Morgunblaðið - 23.08.2004, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 23.08.2004, Qupperneq 22
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes VIÐ GETUM EKKI BREYTT FORTÍÐINNI... EN VIÐ GETUM REYNT AÐ GERA FRAMTÍNA SEM BESTA HLJÓMAR EINS OG ALLT OF MIKIL VINNA FYRIR MIG ÉG VIL BARA HAFA FRAMTÍÐINA NÁKVÆMLEGA EINS OG HÚN Á EFTIR AÐ VERÐA ÁTTU ÞITT EIGIÐ HERBERGI? JÁ, ÉG Á MJÖG FÍNT HERBERGI ÉG VONA AÐ ÞÚ VITIR AÐ ÞÚ ÁTT EKKI EFTIR AÐ EIGA ÞITT EIGIÐ HERBERGI AÐ EYLÍFU... EINN DAGINN ÁTTU EFTIR AÐ FÁ HERKVAÐNINGU OG ÞÁ SÉRÐU ÞAÐ ALDREI AFTUR! AF HVERJU ERTU AÐ SEGJA ÞETTA? ÞAÐ ER Á LISTA SEM ÉG BJÓ TIL FYRIR ÞIG... HANN HEITIR: “HLUTIR SEM ÞÚ ÆTTIR AÐ VITA” ÉG LAS AÐ TEDDY ROOSEVELT SAGÐI EINU SINN: “MAÐUR VERÐUR AÐ GERA ÞAÐ SEM MAÐUR GETUR MEÐ ÞVÍ SEM MAÐUR HEFUR” ÞETTA ERU GÓÐ RÁÐ AUÐVITAÐ, EFAST ÉG UM AÐ HANN HAFI VERIÐ Í BAÐI ÞEGAR HANN SAGÐI ÞETTA Risaeðlugrín © DARGAUD ÞETTA ER EKKERT HRÆÐILEGT. ÞAU HLJÓTA EINHVERN TÍMAN AÐ ÞIÐNA. ÞAÐ ER BARA SPURNING UM KLUKKUTÍMA, KANNSKI MÁNUÐI EÐA ALDIR HVAÐ?! VILTU LÁTA ÞAU VERA SVONA ALLAN ÞENNAN TÍMA? ÞAÐ ER ALVEG FRÁLEITT! ÉG SÉ EKKI HVAÐ VIÐ GETUM GERT. EN ÞÚ? JÁ! EN ÞÚ VERÐUR AÐ HJÁLPA MÉR FYRST VERÐUM VIÐ AÐ TEIKNA SAMSÍÐA LÍNUR SÍÐAN ÞVERLÍNUR VIÐ FÆRUM ÞAU ÖLL NÚNA GETUM VIÐ BYRJAÐ SÁ SEM TAPAR SKÁKINNI VERÐUR AÐ AFÞÍÐA ALLA! Dagbók Í dag er mánudagur 23. ágúst, 236. dagur ársins 2004 Úff, hvað Víkverjivarð pirraður er hann reyndi að gera sér glaðan dag á skemmtistöðum Reykjavíkur laugar- dagskvöld eitt fyrir skömmu. Fyrst lá leið hans á nýopnaða skemmtistaðinn Rex í Austurstræti. Er hann kom þar að voru þrjár stúlkur í röð fyr- ir utan staðinn svo Víkverji smeygði sér fyrir aftan þær og hélt að hann þyrfti nú ekki að bíða lengi eftir að komast inn. Hann beið þó dágóða stund ásamt stúlkunum þremur, lík- lega í um 20 mínútur eða svo, sem hefði í sjálfu sér verið allt í lagi ef ekki hefðu um 20–30 manns verið hleypt inn fram fyrir röðina á meðan Víkverji beið. Svipað var uppi á teningnum á Hverfisbarnum þangað sem leið Víkverja lá næst. Hann stóð í langri röð sem hreyfðist ekki neitt á meðan fólkið streymdi inn í svokallaðri VIP-röð. Tók biðin meira en hálfa klukkustund. Víkverja finnst þessi VIP-hug- mynd afskaplega skrípaleg svo ekki sé meira sagt. Hann er afskaplega leiður á þessu svokall- aða „Mjög-Svo-Merki- lega-liði“ sem heimtar að fá að fara fram fyrir t.d. af því það þekkir frænda dyravarðarins svo vel eða bara „veeeeerðuuuur að komast strax inn að pissa“. Er ekki kominn tími til að hætta þess- um VIP-asnaskap? x x x Víkverji hefur fylgstspenntur með mál- efnum Framsóknar- flokksins undanfarið og þá sérstaklega viðbrögðum kvennanna í flokknum við þeirri stöðu sem upp er komin í ráðherra- liði flokksins þar sem einungis ein kona virðist talin hæf til að gegna ráðherraembætti. Hann er ánægður að sjá að þær ætla ekki að taka því þegjandi að gengið sé framhjá mjög svo hæfum einstaklingum þegar embætti eru veitt. Hafa jafnvel bor- ist af því fréttir að þær íhugi að fara í sjálfstætt kvennaframboð. Víkverji hefur seint getað talist framsóknarmaður en gæti vel hugs- að sér að styðja sjálfstætt framboð vaskra framsóknarkvenna sem greinilega standa á sínu. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is          Borgarmenning | Kaffihúsalíf í Reykjavíkurborg hefur verið með miklum blóma síðustu vikur vegna góðs veðurs. Óhætt er að segja að þetta setji allt annan blæ á bæinn, hann lifnar beinlínis við með öllu því fólki sem leitar út í sólina og hitann. Borgin hefur þó sjaldan iðað jafn rækilega af lífi og á menn- ingarnótt á laugardaginn þegar meira en hundrað þúsund manns voru saman komin í miðbænum. Morgunblaðið/Jim Smart Kaffihúsalíf með blóma MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug- lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: Þess vegna, mínir elskuðu, þér sem ætíð hafið verið hlýðnir, vinnið nú að sáluhjálp yðar með ugg og ótta eins og þegar ég var hjá yður, því fremur nú, þegar ég er fjarri. (Fl. 1, 12.)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.