Morgunblaðið - 28.08.2004, Blaðsíða 25
menjar úr sögu kristninnar, en Páll
postuli bjó í borginni og stofnaði þar
söfnuð sinn.“ Í nágrenni við Efesos
er jafnframt lítið hús og kapella í
fjallshlíð sem fullsannað þykir að
hafi verið síðasti dvalarstaður Maríu
meyjar.
Á slóðir fornkappanna
Sjö daga hringferð um meginland
Grikklands var uppfull af ævintýr-
um, undurfallegu landslagi og stór-
merkum fornminjum að sögn Berg-
ljótar og Odds. „Í Kórinþu las einn
ferðalanganna, Jakob S. Jónsson,
ákaflega fallega upp úr Kór-
inþubréfunum á þeim stað sem álitið
er að Páll hafi lesið yfir lýðnum. Við
Kórinþu er líka Afródítumusteri
uppi á bröttu fjalli, þar sem um 200
gleðimeyjar dvöldu. Ef karlmenn
vildu heimsækja þær þurftu þeir að
príla upp brattar fjallshlíðarnar
fyrst. Og alls staðar voru fornar
rústir, sama hvert við komum,“ seg-
ir Bergljót.
Meðal þess sem hópurinn skoðaði
á hringferðinni var Epídvaros, eitt
stærsta útileikhús Evrópu, en það
er frá 4. öld fyrir Krist, hefur sæti
fyrir 14.000 manns og gríðargóðan
hljómburð. Í Mýkenu var hin forna
háborg Agamemnons Trójukappa
og þar bar fyrir augu ferðalanga
konungshöll hans og Ljónahliðið
fræga sem er 3.500 ára gamalt.
Bergljót segir ferðina til Ólympíu
hafa verið einn af hápunktunum í
ferðinni. „Þetta er stórt og mikið
svæði, en mikið hrunið. Það eina
sem stendur enn er sjálfur leikvang-
urinn sem er alveg heill, með rás-
mörkum og öllu. Og þarna er Ól-
ympíueldurinn tendraður,“ segir
Bergljót. „Til Delfí var líka stór-
fenglegt að koma og margt að sjá,
m.a. hof véfréttarinnar. Í Kal-
ambaka er að finna merkilegar
klausturbyggðir sem tróna á toppi
um 300 metra hárra hamra. Það
botnar enginn í því hvernig þetta
var gert“, segir Oddur.
Í Vergínu var gröf Filippusar
Makedóníukonungs skoðuð en hún
fannst árið 1977 og var merkilegasti
fornleifafundur síðustu aldar. Því-
næst lá leiðin um slóðir Alexanders
mikla í Pellu. Lokaviðkomustaðirnir
voru síðan í Laugarskarði og á
Maraþonvöllum áður en snúið var
aftur til Aþenu.
Þau Oddur og Bergljót segja að
ekki megi gleyma að minnast á nýja
neðanjarðarlestarkerfið í Aþenu en
mikið af fornminjum hefur fundist
við framkvæmdirnar. „Þeir segja að
ekki megi reka niður skólfu án þess
að eitthvað merkilegt finnist. Það er
t.d. mjög gaman að skoða neð-
anjarðarlestakerfið í Aþenu, en þar
hefur verið komið upp glerbúrum á
hverri stöð með þeim fornminjum
sem fundist hafa þar um kring. Þar
er allt frá litlum listmunum til heilu
grafanna.“
Þau Bergljót og Oddur segjast
líklega aldrei hafa fræðst um jafn-
margt á einu ferðalagi og sé Sigurði
A. Magnússyni þar mikið að þakka.
„Hann Sigurður er bæði ákaflega
fróður og fús til að veita hvers kyns
upplýsingar. Hann var heldur ekk-
ert að kjafta mann í kaf heldur hélt
alltaf stutta tölu á hverjum stað.
