Morgunblaðið - 28.08.2004, Qupperneq 45
MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2004 45
DRENGJAKÓR REYKJAVÍKUR
HALLGRÍMSKIRKJU
auglýsir eftir góðum söngröddum
Undirbúningsdeild 6-8 ára
Æfingar á mánudögum frá
kl. 16.00-17.00
Aðalkór 9-12 ára
Æfingar á mánudögum og
miðvikudögum frá kl. 17.00-19.00
Nánari upplýsingar og skráning í síma 896 4914
www.drengjakor.is
Heimsferðir bjóða nú síðustu sætin
á ótrúlegu tilboði til Costa del Sol
þann 29. september. Tryggðu þér
ferð á vinsælasta staðinn í sólinni
og njóttu dvalarinnar í einu besta
loftslagi í heimi á hreint ótrúlegum
kjörum. Þú getur valið um 2
frábæra valkosti, okkar vinsælustu
íbúðir, Principito Sol, eða gott 3ja
stjörnu hótel með hálfu fæði allan
tímann.
Skógarhlíð 18, sími 595 1000.
www.heimsferdir.is
Verð kr. 69.990
M.v. 2 í herbergi með hálfu fæði, 3 vikur
með sköttum.
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Costa del Sol
3 vikur með hálfu fæði
frá kr. 69.990
29. sept. - 3 vikur
Las Palomas ***
Fallegt hótel í hjarta Torremolinos, rétt fyrir
ofan ströndina, með góðri þjónustu, garði,
sundlaug, veitingastöðum og örstutt að
ganga í allar áttir. Frábær kostur á hreint
ótrúlegu verði. Hálft fæði innifalið allan
tímann.
Verð kr. 65.990
M.v. 2 í íbúði, 3 vikur með sköttum.
Principito Sol
Vinsælustu íbúðir Heimsferða á Costa del
Sol með frábærri aðstöðu. Mikil þjónusta er
í hótelinu, veitingastaðir, skemmtun,
heilsudagskrá, verslanir og móttaka.
Sumartónleikar
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
Laugarnestanga 70, 105 Rvík.
www.lso.is - lso@lso.is
sunnudaginn 29.08. kl. 20.30
Gruppo Atlantico ásamt
Sigurlaugu Eðvaldsdóttur
fiðluleikara og Guðrúnu
Þórarinsdóttur lágfiðluleikara.
Tónverk eftir Robert Schumann
þriðjudaginn 31.08. kl. 20.30
Gruppo Atlantico ásamt Signýju
Sæmundsdóttur sópran.
Verk eftir Haydn, Brahms, Zaretsky
og Hjálmar H. Ragnarsson.
TÍMINN er eitt meginviðfangsefni
Finns Arnars Arnarssonar á sýningu
hans í Listasafni Reykjavíkur –
Hafnarhúsinu. Ritar Ólafur Gíslason
listfræðingur vandaðan inngang í
sýningarskrá þar sem hann rekur
hugleiðingar Jorge Luis Borges um
tímann út frá draumförum Chuang
Tzu og svo niðurstöður Arthurs
Schopenhauers að augnablikið sé
eina form alls lífs, að enginn upplifi
fortíð eða framtíð. Vissulega merki-
leg uppgötvun sem Schobenhauer
gerði á 19. öldinni, sem menn eins og
Chuang Tzu/Lao Tzu og Gautama
Buddah höfðu reyndar kennt 24 öld-
um áður. Þeir notuðu þó ekki rök-
fræði til að sannfæra huga manna um
hið tímalausa augnablik heldur lögðu
áherslu á upplifunina sjálfa. Því hefur
það reynst vestrænum rökfræð-
ingum erfitt að nota vísidóm þeirra
nema í dæmisögum. Gautama Budd-
ah kallaði slíka upplifun „Dhyana“
sem þýðist frá forn-sanskrít sem
„meðvitund án hugsana“. Það á samt
ekki við að hugsun sé ekki með í
myndinni. Hugsunin er einfaldlega
án fortíðar eða framtíðar, tóm. Hefur
enska orðtakið „time stood still“ (tím-
inn stóð í stað) líka verið notað sem
bókstafleg lýsing á upplifuninni.
Flest þekkjum við þessa upplifun
að einhverju leyti. Höfum kannski
komist í tæri við hana þegar við
stöndum frammi fyrir mikilfenglegri
náttúrufegurð eða jafnvel stórbrotnu
listaverki. Það er því ekki að ástæðu-
lausu að fagurfræði sé ein helsta und-
irstaða listsköpunar. Listin snýst jú
um að skapa vettvang fyrir upplifun
og treystir Finnur Arnar augljóslega
á þann þátt myndlistar umfram allt
annað.
Sex myndbandsupptökur af kyrr-
settum hvítum stól sem eru sýndar
frammi við innganginn í sýningar-
salinn, kunna að vekja upp vangavelt-
ur um fortíð og framtíð. Einhvern
tímann hefur verið setið í stólnum og
síðar mun einhver sitja þar. En þetta
augnablik situr enginn í stólnum.
