Morgunblaðið - 08.11.2004, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913 305. TBL. 92. ÁRG. MÁNUDAGUR 8. NÓVEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
Litrík og
lífsglöð
Unglingarnir voru flottir í ódýrum
og notuðum fötum | Daglegt líf 18
Fasteignir | Sagan milli þilja Tjarnahverfi í Reykjanesbæ Bruna-
bótamat og raunvirði Íþróttir | Bikarmeistari með Brann Meistari í
borðtennis 100 milljóna króna mark Tryggva Arnar í Hollywood
Fasteignir og Íþróttir í dag
STJÓRNVÖLD í Írak settu í gær neyðar-
lög í öllu landinu að undanskildum Kúrda-
héruðunum og gilda þau í 60 daga. Er ætl-
unin að auðvelda með þessum hætti
allsherjaratlögu gegn uppreisnarmönnum í
borgum í svonefndum „súnní-þríhyrningi“
vestan og norðan við Bagdad.
Þingkosningar verða í Írak í janúar. „Við
viljum tryggja öryggi í landinu svo að kosn-
ingar geti farið fram með friðsamlegum
hætti og íraska þjóðin geti tekið þátt í þeim
án þess að hræðast hryðjuverkamenn og öfl
sem grafa undan stjórnmálaþróun í Írak,“
sagði Iyad Allawi forsætisráðherra í gær.
Uppreisnarmenn gerðu árásir á mörgum
stöðum í súnní-þríhyrningnum í gær og
fyrradag og munu alls hafa fallið um 60
manns í þeim. Var m.a. ráðist á lögreglu-
stöðvar í borgunum Haditha og Haqlan-
iyah, norðvestan við Bagdad og 22 lögreglu-
menn felldir. Bíll var sprengdur í gær við
heimili fjármálaráðherra Íraks, Adil Abdel-
Mahdi en hann er einn af þekktustu leiðtog-
um sjíta. Abdel-Mahdi sakaði ekki.
Einna öflugastir eru uppreisnarmenn í
borginni Fallujah og þar telja írösk stjórn-
völd og Bandaríkjamenn að séu bækistöðv-
ar hryðjuverkamannsins Abu Musabs al-
Zarqawis. Talið er að árásirnar annars stað-
ar í landinu hafi meðal annars átt að draga
úr þrýstingnum á Fallujah.
Neyðarlög
sett í Írak
Bagdad, Fallujah og grennd. AP, AFP.
Reuters
Tveir bandarískir landgönguliðar búa sig
undir allsherjarárás á borgina Fallujah.
AFRÍKUSAMBANDIÐ
studdi í gær tillögu sem
samþykkt var í öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna um að
fordæma árásir á franska
friðargæsluliða á Fíla-
beinsströndinni.
Níu franskir friðar-
gæsluliðar voru felldir í
loftárás stjórnarhersins á
laugardag, Frakkar svör-
uðu með því að granda öllum flugvélum
stjórnarinnar. Stjórn Laurents Gbagbos,
forseta Fílabeinsstrandarinnar, rauf á
fimmtudag ársgamalt vopnahlé og réðst á
her uppreisnarmanna. Gbagbo sakaði í gær
Frakka um að hafa myrt tugi vopnlausra
borgara en Frakkar og SÞ hafa samanlagt
um 12.000 friðargæsluliða í landinu.
Franskir friðargæsluliðar komu í gær á
ró í stærstu borg landsins, Abidjan. Sagði
Michele Alliot-Marie, varnarmálaráðherra
Frakklands, að ástandið væri „stöðugt en
vissulega ríkir mikil spenna, því er ekki
hægt að neita“. Þúsundir manna höfðu áður
farið með ránum og eldi um Abidjan.
SÞ fordæmir
árásir á Frakka
Addis Ababa, Abidjan, París. AFP.