Síðan mátti maður bara spyrja og
var sama hvort maður spurði um
söguna eða gríska samtímamenn-
ingu, aldrei kom maður að tómum
kofunum,“ segja Grikklandsfararnir
að lokum.
Bergljót Gunnarsdóttir: Við kyndilinn á gamla ólympíuvellinum í Aþenu.
heida@mbl.is
FERÐALÖG
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2004 25
Hvað voruð þið mörg sem genguð
saman þessa leið og hvaða vötn urðu
á leið ykkar?
„Það var nú fremur fámennt en
einstaklega góðmennt að þessu sinni
en við vorum sex sem gengum þessa
leið. Ferðin hófst við Hlíðarvatn í
Hnappadal, síðan komum við að
Hítarvatni, Langavatni, Háleiks-
vatni,Vikravatni og að lokum Hreða-
vatni.“
Er þetta erfið gönguleið og hvað
genguð þið marga tíma á dag?
„Fyrsta dagleiðin var stutt, þá
gengum við um ellefu kílómetra og
það tók okkur um fjóra tíma en
hækkunin var um þrjú hundruð
metrar. Landslagið á þeirri leið er
auðvelt til göngu og við tjölduðum á
bökkum Hítarvatns. Önnur dagleiðin
var um tuttugu kílómetrar og var um
níu tíma ganga um mjög fallegt
landslag. Hluti hópsins gekk síðan
upp að Háleiksvatni sem er í 540
metrum yfir sjávarmáli, umlukið
fjöllum. Aðrir sóluðu sig í blíðskap-
arveðri og tuttugu stiga hita. Síðan
gengum við yfir Gvendarskarð og
niður að og með fram Langavatni en
það vatn ber sannarlega nafn með
rentu. Lokadaginn gengum við yfir
Beylárheiði að Vikravatni og þaðan
niður að Hreðavatni. Þessi dagur var
einna tilbreytingarlausastur og land-
ið þýft og því frekar leiðinlegt til
göngu en þó ekkert erfiði. Á Bifröst
var síðan tekið á móti okkur með
grilli og glæstum veigum af gömlum
skólafélögum í sól og borgfirskri
blíðu.“
Hvað tókstu með þér í bakpok-
ann?
„Nauðsynlegar vistir og klæðnað,
en þar sem gangan var stutt og frek-
ar auðveld að þessu sinni leyfði mað-
ur sér að taka með sér fleira en nauð-
synlegt þykir. Ein gönguvinkona
mín gaf mér upptrekkt útvarp og
vasaljós í þessari ferð en í fyrra hafði
ég víst haldið mikla ræðu um frá-
bærleika þeirra nýju tækja sem nota
ekki aðra orku en þá sem fæst úr
manni sjálfum. Ég er ennþá alveg
heillaður af græjunum og geymi
þessar gersemar á besta stað í stofu-
skápnum.“
Ferðu í fleiri en eina langa göngu-
ferð á hverju ári?
„Já, ég fer svona eina til tvær
göngur á hverju ári og í ár fórum við
hjónin upp á Hvannadalshnjúk til að
halda upp á 19. júní. Þar hitti ég vin
minn Teit Þorkelsson sem tjáði mér
að ekkert væri erfiðara en að ganga
á Hvannadalshnjúk, nema þá
kannski barnsfæðing. Veit ég vel að
Teitur hefur klifið margan tindinn,
bæði hér heima og erlendis, en
hvernig hann öðlaðist þessa þekk-
ingu á barnsfæðingum veit ég ekki.“
Hvar gistuð þið á leiðinni?
„Þetta var tjaldferð og er fátt
dásamlegra en að sofa í tjaldi langt
frá mannabyggðum um hásumar. Ég
hvílist vel ef ég passa að fara eftir
nokkrum mjög mikilvægum heil-
ræðum. Mest legg ég upp úr að
tjalda sem lengst í burtu frá þeim
sem hrjóta hvað hæst, hef með mér
eyrnatappa og uppblásna flug-
vélakoddann minn undir höfðinu.