Hann er tómur. Formræn mynd á
vegg. Inni í sýningarsalnum býðst
sýningargestum svo að sitja á sams
konar stólum og horfa á tvískiptar
myndbandsupptökur af sjávar-
þorpum og landslagi teknar í mis-
jöfnum tíma, tuttugu mínútna upp-
tökur klipptar niður í tvær 10
mínútur. Tvö tímaskeið sýnd saman.
Það sem er sláandi við þessi mynd-
skeið Finns Arnars er að þar gerist
sama og ekkert. Allavega ekki í upp-
tökunum sjálfum. Það kann hins veg-
ar margt að gerast hjá áhorfand-
anum. Sumum finnst þetta eflaust
hundleiðinlegt og fara bara út vegna
þess að hraðann og áreitið vantar
sem við höfum vanist í bíó og í sjón-
varpi. En málið snýst ekki um það.
Hér er heilmikið áreiti í gangi, en það
kemur ekki utan frá heldur innan frá.
Það er nefnilega fátt ef þá nokkuð
jafn áreitið og aðgerðarleysi þegar
maður á annað borð horfist í augu við
það. En oftast forðast maður aðgerð-
arleysi, að minnsta kosti með því að
hugsa um fortíð eða framtíð.
Finnur Arnar hefur blómstrað í
myndlistinni þetta árið. Verið á
starfslaunum, sýnt og starfað mark-
visst og ánægjulegt að sjá hann ljúka
launatímanum með þetta stórri sýn-
ingu. Ég verð þó að játa að mér finnst
honum hafa tekist mun betur upp á
sýningunum í Nýlistasafninu og í
Safni þar sem myndefnið var ekki
þetta viðtekið og verkin komu svo
óþægilega nálægt manni að það hefði
verið rangt að fara frá þeim án þess
að leyfa sér að upplifa þau. Svo er
ekki raunin með landslagsmyndirnar
í Hafnarhúsinu. Þær eru fjarrænar
myndir á vegg. Snerta mann ekki
þetta ákaflega og vísa jafnvel í klisj-
una um íslenska landslagsmálverkið.
Ég get hins vegar ekki annað en
dáðst að framkvæmdinni sjálfri. Tel
það hugrekki á tímum þegar ímynd
og ytra áreiti eru í hávegum höfð að
leggja fram andhverfuna. Að snúast
gegn gildum Rómar þegar svo freist-
andi er að velta sér upp úr þeim.
Hið tímalausa augnablik
MYNDLIST
Listasafn Reykjavíkur –
Hafnarhúsið
Opið alla daga 10–17. Sýningu lýkur
3. október.
MYNDBANDSINNSETNING –
FINNUR ARNAR ARNARSSON
Morgunblaðið/ÞÖK
Myndbandsverk Finns Arnars Arnarssonar í Hafnarhúsinu.
Jón B.K. Ransu
Undirritaður gerði þau mistök
í vinnubrögðum að vitna í pistl-
inum Af listum í Morgun-
blaðinu hinn 26. ágúst í grein
sem birtist í blaðinu þann sama
dag. Það er ófrávíkjanleg
vinnuregla að leyfa viðmæl-
endum blaðsins að njóta um-
mæla sinna í blaðinu áður en
þau eru gagnrýnd eða vitnað til
þeirra á einhvern hátt.
Undirritaður biðst afsökunar
á því að þessi mistök áttu sér
stað.
Hávar Sigurjónsson.
Afsökun
ÞRJÁR ljósmyndasýningar verða
opnaðar í Hafnarborg í dag. Allar
eiga það sammerkt að ljósmynd-
ararnir eru konur, auk þess sem við-
fangsefni einnar sýningarinnar eru
skartgripir hannaðir af konum og
innblásnir af þjóðþekktum konum í
Danmörku.
Katrín Elvarsdóttir sýnir ljós-
myndaröðina Minni, sem er túlkun
hennar á því hvernig takmarkanir
minnis geta litað minningar. Við
gerð myndanna studdist Katrín við
sálfræðikenningar um meðfædd höft
minnis, sem geta mótað það hvernig
upplifanir eru geymdar. Verkin
verða þannig eins konar skráning á
því hvernig minningar okkar allra
mótast af sömu reglum.
Katrín sagði í samtali við Morgun-
blaðið að myndefnið væri af hvers-
dagslegum hlutum sem allir gætu
kannast við og átt minningar um.
