Morgunblaðið - 28.08.2004, Side 26
DAGLEGT LÍF
26 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Ný sending af
buxum
iðunn
tískuverslun
Kringlunni, s. 588 1680
buxur fást í
3 lengdum
Vöruhúsið heildverslun kynnir
fallegu gjafavörurnar fást í helstu
blóma og gjafavöruverslunum.
Garðurinn við Munkaþver-árstræti 23 á Akureyri eróvenju litríkur, en eigend-urnir Jón Jóhannesson og
Sigrún Magnúsdóttir leggja áherslu
á fjölbreytileika og litadýrð í garði
sínum. Þar er einnig að finna úrval
ýmissa berjarunna, eins og rifsber,
sólber, jarðarber og stikilsber,
kirsuberjatré er í garðinum og am-
erískur bláberjarunni, en síðast en
ekki síst eru í garðinum kraftmiklir
hindberjarunnar sem gáfu góða
uppskeru síðastliðið sumar og það
sama er upp á teningnum nú.
„Ég býst við að fá eitt til tvö kíló af
hindberjum núna í haust,“ segir Jón.
Þau Jón og Sigrún keyptu húsið
árið 1990 en nokkrum árum síðar
gaf nágrannakona þeim sprota af
hindberjarunnum sínum. „Hún hafði
verið með þessa runna í sínum garði
en reynt að halda þeim í skefjum,“
segir Jón. Runnunum var komið fyr-
ir í garðinum norðanverðum, „alls
ekki á besta stað, þeir standa þarna
nánast óvarðir fyrir norðanvindi,
það hefur oft blásið hressilega um
þá, þeim hefur ekki verið hlíft“, seg-
ir Jón.
Góð uppskera
Hann segir það hafa tekið runn-
ana töluverðan tíma að verða svo
öflugir sem þeir eru nú. „Það byrjaði
með því að við sáum eitt og eitt ber
og lengi vel trúði ég því að ekkert
yrði úr þessu, en svo var það í
fyrrasumar sem ég fékk fyrstu
virkilega góðu uppskeruna,“ segir
Jón, „og mér sýnist hún muni síst
verða lakari núna í sumar. Þetta
sýnir að það er ekkert mál að rækta
hindber utanhúss sums staðar á Ís-
landi.“
Hann sagði runna í garðinum hafa
stækkað óskaplega mikið á nýliðnu
blíðviðrissumri og uppskeran er eft-
ir því. Nefnir Jón að til að mynda
rifsberin hefðu verið fullþroskuð í
byrjun ágúst, tæpum mánuði fyrr en
vant er. Nú sligast runnarnir undan
eldrauðum berjunum „og ég veit
ekkert hvað ég á að gera við þetta
allt saman“, segir hann. Á fullt af
rifsberjahlaupi inni í búri frá und-
anförnum árum. „Þegar maður er
kominn með þrjá árganga þá fallast
manni bara hendur.“
Jón segir nauðsynlegt að tína
hindberin strax og þau eru tilbúin,
þau séu að því leyti lík jarðarberjum,
eyðileggjast ef þau eru ekki tínd
fljótlega. Hann segir hindberin
einkar góð, en á heimilinu eru þau
aðallega notuð fersk, ein sér eða
með ís. Þegar svo uppskeran er eins
mikil og nú síðastliðin tvö sumur
hefur hann sett berin í pott og álíka
mikið magn af sykri út í. Blöndunni
hleypir hann upp og hrærir í af og
til. „Ég sýð þetta í smástund, alls
ekki lengi, ég vil sjá anga af berjum í
pottinum,“ segir hann. Maukið er
svo sett í þar til gerða frystipoka, en
að sögn Jóns frýs það ekki þar sem
svo mikill sykur er í því. Hann segir
maukið, sem er mjög seigt, henta
með eftirréttum af ýmsu tagi, t.d.
yfir marenstertur eða ítalskar
pavlovur.
RÆKTUN | Ótal berjategundir við Munkaþverárstræti á Akureyri
Morgunblaðið/Kristján
Jón Jóhannesson: Með vel þroskuð hindber en í garðinum eru líka bláber,
jarðarber, stikilsber, sólber og kirsuber.
Hindber í garðinum
Fréttasíminn
904 1100