Morgunblaðið - 23.08.2004, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 23.08.2004, Blaðsíða 11
MINNSTAÐUR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2004 11 Þúsundir fermetra af flísum á lækkuðu verði Gegnheilar útiflísar frá kr. 1.250.- m Smellt plastparket 7 mm frá kr.890.- m Veggflísar 20 x 25 kr. 890.-m Öll Nords jö útimál ning með30% afslætti! Pallaolía 3 L. kr. 7 90.- Verðdæmi: 2 2 ÚTSALA 2 Akranes | Þrátt fyrir að nýr framhalds- skóli taki til starfa í Grundarfirði á næstu dögum hefur ekki dregið úr aðsókn að Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, FVA, og í upphafi skólaárs eru skráðir nemendur nokkru fleiri en fjárveitingar til skólans gera ráð fyrir. Alls eru 627 nemendur skráðir í skól- ann, þar af 171 nýnemi, og þar af 150 nemendur sem luku við grunnskólapróf í 10. bekk s.l. vor. 65 nemendur hafa end- urinnritað sig í skólann eftir hlé en 391 nemandi sem var við skólann á síðustu önn hefur skráð sig til náms á ný. Þeir nemendur sem skráðu sig til náms í ágúst voru settir á biðlista og verður svarað í upphafi annar um skólavist. Hörður Helgason, skólameistari FVA, sagði við Morgunblaðið að skýringin á fjölda nemenda við skólann væri í raun einföld. „Það er fjölmennur árgangur sem er að hefja nám við skólann, afföll af þeim nemendum sem voru við nám á síð- asta ári eru ekki eins mikil og undanfarin ár og einnig eru nemendur að koma á ný í nám eftir hlé. Við erum að sjálfsögðu ánægð með þessa niðurstöðu enda nýr framhaldsskói tekinn til starfa á norð- anverðu Snæfellsnesi. Sú viðbót varð til þess að ekki fjölgaði enn frekar hjá okk- ur, og við horfum björtum augum á fram- tíðina þrátt fyrir aukna samkeppni,“ sagði Hörður og bætti því við að um 20 umsóknum um skólavist ætti enn eftir að svara. „Við erum komnir fram úr þeim fjárheimildum sem okkur var úthlutað en við höfum sótt um aukafjárveitingu til þess að geta tekið við öllum þeim nýnem- um sem skráðu sig til náms nú í ágúst,“ sagði Hörður en skólinn verður settur í dag, mánudag. Morgunblaðið/Sigurður Elvar Í vor var haldið fjölmennt námskeið í gerð flugdreka við Fjölbrautaskóla Vest- urlands á Akranesi og ungi maðurinn beið spenntur eftir stóru stundinni hvort „drekinn“ tækist á loft. Fjölbrautaskóli Vest- urlands þéttsetinn Stykkishólmur | Það er orðin sjaldgæf sjón að sjá flutningaskip við bryggju í Stykkishólmi, því allir flutningar fara orðið landleiðina. En það var mikið um að vera er Jök- ulfellið lagðist að bryggju nýlega með óvenjulegan farm. Skipið var að koma frá Póllandi með 130 rör í nýja virkj- un í Straumfjarðará. Bjarni Einarsson á Tröðum í Staðarsveit er einn byggjenda virkj- unarinnar. Hann segir að hér sé um að ræða rör sem leiða eiga vatnið frá stíflu við Baulárvallavatn og niður í stöðvarhús. Leiðin sé tæpir tveir kílómetrar að lengd. Hvert rör er 12 metrar á lengd og 1,40 m í þver- mál. Bjarni segir að rörin séu úr glerfíberefni, sem er miklu léttara en stál og að endingin sé ekki verri. Hvert rör vegur um 2.500 kg. Á næstu dögum verða rörin flutt að fyrirhugaðri virkjun og fram kom hjá Bjarna að framkvæmdir eru komnar á fulla ferð, en Straumfjarðarárvirkjun verður 2 megawött og tekur