„Ég hugsa mér þetta sem röð af
römmum og myndirnar eru af sama
hlutnum frá mismunandi sjónar-
hornum.“
Í sýningarskrá segir menningar-
fræðingurinn Sigrún Sigurðardóttir
um verk Katrínar: „Ljósmyndir
Katrínar Elvarsdóttur tala til þess
sem liggur í felum. Samt fela þær
ekki í sér frásögn. Þær fela aðeins í
sér upplifuð augnablik. Augnablik
sem finna sér ekki stað í endurminn-
ingunum. Augnablik sem standa ut-
an við tungumálið en vakna af vær-
um blundi fyrir einstæða tilviljun og
heltaka áhorfandann stundarkorn.“
Katrín útskrifaðist með BFA
gráðu frá Art Institute of Boston ár-
ið 1993 og hefur síðan tekið þátt í
fjölda samsýninga og haldið einka-
sýningar í Bandaríkjunum, Dan-
mörku og á Íslandi.
Nútímakonur
Sýningin Kvinder i tiden, eða Nú-
tímakonur, er tvíþætt. Annars vegar
eru sýnd ljósmyndaportrett af átján
konum sem allar eru þjóðkunnar í
Danmörku, og hins vegar skart-
gripir eftir fimm danska skart-
gripahönnuði sem innblásnir eru af
konunum.
Hugmyndasmiðurinn á bak við
sýninguna er gullsmiðurinn Lisbeth
Nordskov, en auk hennar hafa
skartgripahönnuðirnir Katrine
Borup, Gitte Helle, Jeanette Lopez-
Zepeda og Mette Saabye hannað
skartgripi fyrir þrjár til fjórar konur
hver. Ætlunin er að skartgripirnir
endurspegli persónuleika hverrar
konu fyrir sig, styrk hennar og sér-
kenni, innri og ytri fegurð.
Ljósmyndarinn Linda Hansen
myndaði konurnar, sem eiga það
sameiginlegt að vera þjóðþekktar í
Danmörku fyrir störf sín á vettvangi
stjórnmála, leiklistar, bókmennta,
fjölmiðla, tónlistar eða myndlistar.
Þeirra á meðal eru leikkonan Iben
Hjejle, stjórnmálamaðurinn
Marianne Jelved, biskupinn Lise-
Lotte Rebel og kvikmyndaframleið-
andinn Vibeke Windeløw.
Mads Kjædegaard arkitekt setur
upp sýninguna.
Íslenskar sundlaugar
og óljós mörk
Danska listakonan Astrid Kruse
Jensen, sem leggur stund á ljós-
myndun og vídeólist, dvaldi í gesta-
vinnustofu Hafnarborgar sl. vetur
og hafa verk úr þremur myndröðum
eftir hana verið sett upp í kaffistofu
Hafnarborgar.
Í myndröðinni Hypernatural eru
átta myndir af íslenskum sundlaug-
um úti í náttúrunni, þar sem lista-
konan dregur fram þögnina og fjar-
veruna í umhverfinu. Myndröðin
Imaginary realities samanstendur af
ljósmyndum sem eru á mörkum
veruleikans. Þar er birtan notuð til
að breyta þekktu og hversdagslegu
rými í annað mikilfenglegra og dul-
úðugra. Einnig verða sýndar nokkr-
ar myndir úr myndröðinni Hidden
places, sem allar eru frá Hafnarfirði
og teknar í ljósaskiptunum, þar sem
erfitt er að greina á milli veruleika
og ímyndunar.
Astrid nam við Listaakademíuna í
Amsterdam og Listaskólann í Glas-
gow. Verk hennar hafa verið sýnd
víða í Evrópu.
Sýningarnar þrjár í Hafnarborg
standa til 20. september og eru opn-
ar alla daga nema þriðjudaga frá kl.
11 til 17.
Myndlist | Þrjár ljósmyndasýningar opnaðar í listamiðstöðinni Hafnarborg
Konur, skart
og minni
Morgunblaðið/ÞÖK
Katrín Elvarsdóttir við eina af myndum sínum í Hafnarborg.
Skartgripur hannaður af Mette
Saabye fyrir myndlistarkonuna og
rithöfundinn Sophiu Kalkau.
NORSKI blaðamaðurinn og rithöf-
undurinn Åsne Seierstad ætlar að
reyna fyrir sér sem leikskáld, því
hún vinnur um þessar mundir að
nýju leikriti, í samvinnu við leik-
konuna og leik-
skáldið Rebekka
Karijord, og mun
Dramaten í
Stokkhólmi ætla
að sviðsetja verk-
ið. Samkvæmt
heimildum Verd-
ens Gang er
vinnutitill leik-
ritsins Dóttir
bóksalans, en í
verkinu er fjallað sérstaklega um
eina af aðalpersónunum í bók
Seierstads, Bóksalinn í Kabúl, en
bókin vakti heimsathygli þegar hún
kom út á sínum tíma. Í bókinni seg-
ir frá fjölskyldu sem Seierstad bjó
hjá um tíma í Kabúl skömmu eftir
að Bandaríkjamenn flæmdu talib-
ana frá völdum.
Seierstad
skrifar leikrit
Åsne Seierstad