Sunnudagsblaðið - 07.09.1958, Page 8

Sunnudagsblaðið - 07.09.1958, Page 8
452 Gunnar Hall: Kerruöldin EG VAR að lesa um það í blöð- unum, að hinn 20. júní væi'u lið- in 45 ár síðan fyrsta Fordbifreið- in oUi á sínum tíma straum'hvörf- um í samgöngumálum þjóðarinn- ar og hafði mikil áhrif á atvinnu- hætti og þjóð'ífið í heild. Þegar ég hafði lesið það sem ritað var um þennan merkisatburð fór ég að rifja upp fyrir mér í stórum dráttum sögu samgöngumálanna á landi, á íslandi. Við fljóta yfir- sýn virðist mér mega skipta henní í þrjú tímabil. Fyrsta tímabilið frá 874—1904 tímabil hestsins og klakksins. Tímabilið 1904—1913 tímabilið frá „Klakki í vagn“, og aftlr 1913 tímabi! bifreiðanna. Nánar tiltekið. Byltingin í sam- göngumálum hefst sama árið og stjórnin flyzt inn í landið. Það var vor í lofti. Þýðingarmiklum á- fanga var náð í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Fögnuður ríkti í hug um íslendinga því úrslitaorustan í sjálfstæðisbaráttunni hlaut að vera í nánd. íslendingar voru líka tilbúnir til þess að leggja allt í sölurnar til þess að öðlast full- komið frelsi og sjálfstæði. Við hlið forustumannanna í sjálfstæð- isbaráttunni risu einnig upp aðr- ir menn, sem einnig notuðu sína orku til uppbyggingar landsins bæði til lands og sjávar. Við skulum litast um í höfuðstað lands ins. Reykjavík, og athuga hversu þar er áfátt er stjórnin flyzt inn í landið. Eitt blaðanna lýsir því á þennan hátt: Hér eru mörg hlut- verk sem við getum spreytt okk- ur á. Bæ vo^n brestur gott og holt neyzluvatn; hann vantar al- menniiéga húsaskipun, viðunan- SUNNUDAGSBLAÐIÐ og Krisfinn vagnasmiður leg stræti og rennur; kirkjugarð, sem sé samboðin siðuðum mönn- um; hæfilegan skóla fyrir ungl- inga vora, er vilia afla sér dálí'.ið meiri men itunar en barnaskólinn getur iátið í té. Bærlnn á enga kirkju er taki nándar nærri Vá safnaðarins; ekkert hús til fjöl- scttra mannfunda; ha-.in á enga brúk’ega bryggju; höfn vor er órtygg og liggur undir stór- skemmdum. Þegar við nú lítum til baka um farinn veg síðustu 50 árin, og rifjum udd fyrir okkur þessar staðreyndir þá fer ekki hiá bví, að við h'iótum að trúa því að enn gerist, kraftaverk. Þegar hugsað er til þess hvernig ástandið var hér á iandi 1904, og þess, hvað gert hefur verið síðan, er ekki hægt að komast hiá því að minnast orða Christmas Möllers formanns í- haldsflokksins danska, er hann kom heim úr íslandsför 1939 og sagði við heimkomuna til Kaup- mannahafnar; — ísland er bezta vitni þess, hvað þióð, sem verður sjálfstæð, getur afrekað. En við skulum minnast þess um leið, að slíkt átak er ekki framkvæmt á þann hátt, að menn komist hjá því að vinna. Þessi árangur hefur náðst einungis af því, að menn lögðu hart að sér, forðuðust vinnu svik og biðu ekki alltaf eftir því að tími væri kominn til að hætta. Mér finnst, að um leið og minnst sé komu fvrsta „Fords- ins“. þá eigi um le>ð að minn- ast stærstu byltingarinnar j sam- göngumálunum, sem var byltingin frá „Klakki í vagn“, sem tvímæla laust var á sínum tíma mikið stærra skref, en breytingin fiá hestvagni í bifreið. Á santa tíma og Henry Ford fullkomnaði bif- reiðir sínar vestur í Ameríku, var maður heima á íslandi sem aldr- ei féll verk úr hendi, og fram- leiddi þau samgöngutæki, sem á- líka þörf var fyrir hér heima og bí’ana vestur í Ameríku. Maður þessi var Kristinn Jónsson, vagna smiður, sem kalla mætti með sanni Ford íslands. Kristinn Jónsson var fæddur að Hrauni í Ölfusi. Sonúr hjón- anna Jóns Halldórssonar og Guð- rúnar Magnúsdóttur. Þau hjón eignuðust alls 13 börn og náðu 8 þeirra fullorðinsaldri, og var Krist inn næst yngstur þeirra. Kristinn missti föður sinn er hann var 3ja ára. Guðrún móðir hans bjó á Hrauni um mörg ár. Átján ára að aldri byrjaði Kristinn að læra tré- smíði hjá Sigurðu Ólafssyni á Eyr- arbakka. Er Ölfusárbrú var smíð- uð, var Kristinn yngsti smiðurinn við brúarsmíðina. Eins og fyrr er sagt ólst Kristinn upp á Hrauni, sem var í þjóðbraut, er ferjað var í Óseyrarnesi yfir Ölfusá. Hraun var næsti bærinn vestan við ána, þó, góður spölur sé frá ferju- staðnum að bænum. Þar kynnt- ist hann hinni illu meðferð á hest- unum vega hins langa sunds yfir ána, og einnig því, hve lestamönn um leið oft illa verjulausum í alls konar veðri, að mjakast áfram með lestirnar, í öllum hér- uðum landsins var ástandið í samgöngumálunum eitthvað svip- að þessu. Um samgöngumálin innanbæjar í höfuðstaðnum var ritað í blöðin á þessa leið: Það

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.