Sunnudagsblaðið - 07.09.1958, Page 16

Sunnudagsblaðið - 07.09.1958, Page 16
460 SUNNUDAGSBLAÐIÐ a BREYILEG LJÓSA- PERA. Amerískt raftækjafyr- irtæki nokkurt hefur fund ið upp og hafið fram- leiðslu á ljósaperum, með mismunandi ljósastyrk- leika- Getur hver og ein pera lýst 50—200 og 250 vatta orku allt eftir því á hvaða styrkleika hún er stillt. Ljósið á perum þess um er talið mjög þægilegt fyrir augun, og á ending perunnar að vera um þús und klukkstundir. —o— GÓDUR KAUPBÆTI. Maður nokkur að nafni John Stuart, keypti ný- lgea lítinn kistil í dánar- b’>i. en þegar hann fór að aðgæta kistilinn nánar fann hann 70.000 doilara í lit’u hólfi í kistlinum. er sá framiiðni, eigandi kist iisins hafði geymt þar. —o— TIL HVETíS KARLMENN? Kunn leikköna ein sagði nýi°ga' ..Til hvers ætti ég að giftast? Écr á hana, sem p alar. náfa- gauk, sem bölvar, kolaofn sem reykir og kött, sem er aidrei heima á næt- urna. —o— 200 ÁR FRÁ DAUÐA IIANS EGEDE. Þann 5. nóvember í haust eru 200 ár liðin frá dauða Hans Egede, og minnist póststjórnin á Grænlandi þessara tíma- móta með því að gefa út Egede-frímerki. — Prest- urinn og trúboðinn Hans Egede var fæddur árið 1686 og dó 1758. Hann fór til Grænlands í þeim til- gangi að hefja þar trú- boðsstarf meðal afkom- enda Norðmanna og ís- lendinga, en starf hans varð upp frá bví holv-’ð eskimóum. Innflvtjend- urnir frá Noregi og ís- landi voru fyrir löngu liðnir undir lok og afkom endur þeirra ú^dauðir, eft ir að þeir höfðu tapað sambandinu við heima- lönd sín. Eftir að Hans Egede kom aftur frá Grænlandi, und’rbió hann presta til' trúboðsstarfa meðal eskimóa. —o— ALI.IR GETA ORDID SJÓVEIKIR. Tilraunir hafa skorið úr því að allir geti orðið sjóveikir, aðeins ef hreyf ing skipsins er nógu mik- il, en þó hafa ýmis önnur atriði áhrif á það. í Banda ríkjunum hafa menn út- búið sérsiök tæki við sjó- veikistilraunir, t. d. rólur, vippur, hringekjur og lyft ur, en þær geta framleitt sjóveiki jafnvel hjá sjó- /hraustum mönnum. KNATTSPYIJNU- IIETJAN KRÚSTJOV Það er ekki aðeins á himni stjórnmálanna, sem stjarna Krústjovs stendur hátt. Rússnesk í- þróttalblöð lofsyngja hann mjög og hampa því, hver afburða knattspyrnu maður hann hafi venð fyr ir 40 árum, en geta þess ekki að knattspyrnufrægð hans var þá takmörkuð við verksmiðju eina. sem hann vann í, og var éinn af knattspyrnumör.num fyrirtækisins í firma- keppni. NEI, TAKK! Grétu Garbo hefur verið boðin hálf milljón dollara til þess að koma fram í sjónvarpi, en hún hefur ákveð.ð svarað: „Nei, takk!“ --------------------------------■—\ SUNNUDAGSBLAÐIÐ Éitstjóri og ábyrgSarmaður: Ingólfur Kristjánsson. Stórholti 17. Sími 16151. Box 1127. AFGREIÐSLA: Hverfisgötu 8—10. Sími 14900. Prentsmiðja Alþýðublaðsins.

x

Sunnudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sunnudagsblaðið
https://timarit.is/publication/302

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.