Morgunblaðið - 13.10.2004, Qupperneq 15
OSRAM flúrperur á
alla vinnustaði
Jóhann Ólafsson & Co Sundaborg, Johan Rönning Sundaborg/Akureyri,
Rekstrarvörur, Osram Perubúðir: Árvirkinn Selfossi, Faxi Vestmannaeyjum,
R.Ó. Rafbúð Reykjanesbæ, Glitnir Borgarnesi, Rafbúðin Hafnarfirði,
G.H. Ljós Garðabæ, Þristur Ísafirði, Ljósgjafinn Akureyri, S.G. Egilsstöðum,
Lónið Höfn, Straumur Ísafirði, Víkurraf Húsavík, Vírnet Borgarnesi.
Rafverkstæði Árna Elíssonar Reyðarfirði.
Höfuðborgin | Akureyri | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skap-
ti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson,
krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-
5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg-
arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Bók um Auðunarstofu | Hólanefnd
hefur gefið út bók um Auðunarstofu á
Hólum, byggingu hennar og söguna á
bak við hana.
Kristnihátíð-
arsjóður og
Menningarsjóður
styrktu útgáfuna.
Hið íslenska bók-
menntafélag sér
um dreifingu
hennar.
Á vef Hólaskóla, www.holar.is, kemur
fram að norski biskupinn Auðun rauði lét
reisa Auðunarstofu um 1317. Stóð húsið í
hartnær 500 ár en var rifið 1810. Í bók-
inni er gerð grein fyrir endursmíði húss-
ins á árunum 2000 og 2001 en það gerði
Hólanefnd í samvinnu við Norðmenn.
Höfundar bókarinnar eru Sigurjón
Páll Ísaksson fræðimaður, Gunnar
Bjarnason húsasmíðameistari, Guð-
mundur Guðmundsson framkvæmda-
stjóri Hólanefndar og verkefnisstjóri,
Atle Ove Martinussen ráðgjafi hjá
Norskri handverksþróun og Þorsteinn
Gunnarsson arkitekt sem jafnframt er
ritstjóri.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Sundlaug á Eskifirði | Samþykktar
hafa verið tillögur að nýrri sundlaug á
Eskifirði. Gert er ráð fyrir 25 m langri
laug, heitum pottum og þremur vatns-
rennibrautum. Búningsklefar verða fyrir
um 160 manns og verða þeir einnig not-
aðir sem aðstaða fyrir íþróttavöll við
sundlaugarbygginguna. Nú er verið að
fergja lóðina og reiknað með að fram-
kvæmdir hefjist seint í vetur.
Skátar í Vest-mannaeyjum munuí samvinnu við
Smiðjuhóp skáta halda 10.
smiðjudagana um næstu
helgi. Mótið hefst föstu-
daginn 15. október kl. 20
en á laugardagskvöld
verður kvöldvaka og eru
allir velkomnir á hana.
Þriðju helgina í október
ár hvert er haldið um allan
heim svokallað JOTA/
JOTI. Þá hittast skátar
fyrir framan talstöðvar og
tölvur í öllum heimsálfum.
Um er að ræða notkun
upplýsingatækni við að
tengja saman unglinga
alls staðar í heiminum í
þágu friðar. Smiðjuhópur
skáta og Radíóskátar hafa
haldið smiðjudaga fyrir ís-
lenska skáta undanfarin
10 ár. Nánari upplýsingar
er að finna á vefnum, á
www.foringinn.is.
Smiðjudagar
Heimilisfólk á Dvalarheimilinu Hjallatúni í Víker ánægt með sólpall sem smíðaður hefur ver-ið við heimilið. Pallurinn var smíðaður af
starfsmönnum Mýrdalshrepps, Gunnari Braga Jóns-
syni og Ólafi Þórðarsyni, og afhenti Guðlaug Guð-
mundsdóttir forstöðumaður þeim gjöf frá heim-
ilisfólki. Pallurinn var vígður í kaffisamsæti sem haldið
var í tilefni af því að heimilið verður fimmtán ára á
þessu ári og þar kom saman heimilisfólk, starfsfólk og
ýmsir gestir. Fulltrúi Kvenfélags Hvammshrepps af-
henti heimilinu borð og stóla til að nota á sólpallinum.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Sólpallur fyrir heimilisfólk
Rúnar Kristjánssoná Skagaströnd erhreykinn af upp-
runa sínum:
Löður gýs frá Ægis öldu,
enn á vísan besta málið.
Drangey rís úr djúpi köldu,
dagur lýsir klettastálið.
Honum verður hugsað
til Ársæls í Vinstri-
grænum og séra Gísla:
Á Króknum er sem
áður gaman,
enginn stressaður.
Þar að völdum sitja saman
Sæll og Blessaður!