Fílabeinsströndin
Michele
Alliot-Marie
♦♦♦
BOBBY Fisch-
er, fyrrverandi
heimsmeistari í
skák, hefur sent
Þórði Ægi Ósk-
arssyni, sendi-
herra Íslands í
Japan, bréf þar
sem hann óskar
formlega eftir
pólitísku hæli á Íslandi. Fischer er
í varðhaldi í borginni Ushiku norð-
ur af Tókýó og er eftirlýstur í
Bandaríkjunum fyrir að hafa brot-
ið gegn samskiptabanni sem SÞ
settu gagnvart Júgóslavíu, en þar
háði hann einvígi við Borís
Spasskíj árið 1992.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins hafa íslensk stjórnvöld at-
hugað hvernig hægt væri að lið-
sinna Fischer. Það sé þó ekki til
alvarlegrar skoðunar að veita hon-
um pólitískt hæli.
Fischer segir í upphafi bréfsins,
sem er handskrifað, að það sé afar
brýnt að hann fái hæli sem fyrst
vegna þess að geislavirk efni leki
úr kjarnorkuverinu í Tokaimura
sem sé í nágrenni sínu. Kjarn-
orkuslys varð í verinu árið 1999.
Í bréfinu kemur fram að hann
vilji hvorki deyja vegna geisla-
virkrar mengunar í Japan né í
fangelsi í Bandaríkjunum. Fremur
vilji hann deyja frjáls maður í
vinalegu þriðja landi. Í eftirskrift
bréfsins segir hann að ef banda-
rísk stjórnvöld segi að það muni
ekki hafa góð áhrif á samskipti
landanna veiti Íslendingar honum
pólitískt hæli eigi Íslendingar að
svara því til að glæpir Bandaríkj-
anna gegn Bobby Fischer hafi svo
sannarlega ekki góð áhrif á sam-
skiptin.
Bobby Fischer, fyrrverandi heimsmeistari í skák
Vill pólitískt hæli á Íslandi
Bobby Fischer
Upphaf bréfsins til sendiherra Íslands í Japan.
BOEING 747-200 fraktþota Flugfélagsins Atl-
anta, TF-ARR, rann fram af braut í flugtaki á
flugvellinum í Sharjah, skammt frá Dubai, í
Sameinuðu arabísku furstadæmunum síðdegis í
gær. Þotan, sem var í fraktflugi fyrir Lufthansa,
var að leggja af stað til Frankfurt fulllestuð af
frakt og eldsneyti og var því um 350 tonn. Eng-
inn um borð slasaðist. Vélin er mikið skemmd
og er óvíst talið hvort hún flýgur á ný.
Þrír flugmenn, þar af einn íslenskur, og flug-
vélstjóri voru í áhöfn. Þeir fóru út um dyr rétt
aftan við stjórnklefann en slökkvilið flugvallar-
ins kom á staðinn þegar þeir voru að klifra út.
Þeir gáfu stutta skýrslu á staðnum, báru sig vel
og kenndu sér einskis meins líkamlega en voru
færðir til læknisskoðunar til öryggis. Atvikið
varð klukkan 16.35 að staðartíma. Þotan var
komin nálægt flugtakshraða þegar flugmenn
ákváðu að hætta við flugtakið.
Þegar séð varð að ekki yrði unnt að stöðva
vélina á flugbrautinni brugðu flugmennirnir á
það ráð að sveigja henni til vinstri rétt við braut-
arendann þar sem er ósléttur og sendinn jarð-
vegur. Nefhjól vélarinnar brotnaði og annar
hjólabúnaður skemmdist, sandur þyrlaðist inní
mótorana og skemmdir eru sjáanlegar á búk.
Einar Óskarsson, flugöryggisfulltrúi Atlanta,
var staddur í Dubai og hélt þegar á vettvang í
Sharjah, sem er í um 20 km fjarlægð. Í samtali
við Morgunblaðið sagði hann það mildi að flug-
mennirnir skyldu sleppa ómeiddir.
Unnið var að því í gærkvöld að losa eldsneyti
úr vélinni og var vettvangsrannsókn að hefjast.
Metið verður í dag hvenær unnt verður að flytja
flakið frá brautarendanum en eina braut flug-
vallarins er lokuð á meðan.
Fraktþota Atlanta fram af flugbraut í Sameinuðu arabísku furstadæmunum
Þotan mikið skemmd og
óvíst hvort hún flýgur á ný
Dubai. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/jt
Skemmdir á þotunni kannaðar.
Þotan er mikið skemmd þar sem hún bíður á brautarendanum í Sharjah. Hún var fulllestuð af frakt og eldsneyti og vó um 350 tonn.