til starfa á næsta ári. Til að stærri skip geti komið til hafnar þurfa ör- yggismál hafnanna að vera í lagi samkvæmt kröfu Alþjóða sigl- ingastofunarinnar. Hafn- arsvæðið er girt af með- an skipið er í höfn og öll óviðkomandi umferð bönnuð. Símon Sturluson er hafnarverndarmaður Stykkishólmshafnar. Hann segir að þessi skipakoma sé fyrsta verkefni hans í hafn- arverndinni. Hann segist vera tengiliður við ör- yggisfulltrúa skipsins og er á staðnum ef á þarf að halda. Hann segir að strax í fyrsta skipti hafi sannast þörfin á hafn- arvernd. Óboðinn gestur komst frá borði án þess að hafa tilskilda pappíra. Hann var handsamaður af hafnarverndarmann- inum. „Fyrsta alvöru verkefni mitt var að handsama engisprettu sem hafði falið sig í einu rörinu sem skipað var í land,“ segir Símon. „Sem betur fer sást hún og reyndist mér auðvelt verk að ná henni. Með þessu tel ég mig hafa komið í veg fyrir að engi- sprettur næðu bólfestu í Hólminum og þá plágu sem þeim getur fylgt,“ segir Símon hinn árvök- uli hafnarverndarmaður. Símon lét Náttúrustofu Vesturlands fá engi- sprettuna, til nánari rannsóknar á uppruna. Óboðinn gestur fylgdi með en var gómaður Rörum í nýja virkjun skipað upp Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason Rörum í nýja virkjun var skipað upp í Stykkishólmi á dögunum. Símon Sturluson hafnarverndarfulltrúi og Bjarni Einarsson, einn eigenda Straumfjarðarvirkjunar. Farmurinn var óvenjustór og fyrirferðarmikill á hafnarsvæðinu. VESTURLAND ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● TAP varð af rekstri Austurbakka hf. á fyrri helmingi ársins sem nem- ur 65 milljónum króna. Á sama tíma- bili í fyrra var viðlíka hár hagnaður af rekstrinum. Af- koman versnar því um 130 milljónir króna. Sala dróst saman um 3,6% og nam nú rúmum ein- um milljarði. Rekstrartekjur drógust alls saman um 3,7% en rekstrargjöld jukust um 7,2%, þar af hækkaði launaliður um nær 24%. Ennfremur jukust fjármagnsgjöld verulega og voru 25 milljónir króna. Þá eru áhrif frá hlutdeildarfélagi nei- kvæð um tæpar 4 milljónir. Veltufé frá rekstri var neikvætt um 50 millj- ónir. Gengið hefur á eigið fé félags- ins og hefur það lækkað um 21% frá áramótum, eða 72 milljónir. Eig- infjárhlutfall er 19,7%. Í tilkynningu frá Austurbakka segir að unnið sé að því að auka sölu- tekjur og lækka kostnað félagsins. Slæm afkoma Austurbakka                 ! "" #$  %&&#'   ● HAGNAÐUR Sparisjóðs Vestfirð- inga nam 49,9 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins sam- anborið við 55,9 milljóna króna tap á sama tímabili í fyrra. Afkoman batnar því um nær 110 milljónir króna. Vaxtatekjur námu 350 milljónum króna og vaxtagjöld námu tæpum 207 milljónum. Hreinar vaxtatekjur námu því 143 milljónum en voru 138 milljónir á sama tímabili 2003. Aðrar rekstrartekjur námu 225 milljónum og aukast um 148 milljónir frá árinu áður. Hreinar rekstrartekjur jukust um 153 milljónir og námu 369 milljónum en aukningin skýrist fyrst og fremst af gengishagnaði af verðbréfum. Reiknað er með að hagnaður af reglulegri starfsemi verði svipaður á seinni hluta ársins. Afkoma Sparisjóðs Vestfirðinga batnar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.