soo Ham frá Suður- Kóreu og Lianghui Liu frá Kína sem voru nokkuð jafnir í 2. og 3. sæti. Kan Yue frá Kína stóð sig best í fræðilega hluta keppninnar og náði 4. sæti en Ítalinn Raffaele Col- ombo sem stóð sig langbest í verk- lega hlutanum hafnaði í 47. sæti. Íslenska liðið skipuðu að þessu sinni þau Jakob Tómas Bullerjahn, MH; Tomasz Halldór Pajdak, MR; Lilja Rut Arnardóttir, MA; og Óm- ar Sigurvin Gunnarsson, MR. Þau voru valin í liðið vegna góðrar frammistöðu í landskeppninni í efnafræði sem Efnafræðifélag Ís- lands og Félag raungreinakennara héldu síðastliðinn vetur. Áður en haldið var til Þýskalands gengust þau undir tveggja vikna þjálfun í dæmareikningi og vinnubrögðum á tilraunastofu við Háskóla Íslands. Auk keppendanna fjögurra fóru tveir þjálfarar með í Ólympíu- keppnina, þeir Finnbogi Óskarsson og Gísli Hólmar Jóhannesson sem önnuðust þýðingu prófverkefnanna á íslensku og yfirferð úrlausna keppendanna. Svipaður árangur og síðustu ár Árangur íslenska liðsins í ár var svipaður og verið hefur hingað til; enginn kom heim með verðlauna- pening en keppendurnir stóðu sig að meðaltali svipað og lið Norð- manna og Svía. Hinir síðarnefndu náðu þó einum bronsverðlaunum. Danir og Finnar stóðu sig heldur betur líkt og undanfarin ár, sér- staklega Finnar sem náðu tveimur bronspeningum. Besta árangur ís- lenska liðsins átti Ómar Sigurvin en Jakob Tómas fylgdi honum fast eft- ir. Tomasz Halldór stóð sig best Ís- lendinganna í fræðilega hluta keppninnar en Lilja Rut varð hlut- skörpust í verklega hlutanum. Skipulag Ólympíukeppninnar í ár var í höndum efnafræðideildar Christian Albrechts Universität í Kiel. Næst verður keppnin haldin við National Taiwan Normal Uni- versity í Taípei á Taívan, 16.–25. júlí 2005. Íslenska liðið sem keppti í Þýskalandi og þjálfararnir. Gísli Hólmar, Jakob Tómas, Finnbogi, Tomasz Halldór, Lilja Rut og Ómar Sigurvin. Ólympíukeppni í efnafræði ÓGURLEGAR tölur voru að berast af bökkum Ytri-Rangár um helgina, en síðdegis sl. föstudag lauk þar fluguveiðitímanum og var annað agn, s.s. maðkur og spónn, þar með leyfilegt. Sé fiskur á annað borð í ám er slíkt ævinlega ávísun á mikla veiði og gekk það eftir. Fyrstu tvær vaktirnar veiddust eigi færri en 173 laxar sem er með ólík- indum, en skv. fregnum frá Lax-á sem er leigutaki árinnar, er óhætt að segja að af nógu sé að taka því áin sé full af laxi og fiskur enn að ganga af krafti. Veiðin skiptist þannig að á síð- degisvaktinni á föstudag veiddust 110 laxar sem þýðir rúmlega níu laxar á stöng að jafnaði. Á laugar- dagsmorguninn komu svo 63 laxar á land og hefur veiðin verið afar líf- leg síðan. Mikil veiði er einnig í Eystri-Rangá og stefna árnar báðar hraðbyri á 2000 laxa múrinn. Þurrflugur … Skemmtileg fregn kom einnig frá Lax-á um ævintýri veiðimanna við Laxá á Ásum. Þar voru veiðimenn að prófa eitt og annað og einum datt í hug að reyna þurrflugu, sem er ekki mikið notuð aðferð við lax- veiðar hérlendis þó að menn noti talsvert þurrflugu við laxinn er- lendis. Fór nú allt af límingunum og kappinn landaði sjö löxum og setti í fleiri sem hann missti. Annar veiði- maður sem síðar kom og frétti af þessum tilburðum reyndi líka þurr- flugu og fékk þrjá laxa. Morgunblaðið/Einar Falur Það er mok í Ytri-Rangá þessa dagana. Hér þreytir Kristinn Ágúst Ingólfs- son einn í Árbæjarkvísl í Ytri-Rangá. Ógurlegar tölur úr Rangárþingi ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN? AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Fréttasíminn 904 1100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.