Morgunblaðið - 28.08.2004, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 28.08.2004, Qupperneq 22
MINNSTAÐUR 22 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ Keflavík | „Ég skal nú ekki segja um það, hversu miklir meistarar við er- um en það gengur sæmilega hjá fólkinu,“ sagði Þorkell Indriðason, félagi í Púttklúbbnum í Reykja- nesbæ. Hann sýndi góða takta við púttið á vellinum við sjúkrahúsið í Keflavík á meðan félagi hans, Ísleif- ur Guðleifsson, fylgdist með sposk- ur á svipinn þótt hans kúla ætti greinilega enn lengra í land. Þorkell segir að púttvöllurinn sé mjög vel sóttur. Sextíu til sjötíu manns taki þátt í starfinu og sé vel mætt. Hópurinn hittist venjulega strax eftir hádegið og þeir hörð- ustu fara aftur á völlinn eftir kvöld- fréttir. Mót er annan hvern fimmtu- dag og þá leggja menn sig sérstaklega fram. Einnig er farið í keppnisferðir til annarra byggð- arlaga. „Við dúllum okkur í þessu, þetta er ekkert átak,“ segir Þorkell. Hann segir púttið sé gott til að drepa tímann og alltaf sé gaman að hitta fólkið. Og svo fáist góð hreyf- ing út úr þessu. Hann segir ekki hægt að kvarta undan veðrinu. Það hafi verið sér- staklega gott í sumar og varla skil á því. Púttklúbburinn hefur inniað- stöðu í Röst á Vatnsnesi svo fé- lagarnir geta stundað íþróttina allt árið, óháð veðri. Púttarar í Keflavík hafa stundað æfingarnar vel í sumar „Dúllum okkur í þessu“ Morgunblaðið/Þorkell SUÐURNES ÁRBORGARSVÆÐIÐ Selfoss | „Í skólastarfinu er maður að vinna með dýrasta efnivið sam- félagsins. Það sem maður gerir sem kennari og skólastjórnandi hefur áhrif um aldur og ævi. Það finnur maður þegar maður íhugar áhrif sinna eigin kennara,“ segir Birgir Edwald, skólastjóri við Sunnulækj- arskóla á Selfossi, nýjan skóla sem hóf starfsemi í vikunni og verður til sýnis fyrir almenning í dag, laugar- dag, þegar skólinn verður tekinn formlega í notkun við hátíðlega at- höfn. Birgir er enginn nýgræðingur í skólastarfi, hann byrjaði að kenna 1979 og varð aðstoðarskólastjóri í Barnaskólanum á Eyrarbakka og Stokkseyri 1997. Hann tókst á við sameiningu skólanna ásamt öðrum stjórnendum skólans þar en sú sam- eining þótti takast mjög vel og í framhaldi af því tók við annað stór- verkefni sem var þegar skólinn tók þátt í stóru skólaþróunarverkefni um beitingu upplýsingatækni í skólastarfi. „Það má kannski segja að hjá mér hafi hvert stórverkefnið rekið annað en fyrir mér er starf- semi Sunnulækjarskóla gríðarlega stórt og skemmtilegt verkefni sem auðvitað gefst ekki nema einu sinni á ævinni. Sjálfsagt er þetta verkefni það flóknasta sem ég hef fengist við,“ sagði Birgir. Sunnulækjarskóli er staðsettur syðst í Selfosskaupstað og mun stækka með byggðinni í kring. Skól- inn byrjar fyrsta starfsárið með 154 nemendur í 1.–4. bekk. Fyrstu þrjú árin mun skólinn vaxa þannig að bætast mun við yngstu árgangana en síðan er gert ráð fyrir að næsti áfangi skólans verði tekinn í notkun árið 2007. „Við erum hér að byggja upp nýjan skóla með áherslu á ein- staklingsmiðað nám sem er reyndar það sama og allir eru að fást við og hafa verið að fást við undanfarin ár. Það sem er nýstárlegt hérna hjá okkur er sú aðstaða sem starfinu er búin. Sú leið sem farin var við hönn- un skólans er sú sama og farin var við hönnun Ingunnarskóla og Sjá- landsskóla og byggist á vinnu und- irbúningshóps úr samfélaginu,“ seg- ir Birgir og samsinnir því að hann sé skólamaður enda finnur hann sig vel í skólaumhverfinu, mótuninni sem þar fer fram og þeirri lífssýn sem starfinu fylgir. „Það fylgir þessu starfi löngun til Birgir Edwald er skólastjóri Sunnu- lækjarskóla sem hefur starfsemi í dag „Vinnum með dýrasta efnivið samfélagsins“ ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S T O Y 25 61 1 0 8/ 20 04 Toyota, Nýbýlavegi 4-6. Toyotasalurinn Selfossi, Fossnesti 24. Toyotasalurinn Reykjanesbæ, Njarðarbraut 19. Toyota Akureyri, Baldursnesi 1 STÓRSÝN Yaris Bluehaustpakki100.000 kr. aukabúnaður Innifalið: Þokuljós að framan, sérstök Yaris Blue innrétting, krómpúst, silsalistar, vindskeið o.fl. Frumsýn um nýjan Co rolla Kynnum tákn um gæði Komdu á stórsýningu Toyota um helgina. Sjáðu nýja Corolla bílinn, glæsilega Yaris Blue haustpakkann, ríkulegan útbúnað Avensis og margt fleira.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.