Morgunblaðið - 28.08.2004, Page 50

Morgunblaðið - 28.08.2004, Page 50
50 LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ AÐDÁENDUR Bjarkar Guð- mundsdóttur, sem voru að brima á Netinu í vikunni, rákust á dul- arfullt lag, þar sem sagt var að bandaríska söngkonan Kelis væri að syngja nýja útsetningu á lag- inu „Oceania“, sem Björk flutti á setningarhátíð Ólympíuleikanna í Aþenu. Marga grunaði að um væri að ræða einhvers konar heimafram- leiðslu sem einhver hefði búið til og sett á Netið, en nú hefur tals- maður Bjarkar staðfest, að um sé að ræða raunverulega upptöku þar sem þær Björk og Kelis syngi saman. „Þetta eru algerlega og án efa Kelis og Björk,“ hefur fréttavef- ur MTV eftir Sherry Ring, tals- konu Bjarkar. „Lagið komst ekki á plötu Bjarkar vegna þess að það var tekið upp svo seint en það voru gerðar af því margar útgáfur.“ „Oceania“ verður fyrsta smá- skífulagið af plötunni Medúlla, sem kemur út eftir helgina. MTV segir að þær Björk og Kelis hafi sungið lagið saman þótt þær væru í nærri 4500 km fjarlægð hvor frá annarri. Kelis söng lagið í New York en Björk var á Ís- landi. Hins vegar hafi samstarf þeirra hafist á síðasta ári. „Við tókum þátt í sýningu sem hét Tískan rokkar í Lundúnum á síðasta ári,“ segir Kelis, „og bún- ingsherbergin okkar voru hlið við hlið. Björk var með geisladisk með Peaches sem var bilaður og ég gaf henni mitt eintak. Svo við fórum að tala saman og hittumst eftir sýninguna. Við skiptumst á símanúmerum og síðar bað hún mig að syngja. Mér hefur alltaf þótt efnið hennar gott, svo ég sagði já.“ Lagið komst á Netið eftir að það var spilað í útvarpsþættinum Breezeblock á BBC en hægt er að nálgast hann á Netinu. Tals- maður Bjarkar segir við fréttavef MTV að ekki séu áform um að gefa lagið út með formlegum hætti. Tónlist | Brimarar finna óvænta upptöku af lagi Bjarkar Björk og Kelis syngja saman Miðasala opnar kl. 13.30 Sýnd kl. 8 og 10.40. B.i. 14 ára. Mjáumst í bíó! Sjáið frábæra gamanmynd um frægasta, latasta og feitasta kött í heimi! Sýnd kl. 2, 4 og 6. ísl tal. Sýnd kl. 8.Sýnd kl. 8 og 10.15. Mjáumst í bíó! Sýnd kl. 2, 4 og 6. ísl tal. / Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Enskt tal. Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Sjáið frábæra gamanmynd um frægasta, latasta og feitasta kött í heimi! Sýnd bæði með íslensku og ensku tali. Í Stepford er eitthvað undarlegt á seyði Frábær gamanmynd með toppleikurum CHRISTOPHER WALKEN BETTE MIDLER FAITH HILL CLENN CLOSE NICOLE KINDMAN MATTHEW BRODERICK Þetta var ekki hennar heimur.. en dansinn sameinaði þau! Sjóðheit og seiðandi skemmtun! Sýnd kl. 2. ísl tal. Kr. 500 Yfir 20.000 gestir! Yfir 20.000 gestir! Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40. EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS kl. 2.30, 5.20, 8 og 10.40. Myrkraöflin eru með okkur! Mögnuð ævintýra- spennumynd! FRUMSÝNINGFRUMSÝNING Sérstök samantekt Gísla Sigurgeirssonar fréttamanns á svipmyndum úr bæjarlífi Akureyrar, í tilefni Menningarnætur. Síðustu menningarnótt var troðfullt á allar sýningar, og nú kemur Gísli með nýtt og spennandi efni. Frítt inn meðan húsrúm leyfir. Sýnd kl. 4, 5, 6 og 7. Sýnd kl. 10. BÆRINN VIÐ POLLINN GENGIN SPOR Sýnd kl. 3. ísl tal. Kr. 200. Uppáhalds köttur allrar fjölskyldunnar er kominn í bíó! Ein besta ástarsaga allra tíma. EFTIR METSÖLUBÓK NICHOLAS SPARKS Ein besta ástarsaga allra tíma. EFTIR METSÖLUBÓK NICHOLAS SPARKS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.