Góð bók og koníaksfleygur eru líka
ómissandi. Annars tókst nokkrum
hröfnum að halda fyrir okkur vöku í
þessari ferð. Engir eyrnatappar gátu
lokað fyrir hávært krunk þeirra.“
HVAÐAN ERTU AÐ KOMA?
Gengið milli vatna
Þórhallur Barði Kára-
son er meðlimur í hinum
vaska gönguklúbbi Ás-
björn elskan og er ný-
kominn úr þriggja daga
göngu um svokallaða
Vatnaleið sem liggur frá
Hlíðarvatni í Hnappa-
dalssýslu yfir að Hreða-
vatni í Mýrasýslu.
Morgunblaðið/Þorkell
Þórhallur Barði Kárason göngugarpur.
Smyril Line í Þýskalandi
SMYRIL Line opnar nýja söluskrifstofu
í Þýskalandi í byrjun september, en
skrifstofunni er ætlað að styrkja stöðu
Smyril Line í Þýskalandi. Skrifstofan
verður í Kiel og munu tveir starfs-
menn starfa þar í byrjun.
„Ef við ætlum að styrkja stöðu okkar á
þýska markaðnum þá er nauðsynlegt
að gera það með eigin starfsemi og
söluskrifstofu í Þýskalandi,“ segir Jó-
hannes á Váli, framkvæmdastjóri P/F
Smyril Line, en
J.A. Reinecke mun áfram starfa sem
aðalumboðsaðili þar til söluskrifstofan
tekur til starfa í september. Öllum fyr-
irspurnum varðandi ferðir 2005, verð-
ur eftir þann tíma að beina til nýju
skrifstofunnar.
Golf í London
GB Ferðir hafa gert samning við hót-
elið The Grove í London. Hótelið opn-
aði í september 2003 og er nú vinsælt
helgarhótel fræga fólksins í London.
Það hefur verið í
byggingu síðastliðin 8 ár en bygging-
unni var breytt í 227 herbergja fimm
stjörnu hótel. Á hótelinu eru 3 veit-
ingastaðir, 3 barir, 2 sundlaugar, veislu-
salur fyrir 500 manns, líkamsrækt-
arsalur og heilsulind Golfvöllur
hótelsins er hannaður af Kyle Philips.
GB Ferðir verða fyrst um sinn að bjóða
upp á þriggja daga pakka á The Grove.
Innifalið er: Flug til London með flug-
vallasköttum, tvær nætur með morg-
unverði og 2x 18 holur. Pakkarnir eru í
boði alla laugardaga í september októ-
ber og nóvember og kosta kr. 59.900.
Nýtt heimilisfang Smyril Line í
Þýskalandi:
Smyril Line Deutschland, Sell
Speicher, Wall 55, 24103 Kiel.
Símanúmer: 0431-200886, Fax-
númer: 0431-2008870
Netfang:
deutschland@smyril-line.de
Heimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna.
Geymið auglýsinguna.
www.lavilla.dk
sími 004532975530 • gsm 004528488905
Kaupmannahöfn - La Villa
Ódýrari bílaleigubílar
fyrir Íslendinga.
Bílar frá dkr. 1.975,- pr. viku.
Innifalið í verði; ótakmarkaður akstur,
allar tryggingar, engin sjálfsábyrgð.
(Afgr. gjöld á ugvöllum).
Höfum allar stærðir bíla, 5 – 7 manna
og minibus 9 manna og rútur með/án
bílstjóra.
Sendum sumarhúsaverðlista;
Dancenter sumarhús
Lalandia orlofshver ,
Danskfolkeferie orlofshver
Hótel. Heimagisting. Bændagisting.
Ferðaskipulagning.
Vegakort og dönsk GSM símakort.
Fjölbreyttar upplýsingar á heimasíðu;
www.fylkir.is
www.fylkir.is sími 456-3745
Bílaleigubílar
Sumarhús
DANMÖRKU