Sunnudagsblaðið - 07.09.1958, Side 12

Sunnudagsblaðið - 07.09.1958, Side 12
45 0 SUNNUDAG5BLAÐIÐ fz Erican Ljung: FLAMINGO — Kvikmyndasaga -- ..Nr. 5 Ég skellihló og haí'ði ekkj á- l''yggíur af slíku. Paul horfð'i undr andj á mig um leið og hann sagoi: — Þú ilur auðsjáanlega ekki hve mikið er í veði. Þú getur tap- að öilum peningunum þínum, öllu, sem þú hefur látið í fyrirtækið. — Ég er að hugsa um að kaupa hlut Coru Brink í fyrirtækinu, svo að þú einn ráðir yfir þvi. Paul varð svo glaður við þessi orð, að hann tók mig í fang sér, sneri mér í hring og kyssti mig Þar til ég stóð á öndinni. Erich Vogt vinur minn sá um kaupin á hluta'bréfum Coru. Húr. var mjög ósanngjörn og ég varð að kaupa þau á þreföldu verði, en ég hafði þau og nú gat Paul ráðið fyrirtækinu einn. Paul réði tvo unga teiknara í staðinn fyrir Coru, en þeir reyndust léiegir, og ég var á hnotskóm eftir góðum teiknara. Ég fékk Christian Backwitz til þess að fára með mér á nokkrar máliverkasýningar. Nafnið Hei- muth von Barnholm vakti strax athygli okkar, enda kom það síð- ar í Ijós, að sá málari bjó yfir miklum hæfileikum. Ég útvegaði mér nokkrar teikn ingar eftir hann og sýndj Paul. Við gerðum honum tilboð um að vinna í fyrirtækinu. En við urðum ekki lítið undr- andi þegar þessi efnileg teiknari reyndist vera kona, Helga Barn- holm. Það kom í minn hlut að ráða hana að fyrirtækinu. Að vísu gat hún ekki unnið nema í óá- kveðinn tíma cða þangað til hún íiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiuiuiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiuli hafði unnið sér fyrir farareyrj til Tokio. Hún var mjög hrifin af japanskri li.st og var ákveðin að kynnast henni náar. Helga Barnholm var óhsmju dugleg og fyrirtækið gekk mjög vel og eftir stuttan tíma var Paui búinn að greiða mér helminginn af þeim peningum, sem ég hafði iánað honum í fyrrtækið og því hefði Erich aldrei trúað. Dag nokkurn fórum við Paul af tilviljun að ræða um dugnað Helgu cg ég lét orð um það falla, að hún hiyti að vera búin að vinna sér fyrir farinu til Japan fyrir löngu. Paul játti því um jeið og sagðist vona að hún yrði eitt- hvað lengur hjá sér, því hún væri svo óhemju dugleg og í rauninni ætti hann henni alla sína vel- gengni að þakka. Ég leit rannsakandi á Paul og fékk ákafan hjartslátt. Það að Paul kæmi til hugar að Helga hætti við ferð sína til Japan að- eins til þess að vinna á auglýs- ingaskrifgtofu hans þótti mér vægast sagt grunsamlegt. —i Hefur Helga hætt við ao fara til Japan? spurði ég svolítið ákaft. — Já, eiginlega, svaraði Paul um leið og hann rétti mér ávísun, sem var síðasta afborgunin af því sem ég hafði lánað honum. Ég er hreykinn af gð geta jafnað svona fljótt skuld mína vio þig, Ina, þakka þér fyrir lánið. Hann brosti til min, en ég þekkti hann of vel til þess aö ég vissi að brosiö vai ekki ekta. Ávísunin stakk mig illa, ég vissi að hún var greiðsla frá Pauls hendí fyrir það liðna- Og hann þnrfti ekki einu sinni lengur á peningum mínum að halda. Frá þeirri stundu vissi ég að Helga var honum meira virði en ég. Á meðan við töluðum um Helgu, reyndi ég að sýnast róleg. Ég taldi sjálfri mér trú um að á meðan hann gæti talað við mig um hana, væri ástin aðeins á henn ar hlið, og mér fannst það mjög eðlilegt að svo ung og óreynd stúlka hrifizt af töfrum Pauls. Af- brýðisemin sauð í mér og ég gat ekki alltaf leynt henni. Ég horfði rannsakandi á Paul í hvert skipti sem hann kom heim til þess að yiía hvort hann væri ekki likur því, sem hann var þeg- ar hann var með þeim Mariönnu og Coru. Þó að hið ytra væri eng- in breyting, gat ég ekki verið leng ur lífsglöð og það fór heldur ekki fram hjá Paul. Kvöld nokkurt þegar hann kom heim úr vinnunni fremur seint, spurði hann mig blátt áfram hvað amaði að mér. Þú ert orðin svo dauf og þreytuleg að ég naum- ast þekki þig. Mér brá viö þessa spurningu.

x

Sunnudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.