Morgunblaðið - 23.08.2004, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 23.08.2004, Blaðsíða 29
SEINT verður kvartað yfir skorti á menningarframboði á Menningarnótt sem leið, en gríðargóð stemning myndaðist þar sem hundrað þúsund manns nutu afurða mörg hundr- uð listamanna sem komu þangað til að deila sköpun sinni með almenningi. Sumir listamenn voru á vegum borgarinnar eða ýmissa fyrirtækja, en aðrir létu slag standa og skelltu sér niður í bæ með tónlist sína, leiklist, myndlist, ljóðlist og hvaðeina og gerðu hlutina á eigin forsendum. Nokkuð bar á listahópum sem stundað hafa skapandi starf á vegum Hins Hússins í sumar, en það framtak hefur mælst mjög vel fyrir hjá ungum listamönnum sem sjá þar kjörin tækifæri til að prófa að lifa á sköpun og frjósemi hugans. Gríðarlegur mannfjöldi mætti á stórtónleika Rás- ar 2 og myndaðist mannhaf yfir allan hafnarbakkann og upp um allan Arnarhól, þar sem útsýnið var að sjálfsögðu langbest. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins nutu íbúar Hlíðanna og nærliggjandi hverfa tónleikanna líka ágætlega án þess að kveikja á útvarpinu, slíkur var kraft- urinn. Stórkostleg flugeldasýning sló svo lokatóninn í skipulagða dagskrá og héldu þá hófsamari borgarbúar til síns heima, en partíljónin glöddust fram á nótt. Morgunblaðið/Árni Torfason Arnar Guðjónsson, söngvari The Leaves, söng af mikilli innlifun. Morgunblaðið/Árni Torfason Ekki var þessi gráálfur frýnilegur, en ungviðið sá í gegnum gervið. Morgunblaðið/Árni Torfason Í portinu bak við kaffihúsið Prikið voru haldnir tónleikar þar sem m.a. þessir reiðu ungu menn fóru á kostum með þungu og ákveðnu rokki. Morgunblaðið/Kristinn Hljómsveitin Í svörtum fötum skemmti á Ingólfstorgi og Jónsi brást ekki aðdáendum sínum frekar en fyrri daginn. Morgunblaðið/Árni Torfason Björk Guðmundsdóttir lék á hljóðgervil með Ghost Digital í Hafnarhúsinu. MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 23. ÁGÚST 2004 29 ÁLFABAKKI Kl. 8 og 10.30 Frá leikstjóra „The Sixth Sense“, „Unbreakable“ og „Signs“ kemur kvikmyndaupplifun ársins. KRINGLAN kl. 5.50, 8, og 10.20 AKUREYRI Sýnd kl. 6, 8 og 10. 47.000 gestir EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP KL. 5.30, 8 OG 10.30. MEÐ ÍSLENSKU TALI MEÐ ÍSLENSKU TALI ÁLFABAKKI Kl. 8 og 10.30 AKUREYRI Sýnd kl. 10. ÁLFABAKKI Kl. 4, 6, 8 og 10.10 KEFLAVÍK Kl. 8 og 10 SÝNIÐ ALDREI SLÆMA LITINN ÞVÍ ÞAÐ VEKUR ATHYGLI ÞEIRRA. S.K., Skonrokk  G.E. Ísland í bítið/Stöð 2  Kvikmyndir.com 47.000 gestir ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 og 6. Ísl tal. Ofurskutlan Halle Berry er mætt klórandi og hvæsandi sem Catwoman sem berst við skúrkinn Laurel sem leikin er af Sharon Stone. Ofurskutlan Halle Berry er mætt klórandi og hvæsandi sem Catwoman sem berst við skúrkinn Laurel sem leikin er af Sharon Stone. KRINGLAN Sýnd kl. 5.50, 8, 9.05 og 10.20. KRINGLAN Sýnd kl. 5.45 og 7.30. Ísl tal.  Kvikmyndir.com  Ó.H.T Rás2  DV ÁLFABAKKI Kl. 5.30 Ísl. tal. Kl. 10.10 enskt tal. ÁLFABAKKI Kl. 4 og 6 Ísl tal. Kl. 3.40 og 8 E tal. ATH ! Auk asý ning kl. 9.05

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.