Og lítur svo til himins:
Meðan hugans hljóðu þrár
hylla vonir bjartar.
Yfir Nöfum himinn hár
hlýjum bláma skartar.
Loks veltir hann fyrir
sér mannlífinu:
Íslendingum öllum vil ég kjósa
arfinn besta vítt um landsins
heim.
En Skagfirðingum hlýt ég æ að
hrósa,
höfðingslundin er svo rík í
þeim.
Höfðingslund
pebl@mbl.is
Mývatnssveit | Búast má við
hörðum vetri ef eitthvað er að
marka gömlu þjóðtrúna um að
mýsnar fái fréttir af veðri fyrr en
aðrir. Þær grafi holur sínar þar
sem skjólsælast verður. Þessar
þrjár holur sunnan í rofabarði
nærri Jarðbaðshólum í Mývatns-
sveit benda til norðanáttar og
kulda. Dreif af lúsamulningum er
við holurnar en stutt er þar í eld-
rauð, bústin berin á sortulynginu.
Morgunblaðið/BFH
Músin býst við hörðum vetri
Þjóðtrú
Keflavíkurflugvöllur | Flugvallarstjórinn á
Keflavíkurflugvelli segir að enn standist
flugvöllurinn allar öryggiskröfur þótt
varnarliðið hafi fækkað verulega í slökkvi-
liðinu með uppsögnum undanfarna mán-
uði.
Varnarliðið hefur sagt upp sautján
slökkviliðsmönnum á undanförnum mán-
uðum. Starfsmenn liðsins voru 120 áður en
til uppsagnanna kom en eru nú liðlega eitt
hundrað.
Björn Ingi Knútsson flugvallarstjóri
segir að Alþjóðaflugmálastofnunin geri
ákveðnar kröfur til öryggis á Keflavíkur-
flugvelli og sé flugvallarslökkviliðið mikil-
vægur hluti þess. Þurfi að vera ákveðinn
fjöldi manna á vakt allan sólarhringinn, í
samræmi við flugumferð. Segir Björn Ingi
að samkvæmt þeim upplýsingum sem hann
hafi frá slökkviliðinu sjálfu sé ekki verið að
ógna þeim mörkum.
Flugmálastjórn hefur á undanförnum
árum og áratugum tekið yfir verkefni við
framkvæmdir og rekstur Keflavíkurflug-
vallar, verkefni sem varnarliðið kostaði áð-
ur. Spurður að því hvort til greina kæmi að
Íslendingar tækju yfir rekstur flugvallars-
lökkviliðsins að öllu leyti eða að hluta vísar
Björn Ingi í viðræður íslenskra og banda-
rískra stjórnvalda um varnarmál. Þar
hljóti málið að koma til umræðu og verða til
lykta leitt. „Fyrir mig sem flugvallarstjóra
er það mikið mál að flugöryggismálum sé
vel sinnt og flugvallarslökkviliðið er vissu-
lega stór þáttur í því,“ segir Björn Ingi.
Flugöryggi
ekki ógnað
Fækkun í
flugvallarslökkviliði
Ísafjörður | Ísfirsku feðgarnir Ásgeir Guð-
bjartsson og Guðbjartur Ásgeirsson hafa
selt bát sinn Guðbjörgu ÍS til Suðureyrar.
Þeir hafa fest kaup á nýjum bát og er hann
væntanlegur í næsta mánuði. Er þetta ní-
unda Guggan hans Geira á 48 árum. Kem-
ur þetta fram á vef Bæjarins besta á Ísa-
firði.
„Það er önnur Cleopatra, aðeins stærri
og hraðskreiðari. Við fáum hana líklega
seinni hluta nóvember,“ segir Ásgeir í frétt
á bb.is. Aðspurður hvort nýja Guggan verði
líka gul segir Ásgeir svo ekki verða og þyk-
ir það tíðindum sæta. „Hún verður hvít. Við
ætlum að prófa að hverfa inn í fjöldann.“
Þeir feðgar hafa bætt örlítið við sig í afla-
heimildum, enda búast þeir við því að fiska
meira með nýja bátnum en þeim gamla.
Níunda Guggan
til Ísafjarðar
♦♦♦
Ráðnir í Grindavík |
Bæjarráð Grindavíkur
hefur samþykkt að ráða
Nökkva Má Jónsson í
stöðu félagsmálastjóra
og skólamálafulltrúa
Grindavíkur. Halldór
Ingvason kennari hefur
haft starfið með höndum.
Á fundi skipulags- og byggingarnefndar
Grindavíkur var kynntur nýr bygging-
arfulltrúi Grindavíkur. Það er Guðni Þór
Gunnarsson, byggingartæknifræðingur hjá
Verkfræðistofu Suðurnesja. Hann tekur við
af Benedikt Inga Sigurðssyni hjá sömu
stofu.